Þjóðviljinn - 22.09.1981, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 22.09.1981, Blaðsíða 16
DWÐVIUINN Þriðjudagur 22. september 1981 Aöalslmi Þjóöviljans er 81333 kl. 9-20 mánudag til föstudaga. Utan þess tima er hægt að ná I blaðamenn og aöra starfsmenn blaösins I þessum simum: Ritstjórn 81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, ljósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9-12 og 17-19 er hægt aö ná I áfgreiöslu blaðsins i sima 81663. Blaðaprent hefur sima 81348 og eru blaöamenn þar á vakt öll kvöld. Aðalsími 81333 Kvöldsími 81348 Helgarsími afgreiðslu 81663 Maraþonkeppni skátanna: „Veikara kynið” reyndist sterkt Margt er sér til gamans gert og nú um helgina léku hinar ýmsu björgunarsveitir sér að þvi að hlaupa á milli Landmannaiauga og Þórsmerkur á einum degi, leið sem okkur hinum finnst hæfilegt að fara á fjórum dögum. Samt fannst björgunarsveitarfólkinu ekki nóg að gert, þvi að eld- snemma daginn eftir sem var sunnudagur, lagði hópurinn, eða þeirsem enn voru göngufærir aft- ur af stað upp á Fimmvörðuháls. Þessi stuttaralega frásögn er af nýstárlegri keppni sem Lands- samband hjálparsveita skáta og Skátabúðin gengust fyrir og köll- uðu Fjallamaraþon. Sigurvegarar i þessu fyrsta Fjallamaraþoni voru Andrés Þór Bridde og Magnús Dan Bárðar- son og var timi þeirra 12 klst. og 57 min. 1 öðru sæti voru Vigfús Pálsson og Kjartan Ingason á 14.32, en i þriðja sæti með sex min lakari tima voru þær Anna Lára Friðriksdóttir og Vilborg Hannes- dóttir. Tekið skal fram að keppt var i 2ja manna sveitum og luku 8 sveitir keppni af 18 sem hófu hana. Hér eru stúlkurnar sem náðu þriðja sæti og blésu ekki úr nös: Vilborg Hannesdóttir og Anna Lára Friöriksd. Fréttamyndj > um | Skyggni \ It ájdnvarpinu á sunnu- I dagskvöld var i fyrsta sinn I sýnd fréttamynd sem fengin • , var um jarðstöðina Skyggni. " IVar þar um að ræða mynd af I skipverjum Tungufoss, er I þeir komu til lands f Eng- I , landi eftir gifturika björgun. ' IAÖ sögn sjónvarpsmanna skortir töluvert á tækjakost tilþessað hægtséað taka við I , fréttamyndum undir venju- * Ilegum kringumstæðum, en I vegna þess að þetta var á sunnudegi og vinna lá niðri i I , stúdiói var hægt að taka við * Isendingunni, enda sér- I pöntuð. Allt er óljóst um fram- I , hald móttöku mynda sem * Isendar eru um gervihnetti, I þær kosta skildinginn sam- kvæmtgjaldskrá Eurovision I , og sjónvarpið þarf að fjár- ‘ Ifesta I tækjum, en eins og | kunnugt er herðist sultarólin I hjá sjónvarpinu fremur en • Sigurvegararnir á fullri ferð ásamt þeim sem lengst af veittu þeim harða keppni: Frá v. Magnús Dan Bárðarson, Helgi Benediktsson, Arnór Guðbjart.sson og Andrés Þór Bridde, allir frá Hjálparsveit skáta i Rvik. Skipverjarnir koma heim í dag Tungufoss sökk rétt við England Annað skip Eimskips sem ferst á skömmum tíma Ms. Tungufoss sökk sl. laugardagskvöld út af Landsend viö suðvestur- horn Englands. Mannbjörg varð og slys urðu ekki á mönnum, en 11 manna áhöfn vará skipinu. Skípverjum var bjargað um borð i björgunarskip og þyrlu og síðan fluttir til flotastöðvarinnar í Culrose og til Penzance. Þeir eru væntanlegir heim til íslands um miðjan dag i dag. Tungufoss var á leigu til erlends aðila og flutti i þessari siðustu ferð sinni 1900 tonn af lausu hveiti frá Avonmouth i Englandi og var á leið til Le Havre i Frakklandi. Skipið var statt skammt úti fyrir suðvestur- horni Englands kl. 19.30 að islenskum tima, er það tók skyndilega á sig um 30 gráðu halla. Þegar siðustu skipverjum skipsins, var bjargað, var hallinn oröinn um 90 gráður. Veður var mjög slæmt á þessum slóðum og átti áhöfn skipsins i miklum erfiðleikum með að komast frá borði. Sjö skipverjum var bjargað um borö i björgunarskip, en nokkur skip komu til hjálpar þegar Tungufoss sendi út neyöarskeyti. Hinum fjórum var bjargaö um borð i þyrlu breska sjóhersins. Tungufoss var smiðaöur I Dan- mörku 1973 og var 2100 DWT að stærö. Skipið var sérútbúiö fyrir flutninga á kisiljárni fyrir Járn- blendiverksmiðjuna á Grundar- tanga. Að sögn Arna hefur ekki veriö tekin ákvörðun um leigu eða kaup á nýju skipi I stað Tungu- foss. Þetta er annaö skip Eim- skipafélagsins sem ferst með skömmu millibili. Ms. Berglind sökk við Nýfundnaland fyrir rúm- um mánuði og þarf að leita allt aftur til striðsáranna að jafnj voru tvö skip félagsins skotin miklu skipatjóni Eimskips, en þá niður. — lg. | vinnusioia ivjarvais. l,jusiii; gei. ■ Hvað verður um vinnustofu Kjarvals? (Erlent tilboðj i llggur fyrir i Ítdag lýkur að Kjarvalsstöð- um sýningu á vinnustofu meistara Kjarvals. Hvað * verður um vinnustofuna, það Ier spurning sem margir velta fyrir sér. Verður hún keypt af innlendum aðila eða hverfur " hún til dtlanda? Borgin hefur Ieitthvað þreifað fyrir sér um kaup, en ekkert liggur fyrir um það hvort af veröur. Þá " staðfesti Guðmundur Axels- son eigandi vinnustofunnar i samtali við Þjóöviljann að honum hefði borist tilboð frá * erlendum aðila sem hann þarf I að svara fyrir 1. okt. Samkvæmt þeim heimild- um, sem Þjóöviljinn hefur aflað sér er um háar upphæðir að ræða, þó að tölur fáist ekki staðfestar. Sú hugmynd hefur komið fram að íslendingar fari eins að og Danir þegar þeir keyptu verk eftir Picasso að safna fé til kaupa á vinnustofunni, til að tryggja að hún hverfi ekki úr landi, enda vandséö aö Lifshlaup Kjarvals eigi annars staöar betur heima en á Kjarvalsstööum. Léleg hafnaraðstaða á Barðaströnd: Tveir bátar slitnuðu upp frá bryggju Annar talinn ónýtur A sunnudagsmorgun slitnuðu tveir bátar frá festum við bryggjuna á Brjánslæk á Barðaströnd. Þetta gerðist i ofsaveðri, að sögn heimildarmanns okkar Rósu tvarsdóttur að Brjáns- læk. Bátarnir sem eru um tuttug.u tonn hafa verið gerðir út á hrefnuveiðar i sumar og undanfarin sumur. Annar bátanna er talinn mikið skemmdur eða ónýtur. Þeir liggja nú báðir i fjör- unni á Brjánslæk. Ætlunin er að grafa og ýta til I sandf jör- unni, til að ná að minnsta kosti út þeim bátnum sem heillegri er. Rósa sagði, að bátarnir sem eru frá tsafirði hafi veitt Baröstrendingum mikla vinnu við vinnslu á hrefn- unni. Ahafnir bátanna eru aðallega frá Isafirði en Barðstrendingar hafa séð um vinnslu á aflanum. Auk þessara hrefnuveiðibáta eru gerðar út trillur frá Brjáns- læk en þærvoru öruggar I vik við Brjánslæk á sunnudag- inn. Hafnaraðstaðan er mjög léleg og voru bátarnir óvarðir við bryggju. —dg Óveðrið fyrir vestan Veðurstofan hafði varað við háskaveðr- inu á Vestfjörðum rúmum sólarhringi áður en óveðrið skall á. A undan veðurfréttum er sagt frá þvi ef gert er ráð fyrir stormi (níu vindstig) og var gert ráð fyrir stormi á Vestfjarðamiðum þegar kl. 16.15 á föstu- dag. Samkvæmt upplýsingum Braga Jónssonar veöurfræð- ings hjá Veðurstofunni, þá mældist vindhraði mestur 1 Æðey kl. 18.00 á laugardag eða 70 hnútar (12 vindstig). Öveðrinu olli djúp og kröpp lægð sem kom úr suðri. Bragði sagði að vindhraðinn i svona óveðri væri mjög misjafn, gæti farið yfir 12 vindstig. Það færi mikið eftir landslaginu þvi vindhviður lægju oft I strengjum. Veöur- athugunarstöðvar á Vest- fjörðum tilkynntu frá þvl á laugardagskvöld frá 8 til 12 vindstig fram á sunnudags- morgun. Þá tók að lægja með deginum. Spáð er sæmi- legu veðri næstu sólar- hringa, nema undan Aust- fjörðum, þar sem gert er ráö fyrir aö geti oröið 8 vindstig. — óg

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.