Þjóðviljinn - 25.02.1983, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 25.02.1983, Blaðsíða 7
Fimmtudagur 24. febrúar 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7 PATTSTAÐA við Persaflóa Styrjöld sú, sem staðið hef- ur með litlum hléum á milli írans og íraks frá því í sept- ember 1980 er einn af þeim harmleikjum sem virðast snerta fáa, enda hafa sjón- varpsstöðvarnar ekki aðgang að vígvöllunum og erfitt er að tengja stórveldin beint eða óbeint við þessi átök. í sóknarlotu þeirri, sem írans- her hóf fyrir 10 dögum inn yfir landamæri íraks viröist hafa skapast algjör pattstaða á ný, en kunnugir telja að hvor aðili urn sig beiti fyrir sig um 100 þúsund manna liði. Það var Saddain Hussein, for- seti íraks sem hóf þessa styrjöld með innrás í íran í september 1980, þegar mikil upplausn ríkti í landinu eftir valdatöku Khom- einis. Hann lýsti því yfir að til- gangur innrásarinnar væri að endurheimta landsvæði sem íran- ir hefðu sölsað undir sig frá írak. Innrásin verkaði öfugt við það sem Hussein hafði ætlað: hún varð til þess að efla stjórn Khóm- einis og herstyrkur hans var meiri en búist hafði verið við. Flókin hagsmuna- tengsl Nú vill Saddam Hussein losna út úr þessu stríði fyrir alla muni og hefur leitað eftir aðstoð Sam- einuðu þjóðanna um vopnahlés- samning. Khómeini hefur hins vegar lýst því yfir að stríðinu muni ekki hætt fyrr en stjórn Saddam Hussein hefur fallið. Stórveldin og Sameinuðu þjóðirnar hafa til þessa staðið ráðþrota gagnvart þessari deilu, sem blandast öðrum deilumálum eins og Palestínumálinu og verð- lagningu olíu innan OPEC með afar flóknum hætti. Fjandskapur hefur magnast á milli íraks og Sýrlands og hafa Sýrlendingar tekið málstað frana og lokað fyrir mikilvæga olíu- leiðslu íraka er lá um Sýrland. Hefur olíuútflutningur íraka dregist mjög saman og nýtur írak nú efnahagsaðstoðar frá Saudi Arabíu sem nemur einum milj- arði bandarískra dollara á mánuði. írak nýtur stuðnings flestra-ar- abaríkja annarra en Sýrlands, Khomeini: nýtur stuðnings Sýr- lendinga við að steypa Saddam Hussein í írak. Saddam Hussein: á í vök að verj- ast en nýtur stuðnings Saudi- Arabíu, Jórdaníu og Frakklands. m.a. Jórdaníu, sem engu að síður á ýmissa sameiginlegra hags- muna að gæta með Sýrlendingum gagnvart ísrael. Khomeini fjandskapast bæði við Sovétríkin og Bandaríkin og virðist eiga fáa bandamenn utan Sýrlendinga. frönum hefur þó engu að síður tekist að rétta við olíuframleiðslu sína miðað við það sem varð fyrst eftir bylting- una, og hafa þeir boðið olíuna á niðursettu verði og orðið þar með til þess að sprengja samstöðúna innan OPEC. Það ríki á Vestur- löndum sem helst hefur haft af- skipti af þessari deilu eru Frakk- ar, en þeir hafa stutt írana og m.a. selt þeim mikið af vopnum. Frakkar hafa lengi séð írökum fyrir vopnum, og hafa þeir jafnan fengið þau greidd með olíu. Nú er hins vegar svo komið að sögn Le Monde, að írakar eru ekki lengur aflögufærir með olíu, og eru það nú Saudi-Arabar sem greiða fyrir vopnin með olíu sem þeir láta Frökkum (og Japönum) í té. Segir blaðið að Saudi-Arabía og furstadæmin við Persaflóa hafi þegar veitt írak 25 miljarða doll- ara efnahagsaðstoð frá því að stríðið hófst, og aö siðasti vopna- sölusamningurinn við Frakka muni nema 6 miljörðum dollara á næstu 6 mánuðum. Það er því ljóst að stríð þetta skapar Frökk- um mikla atvinnu og umtalsverð- ar útflutningstekjur af hergögn- um. Bandarískir hagsmunir? Bandaríkin hafa haldið að sér höndum í styrjöld þessari. Svo þverstæðufull er þessi deila, að þrátt fyrir það að írak sé hefð- bundinn andstæðingur Banda- ríkjanna, m.a. vegna stuðnings Bandaríkjanna við ísrael, þá er ekki óeðlilegt að Bandaríkin hafi sameiginlega hagsmuni með Saudi-Arabíu við að stöðva út- þenslustefnu Khomeinis við Persaflóann. Það er því hægt að segja með sanni að í'þessum heimshluta sé hver höndin uppi á móti annarri og að sú hægri viti vart hvað hin vinstri gjöri. En í öllu öngþveitinu er nú her- mönnum att saman í tilgangslaust „heilagt stríð“ og herma heimild- ir að þúsundir hermanna hafi fall- ið í þessari síðustu sóknarlotu Khomeinis. ólg/Time, Le Monde. Kvennalisti til Alþingis Almennur kynningarfundur á Hótel Borg laugardag kl. 14:00 Ræðumenn: Guðrún Agnarsdóttir Sigríður Dúna Kristmundsdóttir Pórhildur Þorleifsdóttir . Fundarstjóri: Elín Ólafsdóttir Edda Björgvinsdóttir og Helga Thorberg verða „Á tali“. Áhugahópur um framboð kvenna til Alþingis. Félagsfundur Iðja, félag verksmiðjufólks, heldur almennan félagsfund í Domus Medica mánudaginn 28. febrúar n.k. kl. 17. Dagskrá: Öryggi, aðbúnaður og hollustu- hættir á vinnustöðum. Hilmar Jónasson erindreki ASÍ mætir á fundinn. Félagsmenn eru hvattirtil að mæta stundvís- lega. Stjórnin Útboð Sveitasjóður Bessastaðahrepps óskar hér með eftir tilboðum í eftirtaldar gatnagerðar- framkvæmdir. 1. Álftanesvegur við Landakot, lengd 232 m, skilatími 1. júní ’83. (Vegagerð ríkisins). 2. Sjávargata, lengd 321 m, skilatími 20. júlí ’83. 3. Blikastígur, lengd 200 m, skilatími 15. júní ’83. 4. Smáratún, lengd 144 m, skilatími 15. júlí ’83. Innifalið í hverju einstöku verki er jarðvegs- skipti, holræsa- og vatnslagnir. Engar lagnir eru í Álftanesvegi. Útboðsgögn eru afhent á Verkfræðistofu SigurðarThoroddsen h.f. Ár- múla 4, Reykjavík frá og með n.k. þriðjudegi 1. mars. Skilatrygging er kr. 1000 fyrir hvert einstakt verk. Tilboðum skal skila á Verkfræðistofu Sig- urðar Thoroddsen h.f. Ármúla 4, Reykjavík eigi síðar en föstudaginn 18. mars kl. 11 f.h. en þá verða þau opnuð þar í viðurvist þeirra bjóðenda sem viðstaddir kunna að verða. VERKFRÆÐISTOFA SIGURÐAR THORODDSEN hf Aðalfundur Aðalfundur Gigtarfélags íslands árið 1983, verður haldinn í Hreyfilshúsinu v/Grensásveg laugardaginn 5. mars n.k. kl. 14. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin KMYNDABLAt er komið út. Meðal efnis i febrúar/marz hefti: Bíó-Petersen. Kvikmyndahátíð. Spennumyndir. Fjallað er um kvikmyndina „Húsið" sem frumsýnd verður í marz. íslenskur kvikmyndaannóll 1982 og margt fleira. MINMNLARSJÓÖUR ÍSLEN/.KKAR Al.hS »)U SIGFÖS SIGURHJARTARSON Minningarkortin eru tii sölu á eftirtöldum stöðum: Bókabúð Máls og menningar Skrifstofu Alþýðubandalagsins Skrifstofu Pjóðviljans Munið söfnunarátak í Sigfúsarsjóð vegna flokksmiðstöðvar Alþýðubandalagsins

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.