Þjóðviljinn - 21.07.1983, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 21.07.1983, Blaðsíða 11
LeiklBVog KR frestað Fresta varð leik KR-inga og Eyjamanna í 8-liða úrslitum bikarkeppni KSÍ í ga:rkvöldi. Leikurinn átti að fara fram á Laugardalsvellinum, en þar sem ekki gaf til flugs urðu Eyjamenn að sitja heima. Þeir þurfa þó ekki að bíða lengi, því leikurinn fer fram i kvöld, ef veðurguðirnir lofa, og hefst hann kl. 19.30. Þrír leikir í 1. deild kvenha Þrír leikir fara fram í 1. deild kvenna í íslandsmótinu i knattspyrnu. Úrslitin í kvöld munu að öllum líkindum ráða því hvort eitthvert lið fær stöðvað lið Breiðabliks á leið til sigurs í deildinni. Á Kópavogsveili mæta Blikastúlkurnar Val og hefst leijcurinn kl. 20. Á sama tíma hefjast tveir leikir. Á Garðsvelli leika Víðir Garði, og í A og á Víkingsvelli leika Víkingar og KR. Þá fer fram einn leikur í 2. deild kvenna. Fylkir og FH ieiká í A-riðli deildarinnar og fer leikurinn fram á Árbæjar- velli. ísland á fimm þátt- takendur Fimm íslenskir borðtennis- menn taka þátt í Evrópumóti unglinga í borðtennis sem hefst á morgun í Malmö í Sví- þjóð. Þar af eru þrír piltar og þrjár stúlkur. íslensku kcpp- endurnir eru Arna Kjærne- sted, María Hrafnsdóttir, Bergur Konráðsson, Sigur- björn Bragason og Trausti Kristjánsson. Þjóðirnar tíafa verið dregn- ar í riðla og keppa íslendingar við eftirtaldar þjóðir, í stúlknaflokki: England, V- Þýskaland, Luxemborg og Frakkland. Og drengirnir (þeir lentu í mjög sterkum riðli) við: Svíþjóð, Danmörk, Skotland og Svissi Landskeppnin fer fram dagana 22/7 - 26/7, og að loknu eins dags fríi hefst ein- staklingskeppni, en þar er keppt í einliðaleik, tvíliðaleik og tvenndarkeppni. Þar mun Arna keppá við Heckwolf frá V-Þýskalandi, María situr hjá í fyrstu umferð. Sigurbjörn keppir við Sgouropoulos frá Grikkiandi, Bergur situr hjá í fyrstu umferð. Trausti mun ekki taka þátt í einstaklings- keppni þar sem hann mun sameinast hópi frá Æsku- lýðsráði Reykjavíkur, sem er á förum til Gautaborgar. í tví- liðaleik keppa þær Arna og María við Krauskopf og Lang frá Austurríki, og Bergur og Sigurbjörn við þá Manneschi og Borgetto frá Ítalíu. f tvenndarkeppni keppa Berg- ur og Arna við Madesis og Zerdila frá Grikklandi og María og Sigurbjörn við þau Hovden og Rasmussen frá Noregi. Auk unglinganna fara þeir Björgvin Hólm Jóhann- esson landsliðsþjálfari og Gunnar Jóhannsson sem far- arstjóri, en hann mun jafn- framt sitja þing Evrópusam- bandsins. Fimmtudagur 21. júlí 1983 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐÍIl-- íþróttir Víðir Sigurðsson Nokkur harka var í leik Blika og VÍkinga í gærkvöldi. Hér kýta þeir Vignir Baldursson og Heimir Karlsson, en Benedikt Guðmundsson reynir að stilla til friðar. Guðmundur Ásgeirsson hafði fremur lftið að gera í marki Breiðabliks í leiknum í gærkvöldi. Hér slær hann frá marki eftir eina af fáum sóknarlot- um Víkinga. Breiðablik í undanúrslit í Bikarkeppni KSÍ eftir 1:0 sigur yfir Víkingum: Gula sp jaldlnu óspart veifað Heldur virðist vera að draga á milli bestu og lökustu 1. deildar- liðanna a.rn.k., ef marka má úrslit leikja í 8-liða úrslitum bikarkeppni KSI í gærkvöldi. íslandsmeistarar Víkings sem hafa verið gjörsamlega heillum horfnir í allt sumar máttu enn þola tap, nú fyrir létt leikandi og skemmtilegum Blikum. Leikur liðanna fór fram við varhuga- verðar aðstæður á Kópavogsvelli, rennblautan völl. Breiðablik skoraði eitt mark, án þess að Vík- ingar gætu svarað fyrir sig, og ef eitthvað var, þá voru Blikar nær því að bæta öðru eða þriðja mark- inu heldur en hitt. Með sigrinum í gærkvöldi halda Breiðabliksmenn sér í sigurmöguleikum í tveim stærstu knattspyrnumótum, 1. deildin er þeim galopin til meiri- háttar afreka. Nokkur harka setti svip sinn á leikinn í gærkvöldi. Virtist sem leikmenn væru hálfhræddir við að reyna meiriháttar kúnstir. Barist var um hvern einasta bolta, og lítið um skemmtileg tilþrif. Það sem sást kom frá Breiðabliki og strax á 3. mínútu leiksins áttu þeir tækifæri til að komast yfir er Hákon Gunn- arsson komst í gegnum vörn Vík- inga og þrumaði á markið, en Ög- mundur Kristinsson varði frábær- lega vel. Blikar áttu nokkur hættu- leg upphlaup sem flest strönduðu á Ögmundi í marki Víkings sem var langbesti maður íslandsmeistar- anna. Hann varði laust skot Sig- urðar Grétarssonar á 34. mínútu sem hitti boltann illa í þröngri stöðu skammt frá marki. Stuttu síðar varði Ögmundur meistara- lega frá Sigurjóni Kristjánssyni og merkileg mínúta sigldi í kjölfarið er þrír Blikar, Benedikt Guðmunds- son, Sigurður Grétarson og Vignir Baldursson fengu allir að sjá gula spjaldið. Virtst dómarinn, Þor- varður Björnsson taka mun harðar á öllum brotum Breiðabliks- manna, en sjá í gegnum fingur sér ef Víkingar voru á ferð, jafnvel þó svo þeir gerðu sig seka um grófan leik, eins og t.d. Heimir Karlsson. Aðeins var lokið um fimm mín- útum er Sigurður Grétarsson skoraði eina mark leiksins af miklu harðfylgi. Hann fékk góða send- ingu inn í vítateiginn, gaf sér tíma og þrumaði í vinstra markhornið. Ögmundur varði frábærlega, en boltinn fór í stöngina og út, og Sig- urður var kominn aftur eins og eldibrandur og stangaði í netið. Var laglega að þessu marki staðið hjá Sigurði sem sýndi mikla útsjón- arsemi í þröngri stöðu. Blikar gáfu ekkert eftir þrátt fyrir markið og sköpuðu sér oft góð færi. Trausti komst í gegn, en skot hans geigaði, og þegar stutt var til leiksloka komst Sigurjón aleinn innfyrir vörn Víkinga, sem höfðu hætt sér of framarlega. Hann nýtti færi illa og úr varð markspyrna. Víkingar á hinn bóginn náðu aldrei að skapa sér almennileg færi. Við þær aðstæður sem voru á vellinum hefðu langskot átt vel við, en eng- inn virtist hafa uppburði í sér til að reyna slíkt. í síðari hálfleik fékk Magnús Þorvaldsson gult spjald. Blikar leika léttad og skemmti- legan bolta um þessar mundir. Sig- urður Grétarsson er stórhættu- legur leikmaður sem gæti reynst Blikum dýrmætur í hinni hörðu keppni í deildinni. Hjá Víkingum var Ögmundur langbestur. Sóknarleikur liðsins virðist í molum um þessar mundir. Lagist það atriði ekki, getur barátt- an um fallið, sem sjáanlega er framundan, orðið erfið. Sveinbjörn á skotskónum Skagamenn áfram eftir sigur á ÍBK í bikarkeppninni í gærkvöld Skagamenn halda áfram í bikar- keppni KSÍ eftir að hafa unnið ÍBK í hörðum og spennandi leik í Kefla- vík í gærkvöldi. Skoruðu Skaga- menn þrjú mörk gegn einu marki Keflvíkinga. Gífurleg barátta var í leiknum í gærkvöldi og gnótt marktækifæra. Keflvíkingar skoruðu þegar í byrj- un leiks. Það var Björgvin Björg- vinsson sem skoraði, en á 31. mín- útu leiksins jafnaði Sigurður Lár- usson fyrir Skagamenn. í síðari hálfleik tóku Skagamenn öll völd í leiknum og bættu við tveim mörk- um. Það var Sveinbjörn Hákonar- son sem var þar að verki í bæði Sigurður Lárússon: jafnaði leikinn skiptin. fyrir Skagamenn á 30. mínútu Calvin Smith á 10,20 sek. Bandaríski spretthlauparinn Calvin Smith sigraði örugglega í 100 metra hlaupi á miklu frjálsí- þróttamóti sem fram fór í Luxem- burg í gær. Calvin var þó fjarri sínu besta, því hann hljóp 100 metrana á „aðcins" 10,20 sek. í 2. sæti varð landi hans, Ron Browne á 10,67 sek. í 3. sæti varð breski hlaupagikkurinn Alan Wells sem hljóp á '10,69 sek. Aðstæður til hlaupsins voru góðar en þó dugði það ekki hlaupurunum til að ná betri árangri, en stutt er síðan Smith h(jóp 100 metrana undir 10 sekúndum. í hástökkskeppninni bar það helst til tíðinda að v-þýski há- stökkvarinn Dietmer Rogenburg stökk 2,30 metra sem dugði hon- um til sigurs. Þetta er sama hæð og Þjóðverjinn stökk á Evrópu- meistaramótinu í Aþenu fyrir skömmu ogidugði það honum til sigurs. Einna mesta athygli vakti bandaríska frjálsíþróttakonan Carol Lewis, en hún er systir þess frábæra frjálsíþróttamanns, Carl Lewis sem á góða möguleika á sigri í fjórum greinum á heims- meistaramótinu í Helsinki í næsta mánuði. Carol var nálægt því að stökkva 7 metra, hún flaug 6,97 metra. Þá sigraði Svisslendingurinn Peter Wirz í míluhlaupi, hann hljóp mfluna á 3:57,74 mín. í 2. sæti varð Mike Boit Kenýa á 3:57,84 mín. og þriðji varð Marc Stevens frá Belgíu á 3:57,98 mín.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.