Þjóðviljinn - 29.11.1983, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 29.11.1983, Blaðsíða 16
\U0DVHMN Aðalsimi Þjóðviljans er 81333 kl. 9 - 20 mánudag til föstudags. Utan þess tíma er hægt aö ná í blaðamenn og aöra starfsmenn blaðsins í þessum símum: Ritstjórn Aðalsími % Kvöldsími Helgarsími Þriðjudagur 29. nóvember 1983 81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, Ijósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9 - 12 er hægt aö ná í afgreiðslu blaðsins I síma 81663. Prentsmiðjan Prent hefur síma 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348 81663 Fæddíst um borð undir beru lofti „Hinn fegursti atburður“, sögðu viðstaddir Marsibil Erlendsdóttir, 23 ára átti í síðustu viku von á sínu fyrsta barni og á miðvikudagskvöld fæddist það við sögulegar að- stæður. Marsibil er dóttir vitavarðaríns á Dalatanga og býr þar með manni sínum Heiðari W. Jones. Á miðvikudag var ljóst að von var á barninu á hverri stundu og var þá lagt af stað með bíl sem leið liggur að Brekku í Mjóafirði en það er um 16 kílómetrar. Það- an er klukkutíma sigling til Norð- fjarðar í flóabátnum Anný en hann er aðeins 13 tonna trilla. Er komið var út á sjó varð ljóst að barnið var alveg á leiðinni og var þá hringt úr bátnum og beðið um að ljósmóðir yrði send á móti honum. Hildur B. Halldórsdóttir ljósmóðir brá skjótt við og fór með gúmmíbát Björgunar- sveitarinnar í Neskaupstað tii móts við flóabátinn. Mættust þeir undir Nípunni og var þá eftir um hálftíma sigling. Þegar lagst var að Sæúlfs- bryggju var of seint að fara frá borði og fæddi Marsibil 11 marka, heilbrigðan strák undir beru lofti um borð í bátnum við bryggjuna. Veður var hið besta stillt og gott en svartamyrkur. Allt var tilbúið um borð í bátnum þegar fæðingin varð, búið að skjóða skæri, spotta o.s.frv. og gekk allt að óskum. Þótt við- stöddum þetta vera hinn fegursti atburður. Móður og barni líður vel Ólöf/GFr Marsibil Erlendsdóttir með nýfæddan son sinn á sjúkrahúsinu í Neskaupstað á föstudag. Ljósmóðirin, Hildur B. Halldórsdóttir t.v. Ljósm.: Ólöf. Datsun Micra bifreið er 1. vinningur í Happdrætti Þjóðviljans Sérlega sparneytin „Þetta er aflgóður og rúmgóður smábíll og alveg sérstaklega sparn- eytinn, svo vakið hefur athygli“, sagði Júlíus V. Ingvarsson fram- kvæmdastjóri Ingvars Hclgasonar h/f þegar blaðið spurði hann álits á bifreiðinni Datsun Micra sem fyrir- tækið flytur inn, en bifreið af þess- ari tegund er einmitt 1. vinningur í happdrætti Þjóðviljans sem dregið verður í n.k. fimmtudag. Datsun Micra er nýjasti smábíll- inn frá Nissan verksmiðjunum í Japan. Innflutningur hans hingað til lands er nýhafinn en í V-Evrópu hefur bifreiðin selst mjög vel á þessu ári. Samkvæmt niðurstöðum þýsks bílablaðs eyðir bifreiðin aðeins 4.5 lítrum af bensíni á hverja 100 km og breska bílablaðið Motors gefur þessum nýja bíl sambærilega niður- stöðu. Bíllinn er þrátt fyrir það mjög hraðskreiður, enda með fimm gíra. Vélin vigtar aðeins 65 kg. enda öll smíðuð úr alúmínium en hún er 1000 rúmsentimetrar og gefur frá sér 54 hestöfl. Þá er bif- reiðin framhjóladrifin. „Ég er viss um að þessi bifreið kemur til með að verða ein af okk- ar betri sölubifreiðum, hún hefur alla eiginleika til þess, er sparneyt- in, rúmgóð og hraðskreið“, sagði Júlíus. Opið er á afgreiðslu Þjóðviljans Síðumúla 6 til kl. 19.00 í kvöld og fram á fimmtudagskvöid. Sjávarútvegsráðherra spurður grimmt á Fiskiþingi: „Þá ákvörðun ætla ég ekki að taka einn“, sagði Halldór um þorskkvótann. Hvernig á að takmarka fiskveiðarnar á næsta ári? Hvernig á að takmarka flsk- veiðarnar á næsta ári í Ijósi svörtu skýrslunnar? spurði Marteinn Friðriksson á Fiskiþingi í gær, í fyrirspurnartíma sjávarútvegsráð- herra. Halldór Ásgrímsson, sjávarút- vegsráðherra kvað ekki búið að taka neina ákvörðuna þar um og þá ákvörðun mun ég ekki taka einn, sagði hann. Benti hann á að hann biði í ofvæni eftir tillögum frá Fiski- þingi í þeim efnum. Einnig benti hann á að starfandi væri nefnd hagsmunaaðila sem fjalla ætti um þetta mál, og sagði ráðherra, að hann vildi að sem allra flestir tækju þátt í því að móta þá fiskveiðist- efnu sem farið yrði eftir á næsta ári. Ég tel, sagði Halldór, að hvað sem upp kemur í þessum efnum, hafi það sína kosti og sína galla og því happadrýgst að sem flestir taki þátt í mótun stefnunnar. - S.dór Hvemig ætlar ríkisstjómin að leysa rekstrarvanda togaranna? Fulltrúi á Fiskþingi spurði sjáv- arútvegsráðherra hvernig ríkis- stjórnin hefði hugsað sér að leysa rekstrarvanda togaranna, sem hann kvað hrikalegan. Benti hann á að án togaranna væri hér í landinu lítil atvinna, en benti jafn- framt á að í haust hefði verið 400 til 500 þúsund króna tap á hverjum túr þess togara sem hann sæi um útgerð á. Halldór Ásgrímsson sagði það spurningu að hve miklu leyti það væri mál ríkisstjórnarinnar og sjáv- arútvegsráðherra að leysa rekstrar- vanda togaranna í landinu, eða skipa yfirleitt. Hann benti á ýmsan rekstrarkostnað sem ekki væri hægt að lækka, svo sem olíukostn- að og sagðist ekki sjá nein ráð til að leysa rekstrarvandann. Lækkun vaxta á lánum og lenging þeirra leysti ekki nema brot af vandanum. S.dór Hve mikið verður leyft Einn þingfulltrúa á Fiskiþingi, Marteinn Friðriksson, spurði sjáv- arútvegsráðherra Halldór Ás- grímsson að því í gær, hve mikið stjórnmálamenn þyrðu að hækka markið frá þeim 200 þúsund lestum sem fiskifræðingarnir leggja til að veidd verði af þorski á næsta ári. Sagðist hann gera þetta í ljósi þess hruns sem hér yrði ef aðeins yrðu leyfðar veiðar á 200 þúsund lestum af þorski. Það er ekki tímabært að svara að veiða? þessari spurningu, sagði Halldór Ásgrímsson. Hann sagði að það væri ljóst, að menn vildu byggja upp þorskstofninn, en menn vildu líka halda uppi eins mikilli veiði og hægt er. - S.dór

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.