Þjóðviljinn - 01.12.1983, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 01.12.1983, Blaðsíða 16
DIOÐVIUINN Fimmtudagur 1. desember 1983 Aðalsimi Þjóðviljans er 81333 kl. 9-20 mánudag til föstudags. Utan þess tima er hægt að ná í blaðamenn og aðra starfsmenn blaösins I þessum símum: Ritstjórn 81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, Ijósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9 -12 er hægt að ná í afgreiðslu blaðsins i sima 81663. Prentsmiðjan Prent hefur sima 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. Aóalsími Kvöldsími Helgarsími 81333 81348 81663 Lék Smirnov í „Félagsheimilinuu? s Afengisauglýsíngar í sjónvarpinu i Einhvers staðar bilað siðferðisþrek, segir Ólafur Haukur Arnason - Handlöngurum áfengis- auðvaldsins virðist hafa tekist að smeygja sér jafnvel inn í ís- lenska sjónvarpsþætti, segir Ólafur Haukur Arnason áfeng- isvarnaráðunautur ríkisins í viðtali við Þjóðviljann um bjórmálið og fleira. Spyr Ólafur Haukur hvort verið gæti að atriði í þáttunum um Félags- heimilið þarsem t.d. Smirnov- svunta kemur við sögu hafi komið sem auglýsing „Hér er ég hræddur um að siðferðisþrekið hafi einhvers staðar bilað“, segir Ólafur Haukur Árnason. Ólafur Haukur bendir á að mikil drykkja hafi verið í þessum kvik- myndaþáttum og áfengismerki hafi komið við sögu. Slíkt er enda al- gengt í erlendum kvikmyndaþátt- um og er skemmst að minnast „Dallas“, þar sem viskí er sötrað á hverju miðvikudagskvöldi. Ólafur Haukur greinir frá því í viðtalinu að kvikmyndaleikarar nokkrir í Bandaríkjunum hafi myndað með sér samtök að taka ekki þátt í auglýsingum í leiknum kvikmynd- um. Gífurlegar fjárhæðir renna til áróðurs og upplýsingastarfsemi á vegum áfengisframleiðenda á ári hverju. Þannig fóru 60 miljarðar íslenskra króna til þessa á árinu 1981, og sagði Ólafur Haukur að fjármagn renni í þessu skyni hingað til lands, m.a. í gegnum umboð- smannakerfið. Sjá bls. 6. 1. des. ávarp Samtaka herstöðvaandstæðinga Endurreisn fullyeldisins Þann 1. desember 1918 lýstu íslendingar yfir fullveldi lands og þjóðar. Hlutleysisstefna á alþjóðavettvangi var þá stór þáttur fullveldishugsjónarinnar. Óháðir, hlutlausirogfrjálsirmótuðu íslend- ingar afstöðu sína til heimsmálanna, hvarvetna virtir sem friðarins menn í hörðum heimi. Með fráhvarfi frá hlutleysisstefnunni við inngöngu í NATO og með herverndarsamningnum við Bandaríkin var snúið baki við hinum gömlu friðarviðhorfum og því fullveldi og þjóð- legu reisn sem það tryggði. Síðustu þrjá áratugina hafa erlend hernaðaröfl haft afgerandi áhrif á stefnumótun ísiendinga í utanríkismálum og síðasta orðið í afstöðu þeirra til hernaðar-, friðar- og afvopnunarmála. Á alþjóðavettvangi hljómar rödd íslands ekki lengur í þágu friðar. ísland fylgir kjarnorkuvopnastefnu. Það styður uppsetningu kjarnork- uflauga í löndum Vestur- og Mið-Evrópu þvert gegn vilja fólksins í þessum löndum. Það situr í kjarnorkuvæddu hernaðarbandalagi sem hótar jarðarbúum gereyðingarstríði ef í odda skerst. Þessari herskáu stefnu, sem stjórnað er erlendis frá, verður að breyta. En það er ekki bara í utanríkismálum sem íslendingar hafa látið skerða fullveldi sitt. í efnahags- og atvinnumálum eru þeir í æ ríkara mæli háðir bandaríska setuliðinu hérog umsvifum þess. Hernaðaröflin hafa einnig komist upp með það að sýna fullveidinu vaxandi lítilsvirð- ingu. Undirgefni íslenskra herstöðvarsinna við hið erlenda vald hefur orðið til þess að ekki þykir lengur þörf á að spyrja stjórnvöld um ný hernaðarumsvif á landinu, gengið er að því vísu, að jáyrðið komi þegar eftir verður leitað. Ratsjárstöðvarnar sem nú er verið að hanna fyrir norðan og vestan eru dæmi um þetta og nýverið hafa komið fram í dagsljósið áform sem eiga að venja landsmenn við umhugsunina urn eldflaugastöðvar á landinu. Þessafi vígbúnaðarþróun sem stjórnað er erlendis frá verður að breyta. Samtök herstöðvaandstæðinga heita á stuðningsmenn sína og alla íslenska friðarsinna að herða róðurinn gegn vígbúnaðaröflunum. Það verður að knýja ísiensk stjórnvöld til endurmats á þeirri hermálastefnu sem þau fylgja og til stefnubreytingar í friðar- og afvopnunarmálum. Markmiðið er endurreisn hlutleysis og fullveldis. Samtök hersíöðvaandstæðinga Nýtt fasteignamat tekur gildi í dag Meðalhækkun matsins 53.5% 57% á höfuðborgarsvæðinu, 47% í öðrum landshlutum Samkvæmt nýju fasteignamati sem tekur gildi í dag hækkar fast- eignamat einstakra eigna til jafnað- ar um 53.5% Hækkunin er 57% á höfuðborgarsvæðinu og 47% í öðr- um landshlutum. Til samanburðar má nefna að vísitala byggingarkostnaðar hækk- aði um 66.3% frá 1. okt. 1982 til sama tíma í ár og lánskjaravísitalan um 88.4%. Samanlagt matsverð allra eigna á landinu er 141 miljarður króna. Það er 57.9% hærra en á síðasta ári. Samkvæmt því koma tæplega tvær og hálf miljón króna í hlut hverrar fjögurra manna fjölskyldu. Endurstofnverð allra eigna er 189 miljarðar ef útihúsum í sveitum er sleppt. A landinu eru 81.700 íbúðir. Á árinu bættust 1796 íbúðir í fast- eignamat. Það er 2.2% aukning, sem er nokkru minna en verið hef- ur. Heildarstærð allra mannvirkja á landinu er 65.5 miljónir rúm- metra, en samkvæmt fasteignaskrá eru 128 þúsund hektarar af rækt- uðu landi. - ekh Rætt um þinghaldið Formenn þingflokkanna hittast á fundi fyrir hádegi í dag til að ræða þinghaidið fram að jólaleyfl þing- manna eftir þrjár vikur. Fundur þessi er haldinn að tilstuðlan Al- þýðubandalagsins. Elli er samnefnari fyrir marga karlmenn, sögðu þær Edda og Helga í gær, um leið og þær tóku einn „EIIann“ á milli sín og heimtuðu mynd. Ekki er annað að sjá en Einar Karl Haraldsson láti sér samlíkinguna vel líka. Ljósm. eik. Mikill pilsaþytur á Þjóðviljanum í gœr „Sœlar elskumar, EUi er kominn‘( Þær tóku ritstjóra blaðsins á milli sín og heimtuðu mynd um leið og þær sungu sönginn um hinn lands- kunna Ella. Eins og stormsveipur fóru þær stífmálaðar og í tjullkjól- um um ritstjórnarskrifstofur Þjóð- viljans og settu allt á annan endann. Að svo búnu þutu þær leiðar sinnar og skildu eftir glóð- volga úr pressunni bók um Ella sem byggð er á útvarpsþáttunum Á tali og Vaka gefur út. - Sæl elskan! - Nei, sæl! - Er ég nokkuð að trufla? - Ja, hún Dúdda er nú reyndar hér í kaffi hjá mér.. - Hvaða Dúdda? - Hún Dúdda Benjamíns. - Neeeiii! Hún Dúdda Benja- míns! Heyrðu! Almáttugur! Hef- urðu nokkuð heyrt um að hún sé að skilja ...við hann Palla??“ Menn kannast við svona upphaf úr þáttum þeirra Eddu Björgvins- dóttur og Helgu Thorberg í útvarp-, inu. Nú hafa þær komið Ella og vandamönnum hans á þrykk í sér- stakri bók sem sniðin er eftir sím- samtölunum úr þáttunum „Á tali“. í frétt um bókina segir að grunur leiki á að Elli sé ekki neinn einn maður, heldur samnefnari fyrir marga, allir þekki hann, sumir hati hann, aðrir elski hann, og nú sé hann kominn milli blaða í bók. - Best-málið: Ekki kæra á ferð segir Kolbeinn Pálsson „Þess misskilnings hefur gætt í umfjöllun fjölmiðla um skemmti- staðinn Best í Fáksheimilinu að Æskulýðsráð hafl lagt fram kæru vegna rekstursins. Hið rétta er að við höfum óskað eftir athugun á rekstrinum með það eitt fyrir augum að geta fylgst með því æskulýðsstarfi sem þar fer fram“, sagði Kolbeinn Páisson formaður Æskulýðsráðs Reykjavíkur í sam- tali í gær. „Okkur ber samkvæmt lögum og reglum að hafa yfirsýn yfir allt æskulýðsstarf í borginni og þótt við rekum æskulýðsmiðstöðvar erum við síður en svo á móti rekstri einkaaðila og félaga. Ástæða þess að við fólum lögreglustjóra þessa athugun var einfaldlega sú að við höfum fengið kvartanir um að þarna væri sitthvað í ólagi en ég legg að svo stöddu engan dóm á hvort svo hafi verið. Rannsókn lög- reglunnar leiðir það í ljós sem fyrst“, sagði Kolbeinn Pálsson for- maður Æskulýðsnefndar. - v.. Sjá bls. 2

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.