Þjóðviljinn - 30.12.1983, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 30.12.1983, Blaðsíða 1
UOmUNN Hvaðsegjaút- gerðarmenn um horfurnar í sjáv- arútvegiá næsta ári? |PÍ|É| Sjá 16 30 desember föstudagur 300. tölublað 48. árgangur . 4wM. * ,»** *'X i P irrJ Stórfyrirtœkin og verslunin gera upp árið 1983: Gott ár - Gróðaár“ Methagnaður hjáflestumfyrirtœkjum • Forstjórar ánœgðir Umrœður að hefjast um ráðstöfun gróðans Staða Sambandsins I árslok er góð. Rekstur Flugleiða hefur skilað verulegum hagnaði á þessu ári. Útkoma verslunarinn- ar hefur reynst mjög góð. Þetta er dómur stjórnenda nokkurra stærstu fyrirtækjanna í íslensku efnahagslífi og forráða- manna atvinnurekenda þegar Þjóðviljinn leitaði álits þeirra á rekstrarniðurstöðum ársins sem nú er á enda. Árið 1983 hefur verið metár í kjaraskerðingu hjá launafólki í landinu. Rekstrarútkoma fyrir- tækjanna hefur hins vegar verið einstaklega hagstæð. Það var létt yfir forstjórunum í viðtölum þeirra. Árið 1983 hefur verið einstaklega gott. „Gróðaár - Gott ár“ eru einkunnarorð við hæfi þegar forsvarsmenn ýmissa stærstu fyrirtækjanna líta yfir farinn veg. Sjá 3 Gífurleg aukning greiðslna úr Atvinnuleysistrygginga- sjóði í ár Þreföldun á niilli ára Sjóðurinn átti að kaupa skuldabréf fyrir 76 miljónir af Byggingasjóði ríkisins - Gat ekki keypt eitt einasta bréf Hjálparstofnun kirkjunnar á ís- landi er þekkt um allan heim fyrir gott dreifingarkerfi matvæla, segir Jón Ormur Hall- dórsson, nýkom- inn úr ferð til Póllands. Bætur til atvinnulausra úr At- vinnuleysistryggingasjóði í ár nema á annað hundrað miljónum króna en á árinu 1982 voru greiddar 49 mitjónir króna, í atvinnuieysisbæt- ur. Sjóðurinn átti samkvæmt lögum að kaupa skuldabréf af Byggingasjóði ríkisins fyrir 76 milj- ónir króna en ekkert varð af þeim kaupum í ár vegna hins mikla atvinnulevsis sem gengið hefur yfir. „Atvinnuleysistryggingasjóð skortir ekki fjármagn, því höfuð- stóli hans er stór, en hins vegar að miklu leyti bundinn í skuidabréfum Byggingasjóðs ríkisins. Með hinu aukna atvinnuleysi hefur hins veg- ar gengið verulega á lausaféð en ríkissjóður er ábyrgur gagnvart greiðslu bóta ef fjármagnið hjá okkur þrýtur", sagði Eyjólfur Jónsson forstöðumaður Atvinnu- leysistryggingasjóðs í samtali við Þjóðviljann í gær. Tekjur Atvinnuleysistrygginga- sjóðs eru þær að atvinnurekendum er skylt að greiða 1% af byrjunar- taxta Verkamannasambands ís- lands fyrir hvern starfsmann, við- komandi sveitarfélag greiðir sömu upphæð og fyrirtæki innan þess og í þriðja lagi leggur ríkissjóður til samsvarandi upphæð og atvinnu- rekendur og sveitarfélög greiða. Ráðstöfunarfé sjóðsins í ár var rúmlega 150 miljónir króna. Þegar hafa verið greiddar um 100 miljón- ir til atvinnulausra og eru horfur á að sú upphæð verði um 110 miljón- ir þegar árið verður endanlega gert upp. Til umsjónarnefndar eftir- launa hefur sjóðurinn greitt um 60 miljónir króna í ár en sérstök lög kveða á um að Atvinnuleysistrygg- ingasjóður greiði 3A af útgjöldum vegna viðbótarréttinda nokkurra eldri félaga í verkalýðsfélögunum. í árslok 1984 mun þeirri kvöð létt af Atvinnuleysistryggingasjóði— v. Sjá 10 Það gengur ekki lengur að lönd i Vestur-Evrópu haidi áfram að vera bandarísk- ar nýlendur segir norski friðarsinninn Johan Galtung í viðtali.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.