Þjóðviljinn - 31.12.1983, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 31.12.1983, Blaðsíða 11
Pann 27. desember voru 4 ár lið- in frá því að sovéski herinn réðist inn í Afghanistan og virtist ekkert lát vera á borgarastyrjöldinni þar. Ýmsir höfðu bundið vonir við að Andropov, nýkjörnum flokksleið- toga í Sovétríkjunum, tækist að leysa þetta mál, en eftir að fyrsta valdaár hans leið án þess að nokkr- ar breytingar yrðu á stöðunni í Afg- hanistan urðu þær vonir að engu. Fréttir voru óljósar frá Afghanist- an á árinu, en öðru hvoru bárust fréttir af mikilli grimmd sem ein- kenndi styrjöldina sem geisar í landinu. Myndin sýnir sovéska her- þyrlu sem andstæðingar stjórnar- innar í Kabul hafa skotið niður. Hin tilgangslausa og blóðuga styrjöld við Persaflóann á milli íran og íraks hélt áfram án þess að vekja verulega athygli um- heimsins. Pó vakti það athygli þeg- ar Frakkar seldu írökum eldflaug- ar til stríðsrekstursins og íranir hótuðu að loka fyrir siglingar um Persaflóa yrði þeim beitt. Þá sýndi það sig að styrjöld þessi gat haft alvarlegar afleiðingar fyrir efnahag Vesturvelda og heimsfriðinn um leið. Ekki var nein lausn sjáanleg á ófriðnum sem ríkt hefur á milli þessara múslömsku ríkja og veikburða tilraunir Olof Palme til að leita sátta virtust dæmdar til að mistakast. Hungursneyð ríkti víða í þróun- arlöndunum á árinu og var ástand- ið alvarlegast í sunnanverðri Afr- íku þar sem langvinnir þurrkar ollu neyðarástandi. Framkvæmdastjóri FAO, matvæla- og landbúnaðar- stofnunar Sameinuðu þjóðanna, sagði að hungur vofði nú yfir 870 miljónum manna í heiminum. Ógnarstjórn fór vaxandi í E1 Sal- vador og „líktist nú æ meira þjóð- armorði" eins og fulltrúi Mannrétt- indanefndarinnar þar komst að orði í viðtali við Þjóðviljann. Fjöl- damorð stjórnarhersins og dauða- sveitanna voru daglegir viðburðir og stjórnarherinn beitti efnavopn- um og napalmi gegn óbreyttu bændafólki. Marianella Garcia Villas forseti Mannréttindanefnd- ar E1 Salvador (sjá mynd) var myrt af stjórnarhernum sem fór halloka á árinu í viðureign við skæruliða þrátt fyrir mikla aðstoð Bandríkj- astjórnar. Bandaríkin studdu einn- ig uppreisnarmenn til innrása í Nic- aragua og stofnuðu þjálfunarbúðir fyrir þá í Honduras. Sigur Jafnaðarmanna í kosning- um í Argentínu og Venezuela varð til þess að styrkja kröfu Contadora-ríkjanna í S-Ameríku um pólitíska lausn á deilum í Mið- Ameríku. Önnur gleymd styrjöld er stríð það sem Suðurafríkustjórn hefur um árabil háð gegn nágrannaríkj- um sínum, sérstaklega Angola og Mosambique. Fréttir af loftárásum S-Afríkuhers á skóla, sjúkrahús og aðrar opinberar stofnanir í suður- hluta Mosambík og Angóla fóru ekki hátt í fjölmiðlum á Vestur- löndum, en slíkir atburðir eru þó daglegt brauð á þessum slóðum. Hermaður S.-Afríkustjórnar bæt- ist við hungursneyð sem nú ríkir í Mósambík vegna þurrka. Myndin sýnir fórnarlömb S-Afríkuhers í Angóla. Þurrkar ollu víða gífurlegu tjóni og hungursneyð þar sem ástandið var verst fyrir eins og í sunnan- verðri Afríku. Þurrkar voru einnig miklir í Brasilíu og Ástralíu á ár- inu. Nóbelsnefnd norska stórþings- ins veitti Lech Walesa friðarverð- laun Nóbels í viðurkenningarskyni fyrir baráttu hans fyrir frjálsri verkalýðshreyfingu í Póllandi. Wa- lesa lýsti því yfir að verðlaunin yrðu notuð til hjálparstarfs kirkj- unnar í Póllandi. Myndin er frá fundi Walesa með páfanum, þegar páfinn heimsótti Pólland á liðnu sumri.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.