Þjóðviljinn - 24.02.1984, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 24.02.1984, Blaðsíða 4
4 SÍÐA -- ÞjÓÐVILJINNl Föstudagur 24. febrúar 1984 ' l I ■" J »1 ■ > > * I l'IT" ’■ ' ' DIÚÐVIUINN Málgagn sósíalisma, verkalýðs- hreyfingar og þjóðfrelsis Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans. Framkvæmdastjóri: Guðrún Guðmundsdóttir. Ritstjórar: Árni Bergmann, Einar Karl Haraldsson. Um8jónarmaður Sunnudagsblaðs: Guðjón Friðriksson. Auglýsingastjóri: Sigríður H. Sigurbjörnsdóttir. Afgreiðslustjóri: Baldur Jónasson. Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pótursdóttir. Blaðamenn: Auður Styrkársdóttir, Álfheiður Ingadóttir, Helgi ólafsson, Lúðvík Geirsson, Magnús H. Gíslason, Ólafur Gíslason, óskar Guðmundsson, Sigurdór Sigurdórsson, Valþór Hlöðversson. íþróttafróttaritari: Víðir Sigurðsson. Utltt og hönnun: Guðjón Sveinbjörnsson, Þröstur Haraldsson. Ljósmyndir: Einar Karlsson, Magnús Bergmann. Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar. Auglýsingar: Áslaug Jóhannesdóttir, Ólafur Þ. Jónsson. Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Jóhannes Harðarson. Símavarsia: Sigríður Kristjánsdóttir, Margrót Guðmundsdóttir. Húsmóðir: Bergljót Guðjónsdóttir. Bílstjóri: ólöf Sigurðardóttir. Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Ólafur Björnsson. Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jónsdóttir. Útkeyrsla, afgreiðsla og auglýsingar: Síðumúla 6, Reykjavík, sími 81333. Umbrot og setning: Prent. Prentun: Blaðaprent hf. Brestur forsenda samninganna? Forsætisráðherra Steingrímur Hermannsson og framkvæmdastjóri VSÍ Magnús Gunnarsson hafa báðir lýst því yfir að aðgerðir ríkisstjórnarinnar í þágu hinna verst settu komi ekki til framkvæmda nema öll verka- lýðsfélög samþykki samninginn sem forystumenn ASÍ og VSÍ undirrituðu. Þessar yfirlýsingar fela í sér ósvífna tilraun til að svipta verkalýðsfélögin raunverulegum samningsrétti. Samkvæmt skipulagi verkalýðshreyfingarinnar á ís- landi er rétturinn til að semja um kaup og kjör hjá verkalýðsfélögunum sjálfum. ASÍ hefur enga formlega heimild til að gera samning sem bindur hendur ein- stakra félaga. Forystumenn ASÍ geta gengið frá til- lögum en þeir eru ekki handhafar samningsréttarins. Nú hefur ríkisstjórnin og VSÍ ákveðið að notfæra sér aðild ASÍ að undirritun samkomulagsins til að taka fátækasta fólkið í landinu sem gísl. Forsætisráðherrann og framkvæmdastjóri VSÍ tilkynna að aðgerðir til hjálpar hinum fátækustu komi ekki til greina nema öll verkalýðsfélög samþykki ASÍ og VSÍ textann óbreyttan. Þar með er hinn raunverulegi samningsrétt- ur verkalýðsfélaganna eyðilagður. Ásmundur Stefánsson forseti ASÍ hefur eðlilega mótmælt þessum yfirlýsingum VSÍ og ríkisstjórnarinn- ar. Forseti ASÍ sagði í viðtali við sjónvarpið í fyrra- kvöld að hann „treysti því að þær opinberu tilfærslur, sem ríkisstjórnin hefði ákveðið, yrðu gerðar, þótt kjarasamningurinn yrði ekki samþykktur í öllum fé- lögum, enda hefðu þær verið forsendan fyrir því að samningurinn var gerður.“ Alþýðusamband íslands getur ekki gert samning sem notar fátæksta launfólkið sem gísl í því skyni að svipta verkalýðsfélögin hinum raunverulega samningsrétti. Ef ríkisstjórnin og VSÍ halda þessari stefnu til streitu eru forsendur samninganna brostnar. Forysta ASÍ hlýtur þá að grípa til viðeigandi gagnráðstafana. Það væri hættulegt fordæmi að gefa VSÍ og ríkisvaldinu tækifæri til að svipta verkalýðsfélögin samningsrétti á þennan ósvífna hátt. Þjóðviljinn varar eindregið við slíku fordæmi. Froða og blekkingar í viðtali við útvarpið í fyrrakvöld fjallaði Jóhanna Kristjónsdóttir formaður einstæðra foreldra um þær blekkingar sem beitt hefur verið til að telja fólki trú um að í kjölfar hinna nýgerðu samninga kæmi til fram- kvæmda veruleg kjarabót fyrir einstæða foreldra. Hún rakti að þær tölur, sem nefndar hefðu verið, fælu í sér ómerkilegar talnablekkingar. í raun væri í þessum samningum verið að reyna að fá einstæða foreldra til að sætta sig við froðu í stað raunverulegra kjarabóta. í viðtali við Morgunblaðið í gær ítrekar Jóhanna Kristjónsdóttir þessa afstöðu. Hún bendir á að barna- lífeyrír g meðlag eiga að hækka um litlar 400 kr. á mánuöi ða sem samsvarar tæplega matarkaupum í einn d ..v „Mér finnst einnig óttalegt kák að hækka mæðr:, feðralaun um 700 kr. þótt það hljómi vel yfirfa ;>rósentureikning,“ sagði formaður Félags einsta^ . oreldra. Hún vakti athygli á því að það væri „út í hör að lækka fullar barnabætur, þ.e. 12.000 kr., eftir aö 150 þúsund kr. tekjum er náð.“ Þetta mark þyrfti „að vera töluvert miklu hærra til þess að það kæmi einstæðum foreldrum almennt að notum.“ Dómur forystumanns einstæðra foreldra um hliðar- aðgerðir ríkisstjórnarinnar er afdráttarlaus. Þær eru froða og blekkingar, yfirborðslegar og ófullnægjandi. klippt Divine úr myndum John Waters. Aðsóknar- metingur Nokkur blaðaskrif hafa orðið út af aðsókn á þá Kvikmyndahá- tíð sem nýlokið er í Reykjavík. Morgunblaðið sagði frétt af því að 16 þúsund manns hefðu séð myndir á hátíðinni og hún væri sú önnur best sótta frá upphafi. Þessum fréttaflutningi var mót- mælt með tölum upp úr endur- skoðuðum reikningum Listahá- tíðar frá upphafi, en þær sýndu að aðsóknin var 1978 20.479, 1980 22.500,198120.479,1982 19.707. Þá hefur komið fram samkvæmt upplýsingum forráðamanna Lista- hátíðar að aðsóknin í fyrra hafi verið um 18 þúsund manns. Talnaleikur Guðbrandur Gíslason, sem gegndi framkvæmdastjórastarfi Listahátíðar tímabundið, hefur í athugasemd til Þjóðviljans sagt að lausleg talning bendi til þess að rúmlega 21 þúsund manns hafi sótt Kvikmyndahátíð 1984. Þetta eru fróðlegar tölur og hefur að- sóknin aukist um 5-6 þúsund manns frá því að Morgunblaðið birti aðsóknarfrétt sína að hátíð- inni lokinni. Það liggur fyrir að 14.612 manns voru skráðir inn á sýningar Regnbogans á kvik- myndahátíð. Þá var Hrafninn flýgur frumsýndur á kvikmynda- hátíð og komust þangað færri en vildu vegna ófærðar. Síðustu að- sóknartölur eru fengnar með því að bæta við gestum á almennum sýningum íslensku myndarinnar Hrafninn flýgur í Háskólabíói kvikmy ndahátíðarvikuna. Þetta er í hæsta máta óvenju- legur reikningsmáti, og með sömu rökum hefði þá átt að telja gesti á sýningum Útlaga Ágústar Guðmundssonar sem einnig var frumsýnd á Kvikmyndahátíð á sínum tíma til gesta hennar. Af íslensku myndum hátíðarinnar, sem voru hennar sterka hlið, hef- ur Listahátíð ekki annað en kostnað, en ekki innkomu, og þó að kvikmyndahátíðarnefndin hafi sem framlag til íslenskrar kvikmyndagerðar staðið undir auglýsingum á myndinni Hrafn- inn flýgur alla hátíðarvikuna, hafa gestir mynda sem sýndar eru á almennum markaði hingað til ekki verið taldar til gesta kvik- myndahátíðar. Slappt úrval Aðstandendum Listahátíðar og Kvikmyndahátíðar virðist mikið í mun að geta sýnt fram á mikla aðsókn og vonandi sæmi- lega afkomu. En talnaleikir af þessu tagi geta ekki dregið fjöður yfir það að hinn erlendi þáttur Kvikmyndahátíðar var slappur, eins og Thor Vilhjálmsson fjall- aði réttilega um í Sunnudagsblaði Þjóðviljans: „Engin þeirra kvik- mynda sem nú var sýnd á hátíð- inni komst á tólf mynda úrvals- lista International Film Guide í fyrra. Það er kannski ekki ein - hlítur mælikvarði heldur. Ekki verður því neitað að þessi hátíð olli vonbrigðum. Fátt var mynda sem áttu erindi á hátíð kvikmyndalistar. Það var eins og forskeytið af fyrra orðinu hefði gleymst og seinni hlutinn af því síðara. Sumar löfðu í því að vera laglegar til að eyða kvöldstund gremjulaust í kvikmyndahúsi, aðrar varla. Og sumt átti alls ekki erindi til íslands út úr skúma- skotum.“ Álitshnekkir Kvikmyndahátíð sem hefur John Waters sem aðalnúmer er ekki upp á marga fiska og er- lendir blaðamenn sem hér voru fitjuðu upp á nefið þegar þeir sáu „úrval“ útlendra mynda á hátíð- inni. Allt frá því að Hrafn Gunn- laugsson þáverandi fram- kvæmdastjóri Listahátíðar, og Friðrik Friðriksson o.fl. undir- bjuggu fyrstu kvikmyndahátíðina 1978, hefur verið kappkostað að hún stæði framarlega á alþjóða- vísu, og Kvikmyndahátíð í Reykjavík hefur smámsaman unnið sér nafn, sem hefur auðveldað útvegun úrvalsmynda á hana. Að þessu sinni hefur há- tíðin sett ofan og smekkur og útvegsmáti þeirra sem nú stóðu að Kvikmyndahátíð hefur eyði- lagt mikið af því uppbyggingar- starfi sem átt hefur sér stað og það álit sem Kvikmyndahátíð í Reykjavík hafði aflað sér meðal kvikmyndagerðar- og áhuga- manna víða um lönd. -ekh ocj skorið Ef ég vœri spurður Við umræður í Sameinuðu þingi sl. fimmtudag, um íslands- sögukennslu í grunnskólum, flutti Jón Baldvin Hannibalsson býsna glúrna ræðu. Jón Baldvin sagði m.a.: - Nú er það svo að þessi tillaga sem hér liggur fyrir er ósk um þrennt: I fyrsta lagi að kennsla í sögu íslensku þjóðarinnar verði aukin. Ef ég væri spurður þessar- ar spurningar þá gæti ég ekki svarað. Tel ég rétt að sögu- kennslan væri aukin? Svar mitt færi mjög eftir því hvernig ætti að koma til skila aukinni kennslu í íslandssögu og hvaða þætti í ís- landssögu ætti að taka upp, sem áður hafa verið vanræktir. Ef ég er spurður: Viltu láta auka trú á landið? Jú, maður gæti svarað því - já. En ef maður er spurður: Hefurðu trú á því að trú á landið verði aukin með sögukennslu í skólum þá læt ég uppi efasemdir. Og ef ég er spurður: Viltu láta varðveita það menningarsamfé- lag, sem hér hefur þróast um aldir? þá er svarið að vísu já. En um leið kemur upp í hugann að það menningarástand, sem hér hefur þróast um aldir, er nokk- urnveginn liðið undir lok. Það bændasamfélag, sem hér var ríkj- andi í „íslands þúsund ár“ er óþekkjanlegt í dag. Sá þjóðfélagsveruleiki, sem mín börn munu lifa í, er óþekkjan- legur miðaðviðþann þjóðfélags- veruleika og það hugmynda- umhverfi, sem móðir mín ólst UPP við. Þannig, að það er þá eiginlega fátt um svör. Auka, varðveita og efla trú á landið, jú, jú, en hvernig? Kennt að veiða Máli sínu lauk Jón Baldvin með þessum orðum: Ég held að kjörorðið, sem ég rakst einhverntíma á í gönguferð minni niður við höfn í Boston, geti eiginlega verið mottó í skóla- starfi: Gefðu hungruðum manni fisk og þú seður hungur hans í einn dag. Kennirðu honum að veiða þá hefurðu kennt honum að sjá sér og sínum farborða ævina á enda. Góður skóli er sá skóli, sem kennir nemendum sín- um að veiða, að afla sér þekking- ar, sem endist honum ævina á enda. -mhg

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.