Þjóðviljinn - 13.03.1984, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 13.03.1984, Blaðsíða 1
ÞlOÐVIUINN Tveir andstæð- inga íslands í B-keppninni leika samtals um 80 landsieiki næstu 12 mán- uði. Sjá 9 mars þriðjudagur 13. mars 1984 Fjármögnun hús- nœðismálalána: Allt í óvissu Eftir að fjárhags- og viðskiptanefnd Neðri- deildar Alþingis hefur afgreitt frumvarpið til lánsfjárlaga, er alveg sama óvissan ríkjandi og fyrr um hvernig húsnæðismálakerfið í ár verður fjármagnað. Eins og Þjóðviljinn skýrði frá á dögunum vantar milli 800 og 900 miljónir króna til að endar nái saman. Á lánsfjárlögum er gert ráð fyrir 1200 miljónum króna til húsnæðismála en 3/4 hlutar þess fjár eru í fullkominni óvissu. Félagsmálaráðherra Alexander Stefánsson sagði í samtali við Þjóðviljann í gær, að á ríkisstjórnarfundi í dag myndi hann taka þetta mál upp. „Það er ekkert nema sýndarmennska hjá félags- málaráðherra að vera að vísa á lánsfjárlög í þessu efni, hann veit full vel að það ríkir alger óvissa um hvernig fjármagna á lánakerfið í ár“, sagði Svavar Gestsson alþingismaður í gær, en hann á sæti í fjárhags- og viðskiptanefnd Neðri-deildar. í þessu sambandi benti Svavar á að þær 200 miljónir sem koma eiga af fjárlögum séu í óvissu vegna þess stóra gats sem á þeim er. Þá er áætlað að fá 525 miljónir frá lífeyrissjóðunum og svo mikla upphæð geta þeir aldrei innt af hendi, hvað þá Atvinnuleysis- tryggingasjóður, sem á að láta af hendi 115 miljónir, af þeirri upphæð kemur ekkert í ár. Þá er eftir eigið fé sjóðsins, sem er 480 miljónir króna. Það er hald þeirra sem gerst þekkja til þessara mála að engir peningar verði til á síðari hluta þessa árs til húsnæðislána nema einhverjar sérstakar ráðstafanir verði gerðar til fjáröflunar. -b.dór. Albert Guðmundsson um Morgunblaðsmenn Líður illa görmunum ,Já, ég virðist vera uppáhalds- skotspónn þeirra um þessar mundir. Um ástæðuna er mér ekki kunnugt en greinilegt er að þeim líður eitthvað illa görmunum, kannski vegna þess hve mér líður vel“, sagði Albert Guðmundsson fjármálaráð- herra við Þjóðviljann í gær er blaðið leitaði álits hans á linnulausum árás- um Morgunblaðsins á hann, síðast í Reykjavíkurbréfi um helgina. Albert sagði að annars snertu slík skrif hann ekki. í Reykjavíkurbréfi Morgunblaðsins sl. sunnudag var ráðist að Albert vegna þess að ekki væri búið að selja þau ríkis- fyrirtæki, sem Albert boðaði á sínum tíma sölu á. Um þetta tiltekna mál sagði Albert, að hann hefði lagt fram þessa tillögu og viljað selja fyrirtækin. Forsæt- isráðherra Steingrímur Hermannsson fékk málinu aftur á móti breytt á þann veg að hver fagráðherra færi með og réði sölu á þeim fyrirtækjum er undir þeirra ráðuneyti féllu. „Þar nteð var búið að taka málið úr mínum höndum og ekki við mig að sakast, þótt fyrirtækin séu ekki seld“, sagði Albert Guðmundsson. -S.dór. Ótrúlegt þrekvirki ungs Vestmannaeyings Synti 5 km leið í ísköldum sj ónum eftir að Hellisey VE-503 fórst í fyrrinótt Fjögurra skipverja er enn saknað Ungur piltur frá Vestmannaeyj- um, Guðlaugur Friðþórsson stýri- maður á Hellisey VE-503, vann ótrúlegt þrekvirki í fyrrinótt er hann synti rúmlega 5 kílómetra leið í köldum sjónum eftir að skip hans Hellisey VE-503 sökk. Slysið varð austsuðaustur af Heimaey. Fjög- urra skipverja er enn saknað en leit var haldið áfram í gær. Að sögn Sigurðar Einarssonar hjá Hraðfrystistöð Vestmannaeyja er ekki vitað með vissu með hvaða hætti báturinn fórst. Helst er hall- ast að þeirri skýringu að troll skips- ins hafi fest í botninum og því hvolft í togi. Gott veður var á slys- stað. Eins og áður sagði tókst einum skipverja að synda í land og er mönnum óskiljanlegt hvernig hon- um tókst að vinna það þrekvirki. Ekki aðeins að honum hafi tekist að synda um fimm kílómetra leið í ísköldum sjónum heldur gekk hann allnokkra kílómetra yfir egghvasst hraunið áður en hann náði til byggða í gærmorgun. Guð- laugur, sem er fæddur árið 1961, var strax fluttur á Sjúkrahúsið í Vestmannaeyjum og leið vel eftir atvikum er síðast fréttist. Hellisey VE-503 var smíðuð í V- Þýskalandi árið 1956. Hér var um 75 tonna stálskip að ræða og hét það áður Sigurvon SH 121 gert út frá Stykkishólmi en selt til Vestmannaeyja í fyrra. Skipverjarnir sem enn er saknað heita: Hjörtur R. Jónsson, Ás- hamri 63 Vestmannaeyjum, fædd- ur árið 1958; Pétur Sigurðsson 1. vélstjóri, Sæviðarsundi 9 Reykja- vík, fæddur árið 1962; Engilbert Eiðsson 2. vélstjóri, Faxjistíg 4 Vestmannaeyjum, fæddur árið 1964; og Valur Smári Geirsson matsveinn, Herjólfsgötu 8 Vestmannaeyjum, fæddur árið 1957. Sigtúnsfundur í dag Klukkan hálf fjögur í dag, þriðjudag, hefst fundur kennara í Sigtúni um kjarasamninga BSRB og ríkisvaldsins. Kennarar á suðvesturhorni landsins boðuðu til fundarins og bjóða til hans öllum opinberum starfsmönnum og áhugafólki. í fréttatilkynningu frá hópnum er greint frá gífurlegri óánægju meðal kennara vegna lélegra kjara þeirra. Á fundinum verða flutt stutt ávörp og fleira. Gert er ráð fyrir að hann standi í tvær klukkustundir. Val- gerður Eiríksdóttir setur fundinn. Jóhann Karlsdóttir, Þórdís Móses- dóttir, Guðlaug Teitsdóttir og Bjarni Ansnes flytja ávörpin en fundarstjóri er Gísli Baldvinsson. -óg- Lýðveldið 40 ára er yfirskrift sýningar sem öll börn í Fossvogsskólanum hafa unnið að sl. hálfan mánuð. Sjá opnu Mótmœlin gegn kvótakerfinu: Risafundur! „Við stefnum að því að halda fundinn hér í Reykjavík um næstu helgi og ætlum að stefna sjómönnum og útgerðarmönnum af öllu landinu til fund- arins. Við höfum unnið að þessu máli nokkrir síðan fyrir helgi og allsstað- ar fengið afar góðar undirtektir“, sagði Jón Magnússon, útgerðarmaður og skipstjóri frá Patreksfirði, cn hann er einn af forgöngumönnum mót- mælafundar gegn aflakvótanum, sem Þjóðviljinn greindi frá í helgarblað- inu. Jón sagði enn ekki ákveðið hvar fundurinn yrði haldinn í Reykja- vík, né hverjir yrðu ræðumenn, en frá þessu öllu yrði gengið næstu daga. Hann benti á að nú fyrst væru menn að átta sig á hve alvarlegt þetta kvótakerfi er. Fjöldinn allúr af bátum er að verða búinn með kvótann sinn og þá tæki ekkert við nema auðn og atvinnuleysi. Þá sjá menn einnig að nógur fiskur er í sjónum og vel aflast á öllum mið- um. Jón Magnússon tók skýrt fram að þessi fyrirhugaði fundur væri haldinn fyrir utan öll samtök. „Ég tel að bæði samtök sjómanna og útgerðarmanna, LÍÚ, hafi brugðist í kvótamálinu og því koma engir forsvarsmenn frá þeim inní þetta mál“. -S.dór.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.