Þjóðviljinn - 27.03.1984, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 27.03.1984, Blaðsíða 1
UÚBVIUINN Ávarp Flosa Ól- afssonar í tilefni afalþjóðaleik- húsdeginúm Sjá 13 mars þriðjudagur 73. tbl. 49. árgangur Dagsbrún gefur tóninn fyrir nýja kjarasamninga í haust AuSvitað uppsögn fyrsta september „Við skulum vera viðbúnir frekari átökum í haust. Menn eiga eftir að rísa upp alls staðar á landinu og láta í sér heyra í stað þess að leggjast í uppgjöf og vonleysi. Það er mikil vinna eftir“, sögðu forystumenn Dagsbrúnar m.a. á fundi fé- lagsins í Austurbæjarbíói sl. sunnudag þar sem samningar félagsins við VSÍ og fjármálaráð- herra voru nær einróma samþykktir. I þessum nýju samningum Dagsbrúnar sem nú þegar eru orðnir að hluta nýir samningar fyrir allt launafólk innan ASÍ, hvað varðar niðurfell- ingu unglingataxtans og starfsaldurshækkun, er ákvæði um að öll flokkaskipan Dagsbrúnar verði endurskoðuð fyrir lok ágústmánaðar n.k. Guðmundur J. Guðmundsson sagði á fundin- um að ef sú vinna skilaði ekki viðunandi árangri yrði enginn friður þann 1. september. Aðrir for- ystumenn Dagsbrúnar og fundarmenn tóku undir það að auðvitað yrði samningum sagt upp 1. september og farið út í enn frekari baráttu fyrir bættum kjörum. Það hefði sýnt sig með þessum nýju samningum að barátta skilaði ár- angri. - ig. Sjá bls. 2, 3, baksíðu og leiðara Hvalreki „Ég er fæddur hér á Hvalsnesinu og hef búið hér alla mína tíð en ekki minnist ég þess að hér hafi rekið hval“, sagði Hákon Magnússon bóndi í Nýlendu suður þar, en í stórstreymi fyrir skömmu rak 16—18 metra langan búrhval á fjöru hans og iiggur skepnan um 100—200 metra ofan við sjávarmál. „Það var ekki fyrr en í gær sem ég varð hvalsins var og það verður að segjast eins og er að hvalrekinn er mér ekkert sérstakt fagnaðarefni. Eflaust er skepnan fleiri tonn að þyngd þannig að það er ómögulegt að draga hana á sjó út, þannig að í sumar má búast við illri þefjan af hræinu auk þess sem vargur kemur til með að liggja hér í fjörunni", sagði Hákon enn frem- ur. Að sögn Jóhanns Sigurjónssonar sjávarlíffræðings Steingrímur og Þorsteinn Pálsson mœttu á skrifstofuna hjá Albert til að stöðva samninga við Dagsbrún snemma á sunnudagsmorgni: T>i« pniA h ioro opcfir^ j jjl cjl uy Ij Pdl d HCMli I þessum samningi er ákveðið að gera nýja sérkjarasamninga við Dags- brúnarstarfsmenn hjá ríkisstofnunum, þar sem uppröðun í launaflokka verði tekin til endurskoðunar og miðað við að starfsmenn hækki um einn launa- flokk eftir 3ja ára starf, um annan flokk eftir fimm ár og einn til viðbótar eftir 9 ár. -lg. sagði Albert og rak þá út í horn „Þið eruð bara gestir hér“, sagði Al- bert Guðmundsson fjármáiaráðherra við þá Steingrím Hermannsson forsæt- isráðherra og Þorstein Páisson for- mann Sjálfstæðisflokksins þegar þeir síðarnefndu mættu án samráðs við fjármálaráðherra á skrifstofu hans snemma sl. sunnudagsmorgun þar sem hann var að ganga frá samningi fyrir hönd Vinnumálanefndar ríkisins við Dagsbrún. Þeir Steingrímur og Þorsteinn brugðust ókvæða við þegar þeir fréttu sl. laugardagskvöld að fjármálaráð- herra ætlaði að skrifa undir samning morguninn eftir við Dagsbrún um flokkatilfærslur hjá Dagsbrúnar- mönnum sem starfa hjá ríkisfyrirtækj- um. Reyndu þeir að stöðva frekari samningaviðræður en Albert tilkynnti þeim þá að þeir væru gestir í hans ráðu- neyti og gætu fengið að fylgjast með en hann réði þessari samningagerð. Síðan skrifaði hann undir nýjan kjarasamn- ing við Dagsbrún. Fátíður atburður á Hvalsnesi Hákon Magnússon bóndi í Nýlendu við stórhvelið sem rak á fjörur hans. Hér er um búrhveli að ræða, gamlan tarf, enda skepnan 16-18 metra löng. Ljósm. Atli. og viðtal er birt við inni í blaðinu, er hér um gamalt karldýr að ræða sem hefur hrakist óvenju snemma upp að landinu. Skepnan er gulhvít á litinn, nokkuð fallin saman um miðjuna eftir hrakninga um fjöru- grjótið. í neðri skoltinum eru 36 tennur sjáanlegar og má ráða aldur dýrsins af tönnunum þegar vísinda- menn hafa gert á því rannsóknir. Bjóst Jóhann Sigur- jónsson við því að fara suður á Rosmhvalanes hið skjótasta til að kanna hvalrekann nánar. — v. Sjá bls. 7 Konurnar frá Greenham Common Fundur í kvöld í kvöld kl. 20.30 verður fundur á Hótel Borg þarsem tvær breskar konur sem tekið hafa þátt í mótmælaaðgerðunum við Greenham Common herstöðina í Bretlandi munu koma og segja frá baráttunni gegn kjarnorkuvopnum. Auk þess verður fiölbreytt menningardag- skrá. Sjá viðtal á bls. 3

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.