Þjóðviljinn - 28.03.1984, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 28.03.1984, Blaðsíða 1
UOWIUINN Drekasæði kommúnismans eða ræktun frið- arvilja Opna mars miðvikudagur 74. tbl. 49. árgangur Albert Guðmundsson um ráðstafanir vegna fjárlagagatsins: GET EKKERT SÝNT • Formaður fjárveitinganefndar hefur enga vitneskju um aðgerðirnar • Veit ekki hvenœr von er á tillögum frá Albert • Þingflokkur Sjálfstœðisflokksins bíður „Ég þarf fyrst að vinna þetta sjálfur áður en ég get sýnt nokkuð“, sagði AI- bert Guðmundsson fjár- málaráðherra í gær, að- spurður um tillögur hans um hvernig fylla á upp í stóra fjárlagagatið. Lárus Jónsson formaður fjár- veitinganefndar sagði að þingflokkur sjálfstæðis- manna hefði enn engar til- lögur fengið á sitt borð og hann vissi ekki hvenær von væriáþeim. Þingflokkur Framsóknar- flokks hefur síðustu daga haft til umfjöllunar tillög- ur frá ríkisstjórninni um hugsanlegan niðurskurð á vegaáætlun og heilbrigðis- kerfinu til að mæta stóra gatinu. Þingflokkur sjálf- stæðismanna hefur hins vegar ekki enn fengið að sjá framan í neinar til- lögur. Lárus Jónsson formaður fjárveitinganefndar sagði í samtali í gær að engar til- lögur hefðu enn verið sýndar í þingflokknum og menn hefðu komið sér saman um að það þjónaði ekki tilgangi að ræða þessi mál þar fyrr en einhverj ar mótaðar tillögur frá ríkis- stjórninni lægju fyrir. „Eg veit ekki hvenær von er á slíkum tillögum en ég vona að það verði ekki seinna en um miðja næstu viku“, sagði formaður fjárveitinganefndar. - lg* | Chicago-lending I Skaftahlíðinni Einbeitingin skín úr hverju andliti, enda er vandasamt að lenda flugvél svo vel fari. Kristján Einarsson, Ijósmyndari Morgunblaðsins, situr hér við stjórnvölinn á IBM PC tölvunni, og reynir að lenda Cessna-flugvél á flugvellinum í Chicago. Forrit þetta er á meðal fjölbreyttra sýningaratriða á sýningu IBM að Skaftahlíð 24, sem kynnt var blaðamönnum í gær. Ljosm.: -eik. Kröfur Sóknar komnar fram Jákvæð viðbrögo - Við erum aðeins að fara f ram á lágmarks réttlæti og samræmingu á kjörum okkar og annarra láglaunahópa í þjóðfélaginu, sagði Óttarr Magni Jóhannsson úr samn- inganef nd Sóknar í viðtali við Þjóðviljann í gær. - Kröf u- gerð Sóknar var kynnt viðsemjendum í gærmorgun og sagði Óttarr vonast ti I að ríkisvaldið hefði skilning á svoauðsæju réttlætismáli og hér væri um að ræða. Full- trúar ríkisvaldsins á f undin- um í gærmorgun hefðu sýnt samningsvilja en efnislega vildi hann ekki tjá sig um við- ræðurnar. Þaö kom fram á félagsfundi Sóknar að helstu kröfur saminga- nefndarinnar eru tilfærslur í launa- flokkum þannig að hver félags- maður Sóknar hækki um einn launaflokk, eftir 15 ára starfsaldur hækki starfsfólk um tvo launa- flokka, óháð því hvort það hefur unnið hjá sama atvinnurekanda allan tímann og yfirvinna verði greidd sem 1% af mánaðarlaunum eins og hjá BSRB. Ein af höfuð- kröfum Sóknar er að börn félags- manna þeirra fái aðgang að barna- heimilum sem rekin eru af spítul- um en sú krafa er gömul og hefur oft verið ýtt til hliðar að sögn samn- ingamanna. I samtali við Þjóðviljann sagði Óttarr Magni að könnun kjara- rannsóknarnefndar sýndi það ótví- rætt að Sóknarfólk væri meðal þeirra lægst launuðu í landinu, og það þyrfti að leiðrétta sem fyrst. Raþ. Sjá bls. 3 Breytingar á fiskiskipum án leyfis Allir skipstjórar krafðir um svör Hvað myndu menn segja ef við stoppuðum flotann? spyr siglingamálastjóri í viðtali við Þjóðviljann Siglingamáiastofnunin hefur í samvinnu við Farmanna- og físki- mannasamband íslands sent spurningalista tii allra skipstjóra fískiskipa, þar sem spurst er fyrir um allar þaer breytingar sem gerðar hafa verið á skipunum. Síðan er ætiunin að bera svörin saman við þær skýrslur sem Sigl- ingamálastofnunin hefur um breytingar á skipunum. Þetta kemur fram í viðtali sem Þjóðviy- inn birtir í dag við Hjálmar R. Bárðarson siglingamálastjóra um öryggismál fískiskipa. Eins og fram kom í frétt Þjóð- viljans í síðustu viku eru þess fjöl- mörg dæmi að breytingar séu gerðar á skipum ón þess að Sigl- ingamálastofnunin sé látin vita af þeim. Slíkt er ólöglegt, því að út- gerðarmönnum, skipstjórum og slippstöðvum er skylt að láta vita af öllum breytingum og raunar þarf fyrirfram að sækja um leyfi til breytinga á skipunum. t viðtalinu er einnig rætt um sjálfvirkan sleppibúnað björgun- arbáta, brot á iögum um hleðslu fiskiskipa og siglingamálastjóri spyr hvað gerast myndi ef Sigl- ingamálastofnun myndi stöðva hluta fiskiskipaflotans vegna brota á öryggisreglum og örygg- isbúnaði. - S.dór. Sjá bls. 5

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.