Þjóðviljinn - 30.03.1984, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 30.03.1984, Blaðsíða 1
DiomiuiNN Nýjungar i land- búnaðartækni í sérstökum blaðauka um þennan geira Sjá9-16 mars föstudagur 76. tbl. 49. árgangur „Við borgum ekki“ segja Flugleiðaforstjórarnir um þá kröfu að fyrirtœkið borgi af65 miljón króna láninu á þessu gróðaári félagsins - Við tökum ekki þátt í því að greiða þetta lán. Það er alveg Ijóst hver ákvörðun alþingis er í þessum efn- um. Fjármálaráðherra getur ekki breytt þessu einn, alþingi verður að fjalla um þetta ef einhver breyting á að verða þarna á, sagði Sigurður Helgason forstjóri Flugleiða aðspurður um það álit fjármálaráðherra að félagið væri vel í stakk búið vegna hagnaðar uppá rúmar 107 miljónir kr. að greiða 65 miljón króna lán sem fellur á ríkissjóð innan tíðar vegna ríkisábyrgðar á láni sem Flugleiðir tóku árið 1982 vegna slæmrar út- Samningaumleitanirnar við Alusuisse-hringinn í hreinskilni sagt feiknalega þungt Erfiðara en ég átti von á, segir Sverrir Hermannsson sem œtlaði að ná samningum fyrir 1. apríl • Sjá bls. 2 komu á N-Atlantshafsfluginu. í fjárlögum og lánsfjáráætlun fyrir yfirstandandi ár er fjármálaráðherra heimilt að veita Flugleiðum 92 miljón kr. ríkisstyrk í ár. 65 miljónir eru til greiðslu á fyrrnefndu láni og 27 miljónir vegna niðurfellingar á lendingargjöldum á Keflavíkurflugvelli vegna N- Atlantshafsflugsins. Sigurður Helgason sagði að ríkissjóður hefði á sín- um tíma tekið á sig allar skuldbindingar vegna þessa láns, meðan tap væri á N-Atlantshafsflugleiðinni. „Það er algjör fjarstæða að hér sé um einhverja kröfu á Flugleiðir að ræða. Spurningin er frekar hver skuldi hverjum hvað“, sagði Sigurður. Aðspurður hvort fé- lagið væri ekki betur í stakk búið nú en oft áður að taka á sig þessa skuldbindingu, sagði hann að eiginfjárstaða félagsins væri enn neikvæð um 800 miljónir og þar af hefði ríkisvaldið neytt félagið til að reka innanlands- flugið með 300 miljón kr. tapi si. 10 ár. Varðandi niðurfellingu lendingargjalda sagði Sig- urður að hún væri til að tryggja samkeppnisgðstöðu félagsins á N-Atlantshafsleiðinni þar sem vegna við- komu á íslandi þyrfti félagið að lenda fjórum sinnum í hverri hringferð en önnur félög aðeins tvisvar sinnum. ________________________________________________iJg- Sjá bls. 3 Framsóknarflokkurinn kengbeygir Sjálfstœðisflokkinn í með- ferð kjördœmamálsins á Alþingi Páll Pétursson formaður Hann er yfirlýstur andstœðingur jöfnunarfrumvarpsins ,Já, ég er nú helst á því að maður hafi ekki gert sér grein fyrir því hvað þetta er feiknalega þungt í vöfum. Eg get sagt það hreinskilnislega að þetta er meiri þungaiðnaður en ég átti von á“, sagði Sverrir Her- mannsson iðnaðarráðhera aðspurður í gær um hvort erfiðara væri að ná samningum við Alusuisse en hann átti von á áður en hann varð ráðherra. Sverrir tók þá þátt í ásökunum þingmanna Sjálfstæðisflokksins á Hjörleif Guttormsson þáverandi iðnaðarráðherra fyrir að ná ekki samningum við Alusuisse. Þingmenn flokksins fluttu meira að segja tillögu um það á Alþingi að víkja Hjörleifi úr samningum við Alusuisse og kjósa þingnefnd til að leysa þetta „auðvelda“ mál. Astæðan til þess að Sverrir var spurður þessa er sú, að í skýrslu sem hann flutti Alþingi í haust um bráða- birgðasamkomulagið við Alusuisse sagði hann: „Aðilar munu leitast við að ná endanlegu samkomu- lagi ekki síðar en hinn 1. apríl 1984“. Ekkert hefur þokast í málinu síðan þessi bráða- birgðasamningur var gerður og nú nýverið lýsti Sverrir Hermannsson því yfir, bæði í blaðaviðtali og útvarps- fréttum, að samkomulags væri ekki að vænta fyrr en í fyrsta lagi næsta haust. - S.dór. Framsóknarflokknum hefur tekist að beygja Sjálfstaeðis- flokkinn um meðferð kjördæmamáisins á þingi. Þvert á þing- venju hafa flokkarnir ákveðið að formenn beggja stjórnar- skrárnefnda þingsins séu úr stjórnarliðinu, en venjan er sú að stjórnarandstaðan eigi formann í annarri nefndanna. Þetta varð ljóst í gær þegar Sjálfstæðisflokkurinn féllst á kröfu Framsóknarflokksins um að PáU Pétursson yrði kosinn formaður stjórnarskrárnefndar neðri deildar alþingis. Ljóst er að Framsóknarflokknum hefur tekist að beygja Sjálfstæðisflokkinn í þessu máli, þarsem þingflokkur Sjálf- stæðisflokksins hafði áður samþykkt að kjósa fulltrúa úr stjórnarandstöðunni, annað hvort Svavar Gestsson eða Kjartan Jóhansson, til formennsku stjómarskrárnefndar neðri deildar. í efri deild er Þorvaldur Garðar Kristjánsson formaður stjórnarskrámefndar en í neðri deild Páll Pétursson einsog áður sagði. Páll er einn fárra þingmanna sem mælt hefur í mót tillögu formanna fjögurra stærstu stjórnmálaflokkanna á þingi um breytingar á kosningalögum sem koma til með- ferðar í stjómarskrámefndum þingsins. t baksölum alþingis í gær var mikið rætt um þetta mál og vom nokkrir þingmenn Sjálfstæðisflokksins á þéttbýlissvæð- inu afar óánægðir með þessa skipan mála. Þeir bentu á að nú væm formenn beggja stjómarskrárnefndanna úr röðum landsbyggðarþingmanna og þetta bæri ekki vott um þann víðtæka samkomulagsvilja sem fram að þessu hefði verið fyrir hendi. -óg.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.