Þjóðviljinn - 11.04.1984, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 11.04.1984, Blaðsíða 9
Miðvikudagur 11. aprfl 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9 Áin Aura sem gaf Abo líf, segja Finnar. Opinber heimsókn forseta íslands til Finnlands Eins og áður hefur verið skýrt frá hefur forseti íslands Vigdís Finn- bogadóttir. þegið boð um að koma í opinbera heimsókn til Finnlands daganna 11.-14. apríl nk. Dagskrá heimsóknannnar cr í aðal- atriðum á þessa leið: Miðvikudaginn 11. apríl heldur forseti íslands ásamt fylgdarliði með Flugleiðavél til Helsinkiborg- ar. Forseti Finnlands Mauno Koi- visto og frú Tcllervo Koivisto taka á móti forseta íslands á flugvellinum, en síðan er haldið til forsetahallar- innar í Helsinki. Eftir stutta mót- tökuathöfn í höllinni heldur forseti íslands til Sandudd og leggur þar blómsveig að minnisvarða um Finna sem féllu í seinni heimsstyrj- öldinni og ennfremur á gröf Mann- erheims marskálks. Síðdegis þenn- an sama dag tckur forseti ámóti for- stöðumönnum sendiráða í forseta- höllinni í Helsinki. Um kvöldið heldur svo forseti Finnlands kvöld- verðarboð í höllinni til heiðurs fors- eta íslands. Þennan sama dag ræð- ast við utanríkisráðherrar fslands og Finnlands. Fimmtudaginn 12. apríl cr fors- eta fslands boðið að skoða þinghús- ið í Helsinki, Tempelplatskirkjuna þar sem hinn þekkti Tapiola- barnakór syngur og síðan ftnnska þjóðminiasafnið. Þá heimsækir forseti fslands Finlandiahúsið og situr síðan hádcgisverðarboð Hels- inkiborgar. Síðdegis opnar forseti íslands sýninguna „FORM ÍS- LAND“ í Listiðnaðarsafninu í Helsinki. Þá verður móttaka fyrir íslendinga búsctta í Finnlandi á heimili aðalræðismanns íslands í Helsinki og sömuleiðis móttaka á vegum íslenskra útflutnings- og ferðamála fyrirtækja á Hótel Int- ercontinental. Um kvöldið bjóða finnsku forsetahjónin til sýningar í Svenska Teatern á ieikrítinu „Háx- skogen“ eftir Johan Bargurn. Köstuduginn 13. apríl verður haldið flugleiðis til Ábo (Turku) og Álandsdseyja. f Ábo heimsækir forseti íslands dömkirkjuna og síð- an er snæddur hádegisverður í boði borgarstjórnarinnar í Ábo. A Ál- andseyjum skoðar forseti nt.a. sjóminjasafn og safn um sögu Ál- andseyja. Komið verður aftur til Helsinki síðdegis sama dag. Um kvöldið held.ur forseti Islands kvöldverðarboð til heiðurs finnsku forsetahjónunum á Hótel Fiskart- orpet, en á því hóteli dvelst forseti og fylgdarlið meðan á hinni opin- beru heimsókn stendur. Árdegis laugardaginn 14. aprtl heimsækir forseti fsiands listamið- stöðina Svcaborg en Kalevi Sorsa forsætisráðherra Finnlands býður svo til hádegisverðar. Kl. )3:00 þennan dag heldur forseti fslands síðan frá Finnlandi áleiðis til Kaupmannahafnar og lýkur þar með hinni opinberu heimsókn. f fylgdarliði forseta verða Geir Hall- grímsson utanríkisráðherra og frú Ema Finnsdóttir, lngvi S. Ingvars- son ráðuneytisstjóri utanríkisráðu- neytisins og frú Hólmfríður Jóns- dóttir, og Halldór Reynisson forset- aritari Þessar veggskreytingar komu í Ijós við hreinsun hallarinnar. Einn turninn á „Hölllnni" í Abo. Úr Finnlands-heimsókn: töfrandi borg Meöal þess, sem forseti ís- lands, Vigdís Finnbogadóttir mun skoöa í opinberri heim- sókn sinni til Finnlands er „Höll- in“ íTurku, eðaÁboeinsog borgin er kölluð á sænsku. borgin er 3ja stærsta borg Finn- lands, með um 160 þúsund íbúa og er jafnframt elsta borg landsins, enginn veit í raun hversu gömul borgin er. Hún mun hafa byggst uþp sem sigl- ingaog verslunarstaður, enda liggur ekki önnur borg í landinu beturvið til slíkrar síslan. En það er „Höllin" sem við ætlum að fjalla lítið eitt um hér. ís- lenskum fréttamönnum sem voru á ferð í Finnlandi í síðustu viku var boðið að skoða þessa gömlu og merkilegu höll. Að byggja iipp fornminjar Sá mæti maður Vilhjálmur Hjálmarsson frá Brekku sagði eitt sinn að hann væri andvígur því að byggja upp fornminjar. Ég var sammála honum þá, en ég er það ekki núna. Margt hefur orðið til að breyta þeirri skoðun minni, en „Höllin" í Ábo staðfesti hana. Þessi höll, sem hafist var handa um að byggja árið 1280 hefur oftar en einu sinni orðið fyrir alvarlegum skemmdum af bruna, eins og reyndar borgin Ábo. Hefðu menn ekki endurbyggt höllina, væru Finnar fátækari hvað snertir forn- minjaren þeirerunú. Segjamáaðí þeim bruna, sem orðið hefur íÁbo og skaðaði höllina brann allt nema útveggir og annað sem er úr steini. gólfin öll eru úr timbri, þannig að þau eru nýleg. f þessari merku höll, eða virki, sem væri ef til vill réttara orð hafa verið íverustaðir mikils fjölda fólks, matsalir eða veislusalir, kirkja, fangelsi og raunar flest það sem fólk þarf á að halda, án þess að þurfa leita þess annarsstaðar. Sá sem skoðað hefur hallir og kastala í Suður Evrópu, honum mun þykja þessi Norræna höll kuldaleg og skrautlítil. En hún býr samt yfir ákveðnum töfrum. Hún er stflhrein og skrautlítil. Sögufrœgð íbúar Ábo segja „Höllina" sögu- frægasta hús Finnlands og hafa þeir vissulega mikið til síns máls. Allt frá 13. öld og fram á 18. öld var „Höllin" bústaður konunga og keisara. Hún var, sem fyrr segir, virki sem barist var um, hún var um tíma á 15. öld miðstöð verslunar og viðskipta. Og alltaf voru menn að bæta byggingum við þann hluta hallarinnar sem byrjað var að byggja á 13. öld. Og nú segja íbúar Ábo „Höllina" merkilegustu forn- minjar landsins. „Höllin“ stendur við ósa árinnar Aura og einmitt vegna þessarar merkilegu elvu segja Finnar að náttúran og hafið hafi gefið Ábo líf sem verslunar- staður fyrir svo löngu síðan að eng- inn veit hvenær menn settust fyrst að við árósana og lögðu grunn að borginni. o Abo töfrandi borg Borgin Ábo stendur sitt hvoru megin árinnar Aura. Öðru megin er kallaður sænski hlutinn en hinu megin sá finnski. Hvergi eru sænsk áhrif meiri í Finnlandi en í Ábo. Samt er borgin finnsk í útliti. Hinn stórkostlegi arkitektúr Finna nýtur sín vel í Ábo. Fáir ef nokkrir standa Finnum á sporði þegar um arkitektúr er að ræða. Þótt ég hafi aðeins átt þess kost að skoða borg- ina einn dag, þá hafði hún þau áhrif á mig að mér þótti hún töfrandi, kannski meira töfrandi en aðrar borgir sem ég hef séð í Finnlandi. Borgin er fyrst og fremst verslunar og iðnaðarborg og að sjálfsögðu hafnarborg. Sá sem ætlar til Finn- lands ætti ekki að láta hjá líða, sé þess nokkur kostur að heimsækja Ábo, henni gleymir enginn. -S.dór.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.