Þjóðviljinn - 11.04.1984, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 11.04.1984, Blaðsíða 11
Miðvikudagur 11. aprfl 1984jWÓÐVILJINN — SÍÐA 11 íþróttir Víðir Sigurðsson Frábær varnarleikur og Island sigraði Frakkland öðru sinni Geysiöflugur varnarleikur ís- lenska kvennalandsliðsins i hand- knattleik tryggði því sinn annan sigur á Frökkum á tveimur dögum, 22-18 á Akranesi í gærkvöldi. Fyrri hluta síðari hálfleiks fékk liðið að- eins á sig eitt mark en skoraði sjö á meðan og gerði þar með útum leikinn. Fyrri hálfleikur var hnífjafn, Skellur Víkinga! 3. deildarlið Fylkis skellti 1. deildarliði Víkings, 3-2, á Reykja- víkurmótinu í knattspyrnu á Mela- vcllinum í gærkvöldi. Hafþór Aðal- steinsson skoraði fyrst fyrir Víking en Fylkir svaraði þrívegis á 5 mín- útum undir lok fyrri hálfleiks, Ant- on Jakobsson, Hilmar Árnason og Óskar Theódórsson. Heimir Karls- son lagaði síðan stöðuna fyrir Vík- ing í síðari hálfleik. Alfreð meistari? Frakkland þó oftast yfir en staðan var 11-11 í hálfleik. Síðan stóðu frönsku stúlkurnar uppi ráðþrota gegn íslensku vörninni, staðan breyttist í 18-12 og 20-13, síðan 22- 15, en Frakkland gerði þrjú síðustu mörkin. Ingunn Bernótusdóttir var burð- arás íslenska liðsins, gífurlega kraftmikil, Kristjana Aradóttir og Guðríður Guðjónsdóttir gerðu einnig góða hluti og markverðirnir, Kolbrún Jóhannsdóttir og Kristín Þrjú ensku liðanna sem leik í undan- úrslitum Evrópumótanna í knattspyrnu í kvöld verða veikari en vant er vegna meiðsla sterkari leikmanna. Arnold Muhren er meiddur hjá Man. Utd. og Ray Wilkins verður í leikbanni þegar félagið mætir Juventus á Old Trafford. Reiknað er með að Alan Davies leiki með Man. Utd., sinn fyrsta leik frá bikarúrslitunum í fyrravor. Vésteinn og Einar Vilhjálmsson var ekki einn um að ná góðum árangri á frjáls- íþróttamótinu í Austin í Texas um helgina þótt hans frammistaða skyggði nánast á allt annað. Vé- steinn Hafsteinsson og Þórdís Gísl- adóttir sigruðu einnig í sínum greinum, Vésteinn með 62,24 metra í kringlukasti og Þórdís með Brandsdóttir, skiluðu sínum hlut- verkum vel. Ingunn og Kristjana skoruðu 6 mörk hvor, Guðríður 5, Sigrún Blomsterberg 4 og Erla Rafnsdótt- ir 1. Pascale var best þeirra frön- sku, góður leikmaður sem stjórnar leik liðsins. Hún skoraði 5 mörk og hin grimma Saudose 4. Þjóðirnar leika þriðja og síðasta leik sinn í þessari íslandsreisu þeirra frönsku í Vestmannaeyjum kl. 19.30 í kvöld. - SG/VS. Tottenham leikur við Hajduk Split í Júgóslavíu og verður án landsliðsmann- anna Rays Clemence og Glenns Ho- ddle sem eru meiddir. Hoddle var skorinn upp við meiðslum í gær og leikur ekki knattspyrnu næstu 5 vikurn- ar. Nottingham Forest mætir Arnóri Guðjohnsen og félögum í Anderlecht og leikur án Garry Birtles og Franz Thijssen sem báðir eru meiddir í baki. Þórdís unnu 1,84 m í hástökki kvenna. Þráinn Hafsteinsson kastaði kringlunni 54,14 metra. Þá varð íris Grönfeldt önnur í spjótkasti kvenna með 53,32 metra. Oddur Sigurðsson keppti í boðhlaupi en sveit hans komst ekki í úrslit og Óskar Jakobsson gerði köst sín í kúlu- varpi ógild. Meiðsli hrjá ensku liðin Lyfjanotkun íþróttamanna: Lést 26 ára af völdum „Bolans“! Nýlega var skýrt frá fyrsta dauðsfallinu sem rekja má með vissu til notkunar íþróttamanna á vaxtarhvetjandi hormónum, sem á erlendum tungum ganga undir samheitinu „anabolic steroids“. í læknaritinu Annals og Internal Medicine var í janúarhefti skýrt frá því að ónafn- grcindur 26 ára lyftingamaður frá Pennsylvaníu hafi látist sökum ólæknandi krabbameins í lifur, sem stafaði að öllum líkindum af neyslu vaxtarhvetjandi hormóna, sem iyftingamaðurinn hafi neytt um fjög- urra ára skeið. Þegar krabbanmeinið var uppgötvað í manninum var hann níutíu kfló en hafði fallið niður fyrir fimmtiu þegar hann lést, fjórum mánuð- um síðar. Þess má geta að um talsverðan tíma hafa læknar tengt lifrarkrabba við neyslu vaxtarhvetjandi hormóna. Þrátt fyrir þetta er ekki líklegt að íþróttamenn muni i framtíðinni nota slík hormónalyf í minna mæli, megi marka könnun sem gcrð var nýlega af Kalifomíuháskóia. íþróttamenn voru spurðir, hvort þeir myndu taka hormónalyf ef það myndi tryggja þeim gullverðlaun á Olympiuleikunum, en hefðu eigi að síður 50% möguieika á að valda þeim krabbameini. Meira en helmingur kvaðst fús til að taka áhætt- una. Þess má geta að nú tíðkast í auknum mæli að nota vaxtarhormón, sem framleitt er að öðru jöfnu í mannslíkamanum, til að auka vöxt vöðva. Hingað til hefur verið mikill skortur á slíkum hormón, sem hefur verið einangraður úr heiladinglum látins fólks og fyrst og fremst notaður til að aðstoða börn sem eru hrjáð af dvergvexti. En vísinda- menn í Kaliforníu hafa nú náð að láta bakteríu framleiða vaxtarhorm- ón manna og líklegt er að það muni innan tíðar fást á svörtum markaði fyrir íþróttafólk. Nánar verður síðar sagt frá hættum sem fylgja of- notkun þessa. -ÖS Alfreð Gíslason og félagar í Ess- en tóku um helgina forystuna í vestur-þýsku Bundesligunni í handknattleik er þeir burstuðu Hofweier 24-14. Alfreð skoraði 5 mörk í leiknum og gæti hæglega orðið meistari með liði sínu þar sem einungis þrjár umferðir eru eftir í deildinni. Afram í 3. deild Island náði ekki að vinna sér sæti í 2. deild Evrópukeppninnar í bad- minton sem nú stendur yfir í Prest- on í Englandi. Seint í fyrrakvöld mætti íslenska liðið Belgum í úrs- litaleik um 2. deildarsætið og Belg- ar unnu nauman sigur, 3-2. Frammistaða íslands er þó með ágætum, glæsisigrar unnust á Norðmönnum, Frökkum og ítölum í undankeppni 3. deildarinnar. • • Oruggur sig- ur hjá ÍBK íslandsmeistarar í 5. flokki karla í handknattleik 1984- Valsmenn. Mynd: -eik Stórmót í körfuknattleik í Keflavík: Fjögur úrvalslið taka þátt Litla bikarkeppnin í knattspyrnu hófst í fyrrakvöld með því að ÍBK sigraði Breiðablik 3-1 í Keflavík. ÍBK komst í 3-0, Helgi Bentsson , fyrrum Breiðabliksmaður, skoraði tvívegis og Einar Ásbjörn Ólafsson einu sinni en Jón Einarsson svaraði fyrir Breiðablik úr vítaspyrnu. Sheff. Wed. á toppinn Sheff. Wed. tók forystuna í 2. deild ensku knattspyrnunnar í gær- kvöldi með því að sigra Dcrby 3-1 í Sheffield. Grimsby vann Barnsley 1-0 og á enn von um 1. deildarsæti. Ccltic vann Motherwell 4-2 í skosku úrvalsdeildinni. í fyrrakvöld gerðu Everton og Arsenal markalaust jafntefli í 1. deildinni ensku. Mikið körfuknattleiksmót, Stór- mót Sparisjóðs Keflavíkur, verður haldið í Keflavík á fimmtudags- og sunnudagskvöld. Fjögur lið taka þátt í mótinu, A- og B- landslið karla, unglingalandsliðið og Suðurnesjaúrval, skipað leik- mönnum úr Njarðvík, Keflavík, Sandgerði og Grindavík. Fyrri umferðin fer fram annað kvöld. Kl. 20 ieikur B-landsliðið gegn unglingalandsliðinu og síðan A-landsliðið gegn Suðurnesja- mönnum. Á sunnudagskvöld kl. 20 berjast tapliðin úr ofangreindum leikjum um þriðja sætið og kl. 21.30 leika sigurliðin tvö um efsta sætið. Sparisjóðurinn í Keflavík hefur styrkt mótið mjög veglega og gefið til þess verðlaunagrip, og er stefnan sú að mótið verði að ár- legum viðburði í körfuknatt- leikslífinu hérlendis. Flestir bestu körfuknattleiks- menn landsins taka þátt í mótinu en liðin eru þannig skipuð: A-landsliðið: Torfi Magnússon, Kristján Ágústsson, Tómas Holton og Jón Steingrímsson, Val, Jón Sigurðsson og Garðar Jóhannsson, KR, Hreinn Þorkelsson og Gylfi Þorkelsson, ÍR, Valur Ingimund- arson og Sturla Örlygsson, Njarð- vík, Pálmar Sigurðsson, Haukum, Jón Kr. Gíslason, Keflavík, og Flosi Sigurðsson, University of Washington. B-landsliðið: Hálfdán Markús- son, Kristinn Kristinsson, Ólafur Rafnsson, Sveinn Sigurbergsson og Dacarsta Webster, Haukum, Árni Guðmundsson og Guðmund- ur Jóhannsson, ÍS, Hjörtur Odd- son, ÍR, Leifur Gústafsson, Val, Páll Kolbeinsson, KR, Unnar Vil- hjálmsson, Laugdælum og Þor- valdur Geirsson, Fram. Suðurnesjaúrval: Gunnar Þor- varðarson, Árni Lárusson, Ástþór Ingason, ísak Tómasson og Ingim- ar Jónsson, Njarðvík, Eyjólfur Guðlaugsson, Hjálmar Hallgríms- son og Ólafur Jóhannesson, Grindavík, Óskar Nikulásson og Þorsteinn Bjarnason, Keflavík, og Jónas Jóhannesson, Reyni. Unglingalandsliðið: Jóhannes Kristbjörnsson, Matthías Einars- son, Guðni Guðnason og Birgir Mikaelsson, KR, Kristinn Einars- son, Hreiðar Hreiðarsson og Teitur Örlygsson, Njarðvík, Sig- urður Ingimundarson og Guðjón Skúlason, Keflavík, Björn Stef- fensen og Karl Guðlaugsson, ÍR og Henning Henningsson, Haukum. -VS

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.