Þjóðviljinn - 25.04.1984, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 25.04.1984, Blaðsíða 4
12 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 25. aprfl 1984 Skíðamót íslands 1984 Texti: Hermann Karlsson, Kristinn Hreinsson, Víðir Sigurðsson. Alpagreinar karla: Guðmundur náði í þrjú gull Guðmundur Jóhannsson frá ísa- firði reyndist sterkastur í alpa- greinum karia. Hann sigraði í stór- svigi og varð þriðji í svigi og það dugði honum til sigurs í alpatví- keppni. Þriðja gullið féli honum í skaut er hann var í sigursveit ísfirð- inga í flokkasvigi. Arni Þór Árnason frá Reykjavík sigraði í sviginu og það reyndust einu gullverðlaun Reykvíkinga á mótinu. „Ég átti von á þessum sigri, brautin var góð, svo og allur undirbúningur og tímasetning. Ég hef dvalið við æfingar í Noregi und- anfarið og hef verið á uppleið þannig að ég átti frekar von á þessu en ella“, sagði Árni Þór eftir sigur- Svig Arni Þór Arnason, Reykjav.......91,48 Atli Einarsson, isaf............93,26 sek. Guðm. Jóhannsson, isaf.........93,29 Daníel Hilmarsson, Dalvík......49,38 Björn Vikingsson, Akureyri.....49,61 Stórsvig Guðm. Jóhannsson, ísaf........115,33 Björn Vikingsson, Ak..........116,80 Atli Einarsson, l'saf.........116,81 Daníel Hilmarsson, Dalvik.....116,83 Árni G. Árnason, Húsavík......117,60 Aipatvíkeppni Guðm. Jóhannsson, ísaf........15,27 Atli Einarsson, ísaf...........24,96 Daníel Hilmarsson, Dalvík......27,26 Björn Víkingsson, Akureyri.....32,96 Árni G. Árnason, Húsavík.......38,79 í flokkasviginu sigruðu ísfirðing- ar með yfirburðum, þeir Atli, Guð- mundur, Rúnar Jónatansson og Guðjón Ólafsson renndu sér sam- tals á 296,97 sek. en sveit Húsavík- ur fékk tímann 366,21 sek. Sveitir Reykjavíkur og Akureyrar féllu úr keppninni. Guðmundur Jóhannsson, Is- firðingurinn sigursæli, á fleygi- ferð í sviginu. Norrænar greinar kvenna: Skíðamót íslands, það 45. f röðinni, var haldið á Akureyri og Ólafsfirði dagana 18.-23. apríl. Ólafsfjörður kom reyndar ekki inní myndina fyrr en á síðasta mótsdegi, annan í páskum, er veður hamlaði keppni í göngu í Hlíðarfjalli. Þær fjórar göngu- greinar sem þá voru eftir voru fluttar út í Ólafsfjörð þar sem veður var mun betra og hægt var að Ijúka keppninni. Annars var veður mjög gott á fimmtudag og laugar- dag og reyndar ágætt líka á föstudaginn langa en þá var sólarlaust. Á sunnudag fór að hvessa, keppni í alpa- greinum tókst að Ijúka en göngugreinunum þurfti að fresta og loks færa til Ólafs- fjarðar eins og áður sagði. Ellefu einstaklingar fengu gullverðlaun á mótinu og nokkrir að auki í flokkasvigi og boðgöngu. Afraksturinn varð bestur hjá Gottlieb Konráðssyni, Ólafsfirði, og Guðrúnu Pálsdóttur, Siglu- firði, en þau hlutu fjögur gull hvort í göngu. Nanna Leifsdóttir, Akureyri, fékk þrjú gull í alpagreinum kvenna en veikindi hindruðu hana frá þeim fjórðu. Stella Hjaltadóttir frá Isafirði fékk þrenn gull í stúlknaflokki í göngu og á glæsta framtíð fyrir sér og Guðmundur Jó- hannsson samborgari henn- ar reyndist sterkastur í alpa- greinum karla. Verðlaunin skiptust að langmestu leyti milli fjögurra staða, Ólafsfjarðar, Siglu- fjarðar, Akureyrar og Isa- fjarðar. Ólafsfirðingar náðu flestum gullverðlaunum, 7 talsins en hinir þrír kaupstaðirnir 6 hver. Þá var aðeins eitt gull afgangs, það féll í skaut Reykvíkinga. Kúsvíkingar og Dalvíkingar náðu í ein silfurverðlaun hvorir. Reykjavík fékk fern brons, en öll önnur verðlaun fóru til hinna fjögurra sigur- sælu. Myndir: Guðmundur Svansson. Alpagreinar kvenna: Nanna með örugga þrennu Nanna Leifsdóttir er áfram skíð- adrottning íslands, það fór aldrei á milli mála. Hún vann bæði stór- svigið og svigið eins og á síðasta landsmóti og þar með alpatví- keppnina einnig. Veikindi á páska- dag komu í veg fyrir hennar fjórðu gullverðlaun en þá missti hún af flokkasviginu. Svig sek. Nanna Leifsdóttir, Akureyri........93,07 Tinna Traustadóttir, Akureyri......94,22 Signe Viöarsdóttir, Akureyri.......94,54 Hrefna Magnúsdóttir, Akureyri.....96,16 Guörún J. Magnúsdóttir, Akureyri ...97,60 Stórsvig Nanna Leifsdóttir, Akureyri......127,50 Signe Viðarsdóttir, Ak...........129,55 GuðrúnH. Kristjónsd. Ak.........131,02 Anna María Malmquist, Ak........131,91 Guðrún J. Magnúsdóttir, Ak.......132,01 Aipatvikeppni stig Nanna Leifsdóttir, Akureyri.......0,00 Signe Viðarsdóttir, Akureyri.....22,01 Hrefna Magnúsdóttir, Akureyri....58,85 Guðrún J. Magnúsdóttir, Ak.......64,15 Algerir yfirburðir akureyrsku stúlknanna og þær unnu síðan tvö- faldan sigur í flokkasviginu, B- sveit þeirra vann eftir mikla keppni við A-sveitina. B-sveitin var skipuð þeim Guðrúnu J, Hrefnu og Önnu Maríu og þær fengu tímann 229,31 sek. en A-sveitin 229,68. Þriðja varð síðan sveit Reykjavík- ur á 243,46 sek. Guðrún Pálsdóttir fró Siglufirði - ferfaldur sigurvegari í göngu kvenna, með Maríu Jóhannsdóttur og Guðbjörgu Haraldsdóttur sína til hvorrar handar. Norrænar greinar karla: Glæsisigrar Gottliebs Ólafsfirðingarnir Gottlieb Kon- ráðsson og Þorvaldur Jónsson voru skærustu stjörnurnar í norrænum greinum karla. Gottlieb vann 15 og 30 km göngurnar í flokki karla 20 Guðrún hafði betur í boð- göngunni og fékk 4 gull Drottningar skíðagöngunnar eru þær Guðrún Pálsdóttir frá Siglu- firði og Stella Hjaltadóttir frá Isa- firði. Þærreyndustósigrandi, Guð- rún vann 5 og 7,5 km göngur kvenna 19 ára og eldri og Stella 3,5 og 5 km göngur 16-18 ára stúlkna. Þær sigruðu auðvitað báðar í tví- keppni og Guðrún fékk sitt fjórða gull er hún var í sigursveit Siglfirðinga í boðgöngunni. Stella var í sveit ísfirðinga sem varð að lúta í lægra haldi. Konur 5 km ganga Guðrún Pálsdóttir, Sigluf.........18,23 Maria Jóhannsdóttir, Sigluf.......19,05 Guðbjörg Haraldsdóttir, Reykj.....20,39 Konur 7,5 km ganga Suðrún Pálsdóttir, Siglufl........27,17 María Jóhannsdóttir, Sigluf.......29,46 Guðbjörg Haraldsdóttir, Reykj.....32,07 Stúlkur 3 km ganga Stella Hjaltadóttir, ísaf.........12,36 Svanhildur Garðarsd. isaf.........13,36 Ósk Ebenesardóttir, isaf..........13,37 Stúlkur 5 km ganga Stella Hjaltadóttir, isaf.........17,24 Svanf ríður Jóhannsdr., Sigluf..18,34 Auður Ebenesardóttir, isaf......19,24 Boðganga Siglufjörður....................39,52 ísafjörður..................... 40,30 Það er athyglisvert að Stella er með mínútu betri tíma í 5 km göng- unni en Guðrún, þannig að sú síðarnefnda má greinilega prísa sig sæla með að Stella skuli enn vera í yngri flokknum! ára og eldri og þar með tvíkeppn- ina í þeim flokki og Þorvaldur sigr- aði í stökki og norrænni tvíkeppni 20 ára og eldri. Þá fékk Haukur Eiríksson frá Akureyri tvenn gull, sigraði í 15 km göngu 17-19 ára pilta og í tvíkeppni en hlaut silfrið í 10 km göngunni. Karlar 30 km ganga min. Gottlieb Konráðsson, Ól.......86,06 Einar Ólafsson, ísaf..........89,28 Jón Konráðsson, Ól............92,39 Karlar 15 km ganga Gottlieb Konráðsson, Ól.......42,13 EinarÓlafsson, isaf............43,34 HaukurSigurðsson.Ólafssf.......44,13 Piltar 10 km ganga Ólafur Valsson, Sigluf.........30,08 HaukurEiríksson, Akureyri......30,24 Ingvi Óskarsson, Ólafsf........30,30 Piltar 15 km ganga Haukur Eiriksson, Akureyri.....45,22 Karl Guðlaugsson, Sigluf.......49,03 Bjarni Gunnarsson, isaf........50,34 Boðganga Ólafsf jörður A................88,52 Isafjörður....................88,54 Siglufjörður..................94,18 Stökk 20 ára og eldri stig Þorvaldur Jönsson, Ólafsf.....258,7 Björn Þór Ólafsson, Ólafsf....217,1 Guðmundur Konráðsson, Ólafsf..201,9 Norræn tvík. 20 ára og eldri Þorvaldur Jónsson, Ólafsf....446,50 RóbertGunnarsson, Ólafsf......412,60 Björn Þór Ólafsson, Ólaf sf..399,55 Stökk 17-19 ára Helgi K. Hannesson, Sigluf....216,4 Ólaf ur Björnsson, Ólafsf.....207,7 Randver Sigurðsson, Ólaf sf...180,2 Norræn tvik. 17-19 ára Ólafur Björnsson, Ólafsf......424,7 Sigurgeir Svsvarsson, Ólaf sf.336,2 Björn Þór, 43 ára, er enn að og Ólafur sonur hans er greinilega í þann veginn að taka við. Sigursveit Ólafsfirðinga í boð- göngunni skipuðu þeir Gottlieb og Jón Konráðssynir og Haukur Sig- urðsson. Gottlieb braut annan skíðastaf sinn í upphafi 15 km göngunnar en fékk nýjan fljótlega og varð ekki stöðvaðar eftir það.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.