Þjóðviljinn - 29.06.1984, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 29.06.1984, Blaðsíða 15
Meistara- mótið í frjálsum Meistaramót íslands í frjálsum íþróttum fer fram í 58. sinn nú um helgina. Mótið hefst k. 14 á laug- ardag og verður fram haldið á sama tíma á sunnudag, en því lýk- ur á mánudag og hefst þá keppni kl. 19. Mótið fer fram á Laugar- dalsvellinum í Reykjavík og þar sem hlaupabraut Fögruvalla er í viðgerð mun það að mestu leyti verða haldið á aðalleikvanginum. Landsliðsnefnd mun með tilliti til árangurs keppenda á mótinu velja keppendur íslands fyrir Kalott-keppnina sem haldin verð- ur í júlí. Alls eru skráðir 124 þátt- takendur frá 12 félögum og félag- asamböndum til keppninnar og eru ílestir frá ÍR, 30 talsins. Helgar- sportid Knattspyrna Frá 1. deild karla er sagt frá annars staðar en í 2. deild verður heil umferð. Fjórir leikir á morgun kl. 14, Skallagrímur-Völsungur í Borgarnesi, FH-Njarðvík í Hafnarfirði, KS-Tindastóll á Siglufirði og ÍBV-ÍBÍ í Vestmannaeyjum. Loks mæt- ast Víðir og Einherji í Garöin- um kl. 20 á sunnudagskvöld- ið. Þriðja umferðin í B-riðli 1. deildar kvenna verður leikin á sunnudag. Súlan og Þór leika á Stöðvarfirði og KA-Höttur á Akureyri. Báðir leikir hefjast kl. 14. I 3. deild verða tveir leikir í kvöld, Selfoss-ÍK og Austri-Þróttur N. Á morgun mætast svo Fylkir-HV, Grindavík-Reynir S, Víkingur Ó-Stjarnan, Leiftur-Huginnog Valur-HSÞ.b. í 4. deild er leikið víða um land að vanda og áhugaveröasti leikurinn er að þessu sinni á Fáskrúðs- firði. Þar mætast efstu lið F- riðils öðru sinni í þessari viku, Leiknir og Höttur, en einnig er toppleikur í Eyjum í B-riðli á sunnudag, Hildibrandur og Stpkkseyri eigast þar við. í Vestmannaeyjum verður 6. flokksmót Týs og Tomma- hamborgara á fullu en því lýk- ur á sunnudag. Golf Unglingameistaramótið verður haldið á Hvaleyrar- holtsvelli í Hafnarfirði á morg- un og á sunnudag og verða leiknar 36 holur hvorn dag. Leikið verður í fjórum flokkum stúlkna og drengja og búast má við mjög spennandi og skemmtilegri keppni þar sem margir meistaraflokksmanna leika í eldri flokkum. Opna GR-mótið verður haldið á Grafarholtsvellinum í Reykjavík. Það verður sett í kvöld kl. 20 en keppnin sjálf fer fram á morgun og á sunnu- dag. Frjálsar íþróttir Meistaramót íslands fer fram um helgina og sagt nán- ar frá því annars staðar. Víða um land eru haldin ýmis mót, Unglingamót UMSS á Sauðárkróki, Vorleikar UMSB í Borgarnesi, Héraðsmót UNÞ á Ásbyrgisvelli og Héraðsmót HSÞ á Húsavík. Sund Aldursflokkamót HSK fer fram á Selfossi á sunnudag- inn. IÞROTTIR Þriðja varð að duga ísland tapaði 22-16 fyrir a-liði Tékka í gœrkvöldi Ekki tókst íslenska landsliðinu að standa uppi sem sigurvegari í handknattleiksmótinu í Tékkó- slóvakíu þótt sá möguleiki hefði- vissulega verið fyrir hendi. Liðið tapaði 22-16 fyrir a-liði Tékka í siðustu umferðinni í gær og varð því að sætta sig við þriðja sætið. Norðmenn unnu b-lið Tékka og urðu sigurvegarar í mótinu, þeir fengu 4 stig, a-lið Tékka sömu- leiðis, ísland 3 stig og b-lið Tékka 1 stig. íslensku leikmennirnir voru orðnir þreyttir eftir stífar æfingar og erfiða leiki og það kom mjög niður á leik þeirra. Sóknarleikur- inn var fremur máttlaus en vörnin þó góð. Tékkar voru yfir allan tímann, 14-10 í hálfleik, og ís- lenska liðið náði aldrei að ógna þeim verulega í síðari hálfleik. Aðalmarkvörður Tékka, Hú- bner, lék í gær sinn fyrsta og eina leik í mótinu og varði svo vel að hann var valinn besti markvörður mótsins! Einar Þorvarðarson mark- vörður var sá eini sem lék af eðli- legri getu í gær. Aðrir voru nokk- uð frá sínu besta. En vafalítið hefur liðið haft mjög gott af þess- ari ferð - ef hún reynist verða því til góðs þegar á sjálfa Ólympíu- leikana er komið, er tilganginum náð. Kristján Arason skoraði flest mörk íslensku leikmannanna, fjögur. Atli Hilmarsson gerði 3, Bjarni Guðmundsson, Þorbergur Aðalsteinsson, Sigurður Gunn- arsson og Jakob Sigurðsson 2 hver og Alfreð Gíslason eitt. -VS Kristján Arason var markahæstur í gær. Stórsigur vestanstúlkna! ÍBÍ burstaði Víking en Valur og UBK skildu jöfn ÍBÍ vann stórsigur á Víkingi, 4-0, þegar félögin mættust í 1. deild kvenna á Víkingsvellinum í gærkvöldi. Þar með eru Víkings stúlkurnar einar á botninum, hafa ekki hlotið stig, en ÍBÍ er þá komið með 3 stig. Á Valsvellinum áttust við tvö af sterkustu liðum deildarinnar, Valur og Breiðablik, og tókst hvorugu liði að skora mark. Breiðablik átti hættulegri færi og það fyrsta átti Lára Áskelsdóttir er hún skaut í liggjandi markvörð Vals, Sigrúnu Norðfjörð. Sigrún lék þarna sinn fyrsta leik eftir árs fjarveru og stóð sig með mikilli prýði. Alda Rögnvaldsdóttir átti gott færi skömmu síðar en skaut yfir opið Valsmarkið. Litlu munaði að UBK kæmist yfir þegar Ásta María átti gott skot í þverslá beint úr auka- spyrnu. Stuttu síðar átti Bryndís Valsdóttir besta færi Valsstúlkna eftir góða fyrirgjöf Guðrúnar Reynisdóttur en hún skaut fram- hjá. Dapurt í Dalnum Þróttur og KR gerðu markalaust jafntefli í tilþrifalitlum 1. deildarleik í knattspyrnu. Einn af daufari leikjum 1. deildarinnar í knattspyrnu á þessu sumri fór fram á Laugar- dalsvellinum í gærkvöldi. Þróttur og KR gerðu markalaust jafntefli - úrslit við hæfi þótt Þróttarar væru betri aðilinn þegar á heildina er litið. Þeir byrjuðu af geysilegum krafti og boltinn fór varla út af vallarhelmingi KR fyrstu 10 mín- úturnar. Aðeins einu sinni var hættan þó veruleg, á 3. mínútu þegar Ásgeir Elíasson skaut hörkuskoti af vítateig sem Stefán Jóhannsson markvörður KR gerði vel að verja í horn. Á 17. mínútu fékk Sverrir Herbertsson tvö upplögð færi til að koma KR yfir, þrumaði tvívegis af markteig en í bæði skiptin varði Guðmund- ur Erlingsson og sýndi við það stórkostlega „akróbatík". „Al- veg eins og þegar ég spilaði með honum í 5. flokki", sagði Jón Ól- afsson „Rásari". Besta færi Þrótt- ar kom á 29. mínútu er Arnar Friðriksson fékk boltann á vítap- unkti. Stefán markvörður lá víðs fjarri, en Arnar skaut í Harald 1. deild: Keppnin hálfnuð á sunnudagskvöld flm l-'.l_. . W Um helgina lýkur 9. umferð 1 deildarkeppninnar í knattspyrnu og á sunnudagskvöldið verður keppnin því hálfnuð. Þór og Val- ur leika á Akureyri í kvöld kl. 20, Breiðablik-Akranes í Kópavogi kl. 14 á morgun og tveir leikir fara fram kl. 20 á sunnudaagsk- völdið. ÍBK og Víkingur mætast í Keflavík og Fram-KA á Laugar- dalsvelli. Átta af tíu liðum deildarinnar eru á miklu hættusvæði og hvert stig dýrmætt í baráttunni. Aðeins Akranes og Keflavík eru laus við taugaveiklun fallslagsins. Eins og áður í sumar er nánast ógerlegt að spá um úrslit leikja, liðin hafa sjaldan eða aldrei verið jafnari en nú. -vs Handbolta- stúlkur til Ítalíu Á þriðjudaginn kemur leggur unglingalandslið kvenna í hand- knattleik uppí 10 daga keppnis- 'ferð til Ítalíu. Fjórtán stúlkur verða með í ferðinni og eru þær eftirtaldar: Markverðir: Halla Geirsdóttir, FH Fjoia Þórisdóttir, Stjörnunni Aðrir leikmenn: Þorgerður Gunnarsdóttir, ÍR Kristin Arnþórsdóttir, ÍR Anna Olafsdóttir, FH Arndís Aradóttir, FH Arndís Heiða Einarsdóttir, FH Björk Hauksdóttir, Haukum Anna M. Guðjónsdóttir, Stjörnunni Inga Lára Þórisdóttir, Víkingi Valdís Birgisdóttir, Víkingi Hanna H. Leifsdóttir, Fram Sigurbjörg Sigþórsdóttir, KR Arnheiður Bergsteinsdóttir, Fylki Þjálfari er Viðar Símonarson, liðsstjóri Björg Guðmundsdóttir og fararstjóri Helga H. Magnús- dóttir. Ennfremur fara utan tveir dómarar, Gunnar Kjartansson og Rögnvald Erlingsson, og munu þeir dæma í keppninni. Liðin voru áþekk úti á vellin- um en Breiðablik átti hættuleg færi. Best Valsstúlkna var Sigrún markvörður en hjá Breiðabliki var Erla Rafnsdóttir einna hættu- legust. -BV 4. deild: Haraldsson á marklínunni, Eftir þetta var marki aðeins einu sinni ógnað, Páll Ólafsson átti gott skot á 61. mínútu en Stefán varði vel. Þá lyktaði tvívegis af víta- spyrnum, við sitt hvort markið, en slakur dómari Helgi Kristjáns- son dæmdi ekkert. Leikurinn lognaðist útaf - stimpillinn markalaust jafntefli var kominn á hann löngu fyrir leikslok. Frá Þrótti kom meira af viti og þar voru Ársæll Kristjánsson og Ásgeir þjálfari bestu menn ásamt Guðmundi í markinu. Kristján Jónsson var einnig hættulegur sem sóknarbakvörður. KR- ingarnir Stefán, Jósteinn Einars- son og Sæbjörn Guðmundsson áttu þokkalegan dag, aðrir voru heldur daprir. Helgi Kristjánsson dómari átti stóran þátt í hve leikurinn var leiðinlegur á að horfa, bæði voru margir dómar hans hreinlega rangir og svo var hann í sífellu sentímetrastríði og tafði þannig fyrir eðlilegum gangi leiksins. -VS Guðmundur Erlingsson sýndi glæsilega „akróbatík" í marki Þróttar. Bolvíking- ar unnu Bolungarvík sigraði Stefni 2-0 í C-riðli 4. deildarinnar í knatt- spyrnu í fyrrakvöld. Jóhann Ævarsson skoraði bæði mörkin. Bolvíkingar hafa 15 stig úr 7 leikjum en ÍR, sem vann Leikni R. 11-0 í fyrrakvöld eins og áður hefur komið fram, er með 18 stig úr 7 leikjum. Vaskur sigraði Vorboðann 4-2 á Akureyri. Bragi Bcrgmann kom Vorboðanum yfir, Vaskur svar- aði tvívegis en Valdimar Júlíus- son jafnaði fyrir Vorboðann fyrir hlé. Vaskarnir voru síðan betri í seinni hálfleik og skoruðu þá tví- vegis. Glæsilegt með Helgu Helga Unnarsdóttir, Austra, setti fyrir stuttu glæsilegt Austurlandsmet í kúluvarpi kvenna, kastaði 13,10 metra. Gamla metið átti hún sjálf en það var 12,40 metrar. England: Forest fær markvörð Enska knattspyrnufélagið Notting- ham Forest hefur fest kaup á lands- liðsmarkverði Júgóslava, Zoran Sim- ovic, sem lék mcð Hajduk Split. Hann þótti besti leikmaður Júgóslava í ný- lokinni Evrópukeppni. Frank Stapleton, miðherjinn kunni hjá Manchester United, missir a.m.k. af tveimur fyrstu vikum næsta keppn- istímabils. I síðustu viku var hann skorinn upp vegna meiðsla í hné. Stjórnarformaður Aston Villa, Doug Ellis, hefur ákveðið að ráða ekki framkvæmdastjóra í stað Tony Barton sem var rekinn fyrir skömmu heldur taka sæti hans sjálfur! -VS Claesen til Stuttgart Stuttgart, vestur-þýsku meistararnir í knattspyrnu, kaupa sennilega bclgíska lands- liðsframherjann Nico Claesen frá Seraing á eina miljón marka. Þá verður Stuttgart með þrjá er- lenda leikmenn í sínum röðum, fyrir eru Asgeir Sigurvinsson og Svíinn Dan Corneliusson, og það er einum of mikið. ítalskt félag er á höttunum á eftir Svíanum og reiknað er með að Stuttgart láti hann fara. Föstudagur 29. júní 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.