Þjóðviljinn - 30.06.1984, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 30.06.1984, Blaðsíða 7
IÞROTTIR NORRÆNA SUNDKEPPNIN 1984 Sund er heilsubót Á fullu skriði Norræna sundkeppnin 1984 er að komast á fullt skrið en hún hófst þann 1. júní og lýkur 30. nóvember. Það er einfalt að vera með; þið fáið þátttökuspjald af- hent í afgreiðslum sundstaðanna og fyllið það út sjálf. Eftir hvern mánuð skilið þið „afrifunni“ á einhvern sundstað. Þátttöku- spjöldin eru númeruð og gilda jafnframt sem happdrættismiði. Setjið markið hátt - og syndið sem oftast á tímabilinu fyrir ís- lands hönd en syndið fyrst og Aemst heilsunnar vegna. Valssigur á Akureyri Einn leikur var háður í 1. deildarkeppninni í knattspyrnu i gærkvöidi. Þór og Vaiur áttust við á íþróttavellinum á Akureyri og lauk þeirri viðureign með sigri Vals, 3-2 eftir að Valsmenn höfðu haft yfir í háifleik 1-0. Valsmenn skoruðu sitt fyrsta mark strax á 3. mínútu. Valur Valsson átti þá góða þversend- ingu fyrir markið á Guðmund Þorbjörnsson sem skoraði af stuttu færi. Tveimur mínútum seinna voru norðanmenn nálægt því að jafna er Halldór Áskelsson fór illa með upplagt marktækifæri rétt utan markteigs. Næsta orð áttu Valsmenn er skot Hilmars Sighvatssonar fór rétt framhjá. Á 29. mínútu fengu Þórsarar gullið marktækifæri en skot Bjarna Sveinbjörnssonar frá markteig fór framhjá. Seinni hálfleikur var langt frá því að vera jafn skemmtilegur og sá fyrri, ef undanskildar eru hörkuspennandi lokamínútur þar sem allt gat gerst. Eftir að hafa haft undirtökin mestan part fyrri hálfleiks tókst Þór loks að jafna á 81. mínútu. Nói Björnsson átti þá skot á markið, Júlíusi Tryggva- syni tókst að breyta stefnu bolt- ans sem fór í markið framhjá Stefáni Arnarssyni Valsmarkverði sem kominn var úr jafnvægi, 1-1. Þremur mínút- um síðar tókst Valsmönnum að komast yfir aftur, Örn Guð- mundsson átti þá fyrirgjöf frá hægri kanti á Hilmar Sighvats- son, skot hans frá vítapunkti fór framhjá Þorsteini Ólafssyni mar- kverði og inn. Mínútu fyrir leiks- lok bættu þeir síðan öðru marki við er Valur Valsson átti gullfal- heims- met í sundi Victor Morales, 19 ára Banda- ríkjamaður, setti í fyrrakvöid nýtt heimsmct í 100 m flugsundi karla á úrtökumóti fyrir Olym- píuleikana. Hann syntí vegaiengd- ina á 53,38 sek. og bættí heims- metíð um 6/100 úr sekúndu. Á sama móti setti John Moffatt heimsmet í 100 m bringusundi karla, synti á 1:02,13 mín. Gamla metið átti landi hans, Steve Lund- quist, 1:02,28 mín., en hann varð annar í sundinu og komst einnig framyfir sitt faliandi met. - VS Nýi enski landsliðsmiðherjinn í knattspyrnu, Mark Hateley, leikur í ítölsku 1. deildinni næsta vetur. AC Mílanó hefur keypt hann frá enska 2. deildarliðinu Portsmouth fyrir rúm 900 þúsund pund. Hateley sló í gegn með 21- legan skalla frá markteig efst í markhornið. Á sömu mínútunni tókst Þór síðan að minnka mun- inn er Bjarni Sveinbjörnsson skoraði frá vítateigshorni með föstum stungubolta sem hafnaði neðst í markhorninu. Sannarlega h'flegar lokamínútur, en mörkin urðu ekki fleiri. Valur Valsson og Þorgrímur Þráinsson voru bestu menn Vals í þessum leik. Eftir mjög slakt gengi í byrjun mótsins þokast Hlíðarendapiltarnir nú upp á við og markaskorunin er ekki sami höfuðverkur og verið hefur. Hið ótútreiknanlega lið Þórs- ara getur lagt hvaða lið sem er að velli á góðum degi. Liðið leikur opnari knattspyrnu en flest önnur lið deildarinnar en það gefur ekki alltaf nógu mikinn árangur. Ósk- ar Gunnarsson og Óli Þór Magnússon voru sprækastir morðanmanna. K&H/Akureyri - F Árni Sveinsson. Nú var það Árni Árni Sveinsson, Skagamaður- inn kunni, hlaut Seiko- verðlaunin fyrir að skora falleg- asta mark 8. umferðar 1. deildar- innar í knattspyrnu. Það gerði hann gegn KR sl. laugardag, hann skoraði reyndar bæði mörk ÍA í 2-0 sigrinum, en það síðara færði honum hnossið. Árni skaut viðstöðulaust fyrir utan vítateig og knötturinn flaug í bláhornið, gersamlega óverjandi. - VS Ungmennasamband Borgarfjarðar gekkst fyrir ungmennabúðum fyrir börn á aldrinum 8-13 ára að Varmalandi í Borgarf irði dagana 13. -16. júní. Þátttaka var góð, alls sóttu um 40 börn búðirnar. Þar voru stundaðar hinar ýmsu greínar frjálsra íþrótta, sund, körfuknattleikur, handknatt- leikur, knattspyrna, fimleikar o.fi. Leiðbeinendur voru Kolbrún Jónsdótt- ir (Dolla), Gunnar Svanlaugsson og Agnes Guðmundsdóttir og sést hópurinn á myndinni hér að ofan. Hateley til Ítalíu árs landsliðinu sl. vetur er hann skoraði fjögur mörk í leik gegn Frökkum og hann skoraði mark í sínum öðrum landsleik nú í vor, og það gegn sjálfum Brasilíu- mönnum í Río de Janeiro. - VS 1. deild kvenna: Dálítið ýktur Is- firskur sigur! Ekki voru þær alveg réttar, Staðan er þá þessi í A-riðli: upplýsingarnar sem við fengum í |A............4 3 1 o 14-2 10 fyrrakvöld um leik Víkings og ®^ablik.......\ j 1 1 tí 7 IBÍ í 1. deild kvenna. Víst sig- kr....!"!"™™""™"™." 4 202 4-7 6 ruðu ísafjarðarstúlkurnar, en (Bí...........4 1 0 3 3-8 3 það var 2-0 en ekki 4-0 eins og Víkingur......4 0 0 4 1-16 0 sagt var. Það voru þær Margrét Markahæstar: Geirsdóttir og Ingibjörg Jóns- LaufeySigur&ardóttir, ÍA..6 dóttir sem skoruðu mörkin dýr- SST.:::::" mætu 1 þessum þyðingarmikla BryndisValsdóttlr, Val.......3 fallbaráttuleik. _ y§ TJALDSYNING LAUGARDAG OG SUNNUDAG. MANNA TJALD FLEYGAHIMINN Á 5 MANNA HIMINN Á 5 MANNA TJALD TJALD 4-5 MANNA TJALD 0G HIMINN. HIMINN Á 3JA MANNA TJALD HIMINN MEÐ KANTI •• .■■ -!V' 3 MANNA TJALD 2JA MANNA TJALD 0PIÐ ALLA HELGINA laugardag og sunnudag. c^\ager</y Eyjarslóð 7. Símar: 14093 og 13320. Laugardagur 30. júní 1984 ÞJOÐVIUINN - SlÐA 7

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.