Þjóðviljinn - 26.03.1985, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 26.03.1985, Blaðsíða 1
VIÐHORF MANNLÍF IÞRÓTTIR HEIMURINN Aðskilnaðarstefna Ragnhildur hundsar æskuna Menntamálaráðherra neitar œskufólki um leyfi til að safnafé til stuðnings hörundsdökku fólkigegn aðskilnaðarstefnunnií S-Afríku. Samnorrœnt verkefni lítilsvirt. Fáheyrð framkomavið œskulýðssamtök, Hjálparstofnun kirkjunnar og kúgaða meirihlutann í Suður-Afríku Ragnhildur Helgadóttir menntamálaráðherra hunds- ar æsku landsins með þessu hátt- arlagi, sögðu þcir Gunnar R. Gunnarsson og Olafur Jónasson í NOD samstarfsnefndinni í viðtali við Þjóðviljann í gær. „Við feng- um endanlega synjun í gær, en við höfum verið að reyna að fá við- brögð frá ráðherranum frá því í haust fyrir hönd Landssambands mennta- og fjölbrautaskóla, Iðn- nemasambandsins og Hjálpar- stofnunar kirkjunnar sem standa að þessu verkefni“. „Ætlunin var að fá frí fyrir þá framhaldsskólanema í landinu sem ætluðu sér að safna fyrir bar- áttu æskufólks í Suður-Afríku gegn aðskilnaðarstefnu stjórn- valda þar í landi. Hér er um sam- norrænt verkefni í tilefni alþjóða- árs æskunnar að ræða og stíluðu flest Norðurlöndin á söfnunar- daginn 21. mars. Ráðherrann neitaði sjálf að tala við okkur, fyrir þann dag, svo við ákváðum að fresta söfnunardeginum til 28. mars, nk. fimmtudag. Það var ekki fyrr en í gær, að aðstoðarr- áðherra Ragnhildar gaf ákveðið svar, neitandi okkur.“ „Það er ekki mikið að marka tal þessa fólks um norrænt sam- starf eða alþjóðaár æskunnar. Hér er nefnilega urn norrænt verkefni að ræða og við höfum lagt í undirbúningskostnað fyrir þessa söfnun með boði suður- afrísku stúlkunnar Jacquline Wil- liams hingað til lands, útgáfu blaða og veggspjalda. Hjálpar- stofnun kirkjunnar, LMF og Iðn- nemasambandið hafi reitt sig á velvilja ráðherrans og ríkisstjórn- arinnar. Forsætisráðherra skrif- aði undir bréf ásamt öllum fors- ætisráðherrum Norðurlanda með áskorun til almennings um að styðja þetta framtak framhalds- skólanema á Norðurlöndum. Nú sjáum við hver hugur fylgir máli. Utlagður kostnaður okkarnemur þegar um 700 þúsund króna sem er sama upphæð og allt framlag ríkisstjórnarinnar til alþjóðaárs æskunnar," sögðu þeir Gunnar R. Gunnarsson og Olafur Jónas- son að lokum. -óg Sjá bls. 17 Kennaradeilan Trygging fyrir frambúðar- lausn Gunnlaugur Astgeirsson: Samstaðanog skilningur á málstað kennara eru mér efst í huga. Þótt full leiðrétting fáist kann- ski ekki nú, þá er í yfirlýsingum ráðherranna trygging fyrir því að unnt verði að ná slíkri leiðrétt- ingu fram í náinni framtíð og til frambúðar. Þetta sagði Gunnlaugur Astgeirsson varaformaður Hins íslenska kennarafélags í samtali við Þjóðviljann í gær. Gunnlaugur sagði að sér væri nú efst í huga hve samstaðan meðal kennara hefði verið góð og hversu mikils skilnings málstaður kennara hefði notið meðal al- mennings í landinu. Kennarar hefðu nú sýnt að þeir væru afl sem geti látið til sín taka og að þeir láti ekki bjóða sér hvað sem er og séu reiðubúnir að rísa upp aftur ef nauðsyn krefur. Gunnlaugur sagði erfitt að meta árangur deilunnar í krónum eða prósentum, þar sem samn- ingur liggi ekki fyrir eins og þegar um venjulegar vinnustöðvanir er að ræða. Það er þó mat okkar, sagði Gunnlaugur að náðst hafi verulegur árangur sem eigi eftir að sýna sig innan skamms. —ólg- Sjá bls. 2 Hér er dr. Sigurður Jónsson í París með frumeintakið góða af myndasafni leiðangurs Pauls Gaimards sem hann keypti fyrir „mörg kýrverð" og þykir hinn mesti happafengur. Þetta mun vera fyrsta símamyndin sem Þjóðviljinn verður sér úti um, en hana tók Einar Már Jónsson í París. Frásögn hans og viðbrögð fróðra íslendinga við fundi þessum eru á bls. 8 og 13 í blaðinu í dag. Porskveiðar Paskastopp Mikil reiði hjá smábátaeigendum Smábátaeigendur á suður- og vesturlandi eru ævareiðir út í sjávarútvegsráðherra vegna á- kvörðunar hans um að stöðva all- ar veiðar báta undir 10 lestum frá og með morgundeginum fram til 9. aprfl. Aflabrögð hafa sjaldan verið eins góð hjá handfærabá- tum eins og undanfarna daga og telja sjómenn mun ráðlegra að stöðva veiðar í sumar þannig að veiðibannið bitni síður á þeim sem stunda útgerð smábáta sem aðalatvinnu. Þá hefur sjávarútvegsráðherra einnig gefið út reglugerð um bann við öllum þorskveiðum í net yfir páskana eða frá 2. apríl til 9. apríl og jafnframt hafa allar tog- veiðar verið bannaðar á tveimur svæðum úti fyrir Reykjanesi frá 9. apríl til 15. maí. -Ig. Skák Stórmeistara- áfangi í höfn Jón L. Árnason hefur tekið forystuna á Húsavík Jón L. Árnason hefur tekið for- ystuna á skákmótinu á Húsavík og það sem meira er, stórmeist- araáfangi, sá fyrsti, ætti að vera í höfn hjá honum. í síðustu umferð mótsins í dag, teflir Jón gegn Ás- keli Kárasyni, en Áskell þarf að- eins hálfan vinning til að ná í fyrsta áfanga að FIDE-meistara- titli. Annars urðu úrslit þessi í gær- kveldi í næst síðustu umferð: Jón L. sigraði Karl Þorsteins, Helgi og Helmers gerðu jafntefli, sömuleiðis Lombardy og Lein, Zuckermann sigraði Pálma Pét- ursson, en skák Sævars og Tisdal fór í bið. Jón L. er efstur með 7,5 vinn- inga, Lein í öðru sæti með 7 og Helgi Ólafsson í þriðja sæti með 6 vinninga. -S.dór.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.