Þjóðviljinn - 11.05.1985, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 11.05.1985, Blaðsíða 16
MENNING Glerlist Langar að sameina glerlist og tónlist Rœttvið Píu Rakel Sverrisdóttur glerlistarmann sem tekur þóttí tveim samsýningum hér í borg Bærinn er óvenju brothætt- ur þessa dagana. Á Kjarvals- stöðum og í Norræna húsinu er verið að sýna gler, fjöldann allan af listaverkum úr gleri eftir íslehska og norræna gler- listarmenn. Einn þeirra er Pía Rakel Sverrisdóttir sem er ís- lensk á Kjarvalsstöðum en dönsk í Norræna húsinu. Það er ekki auðvelt að setja Píu Rakel niður á ákveðinn stað á landakortinu. Hún á íslenskan föður, finnska móður, er fædd í Edinborg í Skotlandi, bjó þar fyrstu árin og lærði ensku fyrsta tungumála. Undanfarin 11 ár hefur hún búið í Kaupmannahöfn ásamt manni og barni. Eftir stúdentspróf hér í Reykjavík árið 1974 fór hún til Danmerkur og hóf nám í grafískri hönnun við arkitektaskólann í Kaupmannahöfn. Síðan var hún gestanemandi í Skolan for brugs- kunst í tvö ár og eitt árið var hún í Iagerdeild listaskólans í Orrefors í Svíþjóð. Eitt sumar dvaldi hún á frægum glerlistarskóla í Pilchuch í Washington í Bandaríkjunum. En hvernig vinnur hún? „Ég vinn með kaldiger, þe. ég hita upp rúðugler í keramikofni, legg það á gifsform og móta það og skreyti svo með sandblæstri. Ég hef ýmist gert stór verk, vegg- myndir, sem ég reyni að fella inn í arkitektúrinn þar sem þau eiga að vera, eða lítil verk, skálar oþh. Stóru verkin vinn ég þannig að ég fæ hugmynd sem ég vinn til fulls á verkstæðinu mínu en svo ræðst stærðin og hlutföllin af umhverf- inu sem þau eru sett í.“ - Og hvert sœkirðu hugmynd- irnar? „Ég vinn mikið með mynstur úr jörðinni og vatninu. Til skamms tíma var ég mikið í ab- strakt og arkitektónískum form- um en undanfarið er eins og það hafi orðið einhver sprenging, það er allt orðið fígúratíft. En æ, ég get ómögulega skilgreint það sem ég er að gera, ekki fyrr en eftirá. Upplifun fólks á listaverkum er svo persónubundin og ef sú hug- mynd sem ég hef lagt í verkin nær ekki í gegn verður bara að hafa það. Ég reyni þá aftur og læri af reynslunni. En kannski breyti ég engu, ég vil hafa það alveg opið hvaða afstöðu ég tek enda hugsa ég með tilfinningunum.“ Þar var allt leyfilegt - Þú notar kalt gler, blœstu þá ekkert? „Nei, ég er reyndar einn af fáum glerlistarmönnum í Dan- mörku sem vinna með kalt gler. Ég fór á glerlínuna í Skolen for brugskunst og þar voru allir með heitt gler. Ég fór að gera tilraunir með kalt gler og er eiginlega sjál- flærð í því. Mér líkar það miklu betur vegna þess að mér fellur best að vinna í skorpum. Þeir sem vinna með heitt glera þurfa að koma sér upp mjög dýrum tækj- um og verkstæði svo þeir neyðast til að halda uppi mikilli fram- leiðslu. Fyrir bragðið hafa þeir lítinn tíma til að vinna að eigin list. Ég á því litla samleið með dönsku glerfólki. Ég fór til Ameríku í fyrra og var á sumarskóla þar sem ríkti allt annar hugsunarháttur. Þar var allt leyfilegt. Það er svo að þegar einhver fær hugmynd sem er erfið í framkvæmd hættir Dönum til að segja: þetta er ekki haegt. Amerí- kanar, og reyndar íslendingar líka, segja aftur á móti: þetta hlýtur að vera hægt, og hella sér út í það. Mér finnst gott að kynnast báð- um þessum hliðum. Danir leggja mikla áherslu á gott handverk en maður verður líka að leyfa sér að gera tilraunir. Mér finnast Islend- ingar miklu líkari Ameríkönum en Dönum, sem er bæði gott og slæmt. Þarna á skólanum í Amer- íku var til dæmis unnið brjálæðis- lega mikið, oft 20 tíma á sólar- hring.“ Að sameina gler og tónlist Það er mikið um að vera hjá Píu um þessar mundir. Auk sýn- inganna tveggja hér í Reykjavík voru verk eftir hana valin til sýn- ingar á stórri yfirlitssýningu á evr- ópskri glerlist sem opnuð verður í Coburg í Þýskalandi núna í júní. Síðar í þessum mánuði fer hún sjálf til Þýskalands og tekur þátt í ráðstefnu, sýningu og verkstæðis- vinnu í Frauenau glerlistasafninu og í haust er henni boðið til þátt- töku á glerlistarsýningu í Alkma- ar í Hollandi. Og loks er hún að búa sig undir þátttöku í árlegri sumarsýningu sem haldin er í Heilagsandahúsinu á Strikinu í Kaupmannahöfn í júlí. „A þeirri sýningu langar mig að sameina glerlist og tónlist. Kristján maðurinn minn (hann var ma. gítarleikari í hljóm- sveitinni Kamarorghestar) ætlar að sem j a tónlist fyrir mig en hún á að byggjast á glerhljóðum og vatnshljóðum.“ Mikið að gera Það undrar kannski engan að Pía Rakel skuli stundum eiga í vandræðum með þjóðernið. „Ég er skráður fulltrúi Dana á sýningunni í Coburg og einnig hér í Norræna húsinu. Það virðist því vera farið eftir því hvar maður vinnur og býr en ekki vegabréf- inu. Þetta er stundum dálítið pirr- andi vegna þess að ég upplifi mig sem íslending, en það er erfitt við þessu að gera. Ég er komin í ágæt sambönd úti í Danmörku sem ég er smeyk um að myndu rofna ef ég flytti þaðan. Ætli ég verði þar ekki meðan ég er að vinna mér nafn. Það er líka búið að bjóða mér að vera gestakennari á Skolen for brugskunst í haust. Þeir hafa eingöngu fengist við heitt gler hingað til en langar að kynna hina hliðina á glerinu.“ - Þú virðist hafa nóg að gera. „Já, það er mikið að gera. Er það ekki þannig sem maður vill hafa það?“ - ÞH Nú geta allir eignast þessabók Útborgun aðeins 1.925,00 oa síðan rúmar 800, krónur á manuðu Hún fæst gegn lítilli útborgun og þægilegum afborgunarkjörum í bókabúðum og á forlagL Við undirskrift samnings greiðast kr. 1.925,00 og eftirstöðvamar á tíu mánuðum með rúmum 800 kr. í hvert skipti, að viðbættum kostnaðL Pessi kjör eru boðin til þess að mæta óskum hinna fjölmörgu sem spurst hafa fyrir um möguleika til þess að eignast þessa bráðnauð- synlegu bók með sem tægstri útborgun og enn lægri afborgunum. ímp ■ BOKAUTGAFAN ÖRN & ÖRLYGUR Síðumúla 11, sími 84866 i I C>,

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.