Þjóðviljinn - 13.07.1985, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 13.07.1985, Blaðsíða 3
FRETTIR Tœknimenn RÚV Oheyri- legt vinnu- álag Vinna allt upp Í21 tíma á sólarhring. Utsendingar Rásar2falla niður á sunnudaginn vegna skorts á tœknimönnum. Við höfum verið undir svo óheyrilegu vinnuálagi undanfar- ið, að nú er svo komið að menn neita að vinna meira en nauðsyn ber tii nú um heigina, sagði Steinþór Þóroddsson tæknimað- ur hjá Ríkisútvarpinu er hann var spurður um ástæður þess, að dagskrá Rásar 2 skerðist stórlega nú um helgina. Þannig hefst útsending ekki fyrr en kl. 20.00 í kvöld og á morgun verða engar útsendingar á Rásinni. Þess eru dæmi, að menn hafi unnið 21 tíma á sólarhring og tæplega 200 yfirvinnustundir á mánuði og auðvitað gengur þetta ekki lengi, sagði Steinþór. Hluti tæknimanna Ríkisút- varpsins eru nú í sumarfríi og mannfæð því mikil. Ríkisútvarp- ið hefur auglýst lausar stöður tæknimanna, en enginn hefur sótt um. Ástæðan er sú, að laun starfsmanna ríkisins eru mun lægri en á almennum vinnumark- aði og hefur munurinn sjaldan verið meiri en einmitt nú. Nýlega auglýsti fyrirtækið Marel eftir rafeindavirkja og sóttu hvorki meira né minna en 40 manns um þá stöðu. Tæknimenn útvarpsins eru einmitt flestir menntaðir raf- eindavirkjar. Meðal umsækjenda um stöðuna hjá Marel munu hafa verið fyrrverandi starfsmenn út- varpsins, sem yfirgáfu þá stofnun vegna bágborinna kjara. Föst laun tæknimanns hjá útvarpinu er um 20.000 krónur á mánuði. -gg Veðrið Strekking- ur áfram Það verður býsna svalt um helgina, þótt víða á landinu verði bjartviðri. Norðan og norð- austan strekkingurinn heldur áfram að blása, en hins vegar verður bjart að mestu hér fyrir sunnan. Fyrir norðan er enn kaldara og hefur gránað í fjöll t.d. í Eyjafirði. Hiti fyrir norðan var víða aðeins 3-5 stig í gær, en heldur hlýrra fyrir sunnan 7-9 stig. Semsagt þokkalegasta öku- veður á Suðurlandinu, en vissast að halda sig innan dyra fyrir norðan og austan. Ferðamál Kynningar- bæklingur um Akureyri Ferðamálafélag Akureyrar hefur nýlega gefið út litprentaðan ferðamannabækling með bæjar- korti og ýmsum upplýsingum um Akureyri. Bæklingnum hefur nú verið dreift til flestra ferðamann- astaða, hótela og ferðaskrifstofa á íslandi og í framtíðinni mun hann einnig verða að finna á upp- lýsingamiðstöðvum ferðamanna erlendis. -gg 1985 Islandsmet í umferðarslysum 87 slasaðir í júní. Látnir í umferðinni 1985: tíu. Ijúnímánuði slösuðust 87 í ýmis- konar umferðaróhöppum á landinu. Þessi tala er hærri en nokkurn annan júnímánuð í ára- tug, og tölur um slasaða á þessu ári eru að undanteknum janú- armánuði miklu hærri en nokkru sinni frá 1975. Umferðarráð hvetur ökumcnn og aðra vegfar- endur til sérstakrar aðgæslu, ekki síst vegna þess að nú er farinn í hönd sá tími árs að umferðin er okkur skeinuhættust. Þegar hafa tíu manns látist í umferðarslysum á árinu. 415 hafa slasast í umferðinni á árinu samkvæmt upplýsingum frá Umferðarráði og lögreglu, þar af 204 alvarlega. Þetta eru hæstu tölur á þessum áratug. Meðalald- ur þeirra tíu sem látist hafa á ár- inu er rúmlega 30 ár. Óli H. Þórðarson hjá Umferð- arráði segir þá skýringu sennileg- asta á þessum alvarlegu tölum að hér hefur verið gott veður allt árið, og sumarumferð , hófst miklu fyrr en venjulega. Tala slasaðra í apríl (’83) er til dæmis ámóta há og í maí (’84) og júní. Umferðarráð hefur beðið fjöl- miðla aðstoðar við fræðslu og upplýsingar um umferðarmál, og skorar á alla vegfarendur að taka höndum saman í baráttunni gegn umferðarslysum. í töflu sem lögregla um um- ferðarráðsmenn hafa tekið sam- an kemur fram að undanfarin tíu ár hafa slys orðið flest í ág- ústmánuði (1975, ’78, ’82, ’84) þá í júlí (’79, ’81) og september (’77, ’80). Eitt árið urðu slys flest í júní (’76) og maí átti metið 1983. -m Fólk er eins og opin bók, sagði hinn heimsfrægi Ijósmyndari Vladimir Sichov á blaðamannafundi í fyrradag en hann kom beint af flugvellinum á fundinn og sá bókina í fyrsta sinn en verið var að hengja upp myndir á sýninguna. Til hægri er bandaríski kvikmyndagerðarmaðurinn Hal Calbon. Ljósm.: Ari. Idag verður opnuð á Kjarvals- stöðum Ijósmyndasýning hins landflótta rússneska listamanns Vladimir Sichov og verða á henni um 330 myndir af íslenskum lista- mönnum. Jafnframt verður sýnd ný bandarísk kvikmynd eftir þekkta kvikmyndagerðarmenn Kjarvalsstaðir Meriair listviðburður I dag verður opnuð á Kjarvalsstöðum sýning á 330 Ijósmyndum af íslenskum listamönnum sem Vladimir Sichov hefur tekið. Jafnframt verður sýnd bandarsk kvikmynd sem gerð hefur verið um íslenska mentúngu og bókin Iceland Crucible kemur út. hov kom til landsins í fyrradag til að vera við opnun sýningarinnar en hún er afrakstur af um 30 þús- und ljósmyndum sem hann tók í um íslenska menningu og út kem- ur bókin Iceland crucible. Frum- kvæði að þessu framtaki á Hilda hf. og hefur fyrirtækið fjármagn- að það. Ætlunin er að sýningin, kvikmyndin og bókin fari víða um heim á næstunni. Ljósmyndarinn Vladimir Sic- svarthvítu og litum hér á landi. Hann er einn af þekktustu ljós- , myndurum heims um þessar Sja bls. 9. mundir og er mikill fengur að starfi hans hér á landi. Þá er það óvenjulegt að íslenskt stórfyrir- tæki styðji við bakið á listum með þessum hætti og mættu fleiri fara í fótspor þess. Sjúkraflugið í Eyjum Flugmaðurinn auglýsir sjúkraflug Flugmaðurinn, sem þegið hefur 350 þúsund króna fjárveitingu frá Alþingi til sjúkraflugs í Vestmannaeyjum, er þegar far- inn að auglýsa sjúkraflug sitt, jafnvel þótt hann hafl enn engin blindflugsréttindi. Auglýsingin er máluð á flugskýli mannsins, sem hann hefur komið sér upp á flug- vellinum í Vestmannaeyjum. Þjóðviljinn hafði samband við umræddan flugmann, Val Andersen, og sagði hann að þessi auglýsing væri þarna fyrir mistök og ekki að hans beiðni. Valur sagðist hafa beðið þann, sem málaði fyrir hann flugskýlið, að láta koma þar fram auglýsingu Valur Andersen: Auglýsingin kom fyrir mistök. um leiguflug Vals, en maðurinn hans. Valur sagði ennfremur að auglýsti jafnframt sjúkraflug hann væri að afla sér blind- flugsréttinda, og gæti hafið sjúkraflug að því loknu. -gg Forseti íslands Fer til Austfjarða í dag Idag hefst opinber heimsókn Vigdísar Finnbogadóttur til Austfjarða. Hún flýgur árla dags til Egilsstaða og fer um Valla- hrepp og Skriðudalshrepp. Með- al annars verður hún viðstödd setningu sumarhátíðar ÚÍA á Eiðum kl. 16. Á morgun sunnudag fer forset- inn norður í Vopnafjörð en á mánudag í MöðrudaÍ, Hróars- tungu og Borgarfjarðarhrepp. Meðal annarra staða sem heim- sóttir verða í vikunni eru Seyðis- fjörður, Hallormsstaður, Mjói- fjörður, Neskaupstaður, Eski- fjörður, Reyðarfjörður, Fá- skrúðsfjörður, Stöðvarfjörður, Breiðdalsvík og Djúpivogur. Op- inberri heimsókn forsetans til Austfjarða lýkur mánudaginn 22. júlí. -GFr

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.