Þjóðviljinn - 26.07.1985, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 26.07.1985, Blaðsíða 3
FRÉTTIR Launamál Misræminu haldið við Haraldur Steinþórsson BSRB: 5% launamunur staðfestur. Fjármálaráðherra vísarfrá beiðni samtakanna um leiðréttingu eftir úrskurð Kjaradóms. BSRB varar við auknum launamun í þjóðfélaginu Við vorum að skrifa undir samninga um samræmingu á kjörum okkar manna og þeirra hjá ASÍ og BHM þegar kjara- dómur felldi úrskurð sinn um 5% hækkun á launum BHM manna, þannig að strax á ný er komin ósamræming, sagði Haraldur Steinþórsson framkvæmdastjóri BSRB, en fjármálaráðherra hef- ur hafnað kröfu samtakanna um 5% leiðréttingu launa í kjölfar kjaradóms. í svari fjármálaráðherra kemur fram að hann muni „eftir föngum leita leiða til þess að tryggja í samvinnu við aðildarfélög BSRB að ekki skapist óeðlilegt og óvið- unandi misræmi í launamálum starfsmanna við sömu störf eftir því hvort þeir eru í BSRB eða BHM“. Engu að síður er vísað til þess að samningurinn við BSRB gildi til áramóta og ráðherrann hafni málaleitan BSRB. Stjórn BSRB gerði eftirfarandi samþykkt af því tilefni: „I samningum BSRB og ríkis- ins 27. júní sl. náðust fram tvö meginatriði: 1) Launahækkun og þar með í reynd kaupmáttar- trygging út samningtímabilið miðað við spá um verðlagsþróun til næstu áramóta. 2) Samræming launa við Iaun annarra m.a. með því að samið var um sambæri- legan launastiga og Kjaradómur hafði úrskurðað til félagsmanna BHM. Stjórn BSRB telur að mjög þýðingarmikið sé að sömu laun séu greidd fyrir sambærileg störf án tillits til þess í hvaða stéttarfé- lagi opinberir starfsmenn eru. Hjá ríki og sveitarfélögum verður þetta samræmi í launakjörum best tryggt með því að sami launastigi gildi fyrir öll félög op- inberra starfsmanna. Þegar Kjar- adómur kvað upp nýjan úrskurð 12 .júlí sl. um 5% hækkun launa ríkisstarfsmanna í BHM var aftur orðin röskun á launakjörum op- inberra starfsmanna. Enn á ný eru opinberum starfsmönnum greidd laun eftir tveimur mis- munandi launastigum. í viðræðum sem undanfarna daga hafa farið fram milli fulltrúa BSRB og fjármálaráðherra hafa af hálfu BSRB verið settar fram rökstuddar tillögur um að sú röskun á samræmi sem Kjara- dómur hefur úrskurðað verði lag- færð með almennri hækkun launa félagsmanna BSRB og að sama launastiga verði haldið áfram fyrir alla ríkisstarfsmenn. Stjóm BSRB átelur þá skammsýni fjármálaráðherra að hafna tillögum bandalagsins um samræmdan launastiga. T>á vill stjórn BSRB vara við þeirri hættu sem þjóðfélaginu og ekki síst launafólki stafar af því misgengi sem sífellt er að aukast í tekju- skiptingu í þjóðfélaginu". óg/lg lceland Crucible, hinni fjölþættu kynningu á gróandanum í listaiífi hérlendis, sem hófst 13. júlí, lýkur næstkomandi sunnudagskvöld á Kjarvalsstöðum í Reykjavík. Sýningargestir skipta nú þúsundum og hafa undirtektir þeirra verið mjög góðar. Hér er um að ræða nýlundu í landkynningarstarfi, þar sem blómlegu lista- og menningarlífi eru gerð skil á þrennan hátt: Með Ijósmyndum, kvikmynd og bók. Vert er að minna á, að kvikmyndin lceland Crucible, einn þáttur kynningarinn- ar, eftir Emmy-verðlaunahafana Hal Calbom og Phil Davies, er sýnd þrisvar á dag á Kjarvalsstöðum, klukkan 15,18 og 20. Auk kvikmyndarinnar eru sem kunnugt er á sýningunni á fjórða hundrað Ijósmyndir af íslenskum listamönnum, eftir hinn heimskunna Ijósmyndara, Vladimir Sichov og glæsileg myndabók um allar listgreinar nútímans á íslandi með texta e'ftir Sigurð A. Magnússon, rithöfund og Ijósmyndum Sichovs. Sýningin á Kjarvalsstöðum er eins konar forsýning kynningarefnisins, sem fara mun um þver og endilöng Bandaríkin og Kanada á næstunni, auk Asíu- og Evrópulanda. Myndbönd mala lítið gull Það sýnir í það minnsta skattskráin Myndbandaleigur virðast ekki vera sú gullnáma sem marg- ur hefur haldið miðað við umfang og fjölda slíkra leigusala. Það segir í það minnsta kosti skatt- skráin okkur en það vita það líka flestir að hún segir ekki alitaf sannleikann. Maður sem er vel kunnur myndbandamarkaðnum lýsti því yfir í sjónvarpi nýlega að veltan í þessum viðskiptum hafi verið um 1.4miljarðurásl. ári. Skattskráin sýnir aftur á móti að veltan virðist vera í minna lagi hjá sumum myndbandaleigum þótt þær séu í góðum húsakynnum og á „góð- um stöðum". Hitt vekur einnig athygli við skyndiskoðun í skattskránni að greinilega er um áætlaðan skatt að ræða á þær myndbandaleigur sem samkvæmt þessu yfirliti bera hæstu skattana. Það er nær örugg þumalfingursregla að um álagða skatta er að næða þegar gjöldin standa á heilum hundruðum. Samkvæmt þessu virðast skatta- yfirvöld í það minnsta trúa því, að velta og umfang þessara fyrir- tækja sé meiri heldur en kemur fram hjá þeim sem telja fram til skatts. Það væri ráð fyrir skatta- yfirvöld að kanna þessi mál nán- ar. -lg Tekjusk. Eignarsk. Video-son h/f Krummahólar 4 0 0 Videosambandið h/f Laugavegur 27 382.500 9.000 Videóheimurlnn h/f Freyjugötu 32 86.103 2.461 Videoland h/f Undargötu 12 63.750 1.501 Video Arbær h/f Hraunbæ 102b 0 0 Vldeo-Björninn tVf Spóahólum 12 0 0 Video-innkaup h/f Bergþórugata 21 510.000 12.000 Videokjallarinn s/f óðinsgötu 5 127.500 3.000 Video-meistarinn h/f Seljabraut 54 382.500 9.000 Videoleigan Bandið Reykjavíkurv. 1, Hf. Hjartabaninn s/f Hafnarg., Keflav. 2.784 0 0 0 Út8V. Aðst.gj. Önnur gj. Samtals 0 1.400 29 1.429 0 65.000 1.365 457.865 0 42.410 891 131.865 0 8.120 171 73.542 0 12.290 258 12.548 0 7.190 151 7.341 0 65.000 5.392 592.393 0 8.120 171 138.791 0 19.500 410 411.410 275 18.250 17.087 38.396 0 43.580 43.178 86.758 Föstudagur 26. júlí 1985 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA Skák Maigeir 14. A síðustu umferð millisvæða- mótsins í Biel í gær gerði Margeir jafntefli við svíann Andcrson og endar fjórtándi af átján með 7 vinninga. Sovétmaðurinn Vag- anjan vann Partosa og tryggði sér þarmeð efsta sætið, 12’/2 vinning. Seirawan var í öðru sæti með llVi, Sókóloff í þriðja með 11. í 4.-6. sæti eru jafnir Torre, Van der Wiel og Short og þurfa þeir að tefla sín á milli um fjórða sætið sem veitir rétt til þátttöku í áskor- endaeinvígunum. Anderson, Ljubojevié og Pol- ugajevskí fengu 9Vi v., Rodrigu- es og Sax 8, Quinteros og Jansa 7Vi, Margeir 7, Gutman 6V2, Li 6, Partos 4, Martin 3’/2. í gær var frídagur á Norður- landamótinu í Gjörik. -m Lánleysi Hvaleyri biður um aðstoð Bankarnir ekki áfjáðir í að lána Hvaleyri h/f. Bœjaryfirvöld í Hafnarfirði beita þrýstingi á banka og stjórnarráð. Bæjaryflrvöld í Hafnarflrði þrýsta nú mjög á bankastofnanir í bænum, yflrvöld bankamáSa í landinu um að Hvaleyri h/f sem tók yfir rekstur BÚH verði veitt lánafyrirgreiðsla vegna fyrirhug-; aðra endurbóta á nýkeyptu flsk- iðjuveri og togurum fyrirtækisins og að Hvaleyri fái afurðalán út á framleiðslu sína. Útvegsbankinn sem BÚH skipti við hefur ekki enn sem komið er viljað taka Hvaleyri h/f í viðskipti og fyrirtækið hvergi haft aðgang að afurðalánum. Forsvarsmenn Hvaleyrar h/f sendu bæjarstjórn Hafnarfjarðar bréf í lok sl. viku þar sem farið var fram á stuðning við fjárútvegun til fyrirtækisins. Strax næsta mán- udag sendu bæjaryfirvöld bréf til allra bankastofnana í bænum þar sem óskað var eftir lánafyrir- greiðslu til fyrirtækisins, slíkt væri mikið hagsmunamál fyrir bæinn. Jafnframt höfðu forsvars- menn bæjarins tal af viðskipta- ráðherra og seðlabankastjóra og óskuðu eftir þrýstingi á bankayf- irvöld og í gærmorgun fór bæjar- fulltrúi Framsóknarmanna og annar frá Sjálfstæðismönnum á fund forsætisráðherra í sömu er- indagjörðum. Hefur það vakið athygli jafnt bæjarbúa sem bankayfirvalda í Hafnarfirði hversu skjót og ein- örð viðbrögð bæjaryfirvalda eru í þessu máli og minnast menn þá forgöngu sömu aðila varðandi rekstur BÚH og fleiri fyrirtækja sem áður voru í eigu bæjarins. Samkvæmt heimildum Þjóð- viljans hafa stjórnendur Útvegs- bankans ekki viljað sjá um af- urðalán Hvaleyrar h/f fyrr en þeir hafa kynnt sér betur fjárhags- stöðu og rekstraráætlanir fyrir- tækisins. -Ig

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.