Þjóðviljinn - 20.09.1985, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 20.09.1985, Blaðsíða 3
FRETTIR Ferskfiskútflutningur Siglt út með 30 þús. tonn Gámaútflutningur ísumar var ríflega þrefaldur miðað við í fyrrasumar. Flutt útfimmfalt meira af óunnum fiski í ágúst en á sama tíma ífyrra Frá maíbyrjun til ágústloka í sumar voru flutt út hátt í 30 þús. lestir af ferskum fiski í gám- um og með fiskiskipum. Á sama tímabili í fyrrasumar voru flutt á sama hátt rúmar 13 þús. lestir. Aukningin er ríflega 100%. Langsamlega mest var flutt út af ferskfiski með gámum í sumar eða ríflega 15.300 lestir eða þre- falt meira en flutt var út með gámum í fyrrasumar. Að sögn Ingólfs Arnarsonar hjá Fiskifé- laginu er áætlað að alls hafi verið flutt út um 6000 lestir af gámaf- iski í ágústmánuði og ríflega 5.200 lestir í júlí, en líklega eigi þessar tölur eftir dð hækka eitthvað þegar öll kurl koma til grafar. Til samanburðar má geta þess að í sömu mánuðum í fyrra voru fluttar rúmar 1200 lestir með gámum hvorn mánuð. Aukningin er því minnsta kosti fimmföld miðað við ágústmánuð. Af ferskfiskútflutningu fiski- skipa fóru togarar með nær 9000 lestir á erlenda markaði í sumar sem er tæplega helmingi meiri afli en siglt var með í fyrrasumar. Bátar seldu í Bretlandi rúmar 3000 lestir í sumar en tæpar 2.700 lestir í fyrrasumar. Vesturbœr Götu- boöhSaup Götuboðhlaup fer fram á sunn- udaginn og hefst það kl. 11.00 við KR heimilið við Kaplaskjólsveg. Keppt er í flokki karla og kvenna. Hlaupa karlarnir fjórir í flokki en boðhlaupssveit kvenna skal skipuð þremur keppendum. Hlaupið er íslandsmeistaramót félaga innan FRÍ en er opið fyrir alla. Sveitir skulu skráðar á skrif- stofu FRÍ, s. 83686. Kópavogur Kaffisala í Lækjar- botnum Árleg kaffisala Lionsklúbbs Kópavogs verður í Kópaseli í Lækjarbotnum nk. sunnudag á milli kl. 14 og 18. Sama dag verð- ur réttað í Lögbergsrétt, sem svo er nefnd þótt hún heiti í raun Fossvallarétt. Öllum ágóða af kaffisölunni er varið til líknar- mála í Kópavogi og undanfarin ár hefur einhver fatlaður unglingur í bænum verið styrktur til dvalar á miðstöð fyrir fötluð böm í Nor- egi. - v. Árétting Vegna mistaka misfórst fyrir- sögn á baksíðu Þjóðviljans í gær þar sem fjallað var um hljóðupp- tökur Jóns Leifs af söngvum frægra manna. f fyrirsögn stóð að sögur Einars Ben. væru til á bandi en átti að sjálfsögðu að vera söngur skáldsins eins og raunar kom fram í texta. Áréttast þetta hér með. ( gær kviknaði í Reykjavíkurapóteki. Eldurinn kom upp í kjallaranum út frá rafmagni. Mikill reykur fór upp um allt hús og starfsmenn borgarskrifstofanna þurftu að flýja út á götu. Hætta er á því að mikið af lyfjum hafi skemmst en enginn slasaðist. Apótekið verður lokað um tíma. Amyndinnisjáumvið vaskan slökkviliðsmann vinna að því að ráða niðurlögum eldsins. Ljósm. E.OI. Skák Kasparov safnar kröftum Lœtur eflaust til skarar skríða á morgun, þá með hvítt Sjötta skákin varð stutt og var greinilegt að Kasparov gerði sig fyllilega ánægðan með jafn- tefli eftir að hafa tapað tvisvar í röð. Það hefur líka alltaf verið talin góð regla að fara ekki of skarpt af stað eftir að hafa tapað skák. Á þessu brenndi Kasparov sig í fimmtu skákinni þegar hann tefldi ákaflega djarft og óskyn- samlega og uppskar líka annað tapið í röð. Eftir þá skák hefur hinn ungi og skapheiti áskorandi sennilega hugsað vel sitt ráð og náð að kæla sig aðeins niður. En hann má ekki við því að gera mörg stutt jafntefli, því ólíkt seinasta einvígi þá er þetta einvígi ekki endalaust heldur takmark- ast það við 24 skákir. Það má því Listahátíð kvenna Skníðganga í dag Opnun listahátíðar kvenna verður í Ásmundarsal kl. 16 í dag föstudag. í Ásmundarsal verður sýning á arkitektur ís- lenskra kvenna. Kl. 15 leggur skrúðganga af stað með kvenna- lúðrasveit í broddi fylkingar undir stjórn Lilju Þórisdóttur. Þetta verður í eina skipti sem þessi eina blásturshljómsveit kvenna á Islandi leikur saman. Gengið verður niður að Vestur- götu 3 þar sem stúlknakór undir stjórn Þórunnar Björnsdóttur leikur í Hlaðvarpanum. í fréttat- ilkynningu frá Listahátíð kvenna segir að fólk sé eindregið hvatt til þcss að taka börn sín með. Sunnudaginn 22. sept. verður opnuð sýning í menningarmið- stöðinni Gerðubergi í Breiðholti, á bókum og bókaskreytingum ís- lenskra kvenna. Sýningin opnar kl. 14 en kl. 15.30 verður fyrsta ljóðadagskráin á Listahátíð kvenna. Á þessari ljóðadagskrá verða flutt ljóð eftir konur í gegnum 3 aldir. Elstu ljóðin eru frá alda- mótunum 1700 en þau yngstu eru mjög ný. Leikkonur lesa upp eftir þær sem eru fjarverandi, annars lesa skáldkonurnar sjálfar. Meginefni ljóðadagskrárinnar verður starf og umhverfi kvenna. Ljóðadagskrárnar eru 6. Sú fyrsta verður eins og áður segir þann 22. sept. en sú næsta að kvöldi mánudagsins 23. sept. kl. 21. Flutt verða ljóð um ást í orðs- ins víðustu merkingu. Aðgangur er ókeypis. Mikið er um að vera í Gerðu- bergi, því sunnudagskvöldið 22. sept. kl. 20.30 verður flutt dag- skrá úr verkum Jakobínu Sigurð- ardóttur. Það eru leikarar úr Leikfélagi Reykjavíkur sem flytja verkið. Leikstjóri er Bríet Héðinsdóttir. Tónlist eftir íslenskar konur verður flutt á Kjarvalsstöðum 22. sept. kl. 17. Flutt verða verk eftir Karólínu Eiríksdóttur og Misti Þorkelsdóttur. Ýmsir flytjendur verða. Á þessa tónlistardagskrá kostar ekki beint, en fólk verður að borga sig inn í húsið. SA HALLDÓR G. EINARSSON búast við harðri og skemmtilegri skák á laugardaginn þegar Kasp- arov lætur til skarar skríða. Hvítt: Anatoly Karpov Svart: Garry Kasparov Drottningarbragð 1. d4 d5 5- b85 h6 2. c4 e6 6. Bxf6 Bxf6 3. Rc3 Be7 ?• & 0-0 4. Rf3 Rf6 8- Dd2 Karpov lék 8. Dc2 í 4. skákinni en hefur ekki áhuga að svo stöddu á að sjá endurbót Kaspar- ovs á því afbrigði. 8. - dxc4 11. Hfdl exd4 9. Bxc4 Rd7 12. Rxd4 Rb6 10. 0-0 c5 Taflið hefur nú þróast eins og í skák stórmeistaranna Beljavskij og Portisch á seinast ári. Beljav- skij lék þar 13. Bb3 en benti á í skýringum við skákina að leikur- inn sem Karpov velur nú sé betri. 13. Be2 Bd7 15. Re4 Bxd4 14. Bf3 Hb8 16. Dxd4 Ba4 Svartur lendir í klípu eftir 16. - Bc6 17. Dc5, t.d. 17. - Dh4 18. g3. Textaleikurinn og næstu sex leikir eru efalaust afrakstur heimavinnu Kasparovs. 17. Dxd8 Hfxd8 23. Kg2 g5 18. Hxd8 Hxd8 24. b4 Rb6 19. Rc5 Hd2 25. Kfl Rd7 20. b3 Bc6 26. Kg2 Rb6 21. Rxb7 Bxf3 27. Kfl Rd7 22. gxf3 Rd7 i Og Karpov þáði jafnteflisboð Kasparovs eftir langa umhugsun. Staðan er því 3 Vi - 2xh fyrir Karp- ov. ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.