Þjóðviljinn - 24.09.1985, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 24.09.1985, Blaðsíða 3
Dagsbrún Deilan við Securitas í hnút Fundir með sáttasemjara ígœr og áföstudaginn Sáttasemjari boðaði til fundar í deilu Dagsbrúnar við öryggis- þjónustuna Securitas á föstudag- inn og annar fundur var haldinn f gær. Ekkert miðar í samkomu- lagsátt enn sem komið er. „Málið er á viðræðustigi og við vitum ekkert hvað verður úr. Það er verið að fara í gegnum kröfu- gerð okkar fyrir hönd starfsfólks- ins”, sagði Þröstur Ólafsson framkvæmdastjóri Dagsbrúnar í samtali við Þjóðviljann í gær. _________________^gg Efnahagsœvintýralíf Dollarinn fellur skyndilega Dollarinn féll í verði á alþjóða Qármagnsmarkaði i gær. Gengi dalsins féll t.d. um 6% gagnvart V-þýsku marki en gagnvart krón- unni íslensku féii hann um tæp- lega 3%. Gengisfallið kom í kjölfar ákvarðana fjármálaráðherra helstu iðnríkja heims, sem talið hafa of hátt gengi á bandankja- dollar eina stærstu meinsemd í efnahagskerfi heimsins. Lækkun dollars getur haft margvíslegar afleiðingar hér á landi; hún þýðir m.a. lækkun erlendra lána en á móti kemur að fyrir fiskafurðir á Bandaríkjamarkaði fá íslending- ar minna en áður. Ríkisstjórnin mun á næsta fundi sínum fjalla um áhrif gengisfallsins á íslenskt efnahagslíf. -óg Bensín Aukið gæðaeftirlit Samstarfmeð FÍB og olíufélögunum Félag ísienskra bifreiðaeigenda og olíufélögin hafa náð samkomu- lagi um hlutlaust gæðaeftirlit með því bifreiðabensíni sem flutt er til landsins. Kvartanir um lélegt bensín hafa gerst háværari á undanförn- um árum og einkum hafa kvart- anir beinst í þá átt að oktan-tala bensíns hér væri of lág. -ig Leiðrétting Rangt sagt frá auglýsinga- fyrirtækjum í klausu sem birtist í sunnu- dagsblaði Þjóðviljans er því hald- ið fram, að auglýsingafyrirtækið Gott fólk hafi verið skírt upp við þangaðkomu nýrra starfsmanna, sem áður ráku fyrirtækið Hreinar línur, og heiti það nú Svona ger- um við. Þetta er rangt. Hið rétta er að Gott fólk er rekið áfram með nýju liði undir sínu gamla nafni. En það eru þeir menn, sem hættu hjá fyrirtækinu Gott fólk, sem hafa stofnað fyrirtækið Svona gerum við. Hlutaðeigendur eru beðnir velvirðingar á þessum rangfærsl- um. FRÉITIR Drápuhlíðin Utboð eða engin heilsugæslustöð Sjálfstœðismenn í borgarstjórnfelldu tillögu um að auglýsa eftir lœknum og hjúkrunarliði á stöðina Ekkert útlit er fyrir að nýja heilsugæslustöðin í Drápuhlíð verði opnuð á tilsettum tíma vegna ágreinings um rekstrar- form. Undanfarna mánuði hefur verið unnið af kappi við stöðina og stóð til að opna hana í desemb- er á þessu ári. Hefði hún þá orðið fyrsta heilsugæslustöðin á kjör- tímabiiinu sem hófst m.a. á lof- orðum um eina heilsugæslustöð á ári. Á borgarstjórnarfundi s.l. fimmtudag samþykktu Sjálfstæð- ismenn að tillögu minnihlutans að ítreka umsókn um starfsleyfi fyrir stöðina. Þeir felldu hins veg- ar tillögu um að auglýst yrði eftir læknum og hjúkrunarfólki sam- kvæmt núgildandi lögum og héldu fast í hugmyndir sínar um útboð. í umræðunum viður- kenndi formaður heilbrigðisráðs, Katrín Fjeldsted, að heilsugæslan væri ótrúlega vel rekin og sagðist efast um að einkaaðilar gætu gert betur. Hins vegar hefðu tveir heilsugæslulæknar í framhalds- námi í Kanada skrifað og lýst áhuga á að taka við rekstri á einni heilsugæslustöð og sér þætti rétt að reyna slíkt áður en heilsugæsl- an væri komin á of fastan grund- völl í borginni. Hún mótmælti því að frjálshyggjan hefði gleypt sig eins og Adda Bára Sigfúsdóttir komst að orði hér í Þjóðviljanum og sagði að slíkt stæði heldur ekki til. Adda Bára og aðrir fulltrúar minnihlutans bentu á að ekki væri hægt að bjóða starfsemina út samkvæmt núgildandi lögum og andstaða Sjálfstæðisflokksins við að auglýsa eftir starfsmönnum jafngilti því að stöðin yrði ekki opnuð á tilsettum tíma og ekki fyrr en lögunum hefði verið breytt. „Það er ekki aðeins að frjálshyggjan hafi gleypt Katrínu Fjeldsted”, sagði Adda, „heldur hefur hún ekki einu sinni tekið eftir því!” -ÁI Þaðmákannskikallastofnunbókaforlagsinsbjartsýniskastþvíviðerumbáðar Jónsdóttir til hægri. í miðið Kristín Bjarnadóttir höfundur Reyndu það bara!. í fullu starfi við annað, segja Sigurbjörg Aðalsteinsdóttir til vinstri og Guðrún Ljósm. Sig. Bókaforlag Skáldverk og fræðibækur kvenna Bókaforlagið Bríetstofnað. Gefur út bækur um lífog störfkvenna Við ákváðum að stofna bóka- forlagið Bríeti því það vantar tilfinnanlega útgáfu sem er tilbúin til að gefa út bækur sem snerta sérstaklega líf og störf kvenna. Konur eiga erfitt með að fá út- gefnar bækur eftir sig nema þær hafi þá þegar skapað sér nafn. Ætlunin er að gefa út bæði skáld- verk og bækur um kvennafræði, sögðu Sigurbjörg Aðalsteinsdótt- ir og Guðrún Jónsdóttir, stofn- endur forlagsins. Nafn forlagsins, Bríet, er til að undirstrika tengsl okkar við sög- una og vonumst við til að við stöndum undir nafni og förum ekki á hausinn við fyrstu tilraun. Forlagið gefur út tvær bækur fyrir jól. Önnur er viðtalsbók - Reyndu það bara! sem Kristín Bjarnadóttir skrifaði. í bókinni eru viðtöl við sjö konur. „Ég spjalla við þær um vinnuna og lífið og afstöðu þeirra til vinnunn- ar og kem svolítið inná starfsval. Engin þessara kvenna er í hefð- bundnum karlastörfum og í við- tölunum komum við inná við- brögð karla við konum sem ryðj- ast inná verksvið þeirra, og ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3 hvernig það er að vera ungur í dag og hvernig það var fyrir fjörutíu árum. Fimm kvennanna eru milli tvítugs og þrítugs og tvær milli fimmtugs og sextugs. Hin bókin heitir Dídí og Púsba og er eftir Marie Thöger. Ólafur Thorlacius þýddi úr dönsku. Bókin er fyrir fólk á öllum aldri og lýsir daglegu lífi tveggja stúlkna sem búa í litlu sveitaþorpi í Himalayafjöllum. Bókin gefur góða innsýn í þetta samfélag og skýra mynd af stöðu kvenna þar. Hún fjallar um tímamót í lífi yngri stúlkunnar, einskonar uppgjör sem gefur von um betra líf fyrir konur í 3. heiminum. Við erum einnig að velta fyrir okkur þýðingum á bókum sem eru nýkomnar út á Norður- löndum en það er of snemmt að skýra frá því nú. -aró Listahátíð kvenna Kaffilaust á Kjarvalsstöðum Veitingamaðurinn sættirsig ekki við ákvörðun stjórnar um uppröðun borða. Neitar jafnvel að láta öskubakka liggjaframmi! Það vakti mikla athygli sýning- argesta á Kjarvalsstöðum um helgina að kaffistofan þar er lok- uð og allt leirtau borgarinnar, jafnvel öskubakkar, harðlæst inni í skápum. Ástæðan er sú að veitingamaðurinn sem hefur að- stöðuna á leigu sættir sig ekki við breytta uppröðun borða í húsinu og við opnun á sýningu kvenna „Hér og nú” s.I. Iaugardag var engar veitingar að fá. Það var 4. september s.l. sem stjórn Kjarvalsstaða samþykkti samhljóða tillögu sýningarnefnd- ar um breytta uppröðun borða í þverálmu hússins. Voru borðin flutt nær gluggunum að tillögu þeirra sem hönnuðu og settu upp sýninguna. Viðbrögð veitinga- mannsins voru þau að hætta allri þjónustu sem hann hefur á hendi endurgjaldslaust fyrir stjórn hússins. „Þetta er skandall”, sagði ein af aðstandendum sýningarinnar í samtali við Þjóðviljann í gær. „Reykjavíkurborg stendur að þessari sýningu og í myndlistar- húsi hlýtur listræn starfsemi að hafa forgang. Látum vera þó ekki hafi verið boðið upp á vín eins og oftast er á opnun þama, en að geta ekki einu sinni keypt sér kaffi! Borgin ætti að sjá sóma sinn í að kippa þessu í liðinn áður en fleiri sýningardagar líða, ann- ars hljótum við sjálfar að fara að selja kaffi þama!” -ÁI

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.