Þjóðviljinn - 01.05.1986, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 01.05.1986, Blaðsíða 2
FRÉTTIR Undirmenn Verkfall skollið á Sjö skip stopp strax. Guðmundur Hallvarðsson: Ekkertþok- ast í samkomulagsátt. Nýr fundur ekki verið boðaður. Verkfall undirmanna á far- skipum skall á í gær kl 15:00. Sl. þriðjudag var haldinn árangurs- laus fundur með deiluaðilum hjá ríkissáttasemjara og hefur nýr fundur ekki verið boðaður enn. Ríkissáttasemjari hefur hinsveg- ar sagt að hann muni hafa sam- band við deiluaðila á föstudag. Þegar hafa fimm skip stöðvast vegna verkfalls yfirmanna, sem stóð í einn sólarhring og fyrirséð er að tvö skip stöðvast til viðbótar nú þegar. Guðmundur Hallvarðsson, formaður Sjómannafélags Reykjavíkur, sagði við Þjóðvilj- ann, að enn hefði ekkert þokast í samkomulagsátt, en undirmenn gera þá kröfu að mánaðarkaup þeirra hækki úr 20 þúsundum í 27 þúsund krónur, auk þess sem yfirvinnuálag hækki úr 60% í 80%. Guðmundur sagðist ekki búast við að ríkisstjórnin setti bráða- birgðalög á undirmenn, heldur reiknuðu undirmenn með því að samningsréttur þeirra yrði virtur, þar sem heildarsamtök hafa ekki samið fyrir sjómenn hingað til og þeir séu því ekki bundnir af ASI- samkomulaginu. —Sáf Skipafélögin Frambjóðendur Alþýðubandalagsins éru á fullri ferð um borgina þessa dag- þrælmögnuðum mörghundruð manna fundi með glaðbeittum nemendum MH í ana. Á myndinni eru þeir Össur Skarphéðinsson sem er í fjórða sæti og Skúli hádeginu í gær. Mynd E.ÓI. Thoroddsen sem er í 6. sæti G-listans í Reykjavík í rífandi baráttuham á Skoðanakönnun Alþýðubandalagið vinnur á Framsóknarflokkurinn nœrþurrkast út. Sjálfstœðisflokkurinn með yfir 65% Samkvæmt niðurstöðum skoð- blaðsinsfráþvííjanúarúr 13,1% samkvæmt skoðanakönnuninni flokkurinn sem báðir voru með anakönnunar sem birtist í DV í I 18,7% sem er nánast það sama en hann hefur nú 65,5% fylgi en í 2,9% fylgi í janúar hafa aukið gær um fylgi listanna í komandi og fylgi flokksins í síðustu borg- janúar 78,8% fylgi. Framsókn- fylgi sitt, Kvennalistinn í 6,5% og borgarstjórnarkosningum hefur arstjórnarkosningum. arflokkurinn tapar líka fylgi en Alþýðuflokkurinn í 7,9%. fylgi Alþýðubandalagsins aukist Sjálfstæðisflokkurinn hefur á hann fellur úr 2,2% í 1,4%. K.OI. frá síðustu skoðanakönnun þessu sama tímabili tapað fylgi Kvennalistinn og Alþýðu- Eurovision íslenska dómnefndin Dómnefnd íslands skipuðll mannshefur verið valin r Igær var kunngert hverjir hefðu verið valdir í íslensku dóm- nefndina í söngvakeppni sjón- varpsstöðva. Nefndin er skipuð 11 manns frá aldrinum 16 til 60 ára og samkvæmt lögum Euro- vision-keppninnar á hún að sýna þverskurð af þjóðfélaginu hvað varðar aldur, kyn og atvinnu, auk búsetu í landinu. Dómnefn- din er þannig skipuð: Berglind Orradóttir 16 ára grunnskóla- nemi frá Egilsstöðum, Davíð Scheving Thorsteinsson fram- kvæmdastjóri Garðabæ, Elsa Björnsdóttir hárgreiðslumeistari Akureyri, Guðjón Vigfússon bóndi Húsatóftum Skeiðum, Guðlaug Þorsteinsdóttir fisk- vinnslukona Hnífsdal, Karl Þor- steins háskólanemi og skákmað- ur Reykjavík, Margrét Stefáns- dóttir kennari Reykjavík, Rík- harður Ríkharðsson sjómaður Reykjavík, Salome Þorkelsdóttir aiþingismaðurMosfellssveit, Sig- urdór Sigurdórsson blaðamaður (okkar) Reykjavík og Svanhildur Kristjónsdóttir . menntaskóla- nemi Kópavogi. Markús Örn Antonsson út- varpsstjóri er formaður nefndar- innar og Guðrún Skúladóttir er ritari og talsmaður nefndarinnar þegar niðurstaða dómnefndar verður kynnt í Bergen. ÖS/óg/m/v/ÞH/lg/gg/ Sáf/Ing/KÓI/VS/áb Hörð í hom að taka Olíuverðlœkkun og betri nýting ekki skilað sér í hagstœðari farmgjöldum. Georg Ólafsson, verðlagsstjóri: Mikið af kvörtunum. Erfitt að fá afslœtti eftir að Hafskip varð gjaldþrota. Flokkatilfærslur upp á við. Ómar Jóhannsson, Skipadeild Sambandsins: Á ekki við rök að styðjast. Þórður Sverrisson, Eimskip: Berjumst við að ná jafnvœgi í rekstrinum Þrátt fyrir umtalsverða olíu- verðslækkun og miklu betri nýt- ingu hjá skipafélögunum, hafa þau ekki séð ástæðu til að lækka farmgjöld. Þá segja ýmsir við- skiptavinir þeirra, að miklu erf- iðara sé að eiga við skipafélögin eftir að Hafskip varð gjaldþrota og mjög erfitt sé að fá sérstaka afslætti á flutningum, auk þess sem innflytjendur á sekkjavöru segja að átt hafi sér stað flokkatil- færsla á sekkjavöru upp á við, þannig að flutningskostnaðurinn hafi aukist. Georg Ólafsson, verðlags- stjóri, sagði í samtali við Þjóðvilj- ann að Verðlagsstofnun hefði ekki getað skoðað þessi mál undanfarnar vikur, vegna mikils annríkis hjá stofnuninni, hins- vegar væri full ástæða til að fara ofan í saumana á þessu. Sagði hann að stofnuninni hefði borist mikið af kvörtunum vegna við- skipta við skipafélögin og virtust menn almennt á því að þau væru harðari í horn að taka eftir að Hafskip varð gjaldþrota. Þá sagðist Georg hafa verið á fundi með stórkaupmönnum þar sem þessi mál bar á góma og hafði þar verið kvartað undan háum farmgjöldum. Sagði hann að Verðlagsstofnun mundi kanna málið við fyrsta tækifæri. Ómar Jóhannsson, fram- kvæmdastjóri Skipadeildar Sam- bandsins, bar af sér allar ásakanir um að þeir væru hættir að bjóða upp á afslætti. Sagði hann að það væri mjög sjaldgæft að flutt væri eftir hámarkstöxtum og ástæðan fyrir því væri sú að mjög hörð samkeppni væri milli skipafélag- anna og hún væri síst minni eftir að Hafskip datt út úr myndinni. Sagði hann að olíuverðlækkunin hefði óbeint skilað sér í lækkandi verði á farmgjöldum. Hvað flokkatilfærslur varðaði þá sagði Ómar að það væri rétt að ákveðnar lágfraktvörur hefðu verið hækkaðar, vegna þess að þeir flutningar hefðu verið langt undir kostnaðarverði. Á móti kæmi að aðrar vörur hefðu lækk- að í flokkum. Þórður Sverrisson, hjá Eim- skipafélaginu, tók mjög í sama streng og Ómar. Sagði hann að samkeppnin hefði aukist síðan að Hafskip varð gjaldþrota, og því hefðu flutningsgjöld lækkað að undanförnu. Þá fullyrti hann að flutningstekjur hjá skipafélaginu hefðu rýrnað per tonn. Olíuverðslækkunin vegur svo upp á móti auk þess sem miklu betri nýting er á skipunum nú en var. Á það bæri hinsvegar að líta að skipafélögin hafi verið rekin með tapi undanfarin ár og því sé Eimskipafélagið enn að berjast við að ná jafnvægi í rekstrinum. Sagði Þórður að olíukostnaður hefði í árslok 1985 verið um 10% af rekstrarkostnaði skipanna og að það hlutfall hlyti að minnka nú vegna olíuverðslækkananna auk þess sem ýmsir aðrir rekstrarliðir hefðu hækkað. T.d. hefðu kjar- asamningamir kostað félagið um 50 milljónir króna. —Sáf 2 SÍÐA - ÞJÓÐVÍLJINN Flmmtudagur 1. maí 1986

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.