Þjóðviljinn - 06.05.1986, Blaðsíða 3
Knattspyrna
ÍBK hlaut
Litla
bikarinn
ÍBK tryggði sér sigur í Litlu
bikarkcppninni í karlaflokki á
laugardaginn með 2-1 sigri á FH.
Hinn ungi Kjartan Einarsson
skoraði bæði mörk Keflvíkinga
en mark FH gerði Ingi Björn Al-
bertsson.
Breiðablik vann Hauka 7-2 og
þá er aðeins ólokið leik FH og IA.
Staðan er þessi:
IBK...............4 3 1 0 9-4 7
Breiðablik........4 1 3 0 11-6 5
FH................3 111 9-3 3
lA................3 111 9-3 3
Haukar............4 0 0 4 2-24 0
—VS
Knattspyrna
Mexíkó
sigraði
Landslið Mexíkana heldur
áfram sigurgöngu sinni. í fyrra-
kvöld lagði það vestur-þýska liðið
Hamburger SV að velli í Los
Angeles, 2-0, Carlos Munoz og
Francisco Javier Cruz skoruðu
mörkin. Hamburger lék án lands-
liðsmannanna Felix Magath og
Ditmar Jacobs.
—VS/Rcuter
Frjálsar
Vormót UMFK
Vormót ÍBK í frjálsum íþrótt-
um fer fram í Keflavík á laugar-
daginn, 10. maí, og hefst kl. 14.
Þátttökutilkynningar berist
Helga Eiríkssyni í síma 92-4821 í
síðasta lagi miðvikudaginn 7.
maí.
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15
Sveinn Hreinsson skellir ígólf pressuliðsins í pressuleik í Digranesi á sunnudaginn. Mynd: E.Ol.
Blak
Norðurlandamót í Digranesi
Byrjað á fimmtudag. ísland, Noregur og Svíþjóð saman í riðli
Norðurlandamótið í blaki
karla verður haldið hér á landi
síðar í þessari viku. Leikið verður
í íþróttahúsinu Digranesi í Kópa-
vogi og hefst mótið á
fimmtudaginn, uppstigningadag,
en lýkur á laugardaginn.
ísland er í riðli með Svíþjóð og
Noregi en hinn riðilinn skipa
Finnland, Danmörk og Færeyjar.
Mótið er haldið annað hvert ár og
hefur farið fram 12 sinnum. Finn-
ar hafa ávallt sigrað og Svíar hafa
verið í öðru sæti síðan 1970.
Björgólfur Jóhannsson lands-
liðsþjálfari hefur valið 12 leik-
menn fyrir leikina og eru þeir
eftirtaldir:
Páll Svansson, ÍS, Einar Hilm-
arsson, Þrótti, Guðmundur E.
Pálsson, Þrótti, Haukur Valtýs-
son, ÍS, Ástvaldur J. Arthúrsson,
HSK^ Sveinn Hreinsson, Þrótti,
Jón Árnason, Þrótti, Lárentsínus
Ágústsson, Þrótti, Þorvarður
Sigfússon, ÍS, Stefán Jóhannes-
son, Víkingi, Leifur Harðarson,
Þrótti, og Kjartan Busk, HK.
—Logi/VS
ÍÞRÓniR
Vestur-Þýskaland
Yfirburðir Bayem
gegn Stuttgart
Bayern komst í 4-0. Ásgeir í strangri gœslu allan tímann.
Bayern tvöfaldur meistari
Frá Jóni H.Garðarssyni, frétta-
manni Þjóðviljans í V.Þýskalandi:
Bayern Munchen hafði mikla
yfirburði gegn Stuttgart í úrslita-
leik bikarkeppninnar í knatt-
spyrnu á Ólympíuleikvanginum í
Berlín á laugardaginn. Leikurinn
fór að mestu fram á vallarhelm-
ingi Stuttgart og úrslitin, 5-2 voru
mjög sanngjörn. Bayern hefur
því unnið það afrek að verða
bæði vestur-þýskur meistari og
bikarmeistari, sannarlega glæsi-
legur árangur.
Þrátt fvrir að flestir áhorfenda
væru á bandi Stuttgart og létu vel
í sér heyra byrjaði Bayern af
krafti og náði strax undirtökun-
um. Stuttgart varðist vel og Ba-
yern gekk illa að skapa sér færi og
það var því nokkuð slysalegt þeg-
ar Bayern náði forystunni á 34.
mínútu. Roland Wohlfarth skaut
utan vítateigs, knötturinn hefði
hafnað í höndum Jagers mark-
varðar en breytti stefnu af Karli-
Heinz Förster og sveif yfir Jager,
1-0. Förster hafði stjórnað vörn
Stuttgart af snilld framað því.
Wohlfarth skoraði síðan aftur á
42. mínútu, 2-0 í hléi.
Um miðjan seinni hálfleikinn
gerðu svo Bæjarar endanlega
útum leikinn. Með 8 mínútna
millibili skoraði Michael Rum-
menigge tvisvar, í bæði skiptin
eftir fallegar sóknir og fyrirgjafir
frá Pflugler. Staðan 4-0 og úr-
slitin ráðin. Guido Buchwald
svaraði fyrir Stuttgart á 76. mín,
4-1, en Wohlfarth fullkomnaði
þrennu sína tveimur mínútum
síðar, 5-1. Jurgen Klinsmann átti
síðan lokaorðið fyrir Stuttgart á
82. mínútu, 5-2.
„Bayern hefur náð sér á strik á
réttum tíma, þeir eru hrikalega
sterkir og Stuttgart á litla mögu-
leika,“ sagði Franz Beckenbauer
landsliðseinvaldur í hálfleik.
Ekki bætti úr skák fyrir Stuttgart
að Allgöwer og Nushör gátu ekki
leikið síðari hálfleikinn vegna
meiðsla.
„Leikmenn Stuttgart voru of
hræddir og léku of aftarlega.
Gegn Bayern á að taka áhættu og
sækja,“ sagði Egon Coorders,
aðstoðarþjálfari Bayern sem nú
tekur við stjórn Stuttgart.
Ásgeir Sigurvinsson komst
aldrei að marki inní leikinn. Hans
var mjög vel gætt allan tímann.
Fyrir leikinn var mikið rætt um
einvígi Ásgeirs og Sörens Lerby
en lítið fór fyrir því. Lerby hafði
hægt um sig en braut reyndar
tvisvar gróflega á Ásgeiri.
Ólympíuleikar
Sovétmenn ítreka
stuðning sinn
Marat Gramov, íþróttamála-
ráðhcrra Sovétríkjanna, til-
kynnti um helgina að Sovétríkin
stæðu fast við þá skoðun sína að
Ólympíuleikarnir 1988 ættu að
fara að hluta til fram í Norður-
Kóreu.
Leikana á að halda í Suður-
Kóreu en nágrannarnir í norðri,
sem eru pólitískir andstæðingar
sunnanmanna, hafa krafist þess
að fá hluta leikanna til sín. Við-
ræður hafa farið fram milli ríkj-
anna, með milligöngu alþjóða
Ólympíunefndarinnar, en þær
hafa engan árangur borið. Gram-
ov sagði ennfremur að Kínverjar,
Tékkar og fleiri þjóðir myndu
styðja skiptingu leikanna.
—VS/Reuter
Kicker
Ásgeir í liði ársins
Frá Jóni H.Garðarssyni frétta-
manni Þjóðviljans í V.Þýskalandi:
Ásgeir Sigurvinsson er í liði
ársins hjá íþróttablaðinu Kicker
fyrir keppnistímabilið 1985-86.
Ásgeir var valinn 7 sinnum í lið
vikunnar hjá blaðinu, jafnoft og
Andreas Brehme og Bruno Pezz-
ey, og aðeins Norbert Maier hjá
Bremen var valinn oftar, 9 sinn-
um.
Lið ársins lítur þannig út, í
svigum er hve oft viðkomandi var
í liði vikunnar.
Markvörður:
Eike Immel, Dortmund (6)
Varnarmenn:
Manny Kaltz, Hamburger (6)
Andreas Brehme, Kaiserslautern (7)
Norbert Eder, Bayern (6)
Bruno Pezzey, Bremen (7)
Tengiliöir:
Karl Allgöwer, Stuttgart (6)
Ásgeir Sigurvinsson, Stuttgart (7)
Norbert Maier, Bremen (9)
Framherjar:
Thomas Allofs, Kaiserslautern (5)
Manny Burgsmuller, Bremen (6)
Bum Kun Cha, Leverkusen (6)