Þjóðviljinn - 30.05.1986, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 30.05.1986, Blaðsíða 10
Niðurrifsstefna Sjálfstæðisflokksins Ætla að rífa yfir 100 gömul hús Ef skipulagsáform Sjálfstæðisflokksins í miðbæ Reykjavíkur verða að veruleika hverfa 100 gömul og merk hús. Rökfyrir niðurrifi ófullnægjandi eða alls engin. 200 ára saga í Kvosinni þurrkuð út Það er óhætt að segja að þegar Sjálfstæðisflokkurinn komst til valda í borginni að nýju fyrir fjór- um árum hafi orðið stakkaskipti í viðhorfi valdhafa til varðveiting- ar gamalla húsa í borginni, húsa sem mörg hver hafa ómetanlegt menningarsögulegt og bygging- arfræðilegt gildi. Niðurrifsstefna íhaldsmeiri- hlutans hefur grandað mörgu húsinu sem hefði fengið að standa ef söguleg og listfræðileg sjónarmið hefðu verið látin ráða. En sá skaði er þó enginn miðað við þau slys sem eru í uppsigl- ingu, sérstaklega í Kvosinni og í Skuggahverfinu. í fyrra var kynnt deiliskipu- lagstillaga fyrir Kvosina þar sem mörg verðmæt hús er að finna. Þar eru elstu hús borgarinnar og þar er geymd saga borgarinnar í 200 ár. En höfundar tillögunnar gera ráð fyrir að 20-30 gömul hús í Kvosinni verði rifin og vilja þurrka þannig út á einu bretti nánast allt sem er eldra en 50-60 ára. í staðinn eiga sums staðar að rísa fimm hæða steinhús. Meðal þeirra húsa sem á að rífa er Austurstræti 22, annað eða þriðja elsta hús borgarinnar og hið fyrsta sem reist var við Austurstræti. Samkvæmt Skúlagötuskipulagi verða mörg gömul og merk stein- og timburhús í Skuggahverfinu þurrkuð út af yfirborði jarðar og háhýsi byggð í staðinn. Deili- skipulagstillagan mætti kröft- ugum mótmælum íbúasamtaka Skuggahverfis, Torfusamtak- anna, Arkitektafélagsins og fleiri vegna þessa, en öll mótmæli og athugasemdir voru hafðar að engu. Röksemdir borgarminja- varðar í þessum efnum eru virtar að vettugi. Ef skipulagsáform Sjálfstæðis- flokkins verða að veruleika munu um 100 hús verða rifin, sem flest verðskulda að verða varðveitt, því með þeim er varðveitt bygg- ingarsaga, menningarsaga, atvinnusaga og saga fjölmargra íslendinga á einn eða annan hátt. Alþýðubandalagið og aðrir minnihlutaflokkar í borgarstjórn hafa nær ávallt lagst gegn niður- rifsáformum íhaldsins og nú í vet- ur hafa komið upp mörg slík mál. Nægir þar að minna á þegar ákveðið var í borgarstjórn að rífa Fjalaköttinn og Ingólfsstræti 3. Minnihlutaflokkarnir færa fyrir því gild rök að varðveita beri þessi hús, en rökstuðningur fyrir niðurrifi er ófullnægjandi eða hreinlega alls enginn. Hús hafa verið rifin af þeirri ástæðu einni að einhver gæðingur Sjálfstæðis- flokksins hefur viljað byggja á lóðinni. Þessu á auðvitað að vera öfugt farið. Ef menn vilja rífa hús verða þeir að færa fyrir því óyggjandi rök að borginni og borgarbúum sé ekki skaði að því að rífa. Þann- ig var þessu farið á kjörtímabilinu 1978-1982, en slíkt vinnulag er ekki að skapi Davíðs Oddssonar og hans manna. Hér á opnunni eru tínd til dæmi um gömul hús sem bíða þess að verða rifin og rifjaðar upp nokkr- ar staðreyndir um tilurð þeirra. —gg Kirkjustræti 8-10. Kirkjustræti 10 er byggt sem íbúðarhús af Kristjáni Þorgrímssyni bóksala og konsúl árið 1879. Búið var í húsinu fram yfir 1950, en nú eru skrifstofur og verslanir í því. Húsið er eign rfkissjóðs og er fyrirhugað að rífa þaö og byggja síðan undir starfsemi Alþingis á lóðinni. Þetta er næstelsta húsið á þessum reit og árinu eldra en alþingishúsið sem stendur þvf næst. Eins og sjá má er þetta bárujárnsklætt timb- urhús og var vel til þess vandað í upphafi. Það sómir sér ágæta vel við hlið alþingishússins og hafa fagmenn lagst gegn því að hróflað verði við því. Kveldúlfsskáli við Skúlagötu (stundum kallað Skúlaskáli) er eitt af fórnarlömbum Skúla- götuskipulagsins. Húsið er í eigu Eimskipafélags- ins, og er fyrirhugað að byggja háhýsi á lóðinni með svo háu nýtingarhlutfalli að það hefur mætt mikilli andspyrnu íbúa á þessu svæði. Sumir hafa talað um glannaskap í skipulagi. Skálinn er í ágætu ásigkomulagi og er talinn henta vel undir t.d. félagsstarf unglinga. Alþýðu- bandalagið hefur áhuga á að gera þetta að Húsi unga fólksins, þar sem ýmiss konar starfsemi gæti farið fram undir stjórn unglinganna sjálfra. Alexíus Árnason lögregluþjónn byggöi íbúöarhús aö Skólavörðustíg 10 áriö 1864, en sex árum síðar var það komið í eigu Lúðvígs sonar hans, sem var meðal fyrstu stein- smiða í Reykjavík. Um Alexíus var sagt að hann væri slyngasti lögregluþjónninn á sinni tíð og „mjög laginn við að veiða upp úr þjófum.“ Arið 1885 keypti Bergur Þorleifsson söðlasmið- ur og veggfóðrari húsið og bjó þar lengi með fjöl- skyldu sinni og leigjendum. Einn leigjenda Bergs var Þórbergur Þórðarson rithöfundur og hefur hann lýst húsinu og íbúum þess í Ofvitanum. Hús- ið var nefnt í höfuðið á Bergi og kallað Bergshús. Síðan árið 1960 hefur verið rekin leikfanga- verslun í húsinu. Aöalstræti 7 er frá tímum Innréttinganna, byggt um 1750, og var þá fjós Innréttinganna. Fjósið var rifið um 1880 og þá byggðu kaupmennirnir Jón Vídalín tvílyft timburhús á lóðinni og stendur það enn, en nokkrar breytingar hafa verið gerðar á því. Fyrsti eigandi hússins var Jóhanna Kr. Bjarnason og bjó hún þar ásamt börnum sínum. Á þessari öld hefur farið fram ýmiss konar starfsemi þar. Vestan til í Kvosinni eru nokkur timburhús frá síðari hluta nítjándu aldar eða aldamótum. Segja má að þau myndi keðju kringum opna svæðið þar sem áður var Hótel Island og Veltan. Þessi keðja tengist timburhúsabyggðinni fyrir vestan Aðalstræti í Grjótaþorpi. Húsið Aöalstræti 7 er hlekkur í þessari keðju og einmitt þess vegna telja þeir sem til þekkja að ástæða sé til að varðveita það. Aldur hússins og gæði mæla einnig með varðveislu. Borgaryf- irvöld áforma hins vegar að rífa þetta hús, eins og önnur hús sem birtast á opnunni. Clement L. Thoroddsen skraddari byggöi hús viö Austurstræti 8 á árunum 1823-1825 og var það hús stundum nefnt Skraddarahúsið. Húsiö skipti ört um eigendur og árið 1886 keypti Björn Jónsson ritstjóri ísafoldar það og reif. í staðinn reisti Björn tvílyft hús og stendur það enn. Björn bjó í húsinu með fjölskyldu sinni á efri hæð til 1909, en þá varð hann ráðherra og flutti í ráðherrabústaðinn. Eftir það bjó Ólafur sonur Björns með konu sinni í íbúðinni. Niðri í húsinu var (safoldarprentsmiðja, sem Björn hafði stofnað 1877. Ólafur rak prentsmiðjuna áfram. Hann átti aðild að stofnun Morgunblaðsins árið 1913 og var það prentað í (safoldarprentsmiðju til 1942. Bókaverslun ísafoldar var lengi í þessu húsi, en er nú í Austurstræti 10. Austurstræti 8 er nær aldargamalt timburhús. Það var mjög veglegt með skrautverki yfir gluggum í klassískum stll. Höfundar kvosarskipulagsins vilja þriöja elsta hús Reykjavíkur burt, en þaö er Austur- stræti 22. Húsið var byggt árið 1801 og var fyrsta húsið sem reist var við Austurstræti. Þetta hús hefur geysilegt gildi menningarsögulega séð og hefur ævintýralega sögu að geyma. Það var ísleifur Einarsson dómari við Landsyfirréttinn sem reisti húsið, en áriö 1805 var það gert að æðsta embættismannabústað landsins. og var það til 1819. Þá bjuggu þar stiftamtmennirnir Trampe greifi og Castenskjöld. Á þessu tímabili gerðust m.a. þeir atburðir að ríkisjóði íslands var var stolið í heilu lagi af enskum sjóræningjum og árið 1809 settist Jörundur hundadagakonungur að í húsinu og hafðist þar við um hríð. Ekki er rúm til að tíunda sögu þessa húss frekar hér, en hún er þess virði fyrir alla að kynna sér hana. Vilji menn samþykkja tillöguna sem liggur fyrir að skipulagi Kvosarinnar, vilja menn þetta hús burt! Ef kvosarskipulagiö veröur aö veruleika hverfa Lækjargata 2 og 4. Það var Knudtzon kaupmaður sem byggði upphaflega á lóðinni númer 2 árið 1852, en miklar breytingar hafa orðið á húsinu síðan. Ólafur Pálsson dómkirkjuprestur og prófastur flutti í húsið fjórum árum seinna og var það þá kallað „Prófastshúsið". Sigfús Eymundsson eignaðist húsið á eftir Ólafi og bjó í því og rak þar Ijósmyndastofu og bóksölu. Margskonar starfsemi hefur verið í húsinu, m.a. skrifstofur og afgreiðsla Morgunblaðsins, stúdentaráð rak þar matsölu stúdenta, „Mensa Academia", frá árinu 1921. Húsið setur mikinn svip á Lækjartorg og neðsta hluta Bankastrætis, reyndar það fyrsta sem mætir auganu þegar komið er niður Bankastrætið. Það er enginn vafi að niðurrif þessa húss væri óréttlætanlegt. Lækjargata 4 er með elstu tvílyftu húsum í borginni. Þar var m.a. stofnað Verslunarmannafélag Reykja- víkur árið 1891.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.