Þjóðviljinn - 30.04.1987, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 30.04.1987, Blaðsíða 1
Fimmtudagur 30. apríl 1987 97. tölublað 52. örgangur Vesturlandskjördœmi Atkvæði í varðhaldi Týndu atkvœðinfjörutíu ogsjö komin íleitirnar. Fundust ífangaklefa í Borgarnesi. Hagga ekki niðurstöðum þingkosninganna Atkvæðin týndu í Vesturlands- kjördæmi sem leitað hafði verið að dyrum og dyngjum fund- ust um níuleytið í gærkveldi. Um klukkan hálf tvö var búið að telja og flokka atkvæðin og var þá ljóst að engin breyting yrði á því hvaða menn sætu næsta kjör- tímabil á Alþingi íslendinga. Atkvæðin féllu þannig: Al- þýðuflokkur fékk fimm, Fram- sóknarflokkur nítján, Sjálfstæð- 1. maí nefnd verkalýðsfélaganna Vildu ekki Magnús L Hildur Kjartansdóttir, varaformaður Iðju og Pröstur Ólafsson, fram- kvœmdastjóri Dagsbrún- ar valin til að flytja há- tíðarœður verkalýðsfé- laganna á Lœkjartorgi 1. maí „Ég hef í sjálfu sér afskaplega lítið að segja um þetta annað en það að ég var spurður hvort ég væri tilbúinn að halda ræðu á 1. maí ef þess yrði farið á leit við mig og játti ég því. Auðvitað er politík í því að mér var hafnað og við því er ekkert að gera. Ég var síðast ræðumaður í 1. maí 1971 svo minn tími er kannski ekki kominn enn,“ segir Magnús L. Sveinsson, formaður Verslunarmannafélags Reykjavíkur. I atkvæðagreiðslu 1. maí- nefndar verkalýðsfélaganna um ræðumenn á baráttudegi verka- lýðsins var Magnúsi hafnað. Var hann einn af þremur sem til- nefndir voru. Hin voru Hildur Kjartansdóttir, varaformaður Iðju og Pröstur Ólafsson, fram- kvæmdastjóri Dagsbrúnar. Úrslit atkvæðagreiðslunnar urðu þau að Hildur fékk 5 atkvæði, Þröstur 3 og Magnús 2. Einn fulltrúi var fjarverandi og eitt atkvæði ógilt. Það verða því Hildur Kjartans- dóttir og Þröstur Ólafsson sem flytja munu barátturæður fyrir hönd verkalýðsfélaganna í Reykjavík 1. maí næstkomandi föstudag á Lækjartorgi. Sjö félög eiga fulltrúa í 1. maí- nefnd verkalýðsfélaganna, auk Bandalags starfsmanna ríkis og bæja sem hefur ekki atkvæðisrétt þar sem bandalagið sér sjálft um sinn þátt í hátíðahöldunum. Hin félögin eru: Félag járniðnaðar- manna, Trésmiðafélag Reykja- víkur, Félag pípulagningar- manna, Verkakvennafélagið Framsókn, Sókn, Verslunar- mannafélag Reykjavíkur og Dagsbrún. isflokkur sjö, Alþýðubandalag fjögur, Flokkur mannsins þrjú, Borgaraflokkurinn fimm, Kvennalistinn þrjú og einn var auður. Samtals eru þetta fjörutíu og sjö atkvæði en rætt hafði verið um að fjörutíu og átta atkvæði vantaði. Vonandi þarf ekki að kjósa að nýju í Vesturlandskjör- dæmi vegna þessa eina hulduat- kvæðis! Björn Þorbjörnsson flokks- Eg hef rætt við félaga Svavar og sagt við hann, að fari svo að Kvennalisti hafni samstarfi við Alþýðuflokk og Sjálfstæðisflokk, þá Kjósi ég að reyna að freista samstarfs við Alþýðubandalag. Fjögurraflokka stjórn er ekki inni í myndinni og það væri algjört neyðarúrræði, sagði Jón Baldvin Hannibalsson, formaður Alþýð- stjóri var beðin um það í gær- kveldi að skjótast inní fangaklefa og sækja kjörbækur sem þar voru geymdar í kjörkössum sem átti að vera búið að tæma. Þegar hann opnar kassa númer þrjú þá blasa þar við týndu sauðirnir fjörutíu og sjö. Einsog gefur að skilja var búið að rjúfa innsigli á kassanum en þó var ekki búið að flokka atkvæðin. uflokksins um óformlegar þrei- fingar hans til stjórnarmyndun- ar. í gær fundaði þingflokkur Kvennalista um stjórnarmyndun- artilboð Alþýðuflokksins. Jafn- framt var þingflokkur Framsókn- arflokksins og framkvæmda- stjórn kölluð til fundar í gær, þar „Eg vissi ekki hvaðan á mig stóð veðrið,“ sagði Björn í spjalli við blaðið um þennan óvænta fund sinn. Atkvæðin munu öll vera úr litl- um sveitahreppi í kjördæminu og var yfirkjörstjóm þegar kölluð saman eftir að seðlarnir fundust. Talning hófst þvínæst um eitt í nótt. -ks. sem þreifingar Steingríms Her- mannssonar voru til umræðu. Jón Baldvin sagðist ekki hafa neinn áhuga á viðræðum við Framsóknarflokkinn, enda væri hann reynslunni ríkari eftir að hafa staðið í sjórnarmyndunar- viðræðum við Framsóknarflokk- inn í tvígang. „Ég ræði ekkert um ráðherr- Alþýðubandalagið Svavar í fbrsvari Nýkjörinn þingflokkur Al- þýðubandalagsins samþykkti á fyrsta fundi sínum í gær að fela formanni flokksins, Svavari Gestssyni, „að vera í forsvari fyrir flokkinn f hugsanlegum stjórnarmyndunarviðræðum og lýsir fyllsta trausti á störfum hans“. Ragnar Arnalds var kjörinn formaður þingflokksins, Svavar varaformaður, Steingrímur J. Sigfússon ritari, og er eins og síð- ast. Þessi skipan stendur fram að þingbyrjun. A fundi framkvæmdastjómar í gær var samþykkt samhljóða að taka undir samþykkt þingflokks- ins og ítrekað að kalla miðstjórn saman til fundar helgina 16.-17. maí n.k. -m astóla fyrr en ég hef lokið umræð- um um málefni. En ég lít á þetta sem samstarf á jafnréttisgmnd- velli og það komi allt til greina. Þætti þér ekki smart að kona yrði forsætisráðherra?" sagði Jón að- spurður hvort kona kæmi til greina sem forsætisráðherra. -RK vlkunnl hófst nfunda starfsór Jaröhitaskóla Orkustofnunar og Samolnuóu PJóösnna f Rsykjavfk. Þrettán nemendur frá sex löndum verða í skólanum á þessu skólaári sem stendur í sex mánuði, frá sumardeginum fyrsta til sumarloka. Nemendur skólans í ár eru jarðvísindamenn og verkfræðingar frá Kenya, Eþíópíu, Thailandi, Filipseyjum, Indónesíu og Kína. Stjórnarmyndun Framsókn ekki til greina Jón Baldvin Hannibalsson: Heftalað viðfélaga Svavar um að koma inn ímyndina efafsvar berstfrá Kvennalista. Reynslunni ríkari að rœða við framsókn- geriþað ekki ótilneyddur. Óformlegar viðrœður og tilboð um stjórnarmyndun grh.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.