Þjóðviljinn - 21.02.1988, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 21.02.1988, Blaðsíða 2
I rósa- garðinum Hin sanna stéttvísi Albert Guðmundsson ítrek- aði einnig að menn ættu að vera vissir í sinni sök áður en þeir kölluðu menn siðlausa. Hann hefði ekki þekkt nokk- urn þingmann síðan hann settist á þing 1974, sem hefði verið siðlaus á neinn hátt. Morgunblaðlð. Vannýttir möguleikar til fjölmiðlunar í lestrasal Landsbóka- safnsins er eins öruggt og tvisvar tveir eru fjórir að þar er engin popprás í gangi . Morgunblaðið. Jö og nœst verða þœr þjóðnýttar Vinstrimenn misnota ein- stæðar mæður í pólitískum til- gangi. Fyrirsögn í Morgunblaðinu. Upp upp mitt hold... Refabændur sækja um bjargræðisstyrk vegna ófrjó- semi. Fyrirsögn í DV Nýjungar í vöruhönnun ítalskur pyslugerðarmaður keypti fjörutíu og fimm tonn af svínakjöti í öðru bandalagsríki til að gera úr pylsur sem síðan átti að flytja út úr bandalaginu. Hann seldi nágrönnum sínum, kjötið og bjó til pylsur úr hrossataði, sagi og baðmull, sem síðan átti að selja papp- írsfyrirtæki erlendis. Morgunlaðið. Vextirnir það er ég Enginn tími til að bíða eftir lögmálum. Steingrímur Hermannsson um vaxtavanda þjóðarinnar, í Tím- anum. Denni er of röskur Ég tel algjörlega ástæðu- laust að kveða upp dauða- dóm yfir ríkisstjórninni. Það er ekki tímabært. Jón Sigurðsson í Alþýðublað- inu um ummæli Steingríms Hermannssonar f sama blaði. 2 SÍÐA - WÓÐVILJINN Dándimaður vikúnnar: SKAÐI SKRIFAR Að stoika framlíðinni og sliga núlímann Ég, Skaði, hefi lengi látið mig dreyma um að ég sé hinn sanni endurreisnarmaður, sem kann á öllu skil: dreg ýsur úr sjó á morgnana, sker hrúta á kvöldin og ber hinn andlega lóminn á miðjum degi. Mér er því margt hugleikið á himni sem jörðu, meðal annars hið pólitíska málfar sem skapar heiminn í kring- um okkur og breytir því sem breyta þarf úr því aðrir gera það ekki. Ég á þá ekki endilega við einhverja vitleysu úr Sjónvarpinu sem er alltaf að tala um stuðning frambjóðandans eða eitthvað þessháttar og meinar stuðning við hann. Heldur meina ég þau eftirlætisorð, sem málgögn sækja í styrk sinn og þrótt til ádrepu og boðskapar á líðandi stund. Ég hefi til dæmis tekið eftir því að hjá Tímanum er alltaf verið að sliga eitthvað. Þegar kerfisbreytingarnar hans Jóns Bald- vins gengu yfir, sagði Tíminn að þær væru gjörsamlega búnar að sliga stjórnkerfið í landinu. Þegar Davíð Oddsson kom með sína fjárhagsáætlun þá sagði blaðið að hann væri að sliga efnahagslífið með þenslu sinni. SÍS er líka að sligast undan vaxtapólitíkinni og meira að segja er ekki laust við að lesendur Tímans séu stundum að sligast undan fyrirsögnum hans, eins og þegar framsóknarmaður í marga ættliði hótaði að segja blaðinu upp vegna þess að því var slegið upp á forsíðu að íslenskt dilkakjöt hefði drepið Færeying. Ég, Skaði, tel mig hafa komist að þeirri niðurstöðu, að með þessari sjálfkvæmu, myndrænu, marksæknu og táknvísu notk- un sagnarinnar að SLIGA byggi Tíminn í rauninni upp lævísan skæruhernað gegn þeirri samsteypustjórn, sem Steingrímur Hermannsson þó situr í á annarri rasskinninni. Allt er semsagt að SLIGAST í samfélaginu, en VIÐ tökum eftir því og einhvers- staðar blaktir sú vonardula að næst þegar Denni sjálfur hittir Gorbatsjov eða Reagan þá muni hin íslenska þjóðarbelja hætta að sligast undan íhaldskratanautinu en spretta upp gal- vösk eins og kálfur á vori og rása út um víðan völl. En þar með er sagan ekki öll. Ungir sjálfstæðismenn hafa þegar komið auga á vandann og þeir ætla að láta krók koma á móti bragði. Þeir ætla að blása á sligið í Tímanum og Steingrími með beinskeyttum ásökunum sem birtast í dramatískri, rismikilli, markvissri og skeinuhættri notkun hins háskalega orðs að STORKA. í samþykktum Sambands ungra sjálfstæðismanna sem birt- ar voru alþjóð nú í vikunni segir að Steingrímur storki stjórnar- samstarfinu með ábyrgðarlausu hjali um utanríkismál. Þar segir til dæmis á þessa leið: „Það er því verulegt áhyggjuefni þegar Steingrímur Her- mansson utanríkisráðherra tekur að STORKA sögulegum staðreyndum með því að láta í Ijós efasemdir um að friðar- bandalag vestrænna ríkja hafi tryggt frið í Evrópu, STORKAR stöðu íslendinga gagnvart vinaþjóðum með því að ganga gegn samkomulagi þeirra um atkvæðagreiðslur á vettvangi Samein- uðu þjóðanna og STORKAR framtíð þjóðar sinnar með því að tala um möguleika á að gera ísland að einskonar herstöðva- markaði". Ég skil nú ekki vel hvað er að þessu síðastnefnda: að gera ísland að herstöðvamarkaði - ég hélt að ungir sjálfstæðismenn væru upp yfir það hafnir að svíkja markaðshyggjuna í einhverj- um tækifærissinnuðum bleyðuskap. En hvað um það. Hér eru hnífar hvattir og sorfið til stáls og er Steingrímur ekki aldeilis búinn að súpa úr nálinni með þetta. Enda segir í samþykkt ungra sjálfstæðismanna að Steingrímur sé eiginlega meiri voðamaður en mér hefur nokk- urntíma dottið í hug og man ég þó Jónas frá Hriflu. Lítum á þetta: „Óábyrgt tal utanríkisráðherra eins af NATO-ríkjunum kann að ógna þeim árangri sem er að nást með samstarfi vestrænna ríkja í viðkvæmum afvopnunarsamningum við Kommúnistarík- in“. Þetta er ekki nógu gott. Það er Ijóst að Steingrímur Hermannsson gerir ekki bara að storka okkur sjálfstæðis- mönnum. Hann er líka að sliga friðinn. Ja, þeim ferst þessum Tímabesefum, þeim ferst.... Af sjónvarpi Sjónvarpið á heimilinu var koonS) tií árá sinna og dag nœJHkurn <>ata*. það upp og dó .‘sínura teknfAsga dauða. Þá >srmi paiAit sár við í stólnum og sagði: Nei mikið ertu orðinn stór strákur. Pabbi minn á miklu stærra sjónvarp en pabbi þinn. Já en pabbi minn á miklu svæsnari klámmyndir en pabbi þinn. Ég er alveg í standandi vandræðum, læknir, maður- ( öllum heiminum er engin sem ég vildi heldur horfa á sjónvarp með en þér, krúttið mitt. inn minn talar svo mikið upp úr svefni. Gerir það svo mikið til? Nei, kannski ekki, en það truflar mig við að horfa á sjón- varpið. Veistu það, ég er búinn að horfa tíu sínnum á Casa- blanca í sjónvarpinu, en leikararnir hafa aldrei verið jafn góðir og núna. Hvar værum við nú stödd börnin góð, spurði kennarinn bekkinn, ef Edison hefði ekki fundið upp Ijósaperuna á sín- um tíma? Þá yrðum við að horfa á sjónvarpið við kertaljós, kenn- ari. Forsfðumyndln heitir Lífsþráog er eftirprentun af olíumálverki eftir Sigurð Þóri listmálara, sem opnar sýningu á málverkum og teikning- um í Vestursal Kjarvalsstaða á laugardag kl. 14. Sýningin verður opin alla daga kl. 14-22 og stendur til 6. mars. Sjá viðtal við Sigurð Þóri 'f

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.