Þjóðviljinn - 08.04.1988, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 08.04.1988, Blaðsíða 3
FRETTIR Ríkisstjórnin Alvarlegir brestir í samstarfinu „Verður lagtfram sem stjórnarfrumvarp, “segirJón Baldvin um frumvarpið um aðskilnað dómsvalds og umboðsvalds. „Verðurekki lagtfram sem stjórnarfrumvarp,“ segir Páll Pétursson Alvarlegir brestir eru nú komn- ir í stjórnarsamstarfið vegna deilna alþýðuflokksmanna og framsóknarmanna um hvort frumvarpið um aðskilnað dóms- Dómsmálaráðherra „Umræð- unni ekki lokið“ „Ég vil taka það fram að um- ræðunni um þetta frumvarp er ekki lokið innan þingflokka og mér hefur ekki borist til eyrna að þeir séu því andvígir,“ segir Jón Sigurðsson dómsmálaráðherra í samtali við Þjóðviljann um frum- varpið um aðskilnað dómsvalds og umboðsvalds. „Ég á von á að þetta verði stjórnarfrumvarp og að það fái þinglega meðferð í tæka tíð fyrir þinglok, enda er hér um stórmál að ræða og heiðursmál fyrir þjóð- ina.“ Jón segir ennfremur að þær breytingar sem felast í frumvarp- inu á dómskerfi landsins séu þjóðinni nauðsynlegar og hann er ekki sammála því sjónarmiði Páls Péturssonar að þessar breytingar komi til með að kosta mikið fé. „Hinn tvímælalausi ávinningur sem felst í frumvarpinu er sú rétt- arbót sem það veitir almenningi og því kæmi mér á óvart ef mikil andstaða yrði gegn því.“ -FRI Stúdentaráð Viðræðum miðar ekkert Eftir tveggja vikna samninga- viðræður Röskvu og Vöku hefur ný stjórn ekki litið dagsins Ijós í Stúdentaráði HI. Meðan svo er getur nýtt Stúdentaráð ekki kom- ið saman og er því óstarfhæft. Runólfur Ágústsson talsmaður Röskvu sagði í samtali við Þjóð- viljann að Röskva hefði boðið Vöku hina ýmsu kosti sem öllum hefði verið hafnað. Meðal annars hefði Vöku verið boðið upp á samstjórn. „Á meðan Vaka gefur ekkert eftir er enginn tilgangur í að halda viðræðum áfram. Komi fylkingarnar sér ekki saman um skiptingu embætta gæti þurft að láta hlutkesti ráða henni, slíkt yrði hneisa fyrir Stúdentaráð,“ sagði Runólfur. Ómar Geirsson formaður Stú- dentaráðs sagðist ekki bjartsýnn á gang mála og taldi að slitnað gæti upp úr viðræðum næstu daga. Oddviti Vöku, Sveinn Andri Sveinsson, var ekki eins svart- sýnn en taldi viðræður þó ganga allt of hægt, ekki hefði verið vilji fyrir maraþonfundi til að útkljá málin. Hann sagðist reikna með nýjum samningafundi á næstu dögum. Eftir kosningarnar þann 15.mars er pattstaða í Stúdenta- ráði, báðar fylkingar hafa 15 full- trúa. -hmp valds og umboðsvalds verði lagt fram sem stjórnarfrumvarp eða ekki. Þetta mál er raunar aðeins eitt af mörgum deilumálum, nefna má óánægju sjálfstæðis- manna með utanríkisstefnu Steingríms Hermannssonar sem verið hefur í „global action“ hug- leiðingum síðan hann tók við embætti, og einnig má geta þess að framsóknarmenn eru síður en svo ánægðir með stöðu atvinnu- lífsins á landsbyggðinni, þar sem flest annað en sjávarútvegur virð- ist að hruni komið. „Það er klárt mál að frumvarp- ið verður lagt fram sem stjórnar- frumvarp, enda er það í samræmi við stjórnarsáttmálann og liggur ljóst fyrir sem ríkisstjórnará- kvörðun," sagði Jón Baldvin Hannibalsson, formaður Alþýð- uflokksins, í samtali við Þjóðvilj- ann. „Hinsvegar hefur komið fram andstaða við frumvarpið innan þingflokka bæði Framsóknar- og Sjálfstæðisflokksins meðal manna sem vilja halda fast í ein- veldið og þeir hafa áskilið sér rétt til að flytja breytingartillögur við frumvarpið." Páll Pétursson, formaður þing- flokks Framsóknarflokksins, segir hinsvegar að frumvarpið verði ekki flutt sem stjórnarfrum- varp og að Framsóknarflokkur- inn styðji það ekki í núverandi mynd. Framsóknarflokkurinn hefur boðað til fundar miðstjórn- ar þann 23. apríl þar sem störf og framtíð ríkisstjórnarinnar verða rædd, en forráðamenn flokksins segja að þeir séu ekki að boða til stjórnarsiita með þessu. Hinsveg- ar hafi þeir þungar áhyggjur af þróun efnahagsmála. Um þessar áhyggjur framsókn- armanna segir Jón Baldvin Hannibalsson: „Menn hafa veru- legar áhyggjur af undirstöðum at- vinnulífsins á landsbyggðinni, erfiðleikum í landbúnaði, í ullar- og prjónaiðnaði og í smásölu- verslun úti á landi, svo ég nefni dæmi. Menn hafa þungar áhyggj- ur af því að viðskiptahallinn sé of mikili. Framsóknarmenn hafa þungar áhyggjur, ríkisstjórnin hefur þungar áhyggjur, stjórnar- andstaðan hefur þungar áhyggj- ur. Nú er það svo að innan þess- arar ríkisstjórnar er óvenjumikið af samstarfsnefndum á ráðherra- stigi. Við erum með samstarfs- nefnd um efnahagsmál, um ríkis- fjármál, um landbúnaðarmál svo dæmi séu tekin. Allir aðilar stjórnarsamstarfsins eru ábyrgir Aðalfundur Starfsmannafélags sjónvarpsins mótmælir þeirri stefnu sjónvarpsins að úthluta í sífellt ríkari mæli verkefnum til vinnslu hjá einkaaðilum í stað þess að nýta tækjakost og mann- afla stofnunarinnar. í tilkynn- ingu frá félaginu um þetta mál eru teknar sem dæmi hugmyndir um að láta íslenska myndverið, sem er í meirihlutaeigu rekstraraðila Stöðvar 2, annast tæknivinnslu á leikritinu Næturganga. Á sama tíma og þetta gerist eru dregin saman seglin í starfsemi tæknideildar sjónvarpsins og starfsmönnum fækkað. Starfs- fyrir þeirri stefnu sem mótuð er og þeim ákvörðunum sem teknar eru á þessum vettvangi. Hinsveg- ar hafa framsóknarmenn ekki flutt neinar tillögur til lausnar efnahagsvandanum á þessum vettvangi né öðrum svo vitað sé og það er kominn tími til að þeir mannafélagið minnir hinsvegar á nauðsyn þess að nýta vel fjár- muni stofnunarinnar, enda komi þeir beint frá eigendum hennar, það er almenningi í landinu. Sú stefna að ráðstafa verkefnum og þar með fjármunum til einkaað- ila leiði til dýrari dagskrárgerðar og óhagkvæmni í rekstri. Markús Örn Antonsson út- varpsstjóri segir að varðandi dæmið sem tekið er hér að fram- an sé ekki búið að undirrita neina samninga þar að lútandi og raun- ar verði það ekki gert því að á fundi framkvæmdastjórnar Rík- isútvarpsins, sem haldinn var í taki málin af plani áhyggna yfir á plan raunhæfra aðgerða." Sjálfstæðismenn hafa hinsveg- ar ekki miklar áhyggjur af fyrir- huguðum fundi miðstjórnar Framsóknarflokksins, telja hann eðlilegan og lítt fréttnæman sem slíkan. Einn af ráðamönnum gær, hafi komið fram hjá fram- kvæmdastjóra og tæknistjóra sjónvarpsins að stofnunin væri fullfær um að annast þessa vinnu sjálf og því allar líkur á að hún gerði það. Hvað varðar það atriði að leitað sé til einkaaðila um einstök verkefni innan sjónvarpsins telur Markús Örn slíkt eðlilegt og bendir á sem dæmi að ekki sé hagkvæmt að hafa á föstum launum mannskap annast geti vinnu á álagstímum eða toppum á árinu eins og páskum og jólum, ef þetta lið hefði síðan lítið sem ekk- ert að gera þess á milli. Eðlilegra Sjálfstæðisflokksins sagði hins- vegar í samtali við Þjóðviljann: „Formaður Alþýðuflokksins sagði fyrir skömmu að framsókn- armenn veittu þessari ríkisstjórn hlutleysi, en það fer að verða spurning hvort hann ver hana vantrausti." -FRI sé að leita til einkaaðiia með verkefni á þessum álagstímum en miða sfðan umfang starfseminnar við það sem eðlilegt getur talist frá degi til dags. Markús Örn bendir einnig á það að við endurskoðun á út- varpslögunum hafi beinlínis verið gert ráð fyrir því að sjónvarpið leitaði til utanaðkomandi aðila með verkefni og raunar megi fara allt aftur til áranna fyrir 1970 til að sjá dæmi þess að utanaðkom- andi aðilar hafi verið látnir ann- ast dagskrárgerð fyrir sjónvarp- Vonandi er að þeir, sem sóttu ráð til Krabbameinsfélagsins í gær til að hætta að reykja, hafi ekki byrjað daginn í dag með því að kveikja sér í einni. Myndin er tekin á veitingastaðnum Lækjarbrekku í gær. Reyklaus dagur Námskeið í reykbindindi Krabbameinsfélagið gengstfyrir námskeiðum fyrir reykingamenn sem vilja hætta Námskeið Krabbameinsfélags Reykjavíkur í reykbindindi hafa átt vinsældum að fagna að undan- förnu og á reyklausum degi í gær var gestum og gangandi boðið að kynna sér þau í Lækjarbrekku og Kringlunni. Þar var fyrirkomulagið kynnt og ráðgjafar Krabbameinsféíags- ins ræddu við alla þá sem komu. Þar var hægt að horfa á mynd- bönd, hlýða á fyrirlestra og ræða einslega við ráðgjafa. Á nóm- skeiðunum er mikil áhersla lögð á góða undirbúningsvinnu áöur en hætt er og þremur fyrstu vikunum af sjö eytt í undirbúmng og skipu- lagningu. Hvar best er að byrja á að reykja ekki, hvaða venjur beri að forðast og þar fram eftir göt- Einn ráðgjafanna sagði að mikil áhersla væri lögð á kímni því oft væri það svo að fólk væri bugað af hræðslu við að hætta og væri hætt við að það hætti við að hætta. Því væri reynt að gera fólki það sem léttbærast. Næsta námskeið verður í júní, annað í júlí og síðan í haust.-tt Sjónvarpið Starfsmenn óhressir með útboðin Málið rœtt áfundiframkvœmdastjórnar. Markús Orn telur eðlilegtað leita útfyrirstofnunina Föstudagur 8. apríl 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.