Þjóðviljinn - 17.06.1988, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 17.06.1988, Blaðsíða 2
Miðbœrinn FRÉTTIR___________ Niðurgreiðslur Iðnó til sölu Borgin hefur ekki sýntáhugaá kaupum. Dagsbrún og Sjómannafélag Reykjavíkur meðal eigenda Eigendur Iðnós eru farnir að huga að sölu hússins, en stefnt er að því að Leikfélag Reykjavíkur flytji í Borgarleikhúsið á næsta ári. Reiknað er með að söluverð hússins sé á milli 40 og 50 miljónir króna. Alþýðuleikhúsið og ýmsir hópar listamanna hafa lýst yfir áhuga á að borgin og/eða ríkið keyptu húsið og þar yrði komið á fót listamiðstöð. Skráöur eigandi að Iðnó er Al- þýðuhús Reykjavíkur hf., en að félagsskapnum standa einstak- lingar og Verkakvennafélagið Framsókn, Dagsbrún og Sjó- mannafélag Reykjavíkur er fara með um þriðja partinn af hluta- fjáreigninni. Að sögn Halldórs Björns- sonar, varaformanns Dagsbrún- ar, er nefnd á vegum Alþýðuhúss Reykjavikur hf. að kanna sölu á eignum félagsins, en í þeim efn- um er ekkert haldbært ennþá. - Það er fullur vilji fyrir því að selja þessar eignir, þar með talið Iðnó, og slíta félagsskapnum, sagði Halldór, en auk Iðnós á félagið Alþýðuhúsið við Hverfisgötu og auða lóð gegnt danska sendir- áðinu. Jón Árnason, sem er fram- kvæmdastjóri hlutafélagsins, sagði í samtali við Þjóðviljann að fyrir einu ári hefði borgaryfir- völdum verið boðið húsið til kaups en þau hefðu ekki sýnt neinn áhuga enn sem komið væri. -rk Jóna-deilan í hnút Hákon Sigurgrímsson: Lœgra skattþrep á matvöru verði lögbundið. Verið að laumast í vasa neytenda Deila Jóns Heigasonar land- búnaðarráðherra og Jóns Baldvins Hannibalssonar fjár- málaráðherra um endurgreiðslu söluskatts á landbúnaðarvörum er ennþá óleyst. Hákon Sigur- grímsson framkvæmdastjóri Stéttasambands bænda segir það gífurlega áríðandi að ákvörðun liggi fyrir sem fyrst í þessu máli. Það verð sem ákveðið hafi verið þann 1. júní sl. sé bráðabirgða- verð sem ekki sé hægt að búa við til lengdar. Hákon sagði þetta mál fyrst og fremst snúa að neytendum. Ef sama endugreiðsluhlutfall á sölu- skatti landbúnaðarafurða héldist ekki, þýddi það hærra verð til neytandans. „Miðað við þau lof- orð sem ríkisstjórnin gaf þegar matarskatturinn var settur á, væru það hrein svik við neytend- ur að breyta hlutfallinu nú,“ sagði Hákon. Jón Baldvin sagði í samtali við Þjóðviljann, að ríkisstjórnin hefði gefið út yfirlýsingar eftir skattkerfisbreytinguna í desemb- er sl. um að niðurgreiðslur yrðu stórauknar á tilteknum landbún- aðarvörum, til að tryggja að eng- ar verðhækkanir yrðu á þessum vörum í sambandi við skattkerfis- breytinguna. Niðurgreiðslurnar hefðu verið ákveðnar sem ákveð- in krónutala á einingu. „Þetta þýðir einfaldlega að það verður að taka um það pólitíska ákvörð- un að hækka einingarverðið - það gerist ekki með sjálfvirkum hætti,“ sagði Jón Baldvin. Að sögn Jóns Baldvins gætu menn síðan tekið þessa pólitísku ákvörðun en hún yrði að vera í samræmi við stefnu ríkisstjórnar- innar í ríkisfjármálum. Hákon sagði Stéttarsambandið leggja mikla áherslu á að lægra skattþrep væri lögbundið á mat- vörum. Þetta yrði að hafa í huga þegar virðisaukaskatturinn kæmi. „Annars er þetta geðþóttaákvörðun ráðherra eins og hefur sýnt sig nú,“ sagði Hák- on. Engin lausn fékkst á málinu á ríkisstjórnarfundi sl. þriðjudag. Jón Helgason landbúnaðarráð- herra sagði Þjóðviljanum að ef ekki yrði staðið við þær ákvarð- anir sem teknar hefðu verið um endurgreiðslu söluskatts, væri verið að útfæra nýjan gjaldstofn hjá ríkinu. Framsóknarflokkur og Sjálfs- tæðisflokkur leggja sama skilning í það hvernig hlutfalli endur- greiðslna skuli háttað. En Jón Baldvin er á öðru máli. Friðrik Sophusson iðnaðarráðherra hef- ur sagt að aldrei hafi verið meiningin að ríkissjóður græddi á verðhækkunum landbúnaðar- vara. -hmp Þjóðhátíðarstemmning Öxar við ána í Seljahlíð Það ríkti þjóðhátíðar- stemmning við vistheimili aldr- aðra í Seljahlíð í gaer þegar þar fór um hlað skrúðganga eldhre- ssra krakka frá Hálsakoti og Hálsaseli, en þau tóku forskot á þjóðhátíðarsæluna með miklum hátíðahöldum í gær. Vistmenn Seljahlíðar kunnu greinilega vel að meta þegar krakkarnir sungu Öxar við ána, enda tóku mörg þeirra undir um Ieið og þau hafa vafalaust rifjað upp minningar frá þeim tíma er þau voru ung og sungu þetta lag af krafti á undangengnum þjóð- hátíðardögum. -sg Fjárlagahallinn Stefnir í einn miljarð Núþegar hálfur miljarður. Mœttmeð auknum niðurskurði ogleða aukinni skattheimtu Forsendur ríkisstjórnarinnar fyrir hallalausum ríkisbúskap eru brostnar. Fjárlagahallinn er þegar orðinn 500 miljónir og allar líkur benda til að hann verði amk. einn miijarður á þessu ári. Jón Baldvin Hannibalsson fjár- málaráðherra lagði fram drög að fjárlögum næsta árs á ríkis- stjórnarfundi í gær. Þar er líklega að finna hugmyndir um aukinn niðurskurð hjá hinu opinbera og hugmyndir um nýjar tekju- öflunarleiðir eða skatta. Jón Baldvin sagði að ef útgjöld ríkisins hækkuðu meira en tekj- ur, td. vegna aukinna niður- greiðslna og hækkunar á geymslu- og vaxtakostnaði hefði það auðvitað áhrif á fjárlög næsta árs. „Ef niðurstaðan verður að auka rikisútgjöld mjög verulega, Löggœslan hugsanlega um einn miljarð um- fram tekjur - þá stendur ríkis- stjórnin frammi fyrir því hvað hún ætlar að gera til að halda for- sendum efnahagsstefnunnar,“ sagði Jón Baldvin. I því sambandi kæmi til greina niðurskurður á ýmsum svið og/eða önnur tekju- öflun Ekki eru nema nokkrar vikur síðan ríkisstjórnin áréttaði stefnu sína um jöfnuð í ríkisfjármálum á þessu ári og næsta, að ekki yrðu tekin ný erlend lán og að útgjöld ríkissjóðs yrðu í sama hlutfalli við landsframleiðslu og í fyrra. Þjóð- viljinn spurði Jón Baldvin hvað væri eftir af stefnu ríkisstjórnar- innar þegar ríkissjóður væri rek- inn með halla og fastgengisstefnan úr sögunni. Hann sagðist ekki gefa sér niður- stöðu fyrirfram. Það lægju upp- lýsingar fyrir hjá ríkisstjórninni og væru þar til umræðu. Niður- Hengjandi fjárþröng Fœkkun í liði lögreglunnar í Hafnarfirði vegna niðurskurðar Við getum ekki sætt okkur við að öryggi borgaranna sé á svo glapræðislegan hátt hætt af svo lítilli ástæðu sem niðurskurði í ríkisrekstri, sagði Gissur Guð- mundsson, formaður Félags lög- reglumanna í Hafnarfirði, í sam- tali við Þjóðviljann. Vegna niður- skurðar, sem fjármálaráðuneytið hefur fyrirskipað I ríkisrekstri er nú lögreglumönnum á vakt í Hafnarfirði fækkað úr 8 í 6 og ekki leyft að kalla út afleysinga- menn ef einhver forfallast, nema í „ýtrustu neyð.“ „Við ætlum okkur að halda um þetta mál félagsfund um helg- ina,“ sagði Gissur. Lögreglu- mennirnir hyggjast ganga á fund Hjalta Zóphóníassonar skrif- stofustjóra í dómsmálaráðuneyt- inu því þeir halda því fram að ekki sé um að ræða formlega skipun og því full ástæða til að draga þessi tilmæli til baka og hei- mila eðlileg vinnubrögð við lögg- æslu. Már Pétursson sýslumaður í Kjósarsýslu segir bæjarfógeta- embættið vera í „hengjandi fjár- þröng“ og að það eigi svo sannar- lega ekki einungis við um beina löggæslu. Niðurskurðurinn komi því miður afar harkalega niður á allri opinberri starfsemi í um- dæminu. Um leið og umsvif lög- gæslunnar hafi aukist, til dæmis með tilkomu mikilla umferðar- mannvirkja fyrir ofan bæinn og vaxandi umferð, sé klippt á fjár- veitingar til hennar. -tt staða væri ekki komin í þessu máli. Þórhallur Arason deildarstjóri í fjármálaráðuneytinu sagði að minnkandi þensla og minni kaugeta fólks leiddi til tekju- skerðingar hjá ríkissjóði. Þessu yrði að mæta með niðurskurði eða nýjum tekjustofnum. Þegar forsendur hefðu verið endur- skoðaðar yrði boðað til fundar með ráðuneytum og stofnunum og leiðir fundnar til aðhalds. Jón Baldvin sagði niðurskurð víða koma til greina. Það væri hins vegar ástæðulaust að ræða það frekar, það yrði gert á vett- vangi ríkisstjórnarinnar. Steingrímur Hermannsson ut- anríkisráðherra vildi ekki tjá sig um fjárlagahallann, málið væri í athugun hjá ríkisstjórninni. -hmp Togaraskýrsla LÍÚ Breytingar á toppnum í nýútkominni togaraskýrslu Landssambands íslenskra útvegs- manna kemur í Ijós að breytingar hafa orðið á toppnum yfir afia- hæstu frystitogara og ísfisktogara fyrstu fjóra mánuði ársins miðað við það sem áður var. Örvar HU frá Skagaströnd er efstur frysti- togara og Breki VE frá Vest- mannaeyjum hjá ísfisktogurum. Fyrri aflaskip eins og Akureyrin EA og Guðbjörg IS eru mun neð- ar að þessu sinni. Samkvæmt skýrslunni er Örvar HU alls staðar á toppnum yfir frystitogara með 2.359 tonn; 21,2 tonn á hvern úthaldsdag; meðal- skiptaverðmæti á úthaldsdag tæpar 939 þúsund krónur og brúttóaflaverðmæti rúmar 149,4 miljónir króna. Breki VE er lang- efstur ísfisktogara með 2.598 tonn; meðalskiptaverðmæti á út- haldsdag rúmlega 463 þúsund krónur og brúttóaflaverðmæti rúmlega 80 miljónir króna. í skýrslunni kemur einnig fram að meðalskiptaverðmæti allra skipa á úthaldsdag er tæpar 304 þúsund krónur. Lægst er það hjá minni skuttogurunum rúmar 300 þúsund krónur, en hæst hjá frystitogurum tæpar 625 þúsund krónur. Meðalskiptaverðmæti á út- haldsdag eykst hjá öllum skipa- flokkum hvar sem er á landinu milli ára en þó minnst hjá stóru togurunum á Akureyri. -grh 2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 17. júní 1988

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.