Þjóðviljinn - 28.04.1989, Blaðsíða 23

Þjóðviljinn - 28.04.1989, Blaðsíða 23
 einn innar úr vegi. Um leið og sannleikurinn varð afstæður þá þurfti einstaklingurinn að sanna gildi sitt í listinni með því að finna nýja einstaklingsbundna leið að sannleikanum. Það er athyglisvert að heil menningarsvæði hafa verið ó- snortin af listasögunni allt fram á okkar daga. Þetta á við um ýmis „hefðbundin" þjóðfélög t.d. í S- A-Asíu, þar sem listamaðurinn hefur enn stöðu hins hefðbundna handverksmanns. Hlutverk hans er ekki að finna nýjan persónu- legan flöt á sannleikanum, ekki að túlka sínar persónulegu til- finningar, heldur er hlutverk hans að boða hinn óumbreytan- lega sannleika sem felst meðal annars í endurtekningunni. Enn í dag eru framleidd í Indlandi eða íran teppi eða míneatúrmyndir er standa jafnfætis því besta sem gert var á þessu sviði í þessum löndum fyrir þrem til fjórum öldum. Mynstrin og viðfangsefn- in eru þau sömu enn í dag, árang- urinn felst í því hversu vel lista- maðurinn lifir sig inn í hefðina og endurtekninguna. Okkar menning býður ekki upp á slíka hefð. Afhelgunin í okkar samfélagi hefur kastað hin- um óbreytanlegu og óhagganlegu sannindum fyrir borð. Þar með er myndlistin orðin fangi sögunnar, sinnar eigin sögu. Af fullkomnu vægðarleysi hafa síðan markaðs- öflin og upplýsingatæknin lagst á eitt með sögunni að kasta hverj- um nýjum sannleika, hverri nýrri uppgötvun á sviði myndlistarinn- ar fyrir borð, um leið og hún er orðin að almenningseign. Sýn- ing Listmálarafélagsins á Kjar- valsstöðum er dæmi um þetta vægðarleysi: hún er eins og farm- ur sem sagan og samtíminn kast- aði fyrir borð fyrir langa löngu. Listmálararnir sem að henni standa eru að því leyti í sömu sporum og hinir indversku vefar- ar og míneatúrmálarar að þeir endurtaka hefðina sannleikanum til dýrðar. Munurinn er hins veg- ar sá að sá sannleikur sem 6. ára- tugurinn skildi eftir sig í myndlist- inni er orðin mun holari innan en sú hindúismaheimspeki sem liggur vefnaðinum og míniatúr- Listmálarafélagið: Einar Hákonarson: Verndarengill, 1988 olíumálverk 150x110 sm. listinni til grunns á Indlandi. í raun og veru geymir þessi arfur fátt annað en skelina, formið, sem heimild um liðna sögu. Fisk- urinn sem eitt sinn dafnaði vel undir þessari skel, safaríkur og bragðmikill, er löngu uppþorn- aður og orðinn að engu. Sýn- ingin í Nýlistasafninu hefur það fram yfir sýningu Listmálarafé- lagsins, að það sem þar er sýnt er ekki ennþá orðið að almenning- seign. Þar er verið að fást við for- mræn vandamál sem byggja ekki á fullvissu hefðarinnar eða hins óhagganlega sannleika, heldur á þeirri óvissu sem alltaf er fólgin í því að horfast í augu við samtí- mann með alla söguna á bak við sig. Það að mála með pensli hefur ekki gildi í sjálfu sér, eða að höggva í stein. Línan, liturinn, efnið og rýmið, allt sækir það sína réttlætingu í það sögulega augna- blik, þann stað og þá stund, þegar það er unnið. Myndlist síðari ára hefur lagt síaukna áherslu á skúlptúr og rýmisverk hvers konar. Orðið höggmynd dugir ekki til þess að lýsa þessum fyrirbærum. Nær væri að tala um rýmisverk. Átta af þeim tíu listamönnum sem sýna í Nýlistasafninu sýna slík rýmisverk. Þau eiga fátt annað sameiginlegt en að í þeim finnum við þá dirfsku til þess að horfast í augu við samtímann, sem List- málarafélagið vantar. Þetta er jafnframt síðasta sýn- ingin í húsakynnum Nýlistasafns- ins við Vatnsstíginn. Þar með er lokið merkilegu tímabili sem tengir þessa undarlegu bakhúsa- samstæðu við íslenska mynd- listarsögu allt frá því að Gallerí Súm var stofnað á hæðinni fyrir ofan árið 1969. í 20 ár hafa áhugamenn um nýsköpun í myndlist haft afdrep í þessu óhrjálega porti. Sýningin þar núna er verðugur endapunktur við þá sögu, en því verður vart trúað að yfirvöld sjái ekki að sér og finni þessu óþekka barni ís- lenskrar menningar nýjan og við- unandi samastað. sitt inn í leik sínum og tældi alla við- stadda, „dró okkur til dauða“, ekki síður en konurnar tvær á sviðinu. Það verður sönn nautn að hugsa sér örlög kattarins rauða. Því allir myrða yndi sitt, eins og Óskar Wilde sagði og Megas syngur um í Ástarsögu. Heima hjá afa er einleikur á tvær persónur, stórkostlegt tæki- færi fyrir ungan karlleikara sem Jesper nýtir sér til hins ýtrasta undir styrkri stjórn Stefáns Bald- urssonar. Konurnar eiga verra hlutskipti frá höfundarins hendi. Félagsráðgjafinn (Githa Lehr- mann) átti stundum bágt með sína stöðluðu frasa; presturinn (Bodil Sangill) á fáeinar góðar tölur sem hún fór frábærlega vel með. En síðustu tölunni hefði höfundur átt að sleppa. Merki- legt hvað jafnvel ágætum höfund- um hættir til að vantreysta áhorf- endum sínum. En stundin í leikhúsinu var rafmögnuð. Sannkölluð stund gaupunnar, utan við tíma og rúm. SA Jesper Vigant í hlutverki piltsins Föstudagur 28. aprfl 1989NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 23

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.