Þjóðviljinn - 25.11.1989, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 25.11.1989, Blaðsíða 11
____________ÞJÓPMÁL_____________ Viðræður EFTA og EB Evrópa í umsköpun Almennt viðurkennt að Islendingar eigi samleið með ríkjum Vestur Evrópu. Jón Baldvin Hannibalsson: Islendingar hafa og eiga að semja Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra hóf í fyrradag umræður á Alþingi um EFTA og EB - vonum seinna að mati sumra. Mynd: Jim Smart. Fá málefni fá nú meiri athygli en þær breytingar sem eru að eiga sér stað í Evrópu um þessar mundir, bæði í austri og vestri. íslendingar taka nú þátt í við- ræðum EFTA-ríkjanna við Evr- ópubandalgið um möguleika þess að stofa sameiginlegt efnahags- svæði Evrópu. Mörgum finnst hlutirnir gerast heldur hratt í þessum viðræðum og sá hraði geti leitt til þess að Islendingar blandi sér í atburðarrás sem ekki sjái fyrir endann á né hvaða þýðingu kunni að hafa fyrir þjóðina í heild. Umræður um þessar við- ræður hófust á Alþingi á fimmtudag, þar sem utanríkis- ráðherra, Jón Baldvin Hanni- balsson byrjaði á að rekja tilurð Evrópubandalgsins í sögulegu samhengi. Ráðherrann sagði mörg rök hníga að náinni samvinnu við ríki Vestur Evrópu, bæði pólítskt og menningarlega. Ef við stæðum fyrir utan þá þróun sem væri að eiga sér stað, stefndum við í ein- angrun, ekki einungis frá ríkjum innan EB heldur að öllum iíkind- um frá öðrum Norðurlöndum. Nokkrar leiðir kæmu hins vegar til greina í samskiptum við Evr- ópubandalgið. í fyrsta lagi væri hugsanlegt að ísland gerðist aðili að bandalaginu. En EFTA hefði verið stofnað á sínum tíma af ríkj- um sem ekki hefðu séð sér hag í að ganga í EB, vegna hernaðar- legs hlutleysis og annarra á- stæðna, í bandalag sem næði til pólitísks samstarfs, hefði sam- eiginlega landbúnaðarstefnu og síðast en ekki síst, fæli í sér tak- mörkun á sjálfsákvörðunarrétti aðildarríkjanna. Þau ríki sem enn væru í EFTA styddust við sömu rök og áður gegn aðild að EB en að auki sæi Island sér ekki hag í aðild að EB vegna fiskveiðistefnu bandalagsins. Tvíhliöa og sameiginlega Þá nefndi ráðherran annan möguleika sem væru tvíhliða samningar einstakra EFTA-ríkja við EB. Sú leið væri hins vegar fljótafgreidd þar sem EB hefði eicki lýst sig reiðubúið til að fara í slíkar viðræður. Öðru máli gegn- di hins vegar um sérhagsmuni einstakra EFTA-ríkja. I þessu sambandi vakti Jón Baldvin at- hygli á eðli EB sem bandalags, sem stefndi fyrst og fremst að sameiginlegum markaði. Til þess að hann mætti verða að veruleika yrðu sömu reglur að gilda á öllu markaðssvæðinu. Þá væri ljóst að EB væri svo upptekið af eigin málum um þessar mundir að tvíh- liða viðræður yrðu að bíða fram yfir 1992 þegar sameiginlegum markmiðum EB verði náð. Varðandi þær raddir sem nú heyrðust um að íslendingar ættu að snúa sér alfarið að tvíhliða við- ræðum, sagði Jón Baldvin að þessar skoðanir væru aðeins rétt- ar að hluta. íslendingar ættu að gera hvor tveggja, semja tvíhliða og í gegnum EFTA. Ráðherrann sagði að nú væri tækifæri til samn- inga við EB sem ekki væri víst að gæfist aftur. Yfirþjóðlegt vald Það er nokkuð ljóst að almennt er sú skoðun ríkjandi innan stjórnmálaflokka í landinu að ís- land geti ekki sett sig undir yfir- þjóðlegt vald af því tagi sem gildir innan EB. Hins vegar er íslend- ingum nauðsynlegt að eiga góð og jákvæð samskipti við ríki Evr- ópubandalagsins af ýmsum ástæðum pólitískum, menningar- legum og efnhagslegum. Hjör- leifur Guttormsson, Alþýðu- bandalagi minnti á ályktun lands- fundar Alþýðubandalagsins varðandi viðræður EB og EFTA. Þar sem segði að valdaafsal til yfirþjóðlegra stofnana gæti varla verið eftirsóknarvert fyrir íslend- inga og bryti í bága við sjálfs- ákvörðunarrétt og efnahagslega hagsmuni þjóðarinnar. Sam- skipti norrænna þjóða við EB hlyti einnig að mótast af því hvernig EB-ríkjunum gengi að koma í framkvæmd fyrirheitum í yfirlýsingum forystumanna bandalagsins um félagsleg mál- efni. Hjörleifur reifaði einnig þá fyrirvara sem landsfundur Al- þýðubandalagsins hefði sett varðandi frjálsar fjármagnshrey- fingar, eins og gert væri ráð fyrir á hinu sameiginlega efnhagssvæði. Koma yrði í veg fyrir að fjár- magnið streymdi bara aðra leiðina, þe. frá landinu en ekki til þess. En vegna þess að ísland myndi teljast til jaðarsvæðis innan efnhagssvæðisins væri nokkur hætta á þessu, sem gæti valdið gífurlegri byggðaröskun í landinu. í umræðunum á Alþingi, sem ekki er lokið enn, hafa þingmenn og ráðherrar yfirleitt rætt málið af yfirvegun og varkárni gætir í máli flestra. Jón Baldvin taldi upp á fimmtudag nokkur atriði sem þyrfti að hugleiða ef íslend- ingar verða ekki aðilar að frjáls- um búsetu- og atvinnurétti innan 18 ríkja sameiginlegs efnahags- svæðis Evrópu. Vandræði gætu skapast vegna námsmanna sem sæktu mikið til þessara landa, vegna atvinnu- og dvalarleyfa þeirra þúsunda íslendinga sem búa innan svæðisins og óvíst væri hversu víðtæk þátttaka íslands gæti þá orðið. Ráðherrann benti einnig á að reynslan sýndi að tungumálið, þe. íslenskan, og fjarlægðin frá öðrum Evrópu- löndum, ásamt loftslaginu, væru áhrifaríkar hömlur á verulegan flutning fólks frá Evrópu til ís- lands. Þetta gæti virkað mun bet- ur en alls kyns reglur um hömlur. Það er ekki nema eðlilegt að sumum finnist ísland vera að missa af einhverri lest, kasti það sér ekki að fullu út í samninga við EB, á meðan öðrum þykir þróun- in of hröð til að höndla hana. Þó EB-ríkin hafi fyrir sitt leyti sett markið á árið 1992, er alveg ljóst að 1. janúar það ár gerist ekki einhver stökkbreyting. Almenn tregðulögmál, ólíkar áherslur og hagsmunir sem þrátt fyrir allt fyrirfinnast innan EB munu sjá til þess. Það er því varla ástæða til að örvænta. Það mál sem Norð- urlöndin verða hins vegar að hafa ofarlega í huga í þessum efnum er hvernig þegnum þeirra verði áfram tryggt það þróaða velferð- arkerfi sem þar hefur verið byggt upp, en er víða mun lélegra innan ríkja EB. Verkalýðshreyfingin á Norð- urlöndum hefur ekki alveg setið aðgerðarlaus í þessum efnum og fylgist grannt með þróun mála. Hagfræðingur ASÍ, Ari Skúla- son, hefur lýst því yfir að verka- lýðshreyfingin ætli sér ekki að- eins að fylgjast með málum úr fjarlægð, heldur ætli hún sér að hafa áhrif á gang mála. ASÍ og BSRB hafa gefið út sérstakan upplýsingabækling í samvinnu við Norrænu verkalýðsssam- tökin, sem nefnist „Samtök launafólks og Evrópubanda- lagið“. Þessi bæklingur getur ver- ið gott innlegg í umræðuna fyrir launafólk í landinu, því um er að ræða svo miklar breytingar að nauðsynlegt er að allur þorri al- mennings geri sér grein fyrir því hvað er á ferðinni. Breytt staða smáríkja Mikill skilningur á sérhags- munum íslands varðandi fisk og fiskútflutning hefur reynst vera fyrir hendi hjá pólitískum leið- togum innan Evrópubandalags- ins. Bent hefur verið á að í tvíh- liða viðræðum um sérhagsmuni, beri íslendingum fyrst og fremst að beina spjótum sínum að pólit- ískum leiðtogum EB en ekki embættismönnum, sem hafa það verkefni fyrst og fremst að sjá til þess að öllum gildandi reglum innan EB sé fylgt út í ystu æsar. Þær breytingar sem eru að eiga sér stað eru aðallega í höndum pólitískra leiðtoga og á þeim vett- vangi er staða Islands sterk. Þær breytingar sem eru að eiga sér stað fela nánast í sér um- sköpun Evrópu. ísland er smáríki en staða smáríkja hefur gerbreyst í heiminum eftir seinni heimsstyrjöld, áhrif þeirra eru orðinn miklu meiri en áður. ís- lendingum býðst nú í fyrsta sinn sögulegt tækifæri til að taka þátt í umsköpun þeirrar heimsálfu sem þeir tilheyra. Við getum og eigum að ganga feimnislaust til þess starfs og standa kinnroða- laust fast á okkar sérhagsmunum, á þá verður hlustað ef rétt er á málum haldið. -hmp ALÞÝÐUBANDALAGIÐ Alþýdubandalagið í Skagafirði Félagsfundur Alþýðubandalagið í Skagafirði heldur félagsfund mánudaginn 27. nóvember í Villa Nóva klukkan 20,30. Dagskrá:1. Niðurstöður landsfundar kynntar og ræddar. 2. Starfið framundan. 3. Önnur mál. Stjórnin. Auglýsing um nám- skeið og próf vegna leyfis til verðbréfamiðl- unar í samræmi viö d-liö 1. mgr. 3. gr. laga nr. 20/ 1989 um verðbréfaviðskipti og verðbréfasjóði hefur viðskiptaráðuneytið ákveðið að haldið verði námskeið og próf fyrir þá, sem áforma að sækja um löggilt leyfi til verðbréfamiðlunar, ef næg þátttaka fæst. Prófnefnd verðbréfamiðlara hefur verið falið að sjá um námskeiðið skiptist í tvo hluta. Kennsla á fyrri hluta hefjist í janúar 1990 og Ijúki með prófum í júní sama ár. Kenns- la í síðari hluta fari fram á tímabilinu september til desember 1990 og próf verði í janúar 1991. Ætlunin er að kennsla fari fram í Reykjavík í samvinnu við Bankamannaskólann og verði tvisvar í viku fyrir hádegi hvorn dag. Þeir sem óska eftir að taka þátt í ofangreindu námskeiði eru beðnir um að senda umsóknir þar um fyrir 8. desember n.k. til Prófnefndar verðbréfamiðl- ara, viðskiptaráðuneytinu, Arnarhvoli, 150 Reykjavík á umsóknareyðublöðum, sem þar liggja frammi, ásamt upplýsingum um kennslu- greinar, og reglugerð nr. 543/1989 um nám- skeið og próf til að öðlast leyfi til verðbréfamiðl- unar. F.h. Prófnefndar verðbréfamiðlara Tryggvi Gunnarsson, formaður BYGGINGARFÉLAG VERKAMANNA í REYKJAVÍK Aðalfundur félagsins verður haldinn á Hótel Lind, Rauðar- árstíg 18, fimmtudaginn 30. nóvember 1989, kl. 20.30. Venjuleg aðalfundarstörf. Önnur mál. Félagsstjórnin P Útboð Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. garð- yrkjudeildar Reykjavíkurborgar, óskar eftir til- boðum í að leggja jarðvatnslagnir í 3. áfanga af kirkjugarði í Gufunesi. Tilboðið miðast við: 535 m af 160 mm pípum og 2090 m af 110 mm pípum. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík, gegn kr. 5000,- skila- tryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað, miðvikudag- inn 6. desember 1989, kl. 11.00. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Frikirkjuvegi 3 - Simi 25800 spara sér leigubíl airir taka enga áhxttn! Eftireinn -ei aki neinn Laugardagur 25. nóvember 1989 ÞJÓÐVILJINN — SlÐA 11

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.