Þjóðviljinn - 10.10.1990, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 10.10.1990, Blaðsíða 7
MENNING Myndlist Fés og form Olafur Lárusson sýnir málverk og skúlptúra á Kjarvalsstöðum Þetta eru einhverskonar formvangaveltur, en ég ímynda mér samt sem áður að ég sé að mála landslag þótt formin séu stíf, segir Olafur Lárusson myndlistarmaður, sem opnaði sýningu í vestursal Kjarvalsstaða síðastliðinn laug- ardag. Ég nota þá liti og það efni sem hendi er næst þegar mig langar að mála, hvort sem það er olía, vatnslitir, akrýllitir, penni eða blýantur. Einnig vinn ég mjög hratt. Hugmyndin kviknar fýrir- fram og mestu skiptir að koma henni í efni, og þá breytir engu hvort það er olía eða steinsteypa. Það er gaman að vinna einvörð- ungu úr því efni sem maður hefur, í þvi er viss ögrun. Ég fullgeri oft myndir á nokkrum klukkustund- um og krukka aldrei í þær daginn eftir. A nokkrum myndanna má sjá skrítin andlit eða fés. Þetta eru allt góðir andar, ég velti mikið fyrir mér þjóðsögum og þjóðhátta- fræðum, en fólki finnst það kann- ski dálítið langsótt. Ohlutbundnu formin eru heldur ekki út í bláinn, eins og áður sagði. Listasafn Sigurjóns Gert aó sjálfseignarstofnun ,Ég nota það efni sem ég hef við hendina, í því er viss ögrun, auk þess get ég þannig notfeert mér það ástand sem ég er (.“ Olafúr Lárusson myndlistarmaður að vinna við uppsetningu sýningarinnar sem nú stendur yfir á kjarvalsstöðum. Mynd: Krist- inn. Þann 21. október næstkom- andi verða liðin tvö ár frá vígslu Listasafns Sigurjóns Ól- afssonar, en hún var haldin á áttræðisafmæii listamannsins. Safnið hefur verið rekið sem einkasafn, en hefur nú að ósk eigenda þess verið gert að sjálfseignarstofnun. Asgerður Búadóttir í vinnustofu sinni. Mynd: Leifúr Þorstánsson. Vefjarlist Búadóttr sýnir í Listakonan Ásgerður Búadóttir sýnir nú í Listasafni Borgamess. Þetta er fyrsta einkasýning Asgerð- ar utan höfúðborgarinnar, en hún hefúr auk þess tekið þátt í samsýn- ingum víða um heim. Á siðastliðnu sumri átti hún verk á sýningunni NordForm ‘90 í Malmö, á farsýn- ingu á íslenskri list um Bretland og á sýningunni Color and Form í Washingtonborg í Bandaríkjunum. Ásgerður er fædd í Borgamesi, og þar bjuggu foreldrar hennar um árabil. Sýning hennar í Listasafni Borgamess stendur til 21. október og er opin alla virka daga. Samkvæmt samþykkt frá dómsmálaráðuneytinu stjómar stofnandinn, Birgitta Spur, safn- inu ásamt tólf manna fulltrúaráði. Fimm manna stjóm er skipuð Birgittu Spur og tveimur aðilum sem hún tilnefnir, auk tveggja sem kosnir em af fúlltrúaráðinu. Stofnfúndur fúlltrúaráðs Listasafnsins var haldinn þann 28. mars sl. og var það þá þannig skipað: Anna Einarsdóttir, Björg Þorsteinsdóttir, Brynja Bene- diktsdóttir, Erlingur Jónsson, Gísli Sigurðsson, Hörður Sigur- gestsson, Ingi R. Heigason, Jó- hann Möller, Karólína Eiriksdótt- ir, Kristján Guðmundsson, Ólafur Ó. Johnson og Pétur Guðmunds- son. Fyrsti aðalfundur nýju sjálfs- eignarstofnunarinnar var haldinn í lok maí sl. og tilnefndi Birgitta Spur þar þau Aðalstein Ingólfs- son og Hlíf Siguijónsdóttur í stjóm safnsins, en fúlltrúaráðið kaus Önnu Einarsdóttur og Gísla Sigurðsson. Starfsemi Styrktarsjóðs Lista- safnsins er óbreytt og stjóm hans skipa þau Birgitta Spur, Baldvin Tryggvason og Matthías Johann- essen. Höggmyndimar á sýningunni em úr steinsteypu, og sýningin er samspil skúlptúra og málverka. Sýning Ólafs stendur til 21. október. I austursal Kjarvalsstaða stendur yfir sýning á ljósmyndum Imogen Cunninghams. Báðar em sýningamar opnar frá kl. 11 til 18 daglega. BE Gegn framvísun þessa miða færð þú frían BANANA BOAT græðandi Aloe Vera vara- salva. Gildirídag og á morgun. UEILSUVAL Barónsstíg 20 1 g 11275 og 626275 Hárlos? Lillausl hár? Skalll? Vöövabólga? Hrukkur? Baugar? Aukaklló? i Sársaukalaus „nálarslunguaðlerð" með leyser oj rafmagnsnuddi. Vltamlngrelning. Orkumæing. FRETTALJOSMYNDIR WORLD PRESS PH0T0 '90 Sýning í Listasafni ASÍ 6. október til 14. október 1990 Opið alla daga frá kl. 14 til 19 BILASTÆÐASJÓÐUR REYKJAVÍKUR Bílastæðasjóöur Reykjavíkur vill að gefnu tilefni vekja athygli á 109. gr. umferðarlaganna nr. 50 frá 1987, en þar stendur m.a.: „Gjald sem lagt hefur verið á skv. 1. mgr. 108. gr., hvílir á þeim, sem ábyrgð ber á stöðvun ökutækis eða lagningu. Eigandi ökutækis eða umráðamaður ber einnig ábyrgð á greiðslu gjaldsins, ef það greiðist ekki innan tilskilins frests, nema sannað verði að ökumaður hafi notað ökutækið í algjöru heimildarleysi. Gjaldið nýtur lögtaksréttar og lögveðs í við- komandi ökutæki." Samkvæmt framansögðu þá er skráður eigandi ábyrgur fyrir þeim stöðubrotagjöldum sem á bifreiðina kunna að falla. Mjög algengt er að seljendur ökutækja vanræki að tilkynna sölu bifreiða sbr. 20. gr. rgj. um skráningu ökutækja nr. 523 frá 1988 þar sem segir m.a.: „Nú verða eigendaskipti að ökutæki og skal þá bæði hinn fyrri og hinn nýi eigandi innan 7 daga senda Bifreiðaskoðun skriflega tilkynningu um eigenda- skiptin, en hinn fyrri eigandi skal standa skil á tilkynningunni. Sama á við um breytingu á skráningarskyldum umráðum öku- tækis.“ Eigendaskipti skal tilkynna á eyðublaði sem gert er sam- kvæmt fyrirmælum dómsmálaráðuneytisins og Bifreiða- skoðun lætur í té. Forðist óþægindi og greiðslu gjalda sem aðrir eiga sök á, með því að sinna lögboðnum tilkynningum um eigendaskipti strax og sala bifreiða fer fram. Gatnamálastjórinn

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.