Þjóðviljinn - 07.12.1991, Blaðsíða 21

Þjóðviljinn - 07.12.1991, Blaðsíða 21
Spádómar Nostradamusar í nýrri túlkun Bókaútgáfan Forlagið hefur gefið út bókina Nostradamus, Við upphaf nýrrar aldar, eftir V. J. He- witt og Peter Lorie. Bókin hefur að geyma spádóma hans 1992-2001. Bókin kemur út um þessar mundir i samvinnu bókaútgefenda um all- an heim. I kynningu Forlagsins segir: „I þessari bók er í fyrsta sinn birt nýtt kerfi sem vinnur á skipulegan hátt úr upplýsingum sem faldar eru í torræðum textum Nostradamusar. Verkið er unnið af þekkingu og ná- kvæmni, en niðurstöðumar em settar ífam á einfaldan og hrifandi hátt. Nostradamus var án efa mesti spámaður sem uppi hefur verið, og allt ffá því að bækur hans komu fyrst út hafa menn fylst með því er einn spádómurinn af öðrum rætist. Áhuginn á verkum hans hefur aldrei verið meiri en einmitt nú, enda hefiir komið í ljós að hann taldi siðustu ár þessarar aldar myndu marka tímamót í sögunni." Nostradamus - Við upphaf nýrrar aldar er 208 bls. Guðrún J. Bachmann þýddi. Stórglæsileg ljósmyndabók Iceland Review er að senda frá sér ljósmyndabók eftir Pál Stefáns- son og ber hún nafnið Island. Bók- in er 192 síður í stóm broti og hef- ur að geyma vel á annað hundrað ljósmyndir í fullum litum. Texti bókarinnar er á íslensku, ensku og þýsku, og er þetta í fyrsta sinn sem Iceland Review gefúr út íslands- ÍSLAND ICELAND ISLAND LSÓ6MVNDIR- I'HOTÖGKAPHS • FOTOCRAPiFN P Á L L S TEFÁNSSON Kjördæmisráð AB Reykjanesi Vetrarferð í Þórsmörk Laugardaginn 7. desember n.k. verður farin vetrarferð í Þórsmörk á vegum kjördæmisráðs Alþýöubandalagsins í Reykjanesi. Fariö verður frá Þinghóli klukkan 9 að morgni og ekið austur Hellisheiöi. Farið verður um Ölfus og Flóa, austur yfir Þjórsá, Holt og Rangárvelli. Frá Hvolsvelli verður ekið yfir Markarfljót á gömlu brúnni við Litla Dímon og síðan inn með Fljótinu framhjá Nauthúsagili, Merkurkeri og jökul- lóninu, inn yfir Jökulsá, Steinholtsá og Hvanná og að lokum Krossá og gist I Skagfjörðsskála f Langadal. Engu er líkt að koma I Þórsmörk í frosti og snjó þegar skoppandi fossar og bergsytrur fangast (frosts- ins furðubönd. Um kvöldið sitjum við saman við eigin skemmtan og annama, en á miðnætti er stjörnuskoöun af Slyppuhálsgili. Á sunnu- deginum klukkan 13 er haldið i Básana, en síðan ekið að Stakkholts- gjá og gengið inn ( hana þangað sem fossbuna fellur um klettaþröng ofan I mikla hvelfingu. Heimkoma í Kópavog er áætluð klukkan 20. Gistigjald I skála er krónur 800 og fargjald krónur 3.900. EftiHauna- þegar greiða krónur 2.500 svo og þeir sem eru 15 ára og yngri (fylgd með fullorðnum. Skráið ykkur sem allra fyrst hjá fararstjóranum Gfsla Ólafi Péturssyni ( síma 42462. Athugiö að þátttaka er öllum heimil. ABR Skrifstofan opin Skrifstofa Alþýðubandalagsins I Reykjavík að Laugavegi 3 er opin á mánudögum frá klukkan 17-19. Stjómin Alþýðubandaagið Vestmannaeyjum Skammdegiskaffi Alþýðubandalagið Ivestmannaeyjum býður upp á skammdegiskaffi, laugardaginn 7. desember klukkan 15 í húsi félagsins að Bárustíg. Fundarefni: Jólablað Eyjablaðsins. Allir velunnarar flokksins velkomnir. Laugardagshópurinn. Alþýðubandalagið Reykjavik Borgarmálaráð Borgarmálaráð Alþýðubandalagsins ( Reykjavík heimsækir Borgar- skipulagið að Borgartúni 3, miðvikudaginn 11. desember klukkan 16. Mæting á staðnum. Stjórnin BækurIK bók sem ekki síður er ætluð íslend- ingum en útlendingum. Páll Stefánsson hefur starfað sem ljósmyndari Iceland Review í tæpan áratug, og á þeim tima hefur hann ferðast um landið vítt og breitt. Páll er fjölhæfur Ijosmynd- ari, en af öllum hans viðfangsefn- um er það íslensk náttúra sem heillar hann mest. Myndasafh hans er orðið mikið að vöxtum, og úr- valið sem birtist í þessari bók er valið úr fleiri þúsundum mynda.Flestar myndimar í bókinn em þó teknar á allra síðustu árum. I formála sínum segir Haraldur J. Hamar, ritstjóri, meðal annars: „Þótt Páll sé metnaðarfullur og nógu þolinmóður til að bíða eflir réttu birtunni, þá er það ekki alltaf nóg. Það er eins og hann nái ein- hveiju beinu sambandi við náttúr- una, sem ekki er á allra færi. Þetta er það sem aðskilur mann með ljósmyndavél og listaljósmynd- ara.“ Bókin er öll hin vandaðasta, enda hefur ekkert verið til sparað til að gera hana sem allra best úr garði. Hún skiptist í sex kafia, sem bera heitin Rauð jörð, Skínandi perlur, Ströndin, Vatnið, Landnem- ar, og Vetur. Formáli og inngangur að köflum eru eftir Harald J. Ham- ar. 1 STJÖRNU- I cnrT? Á Tfl TT? ’ ö 1 K/LJvUK Jólaævintýri Sigrúnar Eldjárns Bókaútgáfan Forlagið hefur sent ffá sér. nýja sögu eftir Sigrúnu Eldjám. Hún nefnist Stjömustrákur og er byggðl á samnefndum þáttum hennar serh eru Jóladagatal Ríkis- sjónvarpsihs 1991. I kynningu Forlagsins segir: „Sagan Stjömustrákur segir frá Isafold. Einu sinni þegar hún er á leiðinni á bókasafnið hittir hún Bláma, strák frá jólastjömunni. Isafoldu langar svo mikið til að geta gefið pabba sínum og mömmu jólagjöf, en Bláma vantar varahlut í eldflaugina sína. Saman leggja þau því upp í fjársjóðsleit þar sem ótal hindranir vrða á vegi þeirra. Ekki síst eiga þau í dæmalausu basli við skrýtna kerlingu sem alls staðar þvælist fyrir. Hvað skyldi hún eiginlega vilja þeim?“ Stjömustrákur er 96 bls. Bókin er prýdd fjölda litljósmynda úr sjónvarpsþáttunum um Isafold og Bláma. Árbók veiðimanna Ut er komin bókin „Stanga- veiðin 1991“ sem er árbók veiði- manna. Bókin er að koma út í fjórða sinn og er uppbygging henn- ar í meginatriðum hin sama og fýrr. I bókinni eru þrír meginkaflar. Fyrstan má telja fréttaannálinn, en þar er að finna nákvæma umfjöllun um allt það helsta sem gerðist í heimi stangaveiðimanna á vertíð- inni sem nýliðin er. Þá er farið í yf- irreið um landið þar sem komið er við á bökkum allra helstu áa lands- ins, skoðaðar veiðitölur og greint frá því helsta sem gerðist á hverj- um stað. Þriðji meginkafli bókar- innar fjallar um silungsveiðina 1991. Nokkrar veiðisögur krydda efhið og hátt í 200 myndir víðs vegar af landinu gera það einnig. Eru margar þeirra í lit. Höfundar bókarinnar eru blaðamennimir Guðmundur Guð- jónsson á Morgunblaðinu og Gunnar Bender á DV. Báðir hafa um árabil séð um stangaveiðiskrif í blöð sín, auk þess sem Gunnar rit- stýrir Sportveiðiblaðinu og Guð- mundur hefur ritað allmargar bæk- ur um veiðiskap. Heiðar snyrtir segir frá Iðunn hefur gefið út bók um líf og starf Heiðars Jónssonar snyrtis, sem nefnist Heiðar - eins og hann er eftir Nönnu Rögnvaldardóttur. í kynningu útgefanda segir: „Heiðar snyrtir hefur löngum verið umtalaður maður og umdeildur. En hann er líka listamaður og einstak- ur hæfileikamaður sem sífellt kem- ur á óvart. í þessari bók segir hann fra sjálfum sér og lífi sínu, sögum og umtali, störfum, ævintýrum og kostulegum uppákomum hérlendis og erlendis. Hann hefur málað prinsessur og kvikmyndastjömur og fengið tilboð um frægð og frama á erlendri grund, en þó er hann alltaf snæfellskur sveitastrák- ur innst inni. Og hér er Heiðar ein- mitt hann sjálfur, kemur til dyr- anna eins og hann er klæddur og lýsir skoðunum sínuum og við- horfum til málefna og manna - en þó aðallega kvenna." FJÖLBRAUTASKÓLl SUÐURLANDS Fjölbrautaskóli Suðurlands á Selfossi leitar eftir kennara á vorönn 1992 í efnafræði og stærðfræði. Einnig er lýst eftir bókasafnsfræðingi í fullt starf. Umsóknir berist fyrir áramót til skólameistara, sem veitir nánari upplýsingar. Siminn er 98-22111. Húsnæði óskast Óskum eftir að taka á leigu 3ja- 4ra herbergja íbúð frá 1. febr.- 31. mars n.k. Til greina kemur einnig stærri eign. Góð greiðsla í boði. Upplýsingar í síma 23561. FÉLAGSMÁLASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Síðumúla 39 — 108 Reykajvík — Sími 678500 Félagsráðgjafar Óskum eftir að ráða félagsráðgjafa eða starfsmann með hliðstæða menntun t.d. á sviði sálar- eða upp- eldisfræða í 50% starf á hverfaskrifstofu fjölskyldu- deildar í Skógarhlíð 6. Upplýsingar gefur Ellý Þorsteinsdóttir yfirfélagsráð- gjafi í síma 625500. Umsóknarfrestur er til 20. des- ember n.k. Umsóknum skal skila til Félagsmálastofnunar Reykjavíkurborgar, Síðumúla 39, á umsoknareyðu- blöðum sem þar fást. Auglýsing frá Tryggingaeftirlitinu Tryggingaeftirlitið vekur athygli á auglýsingu er birt- ist í Lögbirtingablaðinu 28. nóvember síðastliðinn, varðandi fyrirhugaða sameiningu á rekstri B.í. Líf- tryggingar g.t. Brunabótafélags íslands og Líftrygg- ingafélagsins Andvöku g.t. í Líftryggingafélag (s- lands hf. og um breytingu á rekstrarformi Líftrygg- ingafélagsins Andvöku g.t. Tryggingaeftirlitinu ber lögum samkvæmt að athuga hvort ástæða sé til að ætla að yfirfærsla trygginga- reksturs og breyting á rekstrarformi geti á nokkurn hátt skaðað vátryggingataka og hina vátryggðu. Vegna þessa hefur Tryggingaeftirlitið, með nefndri auglýsingu, óskað eftir skriflegum athugasemdum innan þriggja vikna frá birtingu auglýsingarinnar. Tryggingaeftirlitið 6. desember 1991 Síða 21 ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 7. desember 1991

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.