Þjóðviljinn - 14.12.1991, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 14.12.1991, Blaðsíða 9
BÓKáBLáÐh „Hér var þó gott að villast.“ Vigdís Grímsdóttir: Lendar elskhugans Iðunn, 1991 að hefur aldrei verið nein hálf- velgja í því sem Vigdís Grímsdóttir gerir; hun hefur annaðhvort skrif- að mjðg góðan eða mjðg slæman texta og lesendur hafa annaðhvort verið yfir sig hrifnir eða mjðg fúlir. En það má ekki lesa nýju ljóðabókina Lendar elskhugans með slíku „annaðhvort- eða“ hugarfari. Þessi Ijóðabók er að mörgu leyti erfiðasta verk sem komið hefur frá höf- undi. Það er bæði sagt meira og minna en áður hefur verið gert. Textinn er samsettari, dýpri, það eru í honum miklar sveiflur eins og í fyrri bókunum en öfgamir eru agaðri, afstæður eru meira „bæði- og“, minna „ann- aðhvort-eða“. Hringur og lína Ljóðabókin Lendar elskhugans hefst á þessu ljóði: Enn reika ég um spegilfœgðan tuminn sem mennimir reistu efanum. Bókinni lýkur á þessu sama ljóði. Það er lagt af stað ffá tumi efans og þar lýkur ferð- inni. En það er ekki sami ljóðmælandi sem kemur afmr og sá sem fór. Endurtekningin táknar sem sagt ekki kyrrstöðu heldur nið gagnstæða, eim fasti punkturinn í tilverunni er efinn sem fyrr eða síðar sendir ljóðmæl- andann af stað í nýja ferð. Ferðin sjálf lýsir sjálfsleit, er „þroska- saga“ með upphafi, miðju og endi. Þroska- sagan er bokmenntaform með langa og virðulega hefð að baki en sú þroskasaga sem hér er sögð minnir meira a helvítisgöngu Dantes en friðsæla sögu af því „hvemig ég leitaði og fann sjálfa mig“. Enda finnur ljóð- mælandinn ekki „sjálfa sig“ og i Ieitinni er ekki vaðið beint að þeirri niðurstöðu heldur hringsólar textinn ffam að henni. Þrjár konur Persónur í ljóðabálknum em „ég“ eða ljóðmælandinn og „röddin" sem er rödd dá- innar konu sem þó er lifandi og gengur hvít- klædd á sfröndinni., Þá konu þeldcjum við úr sögunni Eg heiti Isbjörg, ég er ljón. Hún ákallar þriðju konuna sem heyrir ekkitilhennar af því að hún er svo jarðbund- in og önnum kafin við að hamra jámið (á meðan það er heitt) og sýslar og stússast. „Ég“ heyri hins vegar ákall þeirrar dauðu og hlýði því, yfirgef sofandi böm og elskhug- ann fagra og legg af stað í þá ferð sem verð- ur að fara. Ferðin liggur gegnum mörg svið, niður á við, óhugnaðurinn bytjar að hríslast inn í ljóðin. Eftir að hafa verið á sléttunni miklu, eftir að hafa verið með dvergunum (eins og Freyja), eftir að botninum er náð í súrrealískri martröð með limlestingum og tortímingu í eldi liggur leiðin til baka. Leið- in liggur gegnum orðin, og þar finnur ljóð- mælandinn „sjálfa sig“. Hún er ekki í þessari bókmenntahefð og ekki í hinni - og þó er hennar mál, hennar tjáning, samsett ur brot- um, keramikkflisum, sem brotnar em úr orð- ræðum allra hinna. Það fyllir hana gleði: gaman gaman gaman ég hef gert þetta áður þó aldrei ég hef hoppað og skoppað milli orðanna þeirra stiklað á velgrónum þúfum lagst til hvíldar í gróðursœlum lautum og runnið í vœnghaf og hlýju ogsofið og sofið og sofið hoppað og elskað og sofið og sofið og softð Eg verð að vikja fara en hér var þó gott að villast. Það er hægt að hverfa aftur - það verður að hverfa aftur en á leiðinni fannst svolítið: í síðustu ljóðunum verð „ég“ að hinni kon- unni, þeirri sem hamrar jámið og hún verður að röddinni sem kailar á „þig“. Þijár konur og þó ein, rödd „þeirra" og „mín“ sem er sú sama, eitt ákall... Akall um hvað? Ást og grimmd Elskhuginn er strokinn og kysstur og það er dansað við hann. Honum er sýnd mtkil Vigdís Grlmsdóttir. Mynd: Jim Smart blíða og ást, kannski er hann faðir bamanna í ljóðabálknum. Það er kveikt á kertum í gullstjökum sem raðað er kringum hvíluna þar sem hann liggur nakinn. Svo er hann yf- írgefinn. Umlukinn vafurlogum. Miklu meiri ástríður og háski fylgja ást- um kvennanna þar sem tortíming og dauði eða upplausn er alltaf á næstu grösum í text- anum. Það er risið hátt og fallið djúpt og krafist mikils. Um leið gerir óttinn við að það líka verði að hinu sama, spuminguna: Hver er ég? - enn spenntari og angistariyllri. Spurt er: Hver er „ég“ - sem hvorki sést né heyrist? Hver er „ég“ sem bæði sé og heyri það sem hinir sjá ekki eða heyra? Þetta em tilvistarlegar spumingar sem liggja til gmndvallar öðmm spumingum þessa Ijóðabálks sem er ef til vilí Jjað besta sem Vigdis Grimsdóttir hefur ennþa gert. Dagný Kristjánsdóttir NÝJAR BÆKUR - SKUGGSJÁ - NÝJAR BÆKUR - SKUGGSJÁ - NÝJAR BÆKUR - SKUGGSJÁ - NÝJAR BÆKUR - SKUGGSJÁ NÝJAR BÆKUR - SKUGGSJÁ - NÝJAR BÆKUR - SKUGGSJÁ - NÝJAR BÆKUR - SKUGGSJÁ - NÝJAR BÆKUR - SKUGGSJÁ Barbara Cartland ÁSTAÐ LÁNI Gilda neyðist til að leika hlutverk hinnar vinsœlu systur sinnar, Heloise, í samkvœmislífi Lundúna. En fljótlega dregst hún inn í njósnamál og fleiri atburðir gerast, sem hún hafði ekki fyrirséð. Theresa Charles ÖNNUR BRÚÐKA UPSFERÐ Maura hafði þráð þennan dag.þegar ungi maður- inn, sem hún hafði gifst með svo litlum fyrirvara, kœmi heim eftir sex ára fangavist í erlendu fangelsi. En sá Aubrey, sem nú viidi endi- lega fara með hana í „aðra brúðkaupsferð” til fiskiþorps, þar sem þau höfðu fyrst hitst, virtist gersamlega breyttur maður. Eva Steen ÍLEITAÐ ÖRYGGI Flestar ungar stúlkur líta björtum augum fram á veginn, en það gerir húnekki. Hún horfir til baka — til hinnar glötuðu bernsku sinnar, þegar hún átti félaga, sem hún hafði samskipti við, og þegar foreldrar hennar höfðu tíma fyrir hana. Bókabúð Olivers Steins sf Else-Marie Nohr AÐEINS SÁ SEM ELSKAR ER RÍKUR Þegar Anita var fimmtán ára gömul samdi Lennart Ijóð handa henni, sem hann nefndi „Aðeins sá semelskar erríkur”. Mörgum árum seinna fékk Lennart tœkifœri til að minna Anitu á þessi orð. Erik Nerlöe SIRKUSBLÓÐ Hún elskaði iíf sitt sem listamaður og var dáð sem sirkusprinsessa. En dag einn dróst hún inn í annars konar heim og varð að velja á milli þess að vera sirkus- stjarna áfram eða gerast barónessa á stóru herrasetri. \ Síða 9 ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 14. desember 1991

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.