Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.1995, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.1995, Blaðsíða 7
T>V LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 1995 fréttir Einar Ingi Kristinsson og Guörún Björg Lúðvíksdóttir: Erf itt að sjá þetta svona allt í einu - höfðu verið á Flateyri í mánuð þegar flóðið féll Einar Ingi Kristinsson og Guðrún Björg Lúðvíksdóttir frá Selfossi vóru búin að vera í fiskvinnslu á Flateyri í einn mánuð þegar snjóflóðið féll. Þau gistu í verbúðunum niðri við frystihús Hjálms á Eyrinni og sluppu því við flóðið. En Einar var kallaður strax út til björgunarstarfa og Guð- rún fór í stjórnstöðina að hlúa að hinum slösuðu. „Rétt fyrir klukkan sex um morg- uninn kom verkstjórinn og spurði hvort ég treysti mér til að koma út að moka, það hefði fallið snjóflóð og ástandið væri mjög alvarlegt. Ég fór út og sá að það var vitlaust veður. Maður vissi í rauninni ekki hvað maður var að fara að gera. Við kom- um frá Selfossi og erfitt að sjá svona lagað allt í einu,“ sagði Einar. Hann fór í skýli björgunarsveitar- manna, fékk þar skóflu og fór út að moka ásamt 15-20 öðrum Flateyring- um. „Aðstæður voru erfiðar þarna um morguninn, það var svo búnt. Síðan var okkur skipt út þegar sveit kom frá ísafirði með hundana. Eftir það skiptumst við á að moka,“ sagði Ein- ar. Þau sögðu óákveðið hvað tæki við hjá þeim. Þau ætluðu heim til Selfoss að jafna sig og sjá síðan til með fram- haldið. Til Flateyrar myndu þau að sjálfsögðu aldrei fara aftur. -bjb ííw íu Einar Ingi Kristinsson og Guðrún Björg Lúðviksdóttir frá Selfossi voru búin að vera í fiski á Flateyri í einn mánuð þegar ósköpin dundu yfir. Þau tóku þátt í fyrstu björgunaraðgerðum um morguninn. DV-mynd S Starfshópur ráðuneytisstjóra vegna slyssins: Unnið verði eins og eftir Súðavíkurslysið - snjóflóðahættumat endurmetið Starfshópur ráðuneytisstjóra, sem skipaður var eftir Súðavíkur- slysið í janúar til að hafa yfirum- sjón með þeim þáttum er snúa að ríkinu, hefur aftur tekið til starfa. Minnisnóta frá þeim var rædd á ríkisstjórnarfundi í gær. Ráðuneytisstjórarnir leggja til að í flestum tilfeflum verði unnið að aðstoð og öðru því sem gera þarf á næstunni eins og gert var eftir slys- ið í Súðavík. Þeir leggja til að samræma allt sem að samgöngum og flutningum til og frá Flateyri viðkemur, í lofti, á sjó og í landi. Samgönguráðu- neytið mun annast þennan þátt. Félagsmálaráðuneytið hefur haft samband við sveitarstjóm Flateyr- arhrepps og boðið hðsinni ríkis- stjórnar og ráðuneyta. Líkt og gert var í Súðavík mun félagsmálaráðu- neytið annast samskipti við sveit- arstjórnina um öll þau mál sem hún ber ábyrgð á. Þá hefur ráðu- neytið hafist handa um að kanna hvaða húsnæði á vegum opinberra aðila og einkaaðila á Flateyri og í nágrenni mætti nýta tímabundið í þágu þeirra sem nú eru húsnæðis- lausir. Rauði krossinn hefur útveg- að húsnæði í Reykjavik fyrir þá sem þangað era væntanlegir. Mælt er með því að haga fjár- hagsaðstoð til þeirra sem em alls- lausir með sambærilegum hætti og gert var í Súðavík. Lagt er til að stjórnvöld lýsi yfir að þau muni ábyrgjast greiðslu kostnaðar sem nauðsynlegt reynist að stofna til vegna björgunarstarfsins og ráðu- neytisstjórahópnum falið að meta fjárbeiðnir. Þegar hefur verið haldinn fundur viðskiptaráðuneytis með fulltrúum Sambands íslenskra tryggingafé- laga og Viðlagatryggingar um tryggingabætur. Síðan segja ráðuneytisstjóramir að nauðsynlegt sé að ákveða hvem- ig staðið skuli að snjóflóðahættu- mati í framtíðinni. Ákveða þurfi hvort endurskoða eigi frá grunni skipulag og núverandi starfsað- ferðir eða hvórt styrkja eigi núver- andi starf enn frekar en gert hefur verið. Afstaða stjómvalda verði að vera skýr og Ijóst sé að brýna nauð- syn beri til að hætta af snjóflóðum verði metin með sem raunhæf- ustum hætti. 7 Hljóðkort Vönduð 16 bita hljóðkort Lexmark 4076c léqcáa (ífywtMí! 600 X 300 dpi 150 blaða arkamatari 3 bls/mín -16 millj. lita Frabært tilboð a fax-módöldum Fyrir Heimabanka, Einkabanka og Internet 14.400 Baud RÉTTVERÐ: 17.900 RÉTT VERÐ: 39.900 RÉn VERÐ: 25.900 Chlcony' Chlcony fartölvur Ymsar gerðir af hinum vönduðu Chicony fartölvum sem notið hafa mikilla vinsælda. Canon T20 Faxtæki Símtól - 30 m rúlla Sjálfvirkur síma/fax deilir Chicony 486 tölvur frá kr: RÉTT VERÐ: 39.900 DX2/80 PCI 8 MB minni - 850 MB diskur Margmiðlunarbúnaður (*) 8 MB minni - 850 MB diskur Margmiðlunarbúnaður (*) Wlndows 95 uppsett (*) Hljóðkort, hátalarar, geisladrif og geisladiskar með 190 lelkjum og 300 forrltum! ny sending a frabæru verði! IVúi'Wil Canon BJC-70 720 dpi litaprentari 4 bls/mín - 2 hylkja kerfi 30 blaða arkamatari Svart og litur samtímis COLOR BUBBLE J E T Margmiðiunarpakkl á frábæru verði „4 speed" geisladrif SoundExpert hljóðkort Hátalarar - 3 geisladiskar með hugbúnaði Canon B360 Faxtæki - Sími - Prentari Myndskanni - Tölvufax Ljósritunarvél RÉTTVERÐ: 145.500 RÉTT VERÐ: 29.900 VORUI ’STlNN A iNTERNETINU http: www.nyherji.is/v0rur/ Canon Trust Sprengitilboð á Trust tölvum Trust TOLVUBUNAOUM SKAFTAHLÍÐ 24 SÍMI 569 7800 ÖLL VERÐ ERU STCR. VERÐ M/VSK - TILBOÐSVERÐ CILDA í EINA VIKU EÐA MEÐAN BIRGÐIR ENDAST NYHERJA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.