Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1996, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1996, Blaðsíða 34
k ffm m m 42 fyfirheyrsla LAUGARDAGUR 11. MAÍ 1996 IXV Guðrún Pátursdóttir forsetaframbjóðandi í DV-yfirheyrslu: Kem til dyranna eins og ág er klædd Guðrún Pétursdóttir segir m.a. í yfirheyrslu DV að hugsanlegt framboð Jóns Baldvins, mágs síns, myndi hafa meiri áhrif á fyigi Ólafs Ragnars en sitt. DV-mynd Brynjar Gauti - Af hverju fórstu i framboð? „Vegna þess að þeir sem þekkja mig best frá ýmsum skeiðum æv- innar hvöttu mig til að gefa kost á mér til embættis forseta íslands með þeim rökum að menntun mín, reynsla og manngerð gætu komið þjððinni að gagni i þessu embætti." - Hver telur þú helstu gildin vera sem embætti forseta íslands á að standa fyrir?______________ „Forsetinn á að vera sameining- arafl. Það sem sameinar okkur er arfleifð okkar og saga, þjóðernið, tungan og sameiginlegir þjóðarhags- munir. Forsetinn á að standa dygg- an vörð um þann menningararf sem við höfum fengið í hendur og stuðla að því að við auðgum hann og fær- um áfram í hendur þeirra sem á eft- ir okkur koma. Forsetinn á að tala fyrir friði og sáttum, umburðar- lyndi og mannúð. Hann á að vera víðsýnn, framsýnn og bjartsýnn og fær um að efla trú manna á landið og þjóðina."____________________ - Hverjar verða þínar áherslur á Bessastöðum, náir þú kjöri? „Eg mun leggja áherslu á alhliða menntun vegna þess að hún er for- senda þess að við getum nýtt þau tækifæri sem framtíðin mun bjóða. Möguleikar fyrir vel launuð störf í framtíðinni byggjast á vel mennt- uðu og þjálfuðu vinnuaíli. Eftir því sækjast bæði innlend og erlend fyr- irtæki. Ég mun hvetja íslendinga til að sækja sér verkefni út fyrir land- steinana, eins og við erum þegar farin að gera á mörgum sviðum. Þarna eiga okkur eftir að opnast enn fleiri leiðir í krafti þeirrar þekkingar og verkhæfni sem við búum yfir. Ég legg áherslu á að við göngum vel um auðlindir okkar og að við skilum landinu og miðunum með sóma í hendur næstu kynslóð- ar. Ég mun leggja áherslu á að rödd íslands hljómi í alþjóðlegu sátta- starfi. Sérkenni okkar er að við erum vopnlaus þjóð og því við hæfi að við látum að okkur kveða í þágu friðar. Ég mun ferðast um landið til að vera í stöðugu sambandi við landsmenn. Þessar heimsóknir þurfa ekki alltaf að vera formlegar, heldur geta einnig verið með lát- lausara yflrbragði.“____________ - Finnst þér að forsetinn eigi að beita ákvæði um neitunarvald á lagasetningar frá Alþingi? „Hornsteinn stjórnskipunar okk- ar er þingræðið. Hér er um vand- meðfarið ákvæði í stjórnarskránni að ræða. Því hefur aldrei verið beitt og gefur þvi visst fordæmi. Ég lít svo á að þetta ákvæði sé varnagli sem forseti getur beitt ef skerst í odda með þingi og þjóð. Vonandi kemur ekki til þess.“ Kostnaður innan við 10 milljónir - Hver er áætlaður kostnaður við þitt framboð?_______________ „Aður en ég tók ákvörðun um framboð hafði ég samband við nokkra gamla vini og skólafélaga sem hafa mikla reynslu af kosning- um og starfi í kringum þær. Þeir tóku að sér að halda utan um pen- ingamálin og gera kostnaðaráætlun. Við gerum ráð fyrir að kostnaður- inn verði innan við 10 miUjónir. Til þessa hefur sú áætlun staðist en kosningabaráttan getur æxlast eftir því hvernig aðrir frambjóðendur haga sér,“______________________ - Hver fjármagnar baráttuna? „Það er gert eins og í venjulegum kosningum, með framlögum ein- staklinga og fyrirtækja. Megnið af vinnunni er sjálfboðavinna."____ - Er eitthvað í þinni fortíð sem gæti skaðað þig sem forseta? „Nei, ekkert. Eg hef farið í gegn- um þetta í huganum og ekki fundið neitt sem ekki þolir dagsljósið.“ - Þú viðurkenndir í viðtali fyrr í vetur að hafa reykt hass á þín- um yngri árum. Sæmir það þjóð- höfðingja að hafa neytt fíkni- efna?______________________ „Eg kem til dyranna eins og ég er klædd, - ég reyki ekki og neyti áfengis í stakasta hófi. En það er rétt, að þegar ég var innan við tví- tugt prófaði ég að reykja hass, enda var tíðarandinn annar en hann er í dag og unglingar gerðu sér enga grein fyrir því hversu hættuleg þessi efni eru. Nú veit ég, ekki síst í krafti sérgreinar minnar um tauga- kerfið, hvaða afleiðingar neysla svona efna getur haft. En ég er ekki frá því, að að ég nái betra sambandi við ungt fólk í samræðum um fíkni- efni, einmitt vegna þess að ég get talað við þau af nokkurri reynslu þess sem sjálfur var unglingur í svipuðum hugleiðingum og þau eru nú. Mér finnst það vera vænlegra til árangurs en að tala ofan og utan frá um þessa hluti." Eitt framboð hefur fylgi af öðru - Nú hefur fylgi við þig í und- anförnum skoðanakönnunum mælst svipað og Péturs Kr. Haf- stein. Eruð þið Pétur ekki að berjast um hylli sömu kjósenda, þ.e. í Sjálfstæðisflokknum, og skemmir það ekki fyrir ykkur í baráttunni við Ólaf Ragnar sem mælst hefur langefstur í könnun- um?______________________________ „Það liggur í hlutarins eðli að eitt framboð hefur fylgi af öðru, og þýð- Yfirheyrsla Björn Jóhann Björnsson ir ekki um það að fást. Ég er ekki að berjast í Sjálfstæðisflokknum, - ég er í framboði sem einstaklingur og leita stuðnings kjósenda sem ein- staklinga, án tillits til þess hvaða skoðun þeir hafa á þjóðmálum. Ég er hins vegar ekki í vafa um að lín- urnar eiga eftir að skerpast á næstu vikum. Ég finn þegar ég tala við fólk að það er leitandi og vill meiri upplýsingar áður en það gerir upp hug sinn. Það er mikið svigrúm fyr- ir breytingar."___________________ - Hefurðu fengið stuðning fleiri ráðherra Sjálfstæðisflokksins en Þorsteins Pálssonar, t.d. frá frænda þínum, Birni Bjamasyni? „Eg legg ekki svo mikið upp úr því að leita eftir yfirlýstum stuðn- ingi sterkra stjórnmálamanna. í mínu framboði legg ég áherslu á að fá breitt fylgi fólks úr öllum stjórn- málaflokkum. Ég hef ekki spurt Björn um hans afstöðu. Við megum ekki gleyma því að Við megum ekki gleyma því að Pétur og Björn eru aldir upp í næstu húsum hvor við annan og þar er æskuvinátta á milli.“_________________________ - Náfrænka þín, Valgerður Bjarnadóttir, systir Bjöms, hefur lýst yfir stuðningi við Pétur Kr. Hafstein vegna þess að hann væri virðulegri og hæfari en þú. Hvernig kom þetta á þig?________ „Mér kom stuðningur Völu við Pétur alls ekki á óvart. Mér er sagt að þegar Vala lærði að prjóna, þá hafi hún prjónað fyrsta trefilinn á Pétur Hafstein. Milli þeirra er æskuvinátta. Ég virði það við Völu að viija styðja Pétur, áður en hann bauð sig fram átti ég hennar stuðn- ing vísan. Það eru engin sárindi í mínum huga, hvorki gagnvart Völu né Birni.“______________________ - Nú ertu komin af mjög ætt- stóru fólki. Hvort finnst þér það jákvætt eða neikvætt fyrir þitt framboð?________________________ „Eg er þakklát fyrir það góða fólk sem að mér stendur og hefur alltaf reynst mér vel. Það er styrkur minn að eiga þetta góða fólk að. Hins veg- ar hef ég aldrei ætlast til þess að komast áfram vegna ættartengsla. Ég hef valið mér vettvang, visindin, þar sem ættartengsl skipta engu. Það þætti í meira lagi broslegt að ætla að flíka þeim þar.“________ - Nú muna eflaust margir eftir þér úr fremstu sveit andstæðinga Ráðhúss Reykjavíkur á sínum tíma. Hvað finnst þér um bygg- inguna í dag? Ferðu t.d. inn í hana?___________________________ „Já, já, auðvitað fer ég inn í Ráð- húsið. Ráðhúsmálið tilheyrir fortíð- inni. Maður verður að kunna að taka hvern slag fyrir sig. Ég er áhugasöm og kraftmikil í þeim mál- um sem ég tek mér fyrir hendur og horfi fram á við en ekki aftur til for- tíðar.“ Úlafur er ekki í felum - Aðrir frambjóðendur hafa haft maka sína mikið í frammi, sérstaklega í auglýsingum að undanförnu, en heldur lítið borið á þfnum maka. Heldurðu Ólafi í felum?_________________________ „Nei, nei, hann er ekki í felum. Ólafur er ákaflega skemmtilegur, fróður og réttsýnn og mjög góður lífsforunautur fyrir manneskju eins og mig. Hann styður mig eindregið, sem sést best á því að hann tekur ekki sæti á Alþingi á meðan ég er í þessari baráttu og ætlar að segja af sér þingmennsku ef ég næ kjöri. Ég veit hann mun standa við hlið mér eins og hæfir í embættinu. Auðvitað kemur hann meira fram eftir þvi sem á líður í kosningabaráttunni. Fram til þessa hefur hann einfald- lega verið mjög önnum kafinn í sínu eigin starfi. Ég vek athygli á einu sem mér hefur fundist sláandi. Það er verið að kjósa einstakling til embættisins. Við Guðrún Agnarsdóttir komum fram einar í auglýsingum til að byrja með en karlarnir, sem í fram- boði eru, hafa varla sést neins stað- ar án eiginkvenna sinna, í auglýs- ingum eða í sjónvarpi. Svo er verið að segja að það sé kominn tími á karlmann á Bessastöðum."_______ - Eruð þið Olafur enn ógift? „Já, við erum það.“_________ - Þarf forsetinn ekki að vera í vígðri sambúð?_________________ „Jú, ég virði fullkomlega þau sjónarmið að svo eigi að vera. Við Ólafur höfum síður en svo nokkuð á móti hjónabandi. Okkur hefur bara fundist að ef við létum gifta okkur núna, þá væri eins og við gengjum ekki til hjónabandsins af heilum hug. En ég get lofað þér því að það verða hjón sem setjast á Bessastaði ef ég næ kjöri.“_______________ - Mágur þinn, Jón Baldvin Hannibalsson, er sagður vera að íhuga alvarlega að bjóða sig fram. Hvemig litist þér á hans framboð ef af yrði?____________ „Eg hef lítið velt því fyrir mér. Það verður bara að koma í ljós.“ - Myndi það ekki koma niður á þínu framboði?_________________ „Eg, held að það myndi hafa meiri áhrif á fylgi Ólafs Ragnars Grímssonar. Þarna væri annar stjórnmálamaður að fara fram á völlinn gegn Ólafi. Þar sem ég hef farið hef ég fundið í sámræðum við fólk að það vill heldur fúlltrúa sem er ekki tengdur flokkapólitík og erj- um stjórnmálanna. Ef annar mjög þekktur stjómmálamaður færi fram þá held ég að andstæðurnar milli framboðs þeirra og mín, sem ekki kem úr röðum stjórnmálanna, muni skerpast. Þá mun koma betur í ljós hvort fólk vill stjórnmálamann eða fulltrúa úr eigin röðum eins og ís- lendingar völdu sér með kjöri Kristjáns Eldjárns og Vigdísar Finn- bogadóttur.“ -bjb
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.