Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1996, Blaðsíða 50

Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1996, Blaðsíða 50
58 afmæli w Sæmundur Arni Hermannsson Sæmundur Arni Hermannsson framkvæmdastjóri, Skagfirðinga- braut 47, Sauðárkróki, er sjötíu og fmun ára i dag. Starfsferill Sæmundur fæddist á Ysta- Mói í Fljótum og ólst þar upp. Hann stundaði nám við Héraðsskólann í Reykholti 1940-42. Sæmundur stundaði bústörf á unglingsárunum, var í vegavinnu, við uppskipun í Haganesvík, í síld- arvinnu á sumrin og á vertíð í Keflavik í nokkra vetur. Hann var síðar með bílaútgerð í Fljótum og starfaði í lögreglunni á Siglufirði tvo sumarparta. Sæmundur flutti til Vestmanna- eyja 1950, var þar hótelstjóri hjá Helga Benediktssyni og síðan toll- vörður í Eyjum, tollvörður á Þórs- höfn á Langanesi og loks á Kefla- víkurflugvelli með búsetu í Kópa- vogi. Ilse Björnsson. Ilse Björnsson Ilse Björnsson, húsfreyja og fyrrv. bóndi, Gilsbakka 7, Laugar- bakka, Vestur-Húnavatnssýslu, er sjötug í dag. Starfsferill Ilse fæddist í Ratzeburg í Þýskalandi og ólst upp í Mölln. Hún lauk stúdentsprófum á stríðsárunum og fór síðan að vinna. Ilse vann ýmis almenn störf, afgreiddi í mjólkurbúð, vann við skógarhögg og landbún- aðarstörf. Hún kom til íslands 1949 þar sem hún var ráðin til almennra landbúnaðarstarfa að Stóra-Ósi í Miðfirði. Fjölskylda Eiginmaöur Ilse er Guömund- ur Björnsson, f. 28.8. 1920, fyrrv. bóndi og slátrari. Hann er sonur Bjöms Guðmundssonar bónda og Ingibjargar Jónsdóttur húsfreyju. Börn Ilse og Guðmundar eru Hildur Ingibjörg Guömundsdótt- ir, f. 9.12. 1950, búsett á Laugar- bakka; Björg Sigurlaug Guð- mundsdóttir, f. 21.11. 1951, búsett á Hvammstanga og eru böm hennar Amar Hlynur og Elsa Rún; Sigrún Anna Guðmunds- dóttir, f. 29.3. 1954, búsett í Hafn- arfirði, gift Sigurjóni Ásgeirssyni og er dóttir þeirra Henný; Bjöm Guðmundsson, f. 7.6.1956, búsett- ur á Akranesi, kvæntur Ásdísi Garðarsdóttur og em böm þeirra Guðmundur Öm og Emma Rakel; Ingvar Helgi Guðmundsson, f. 12.3. 1960, búsettur í Reykjavík, kvæntur Bryndísi Pétursdóttur og em synir þeirra Dagbjartur, Marinó og Bjarki Már. Systkini Ilse eru Peter Nóv- osatko; Hans Georg sem er látinn; Marion Sthomann, f. Nóvosatko. Fósturforeldrar Ilse vom Bern- hard Nóvosatko, f. 10.9. 1910, d. 1985, verkamaður og smiður í Þýskalandi, og Mariechen Nóv- osatko, f. 18.5. 1905, d. 1969, hús- móðir. Hann flutti á Sauðárkrók 1957 og var þar tollvörður til 1961 er hann tók við starfi framkvæmdastjóra Sjúkrahúss Skagfirðinga sem hann gegndi til 1991 er hann lét af störf- um fyrir aldurs sakir. Þá hefur hann rekið hrossaræktarbú að Ytra- Skörðugili frá 1971. Sæmundur sat í stjórn ung- mennafélagsins í Haganeshreppi og var formaður þess um skeið, var einn af stofnendum verkamannafé- lags í Fljótum og fyrsti formaður þess, einn af stofnendum Félags ungra framsóknarmanna í Vest- mannaeyjum og í stjórn þess, einn af stofnendum Vímets hf. í Borgar- nesi og sat í stjóm þess um skeið, í stjórn Framsóknarfélags Sauðár- króks alllengi, sat í bæjarstjóm Sauðárkróks nokkur kjörtímabil, í stjóm Hestamannafélagsins Létt- feta um skeið, formaður byggingar- nefndar öldrunarmannvirkja á Sauðárkróki frá 1980 og fyrsti for- maður Félags eldri borgara i Skagafirði. Fjölskylda Sæmundur kvæntist 26.1. 1952 Ásu Sigríði Helgadóttur, f. 18. 3. 1930, skrifstofustjóra á Sauðár- króki. Hún er dóttir Helga Jón- atanssonar, útgerðarmanns í Vest- mannaeyjum, og Ellen Marie Jón- atansson. Börn Sæmundur og Ásu era Elín Helga Sæmundsdóttir, f. 1.3. 1952, hjúkrunarfræðingur á Sauðár- króki, gift Jóni Emi Berndsen verkfræðingi og eiga þau tvö börn; Herdís Sæmundsdóttir, f. 30.7.1954, kennari á Sauðárkróki, gift Guð- mundi Ragnarssyni, byggingafull- trúa Sauðárkróks, og eiga þau tvö böm; Hafsteinn Sæmundsson, f. 18.2. 1956, iðnfræðingur í Reykja- vik, kvæntur Önnu Maríu Sverris- dóttur leikskólakennara og eiga þau þrjú böm auk þess sem Haf- steinn á dóttur frá þvi áður; Gunn- hildur María Sæmundsdóttir, f. 22.5.1957, leikskólastjóri i MosfeHs- bæ, gift Ragnari Sveinssyni húsa- smíðameistara og eiga þau tvö börn; Margrét Sæmundsdóttir, f. 27.12. 1960, hjúkrunarfræðingur og ljósmóðir í MosfeUsbæ, og á hún eitt bam; Hermann Sæmundsson, f. 19.6. 1965, nemi við háskólann í Árósum en kona hans er Guðrún S. Grímsdóttir BA og eiga þau tvö börn; Anna Elísabet Sæmundsdótt- ir, f. 14.11. 1966, upplýsingafuUtrúi hjá BHM í Reykjavík, en maður hennar er Arnar Sigurðsson vél- stjóri. Systkin Sæmundar: Halldóra Margrét, f. 1912, húsmóðir á Siglu- firði, gift Friðriki Mámssyni verk- stjóra; Láms, f. 1914, verslunarm- aður í Reykjavík; Níels Jón Val- garð, f. 1915, eftirlitsmaður í Reykjavík, kvæntur Steinunni Jó- hannesdóttur; Rannveig Elísabet, f. 1916, var gift Jóni Jónssyni frá Hvanná en þau eru bæði látin; Hrefna, f. 1918, húsmóðir á Siglu- firði, var gift Jónasi Bjömssyni vigtarmanni sem er látinn; Harald- ur, f. 1923, verslunarmaður á Sauð- árkróki, kvæntur Guðmundu Her- mannsdóttur; Georg, f. 1925, bif- reiðastjóri á Ysta-Mói; Björn Val- týr, f. 1928, toUstjóri í Reykjavík, kvæntur Rögnu Þorleifsdóttur. Foreldrar Sæmundar vom Her- mann Jónsson, f. 1891 d. 1974, hreppstjóri á Ysta-Mói í Fljótum og k.h., Elín Lárusdóttir, f. 1890 d. 1980, húsfreyja. Ætt Hermann var sonur Níelsar Jóns Sigurðssonar, verkstjóra á Bíldu- dal, og HaUdóru Magnúsdóttur. Foreldrar Elinar voru Lárus Ólafs- son, útvegsbóndi á Hofsósi, og Mar- grét Jónsdóttir ljósmóðir. Pétur S. Halldórsson Pétur S. HaUdórsson, fyrrv. deildarstjóri, Bólstaðarhlíð 41, Reykjavík, verður áttatíu og fimm ára á morgun. Starfsferill Pétur fæddist í Hamborg í Fljóts- dalshreppi í Norður-Múlasýslu. Hann stundaði nám við Gagn- fræðaskólann á Akureyri 1924-27 og við Samvinnuskólann í Reykja- vík 1927-28. Pétur starfaði hjá Trygginga- stofnun ríkisins eldri, 1928-36, var deUdarstjóri í slysatryggingadeild þar 1936-68 er hann lét af störfum með eftirlaunum. Pétur var formaður FUJ í Reykjavík 1931-33, forseti SUJ 1932-40, gegndi ýmsum trúnaðar- störfum fyrir Alþýðuflokkinn, einkum á árunum 1930-40, var kjörinn fyrsti heiðursfélagi SUJ 1940 og var ritstjóri Kyndils, tíma- rits SUJ 1932-34. Fjölskylda Pétur kvæntist 1.6.1934 Mabel, f. 21.4. 1913, d. 22.12. 1967, skrifstofu- manni. Hún var dóttir Roberts GoodaU, lögreglufuUtrúa í Aber- deen í Skotlandi. Pétur og Mabel skUdu 1951. Börn Péturs og Mabel era Mar- grét H. Pétursdóttir, f. 18.1. 1939, ritari í Garðabæ, gift Hannesi G. Helgasyni húsasmið og eiga þau þrjú börn; Róbert P. Pétursson, f. 22.8. 1940, arkitekt í Reykjavík, kvæntur Kolbrúnu Gunnarsdóttur deildarstjóra og eiga þau þrjú börn; HaUdór P. Pétursson, f. 22.8. 1940, bifreiðastjóri í Reykjavík, og á hann þrjú böm, var fyrst kvæntur Guðmundu Nielsen en síðar Ingu Guðmundsdóttur en þau skUdu. Alsystkini Péturs eru Ragnhild- ur Björg, f. 14.4. 1902, d. 17.12. 1950, forstöðukona saumaverkstæðis í Reykjavík, var gift Sveini Sigur- jónssyni verslunarmanni; Arn- björg, f. 4.10.1903, d. 13.5.1990, hús- móðir á Akureyri, var gift Ólafi Tryggvasyni huglækni; Stefán, f. 16.10. 1905, d. 18.2. 1917; HaUdór, f. 19.4. 1907, d. 15.6. 1957, fuUtrúi hjá Brunabótafélagi Islands, var kvæntur Katrínu Stefaníu Þor- steinsdóttur. Systini Péturs, samfeðra: Ragn- ar, f. 1.9. 1929, verkfræðingur og stjórnarformaður ísals, kvæntur Margréti Kristinu Sigurðardóttur deildarstjóra; Herborg Halldóra, f. 10.9. 1933, framkvæmdastjóri í Reykjavík, gift Hreggviði Þorgeirs- syni, rafmagnstæknifræðingi og forstjóra ískrafts. Foreldrar Péturs voru HaUdór Stefánsson, f. 26.5. 1877, d. 1.4. 1971, forstjóri og alþm. í Reykjavík, og f.k.h., Björg HaUdórsdóttir, f. 15.5. 1881, d. 13.10. 1921, húsmóðir. Ætt Föðursystir Péturs var Anna, amma Valdimars Örnólfssonar leikfimiskennara. HaUdór var son- ur Stefáns, prests á Desjarmýri, bróðir Þómnnar, langömmu Vals Amþórssonar bankastjóra. Stefán var sonur Péturs, prests á Valþjófs- stað, Jónssonar, vefara á Kóreks- stöðum, Þorsteinssonar. Móðir HaUdórs var RagnhUdur Björg Metúsalemsdóttir, sterka, b. í Möðrudal, Jónssonar. Móðir Ragn- Pétur S. Halldórsson. hildar var Kristbjörg Þórðardóttir, b. á Kjama í Eyjafirði, Pálssonar, ættfórður Kjarnaættarinnar, föður Páls, afa Friðriks Friðrikssonar, æskulýðsleiðtoga. Björg var dóttir HaUdórs, b. á Skriðuklaustri, Benediktssonar, og k.h., Arnbjargar Sigfúsdóttur. Pétur verður að heiman á afmæl- isdaginn. Þorsteinn Gunnarsson Þorsteinn Gunnarsson, bóndi á Vatnsskarðshólum II í Mýrdal, er fimmtugur í dag. Starsferill Þorsteinn fæddist í Litla- Hvammi en flutti að Vatnsskarðs- hólum með foreldrum sinum 1949. Hann stundaði nám við Iðnskólann á Selfossi og lauk sveinsprófi í trésmíöi 1967. Þorsteinn starfaði við smíðar í Álverinu og hjá byggingarfélaginu Breiðholti hf. en hóf félagsbúskap með foreldrum sínum og bróður á Vatnsskarðshólum 1973. Nýlega tók hann við öllum búrekstri þar.. Auk þess stundar hann smábátaút- gerð og saltfiskverkun. Þorsteinn hefur verið formaður Lionsklúbbsins Suðra, var stjórnarformaður Dyrhólalax hf. hefur setið í stjóm Veiðifélags Dyr- hólaóss og í íjallskilanefnd, bygg- ingarnefnd og hafnarstjóm. Fjölskylda Þorsteinn kvæntist 12.6. 1971 Margréti Guðmundsdóttur, f. 18.8. 1948, bónda og veðurathugunar- manni. Hún er dóttir Guðmundar Guðmundssonar, f. 1902, d. 1993, og Margrétar Guðjónsdóttur, f. 1923. Þorsteinn Gunnarson. Böm Þorsteins og Margrétar em Unnur Elfa, f.23.6. 1972, stúdent, í sambúð með Kristjáni Kristjáns- syni, sölu- og markaðsfulltrúa, en dóttir þeirra er Alexandra, f. 15.3. 1996; Eva Dögg, f. 28.5. 1977, nemi við ML; Gunnar Þormar, f. 13.11. 1981, nemi í Víkurskóla. Systkin Þorsteins eru Margrét Steina, f. 20.7. 1939, gift Óskari Ólafssyni; Stefán Gunnarsson, f. 3.12. 1948, kvæntur Sigurbjörgu Jónsdóttiu-; Ólafur Gunnarsson, f. 23.1. 1951; Gunnar Ágúst Gunnars- son, f. 28.8. 1956. Foreldrar Þorsteins vom Gunn- ar Stefánsson, f. 23.7. 1915, d. 7.4. 1984, bóndi og veðurathugunar- maður á Vatnsskarðshólum, og Unnur Þorsteinsdóttir, f. 17.8. 1921, d. 16.11. 1993, húsfreyja. Þorsteinn og Margrét eru að heiman á afmælisdaginn. Til hamingju með afmælið 11. maí 90 ára 50 ára Sigrún Benediktsdóttir, hjúkrunarheimilinu Eir við Gagn- veg, Reykjavík. 80 ára Siguröur Gissurarson, Vesturgötu 28, Reykjavík. Róbert Róbertsson, Grandavegi 47, Reykjavík. 75 ára Ólafía Davíðsdóttir, Fossi III, Skaftárhreppi. Grettir Jóhannesson, Snon-abraut 83, Reykjavík. Hafsteinn Eiríksson, Pólgötu 5, Isafirði. Friða Hrönn Sigtryggsdóttir, Vogagerði 18, Vatnsleysustrandar- hreppi. Þorsteinn Tryggvason, Vesturbrún 23, Reykjavík. Guðjón Arason, Hólmi, Höfn í Hornafirði. Gestur Eyjólfsson, Hveramörk 2, Hveragerði. Magnús Þórir Jónasson, Ránarstíg 4, Sauðárkróki. 40 ára 70 ára Gyða Karlsdóttir, Ofanleiti 11, Reykjavík. Guðni Einarsson, Þiljuvöllum 3, Neskaupstað. 60 ára Guðrún Þuríður Sigurðardóttir, hótelstýra á gisti- heimili Ólafsvík- ur, Holtabrún 6, Ólafsvík. Eiginmaður hennar er Sigurð- ur Valdimarsson. Þau eru aö heim- an. Jóna Einarsdóttir, Heiðarbrún 16, Hveragerði. Elna Thomsen, Hnausum I, Sveinsstaðahreppi. Björg Davíðsdóttir, Sunnubraut 31, Kópavogi. Guöjón Hallgrímsson, Eskihlíð 10A, Reykjavík. Ásta Marta Sívertsen, Logafold 99, Reykjavík. Ingibjörg J. Gunnlaugsdóttir, Hlíðarvegi 50, Kópavogi. Þóra Kristín Stefánsdóttir, Amarkletti I, Borgarbyggð. Árný Sigriður Ásgeirsdóttir, Ystabæ 3, Reykjavík. Áslaug Grétarsdóttir, Fannafold 163, Reykjavík. Aðalheiður S. Jörgensen, Háaleitisbraut 43, Reykjavík. Hatliði Kristinsson, Akurgerði 10, Reykjavík. Sigrún Harpa Hauksdóttir, Borgarvegi 21, Njarðvik. Halldóra F. Siguröardóttir, Tjarnargötu 10A, Reykjavík. Sveinn Antoniusson, Skálanesgötu 10, Vopnafirði. Leifur Jón Helgason, Norðiubraut 12, Höfn i Homafirði. Þórveig Kristin Þormóðsdóttir, Urðarstíg 13, Reykjavík. Ólafia Sigmarsdóttir, Klausturseli, Jökuldalshreppi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.