Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.1996, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.1996, Blaðsíða 4
FÖSTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1996 ísland -plöturog diskar— | 1.(1) Allar áttir Bubbi Mortens t 2. (10) Merman Emilíana Torrini | t 3. (13) Seif Páll Oskar | 4. ( 4 ) Kvöldið er okkar Ingimar Eydal | t 5. ( - ) Secrets Toni Braxton I 6. ( 3 ) Pottþótt 5 Ýmsir | 7. ( 5 ) Sígildar sögur Brimkló t 8. ( 9 ) Anthology vol 3. Beatles t 9. (12) Jagged Little Pill Alanis Morissette | 110. (20) Older George Michael 111. ( 6 ) Coming Up Suede 112. ( - ) Perlur & svín Todmobile 113. ( 7 ) From the Muddy Banks Nirvana (| 14. ( 2 ) Falling Into Me Celine Dion i 15. ( 8 ) Djöfiaeyjan Ur kvikmynd 116. (17) Stone Free Úr leikriti 117. (-) Pottþétt6 Safnplata 118. ( - ) Moop Deop Hell on Earth i19. (15) New Adventures REM 120. ( -) Pinkerton Weezer London | 1. (1 ) What Becomes of the Broken.... Robson Green & Jerome Flynn | Z ( 2 ) Say You'll be There Spice Girls t 3. (3) IfYouEver East 17 t 4. ( - ) Stranger In Moscow Michael Jackson | 5. ( 5 ) Un-Break My Heart Toni Braxton t 6. (- ) One & One Robert Miles t 7. (- ) Hillbilly Rock Hillbilly Roll Woolpackers t 8. ( - ) ril Never Break Your Heart Backstreet Boys Í 9. ( 7 ) You're Gorgeous Baby Bird i 10. ( 6 ) I Belong To You Gina G NewYork -lög- | 1. ( 1 ) No Diggity Blackstreet | 2. ( 2 ) It's All Coming back to Me now Celine Dion t 3. ( 5 ) Un-Break My Heart Toni Braxton | 4. ( 4 ) Macarena (Baysidc Boys Mix) Los Del Rio i 5. ( 3 ) I Love You Always Forever Donna Lowis t 6. ( 7 ) Mouth Merril Bainbridge t 7. (10) Nobody Keith Sweat Featuring Athena. t 8. (- ) Pony Ginuwine i 9. ( 8 ) Where Do You Go No Mercy Í 10. ( 6 ) This is For The Lover in You Babyface Feat, LL Cool J..... Bretland -plöturog diskar - (-) Spice Spice Girls ( 2 ) Blue IsThe Colour The Beautiful South ( - ) Around The World-The Journy.... East 17 ( 3 ) Greatest Hits Simply Red (1 ) A Different Beat Boyzone ( 5 ) Falling Into You Celine Dion ( 6 ) Ocean Drive Lighthouse Family (- ) If We Fall In Love Tonight Rod Stewart ( 8 ) Recurring Dream-The very Best Crowded House (10) Spiders Space Bandaríkin -—..— plötur og diskar— t 1. (- ) Anthology 3 The Beatles t 2. ( - ) Ironman Ghostface i 3. (1 ) Best of Volume 1 Van Halen t 4. (- ) Tha Hall of Game E-40 Í 5. ( 4 ) Falling Into You Celinc Dion t 6. (- ) The Day Babyface | 7. ( 7 ) Tragic Kingdom No Doubt Í 8. ( 6 ) The Moment Kenny G Í 9. ( 2 ) Bow Down Westside Connection «10. ( 3 ) Trial By Fire Journy Forsprakkarnir fara hvor sína leið: og geimverur Þaö hefur vart farið fram hjá nokkrum tónlistaráhugamanni að hljómsveitin Jet Black Joe hætti störfum fyrr á þessu ári. Forsprakkar hljómsveitarinnar voru þeir Gunnar Bjarni gítar- leikari og Páli Rósinkranz söngvari. Gunnar Bjarni segir áhugaleysi Páls á hljómsveitinni hafa varað í þónokkurn tíma áður en hljómsveitin hætti. Páll Rósinkranz segir hins vegar: „Hljómsveitin hætti þegar ég frelsaðist." Báðir gefa þeir út plötur fyrir þessi jól, hvora af sínum meiðnum. DV skyggnd- ist aðeins inn í hugarheima þessara fyrrum félaga sem eru nú eins og svart og hvítt. Iðríst því guðsríki er í nánd Páll Rósinkranz syngur lofgjörð á gospelplötu Hugmynd um sólóplötu varð að: JETZ Eftir frelsun Páls Rósinkranz fyrr á þessu ári tók lif hans nýja stefnu. Þessi fyrrum fremsti rokk- söngvari landsins sneri baki við rokkinu og ólifnaðinum og syngur nú gospel í hljómsveit sem kallar sig Christ Gospel Band. Væntan- leg plata með hljómsveitinni heit- ir I Belive in You, meö gospel- söngvum og er öll sungin á ensku. „Ég hef vist veriö svolítill skratti með það að syngja á ensku,“ segir Palli og hlær viö. Ekki endilega sólóplata Palli segir að þrátt fyrir að nafn hans kunni að standa framan á umslagi plötunnar sé þetta ekki eiginleg sólóplata hans. „Það skiptir mig minnstu máli hvort nafnið Páll Rósinkranz fær at- hygli eöa ekki. Þessi plata er lof- gjörð um Drottin Jesú, frelsarann. Á þessari plötu er það hans nafti sem skiptir máli, ekki mitt.“ Páll segir almenning hafa tekið frelsun sinni á einkennilegan hátt. Það virðist ekki vera mjög vinsælt að dásama Guð, jafnvel þótt rúmlega 90% landsmanna séu kristip að nafni til. Um leið og ég frelsaðist leit fólk allt í einu á mig sem ofstækismann. Ég legg til að þetta sama fólk líti aðeins í kring- um sig, sjái ofbeldið, klámið og ólifnaðinn. Það er skorturinn á guðsdýrkun sem hrjáir þjóðfélag- ið, ekki sjálf dýrkunin," segir Páll. Ég tek mjög skýra afstöðu við kynningu þessarar plötu. Mín skilaboð eru: Iðrist, því guðsríki er i nánd.“ Popparagospel Lögin sem valin voru á plötuna eru komin úr ýmsum áttum og eiga það flest sameiginlegt að vera fárödduð, frekar blúsuð gospellög. Stór kór syngur aðeins í einu þeirra. Það er því tví- til fjórrödd- uð rödd Páls sem fær að njóta sín til fullnustu. Auk Christ Gospel Band fékk Páll nokkra lands- þekkta poppara til að spila og syngja inn á plötuna. Má þar á meðal nefna KK, Andreu Gylfa- dóttur, Þorvald Bjarna Þorvalds- son, Stefán Hilmarsson og Eyjólf Kristjánsson. Köllun í lífinu Gospeltónlist hefur alltaf verið talin kraftmikil lofgjörð til Drott- ins og fólk þekkt fyrir að sleppa sér algerlega, jafht við áheyrn hennar sem flutning. Þessum merkjum tónlistarinnar segir Páll haldið á lofti á þessari fyrstu gospelplötu söngvarans. „Þetta er góð tónlist," segir Páll, „tónlist sem ég var alinn upp við.“ Hann segist ekki sjá eftir tímabilinu með Jet Black Joe en sé nú búinn aö finna sína köllun í lífinu. „Ég lærði mikið á þessu tímabili og sé ekki eftir því, en hvernig getur fólk lifað án Jesú?“ spyr þessi fyrrum rokkstjama sem nú hefur snúið sér að trúboði með sínum guðsgefnu hæfileikum. -GBG Eftir að Jet Black Joe hætti form- lega störfum hóf Gunnar Bjami gerð sólóplötu sem átti um tíma að vinn- ast í skóla erlendis. Eitt lag með honum einum, undir nafhinu Jet Black, kom út í sumar á safnplöt- unni Drepnir. Gunnar Bjami hætti hins vegar við skólann, kom heim og lauk upptökum í samstarfi við bræðurna Kristin og Guðlaug Júní- ussyni, en nú mynda þessir þrír ein- staklingar hljómsveitina Jetz og eru að gefa út sína fyrstu plötu sem ber nafn hljómsveitarinnar. Þetta er besta platan... ..sem ég hef gefið út hingað til,“ segir Gunnar Bjarni og virkar ánægður með lífið og tilveruna, laus úr Jet Black Joe. Hann segir sig og Palla lengi hafa stefnt sinn í hvora áttina. Um örlög hinna í Jet Black Joe er það að segja að Hrafn og Jonni eru þegar komnir í önnur verkefni en Starri er enn að jaftia sig eftir rafstraum sem hann fékk úr spilakassa í Amsterdam. Á nýju plötunni eru ýmsir gestir, þar á meðal söngkonumar Móeiður Júníusdóttir, Heiðrún Anna Björns- dóttir, Kate Nelson (dóttir Willy sem Gunnar Bjami hitti erlendis) og Ragga Dís, en Gunnar Bjarni á meg- inhluta söngs og öll lög nema eitt á plötunni. Honum láðist hins vegar að ná nafni níu ára gamallar söng- konu sem túlkar Pál R. í laginu Since Theyre here. Hún söng lagið fyrir tvo ísa og fékk þar af leiðandi nafhið Litli ís-álfurinn. Þess má hins vegar geta að hljómsveitinni væri mikill greiði gerður ef eihhver til- kynnti henni nafh þessarar ungu söngkonu. Geimverur og ungverskar klámmyndir Jetz hélt útgáfuteiti í Tunglinu fyrir stuttu en þar voru það ung- verskar klámvídeómyndir sem myndskreyttu veggi við undirleik hljómsveitarinnar. „Kristinn og Gulli eiga yfir 200 klámmyndir og ég hef hreinlega smitast af þessari bakteríu þeirra," segir Gunnar Bjami, en einhver kom þeim orðrómi af stað í Tetriz að leikararn- ir í myndinni væru íslenskir. Fólk hefur því litið á okkur upp á síðkast- ið sem kvikmyndaframleiðendur sem við erum ekki, aðeins áhuga- menn,“ samsinna strákamir. Gunnar segir strákana líka lið- tæka lygara og vottur af því kom fram í viðtali sveitarinnar við DV. Hlutir voru sagðir sem ekki verður vitnað í. Spurður um trú sína segist Gunnar Bjarni gæla við þá hug- mynd þessa dagana að mennimir séu annaðhvort geimverur eða komnir af geimverum og bíði nú eft- ir ferðinni heim (annar tónn en hjá hans fyrri félaga). Félagar hans í Jetz taka dræmt undir þetta en liðs- heildin leynir sér ekki í þessari ný- stofnuðu hljómsveit sem Gunnar Bjami ítrekar að hafi búið til eina bestu plötu sem hann hefur komið nálægt. Um það hvort Jetz fylgi eftir vin- sældum Jet Black Joe verður ekkert spáð. Þar kemur hlustandinn til skjalanna og það ert þú! -GBG Fokkabillyhandið kemur saman Brim í MH Föstudaginn 15. nóvember og laug- ardaginn 16. mun Rokkabillyband Reykjavíkur koma saman á Sjallanum á ísafirði. Um verður að ræða upphaf- lega liðsskipan þessarar fornfrægu sveitar. Það verða því engir aðrir en Bjöm Vilhjálmsson kontrabassaleik- ari, Tómas Tómasson söngvari og Fúsi Óttarsson trommuleikari sem skemmta ísfirðingum um helgina. Óvíst er hvenær sveitin kemur saman aftur og því er tilvalið fyrir þá sem hafa áhuga að láta þetta tækifæri ekki fara fram hjá sér. -JHÞ Hin svokalla brim tónlist (eða ,,Surf‘) hefur notið stigvaxandi vin- sælda hér á landi. Verðuugir fulltrúar þessarar tónlistarstefnu er hljómsveit- in Brim. Á leiðinni er splunkuný geislaplata frá þessum geðþekku pilt- um og að sjálfsögðu eru þeir komnir á fullt við að kynna gripinn. Nýja plat- an heitir Hafmeyjar og hanastél og geta aðdáendur brimsins hlustað á lög af disknum í Norðurkjallara Mennta- skólans við Hamrahlíð í kvöld. Þar stigur Brim á stokk en meðal annarra munu hljómsveitimar PPPönk og The Bang Gang hita upp fyrir Brim. það kostar 400 krónur inn en þeir sem mæta í Hawai skyrtu fá 100 krónu af- slátt af miðaverði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.