Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1997, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1997, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 5. MARS 1997 13 DV Uppbygging og þróun Internetsins: Samstarf 90 þúsund barna - frá 97 löndum 90 þúsund böm frá 97 þjóðlönd- um taka þátt í sérstöku tölvus- amskiptaverkefni á Intemetinu. Þetta kom fram í fyrirlestri brasil- íska sérfræðingsins dr. Maisu Luc- ena, á ráðstefnu sem Rannsóknar- stofa háskólans hélt um uppbygg- ingu og þróun Intemetsins á Hótel Sögu í gær. Maisa stjómar þessu verkefni ásamt fulltrúum frá ís- landi og Noregi. í Kidling-verkefn- inu taka þátt böm frá 10-15 ára aldri og er að sögn Maisu stærsta Intemet-verkefnið í menntamálum í heiminum. „Við hófum þetta verkefni árið 1990, m.a. fyrir böm sem minna mega sin. í fyrstu var þetta bara draumur en viðbrögðin hafa verið ótrúleg og nú má segja að þessi draumur sé orðinn að veruleika. Tölvusamskipti bama em mjög mikil og á netinu er að finna ótrú- lega miklar upplýsingar sem þau geta notað til náms og annarra upp- lýsinga. Með þessu verkefni erum við að byggja þau upp fyrir framtíð- ina og gefa þeim kost á að kynnast sem flestu. Þetta tengir þau við aðr- ar þjóðir og menningu sem er líka afar mikilvægt," segir Maisa. Eiginmaður hennar, dr. Carlos Lueena, hélt einnig fyrirlestm- um þróun og uppbyggingu Intemetsins í Brasilíu. Þar kom fram að ótrúleg bylting hefur orðið þar í landi á undanfömum árum með tilkomu netsins. „Brasilía er mjög stórt land en Intemetið hefur sameinað fólkið meira en nokkuð annað. Það hefur orðið alger bylting i menntakerfinu og 300 þúsund skólar hafa tekið Intemetið í sína þjónustu með góð- Hefur aldrei þótt gott að blóð- mjólka kúna - segir Kristján Ragnarsson DV, Akureyri: „Ljóst er að skattgleði hins opin- bera hefúr blómstrað að undan- fórnu í ríkum mæli og enn telja embættismennirnir ástæðu til frekari skattahækkana. Líklegt er að útgerðin muni áfram þurfa að búa við umræðu um nýjar skatt- lagningar en allt hefur sín tak- mörk og það hefur aldrei þótt góð aðferð að blóðmjólka kúna,“ segir Kristján Ragnarsson, formaður Landssambands íslenskra útvegs- manna, í Útveginum, blaði LÍÚ sem nýkomið er út. í blaðinu er því slegið upp að nýir skattar síðasta árs kosti út- gerðina 1,2 milljarða króna á ári og leiða megi að því líkur að skefjalaus áróður gegn útgerðinni hafi haft þau áhrif að mörgum hafi þótt ástæða til að bæta á hana gjöldum. „Peningarnir flæði hvort sem er I svo striðum straumum um landsbyggðina gjörvalla að þar muni menn ekkert um að borga meiri skatta. t skjóli áróðurs af þessu tagi þurfa menn að gæta sin og huga að þeim veruleika sem blasir við í byggðum landsins," segir m.a. í Útveginum. í grein sinni segir Kristján Ragnarsson að gert sé ráð fyrir að á þessu ári greiði útgerðin 863 milljónir í tryggingargjald og nemi hækkunin 100 milljónum króna. Síðan sé ákveðið að hækka gjaldið um 100 milljónir á ári næstu þijú árin og áætlað sé að gjaldið verði l, 2 milljarðar króna árið 2000. „Nýtt gjald er lagt á frá 1. sept- ember sl. sem nemur 500 milljón- um króna í Þróunarsjóð til að greiða fyrir misgerðir stjómvalda, m. a. vegna fjölgunar smábáta sem nú þarf að úrelda. Því er ætlað að standa næstu 10 ár. Áfram er greitt sérstakt gjald af hverju skipi og nemur það samtals 80 milljónum króna. Ákveðið hefur verið að út- gerðin greiði nú 170 milljónir króna í eftirlitskostnað Fiskistofu. Á síðasta ári var lagður á sérstak- ur skattur fyrir Tryggingastofnun ríkisins sem nemur 130 miiljónum króna. Samtals nema þessir skatt- ar til hins opinbera 2.080 millj- ónum króna. Ölium ætti að vera ljóst, af því sem hér hefur verið sagt, að ekki er rými fyrir nýjar skattaálögur í formi auðlindaskatts. Er hvetjum þeim sem fúndið getur rými fyrir slíka skattlagningu heitið vegleg- um fundarlaunum," segir Kristján Ragnarsson. -gk Keflavíkurhöfn: Bylting í bryggjumálum DV, Suðurnesjum: „Menn eru mjög ánægðir með þær breytingar sem hafa verið gerð- ar á bryggjunni. Það er ekki hægt að líkja þessu saman við það sem var áður,“ sagði Pétur Jóhannsson, hafnarstjóri Hafnasamlags Suður- nesja, i samtali við DV. Aðalhafnargarðurinn í Keflavík hefur tekið miklum stakkaskiptum eftir framkvæmdir sem gerðar voru á honum vegna óveðursskemmda. Kanturinn er nú 22 metrar á breidd en var áður 10 metrar. Bilar geta nú snúið við þar sem var ekki hægt áð- ur. Þá var settur öflugur grjótvam- argarður og er bryggjan nú 200 metra löng. Framkvæmdum er ekki lokið en þær munu kosta nálægt 80 milljónum króna. Að sögn Péturs verður höfnin meðal annars notuð sem útskipun- arhöfn. Þá verður hún einnig notuð sem þjónustuhöfn í tengslum við höfnina í Helguvík - sem viðlegu- staður fyrir loðnubáta vegna þess að í höfninni í Helguvík er aðeins afgreiðslukantur. Hægt er að af- greiða stór skip úr flotanum í Kefla- víkurhöfn. Þá er hafnarvigtin stað- sett við höfnina. Bátar í loðnuflotan- um hafa landað afla í Keflavíkur- höfn og eru menn ánægðir með hvemig til hefur tekist. ■ÆMK Fréttir Maisa og Carlos Lucena frá Brasilíu héldu fyrirlestur um uppbyggingu og þróun Internetsins í gær. DV-mynd ÞÖK um árangri. Sama er að segja um fyrirtæki og stofhanir. Menntun, rannsóknir, tækni o.tl. hefur tekið miklum breytingmn, miðlast nú á miklu fleiri en áður. Það er hægt að fá svo miklar upplýsingar á netinu og þetta er svo hagkvæm og auð- veld lausn. Intemetið hefur geflð góðan árangur, það hefur sýnt sig einna best í Brasilíu og mun sýna sig enn frekar í framtíðinni," sagði Carlos, sem hefur tekið þátt i sam- starfi Brasilíu og Þýskalands um upplýsingatækni. -RR Hólmadrangur kaupir fiskverkunarhús DV, Hólmavík: Hólmadrangur hf. - útgerðarfé- lagið hér á Hólmavík - eignaðist nú nýverið fiskverkunarhús sem upphaflega var í eigu Hleinar á Hólmavík. Fastri starfsemi þar var hætt 1992. Hér er um vandaða byggingu að ræða frá árinu 1986. Húsið er 860 fermetrar að grunnfleti og er frá Loftorku hf. í Borgarnesi sem eins og kunnugt er framleiðir einingahús úr stein- steypu. í húsinu er frystigeymsla sem nýr eigandi hefur haft nokkur afnot af undanfarin ár. Stærsti hluti hússins er vinnslu- salur ásamt fiskmóttöku. Á þess- ari stundu er ekki afráðið til hvaða starfsemi það rými verður nýtt en til greina getur komið að hefja þar fiskverkun af einhverju tagi þegar fram líða stundir. En nú þegar er ákveðið að það pláss, sem hingað til hefur verið aðstaða fyr- ir beitingamenn, verði innréttað sem viðgerðarverkstæði. Góða að- Fiskverkunarhúsið á Hólmavík sem Hólmadrangur hefur keypt. DV-mynd Guöfinnur Selfoss: Ný útisundlaug í byggingu DV, Selfossi: Hafnar eru framkvæmdir við byggingu nýrrar útisundlaugar við gamla sundlaugarhúsið á Selfossi. Nýja laugin verður 25 metra löng og við hana verður sett upp vegleg rennibraut sem Selfossveitumar Stórvirkar vinnuvélar að grafa fyr- ir nýrri útisundlaug við gamla sundlaugarhúsið á Selfossi. DV-mynd Kristján gáfu Selfossbæ. Sundlaug Selfoss er orðin nokkuð þreytt, talsvert farin að láta á sjá og nauðsynlegt að ráð- ast í endurbætur á mannvirkinu. Ekki er gert ráð fyrir endurbót- um á búningsklefum eða gömlu innilauginni að sinni. Áætlað er að heildarkostnaður við byggingu úti- laugarinnar nemi 52 milljónum króna og verklok verði á vordögum. Sundlaugin er steypt en verður klædd með dúk að innan. Bygginga- fyrirtækið G-verk bauð lægst í verk- ið og hófu menn á vegum þess fram- kvæmdir um síðustu mánaðamót. -Kr.Ein. LÍF- 0G SÖFNUNARTRYGGINGAR Löggilt vátryggingamiðlun Guðjón Styrkársson hrl. Aðalstræti 9 - Reykjavík Sími 551 8354 Fullgiltur söluaðili SUN LIFE LÍF- OG SÖFNUNARTRYGGINGAR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.