Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1997, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1997, Blaðsíða 3
MÁNUDAGUR 5. MAÍ 1997 23 DV Kraftlyftingar: Þrjú Islandsmet sett á Akureyri íslandsmótið í kraftlyftingum fór ffam á Akureyri um helgina og voru sett þar þijú íslandsmet og tvö öldungamet. Kári Elísson úr Reykjavík tvibætti metið í bekkpressu í 75 kg flokki. Kári lyfti fyrst 185,5 kg og gerði síðan enn betur skömmu síðar þegar hann lyfti 190 kg. Auðunn Jónsson setti íslands- met í 125 kg flokki þegar hann lyfti 250,5 kg í bekkpressu. Þá setti Flosi Jónsson tvö öldunga- met. -JKS Knattspyma: Þrír dæma í Toto-keppninni Þrír íslenskir dómarar hafa fengiö verkefhi í Intertoto- keppninni í sumar. Eyjólfur Ólafsson dæmir leik milli norsks og belgísks liðs i Noregi. Kristinn Jakobsson dæmir leik milli dansks og hvítrúss- nesks liðs í Danmörku. Bragi Bergmann dæmir leik milli sænsks og lettnesks liðs í Svíþjóð. Ekki liggur ljóst fyrir hvaða lið eiga í hlut. Línuverðir á leikj- unum verða íslenskir. Bragi Bergmann mun dæma leik Noregs og írlands í Evrópu- keppni unglingalandsliða á mið- vikudag en þjóðimar eru að spila um sæti í úrslitakeppninni á íslandi í sumar. -VS Strangari reglur um markverði Þegar íslandsmótið í knatt- spymu hefst eftir tvær vikur verða nokkrar nýjar reglur í gildi og þær sem skipta mestu máli varða markvörðimi. Ekki má lengur gefa á mark- vörð úr innkasti. Leggja á áherslu á að mark- vörður megi aðeins taka fjögur skref með boltann. Þessi regla hefur verið í gildi en oft horft fram hjá henni. Auk þess telst það leiktöf ef markvörður heldur boltanum lengur en í 5-6 sekúndur. Þá hefúr verið fært í lög að markvörðurinn megi hreyfa sig á marklínunni áður en víta- spyma er tekin. Hann hefúr ekki mátt það hingað til en á síðari árum hefur ekki verið tekið strangt á því þótt hann hreyfi sig aðeins. -vs Skellur gegn Tyrkjum ísland tapaði fyrir Tyrklandi, 0-4, í Evrópukeppni drengja- landsliða í knattspymu í Þýska- landi á föstudaginn. Þar með féll íslenska liðið úr keppni en Tyrkland og Slóvakía komust í 8 liða úrslitin. ísland sigraði Slóveníu en það var ekki nóg til að komast áfram. -VS Lárus Orri ann- ar hjá Stoke Láms Orri Sigurðsson, fyrir- liði enska knattspymuliösins Stoke City, varð annar í kjöri aö- dáenda liðsins á leikmanni árs- ins. Aðdáendumir greiddu at- kvæði í gegmnn heimasíðu Stoke á Intemetinu. Markaskor- arinn Mike Sheron fékk flest at- kvæði, Láms Orri kom næstur og þriðji varð Andrew Griffin. -DVÓ/VS íþróttir Jóhann Guðjónsson hjá Aftureldingu: „Gerum lokatilraun við Bjarka í kvöld“ - höfum rætt lítillega við Skúla Gunnsteinsson Afturelding hefur ekki enn gengið frá ráðningu þjálfara fyrir næsta tímabili en að sögn Jóhanns Guðjónssonar, formanns hand- knattleiksdeildarimiar, em menn að gera sér vonir um að gengið verði frá ráðningu þjálfara í kvöld. „Við höfum lítillega rætt við Skúla Gunnsteinsson eins og reyndar við fleiri menn. Það yrði rosalega slæmt að missa Bjarka Sigurðsson en við höfum alls ekki misst vonina hvað hann varðar. Við ætlum í kvöld þegar Bjarki kemur heim með landsliðinu frá Spáni að setjast niður og gera lokatilraun með hann. Það yrði gífurleg blóðtaka fyrir okkur ef Bjarki yfirgefur okkur en við sjá- um hvað setur. Hann hefúr ekki enn þá skrifað undir neinn samn- ing hjá Drammen svo við eygjum Körfuknattleikur: Vallejo áfram með ÍR-inga Úrvalsdeildarlið ÍR í körfúknattleik hefur komist að samkomulagi við Antonio Vallejo um að hann verði áfram þjálfari liðsins. Almenn ánægja var með störf hans á síðasta tímabili og var lögð þung áhersla að hann yrði áfram með liðið. Vallejo mun enn fremur hafa yfirumsjón með þjálfún á yngri Qokkum fé- lagsins. Karl meö kvennaliðiö Um helgina var einnig gengið frá ráðn- Bjarki Sigurösson fer að öllum ingu á þjálfara hjá kvennaliði félagsins. Ifldndum til Drammen en Aftur- Karl Jónsson var ráðinn í það starf en elding hefur þó ekki gefið upp hann hefur meðal annars verið þjálfari alla von um ab halda honum. hjá Snæfelli í Stykkishólmi. -JKS von áfram. í okkar huga er mjög brýnt aö fá þjálfaramálin á hreint hið allra fyrsta og vonandi tekst það í kvöld,“ sagði Jóhann Guð- jónsson í spjalli við DV í gær. Styrkjum okkur enn frekar Jóhann var spurður út í leik- mannamálin en Alexei Trufan og Sigurjón Bjamason eru famir frá liðinu. „Fyrir utan þessa tvo leikmenn veit ég ekki annað en að allir aðr- ir verði áfram. Bjarki er að vísu spumingarmerki þessa stundina. Við stefnum að því að styrkja okk- ur enn frekar og það er alls ekki útilokaður möguleiki að fá útlend- ing. Við ætlum að skoða þau mál frá öllum hliðum," sagði Jóhann. -JKS Deildabikarinn í knattspyrnu: Stórveldin eru fallin úr keppni - Arnar Hrafn sökkti Skagamönnum með Qórum mörkum Stórveldin ÍA og KR féllu á föstu- dagskvöldið út úr deildabikamum í knattspymu. Bæði eiga reyndar einn leik eftir, í kvöld, en komast ekki í undanúrslit mótsins. Breiðablik og Grindavík era hins vegar komin áfram og Valsmenn em nánast öraggir. Leiftur og ÍBV leika hreinan úrslitaleik um fjórða undanúrslitasætið í kvöld og dugir ÍBV jafntefli. Valsmenn unnu stórsigur á þre- foldum meisturum síðasta árs, Skagamönnum, 4-0, á malarvelli sínum að Hlíðarenda. Amar Hrafn Jóhannsson, 19 ára unglingalands- liðsmaður sem Valur fékk frá Vík- ingi í vetur, gerði sér lítið fýrir og skoraði öll fjögur mörkin. Valur hefúr 4 stig, FH 1 og ÍA ekkert. ÍA og FH leika i kvöld og FH þarf að vinna með minnst fjórum mörkum til að komast áfram á kostnað Vals. Það verður að teljast harla ólíklegur möguleiki. Grasleikur í Grindavík Grindvíkingar náðu fyrsta gras- leik tímabilsins þegar þeir lögðu KR-inga, 1-0, á æfingasvæði sínu. Sinisa „Keli“ Kekic skoraði sigur- markið strax á upphafsmínútunum. Grindavík er með 6 stig en KR og Skallagrímur ekkert. Leiftur vann Stjörnuna Leiftur vann Stjömuna, 2-0, á malarvellinum í Garðabæ. Gunnar Már Másson og Júlíus Tryggvason skoruðu mörkin. Þeir Gunnar Már og Hermann Arason hjá Stjörnunni fengu báðir að líta rauða spjaldið. ÍBV og Leiftur eru með 3 stig hvort en Stjarnan ekkert. Blikar lögðu Fram Breiðablik sigraði Fram, 3-2, á malarvellinum i Vallargerði. Sævar Pétursson, Kjartan Einarsson og Bjarki Pétursson skoraðu fyrir Blika en Ágúst Ólafsson og Anton Bjöm Markússon fyrir Framara. Breiðablik er með 6 stig en Fram og Fylkir ekkert. Fjórir leikir í kvöld Milliriðlakeppninni lýkur í kvöld með fjórum leikjum. ÍA og FH leika á Akranesi, KR og Skallagrímur á KR-vellinum og Leiftur mætir ÍBV á grasvellinum við Helgafell í Eyjum. Þessir leikir hefjast kl. 19. Fram og Fylkir leika síðan á gervigrasinu í Laugardal kl. 20. Undanúrslitin verða leikin á fimmtudag. Þá leikur Breiðablik við Val (eða FH) og Grindavík mætir ÍBV eða Leiftri. -ÆMK/VS Breiðablik og KR Breiöablik og KR tryggðu sér í gær sæti í undanúrslitum deilda- bikars kvenna í knattspymu meö auðveldum sigrum. A-riðill: Breiðablik-Valur . 8-2 Breiðablik 2 2 0 0 13-3 6 Valur 2 1 0 1 10-10 3 iBV 2 0 1 1 4-8 1 Haukar 2 0 1 B-riðiU: 1 5-11 1 Reynir S.-ÍA 1-3 KR-Stjaman 5-1 KR 2 2 0 0 20-1 6 ÍA 2 1 1 0 5-3 4 Stjaman 2 0 1 1 3-7 1 Reynir S. 2 0 0 2 1-18 0 -VS Stórsigur Þróttar Þróttur vann Leikni, 6-1, í lokaleik B-deildar Reykjavíkur- mótsins í knattspymu á laugar- daginn. Þessi lið höfnuðu í tveimur efstu sætum deildarinn- ar og spila því úrslitaleik um sæti í A-deildinni næsta laugar- dag. Lokastaðan í B-deild varð þannig: Þróttur R. 5 5 0 0 34-7 15 Leiknir R. 5 4 0 1 17-7 12 Rjölnir 5 3 0 2 16-8 9 Léttir 5 2 0 3 9-13 6 Ármann 5 1 0 4 7-28 3 KSÁÁ 5 0 0 5 3-23 0 -vs

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.