Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1998, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1998, Blaðsíða 28
28 LAUGARDAGUR 14. MARS 1998 fréttaljós Að kunna að fara með peninga - gripið niður í fréttaskrif DV um Sverri Hermannsson bankastjóra Sverrir Hermannsson bankastjóri hefur lengi veriö með litríkari mönn- um á opinberum vettvangi, bæði sem alþingismaður og ráðherra Sjálfstæð- isflokksins og nú hin síðustu ár sem bankastjóri Landsbankans. Hann hef- ur oft verið umdeildur enda iðulega haft munninn fyrir neðan nefið og ekki vanrækt að beita honum. Þessa dagana beinast spjótin mjög að Sverri fyrir meinta misnotkun hans á aðstöðu sinni í stöðu banka- stjóra, að hann hafl leigt sjálfum sér og öðrum bankastjórum veiðileyfi í Hrútafjarðará en veiðifélagið Bálkur, sem sér um rekstur árinnar og sölu veiðileyfa, er skráð á nafn eiginkonu og sonar Sverris. Óljóst er hvort bank- inn hefur boðið Sverri í veiði í ána eins og öðrum bankastjórum og Sverrir þannig haft tvöfaldan hagnað af veiðinni en málið hefur valdið mik- illi gremju hjá almenningi sem þykir það lykta illilega af sérhagsmunapoti, sukki og siðleysi. Spumingar hafa jafnvel vaknað um hvort framferði Sverris í málinu varði við lög og af sjálfu leiðir að það mundi varða emb- ættismissi. I skoðanakönnun DV, sem birtist í gær, var spurt hvort viðkomandi væri fylgjandi eða andvígur því að Sverri Hermannssyni, bankastjóra Lands- bankans, yrði sagt upp starfi vegna „laxveiðimálsins". Af þeim sem af- stöðu tóku sögðust 64,3% vera fylgj- andi brottvikningu og 35,7% voru henni andvíg. Vissulega harður dóm- ur alþýðunnar það. Hitt er ljóst að þrátt fyrir mikinn hita í málinu og að því er viröist nokkuð augljósa málavexti þá má ekki gleyma því að hvorki skýrsla Ríkisendurskoðunar né álit banka- ráðs hafa enn komið fram, né hefur Sverrir sjálfur fengist til að tjá sig um málið og því er of snemmt að kveða upp endanlegan úrskurð í því. Þeirri spumingu má hins vegar kasta fram hvort Ríkisendurskoðun sé óvilhallur aðili í málinu þar sem hún hefur árum saman haft það hlut- verk með höndum að yfirfara reikn- inga bankans og að því er best er vit- að ekki gert athugasemdir í málinu. Hins vegar er eftirtektarvert að sam- kvæmt heimildum DV hefur Ámi Tómasson, aðalendurskoðandi bank- ans, gert slíkar athugasemdir ítrekað og varð það hugsanlega til þess að bankastjóm Landsbankans mun hafa ákveðið á síðasta ári að taka fyrir þessi viðskipti við Sverri og fjöl- skyldu hans. Umdeildur frá byrjun Feriil Sverris hjá Landsbankanum hefur verið skrautlegur, jafhvel áður en hann hóf störf hjá bankanum sem einn stjómenda hans. Mikil átök urðu um veitingu bankastjórastöðunnar sem eymamerkt var Sjálfstæðis- flokknum. Hermt var í fréttum að Jónas Haralz bankastjóri vildi fá Tryggva Pálsson, núverandi fram- kvæmdastjóra íslandsbanka og þáver- andi yfirmann fjármálasvið Lands- bankans, sem eftirmann sinn og starfsmenn bankans söfnuðu undir- skriftum fyrir því að innanhússmað- ur yrði ráðinn til starfans. Þegar ganga átti frá ráðningu Sverris í árs- lok 1986 reyndust skyndilega þrír bankaráðsmenn af fimm vera honum andsnúnir, þeirra á meðal Ámi Vil- hjáimsson, annar fulltrúi Sjálfstæðis- flokksins í ráðinu. Samkomulag Sverrir Hermannsson bankastjóri. stjómarflokkanna var því 1 uppnámi en á endanum var Ámi beygður og hann sagði af sér í ráðinu. „Sverrir er kandidat Sjálfstæðisflokksins," var haft eftir Pétri Sigurðssyni, formanni ráðsins og fulltrúa SjáÚstæðisflokks- ins. Ögurvík hf. Laxveiðimál það sem nú er komið upp virðist þannig vaxið að Sverrir hafi ekki hirt um að fara mjög ná- kvæmlega eftir „etikettunni". Sverrir hefúr áður mátt sæta gagnrýni fyrir slíkan sveigjanleika en rúmu ári eftir að hann varð bankastjóri birtust frétt- ir i fjölmiölum um að Sverri hefði láðst að segja af sér stjómarfor- mennsku og selja eignarhlut sinn í út- gerðarfyrirtækinu Ögurvík hf. Þetta þótti ekki góð latína enda andstætt bankalögum, sem segja að bankastjór- um sé óheimilt að sitja í stjóm stofn- ana eða atvinnufyrirtækja utan bank- ans eða taka þátt í atvinnurekstri sem óháð er bankanum. „Það virðist ljóst að Sverrir Her- mannsson hefur ekki staðið við allar formskyldur hvað varðar afsögn sina sem stjómarformaður Ögurvíkur hf. Hann hefur fengið bréf frá Bankaeftir- litinu um að honum beri að ljúka því fyrir 15. febrúar. Varðandi eignarhlut Sverris í fyrirtækinu þá er það mál til sérstakrar meðferðar. Þannig er að það hefur aldrei reynt á þetta fyrr og því verður að skoða það sérstaklega," var haft eftir Jóni Sigurðssyni, þáver- andi viðskiptaráðherra, um máliö í DV 28. janúar 1989. Sverrir skýröi málið síðar, hann hafði sagt af sér stjómarformennsku vorið áður en því miður hefði honum enn ekki tekist að selja þann 3-5% hlut sem hann átti í fyrirtækinu. Það var svo í júlí sama ár að fréttir birtust um að Sverrir hefði selt hlut sinn í Ögurvík hf., kaupandi var Olíufélagið Skeljungur og undirritaði Indriði Pálsson forstjóri samninginn. Hús bankans í Ögri Menn sem era áberandi í þjóðlífinu mega oft sæta þvi að gerðir þeirra séu gagnrýndar og stundum að því er virðist að ósekju. Þannig komst Sverr- ir í almenna umræðu og fréttir sum- arið 1993 fyrir þá meintu sök að hafa Innlent fréttaljós PállH.Hannesson fengið bankann til að kaupa gamalt íbúðarhús á æskuslóðum sinum, Ögri við ísafjarðardjúp, fyrir 11 milljónir króna. „Sverrir Hermannsson er fæddur og uppalinn í Ögumesi, í næsta nágrenni við Ögur. Ég býst við að húsið hafi verið selt bankanum að hans frumkvæði, án þess að ég viti neitt um það,“ var haft eftir Smára Haraldssyni, bæjarstjóra á Isafirði. Tveimur dögum síðar var birt frétt þess efnis að Sverrir hefði hvergi kom- ið nærri kaupunum. „Sverrir kom hvergi nærri framgangi mála milli Minjaverndar og Landsbankans. Hann vildi ekki skipta sér neitt af þessu vegna tengsla sinna við svæðið. Þetta fór eftir formlegum leið- um innan bankans," var haft eftir Þorsteini Bergs- syni hjá Minjavemd. Bankinn heyrir ekki undir Ríkisend- urskoðun Sverrir Hermannsson hefúr, eins og kunnugt er, beðið um úttekt Rikisend- urskoðunar á „meintmn kaupum Landsbanka ís- lands á veiðileyfum af leigutaka Hrútafiarð- arár“ og bíður nú banka- ráð Landsbankans sem og aðrir þeirrar úttektar. „Ég minni á að ríkisend- urskoðandi er jafnframt endurskoðandi bankans,“ segir Sverrir 1 fréttatil- kynningu um málið. Eitt- hvað hafði Sverrir annað álit á hlutverki Ríkisend- urskoðunar í mai 1989. Þá óskuðu níu þingmenn Sjálfstæðismanna eftir sérstakri skýrslu Ríkis- endurskoðunar um tryggingar Lands- bankans vegna skulda Sambands ís- lenskra samvinnufélaga við bankann. „Ég átta mig ekki á þessari ósk fyrr- um félaga minna í Sjálfstæðisflokkn- um. Bankinn heyrir ekki undir Ríkis- endurskoðun þótt hann sé í ríkiseign. Hann hefúr sína kjömu endurskoð- endur og til er sérstakt bankaeftirlit sem fylgist með bönkunum," sagði Sverrir í samtali við DV. „Þetta er bara misminni hjá Sverri," sagði Hall- dór V. Sigurðsson, þáverandi ríkis- endurskoðandi, og sagðist ekki vilja tjá sig um málið frekar fyrr en þing- menn hefðu fengið skýrslu stofnunar- innar. Hátekjumenn borgi sjálfir „Mín skoöun er sú að hátekjumenn geti borgað fyrir sín laxveiðileyfi sjálf- ir,“ sagði Steingrímur J. Sigfússon al- þingismaður þegar DV leitaði álits hans á laxveiðimáli Landsbankans á dögunum. Sverrir Hermannsson telst sennilega til hátekjmnanna. I fréttum um samanburð á launum bankastjóra hefúr hann setið þar í fyrsta eða öðra sæti. í ffétt DV um meðaltekjur ríkis- forstjóra 1994 má lesa að Sverrir tróni þar á toppnum með 876 þúsund króna mánaðarlaun sem era nærri tvöfaldar tekjur forsætisráðherra sama ár. Næstur á lista var Stefán Pálsson, bankastjóri Búnaðarbanka, og Hall- dór Jónatansson, forstjóri Landsvirkj- unar, í því þriðja. Meðalmánaðartekj- ur ríkisforstjóranna þetta árið vora 487 þúsund krónur. Lífeyrissjóðsmál Sverris, sem hefur gegnt störfum alþingismanns og ráð- herra, era líka í þokkalegu lagi enda era honum tryggðar lífeyrisgreiðslur á öllum þrennum vígstöðvum. Ljósi var varpað á mismunandi lífeyris- greiðslur manna í DV í fréttaskýringu árið 1990. Þá var staðan sú að Dags- brúnarverkamaður fengi 14.700 kr. á mánuði í lífeyrisgreiðslur eftir 20 ára starf. Alþingismaður fengi eftir sama starfstíma 95.400 kr. „Hafi hann verið ráðherra í 8 ár bætast 51 þúsund krónur við og ljúki hann ferlinum sem bankastjóri í 8 ár bætast 131 þús- und krónur við, þ.e. 50 prósent af bankastjóralaununum, og er þá lífeyr- irinn orðinn 277 þúsund krónur á mánuði. Hann hækkar sem sé í laun- um um 15 þúsund krónur á mánuði við að láta af störfum sem banka- stjóri, hafi ferillinn verið alþingis- maður, ráðherra og bankastjóri." í febrúar 1996 mátti lesa í DV að Sverrir Hermannsson fengi þegar greiddar 140 þúsund krónrn- á mánuði í lífeyrissjóðsgreiðslur, þó svo hann væri í fullu starfi og á fúllum launum sem bankastjóri Landsbankans. Lífreynslusaga? Þó svo hér hafi rétt verið gripið nið- ur í örfáa þætti sem fréttnæmir hafa þótt af Sverri Hermannssyni 1 gegn- um árin er auövitað flest ósagt. Sverr- ir hefur verið bankastjóri á erfiðu tímabili fyrir bankann sem hefur tap- að milljörðum i afskrifúðum lánum á síðasta áratug og á endanum þurfti ríkið að hlaupa undir bagga. Kjartan Gunnarsson minntist þessa í ræðu á aðalfundi bankans 6. mars sl. „Minnisstæðast frá þessum tíma er fundur endurskoðenda bankans og rikisendurskoðanda með mér í febrú- ar 1993 þegar þeir greindu mér frá því að ekki mundi reynast unnt að gera Landsbankann upp fyrir árið 1992 nema með a.m.k. 2-3 milljarða tapi og við það mundi bankinn fara niður fyr- ir öll mörk um eigið fé.“ En eins og Kjartan sagði brást ríkisstjómin „vel og rösklega við málinu og undir for- ystu þáverandi og núverandi forsætis- ráðherra vora afgreiddar á Alþingi nauðsynlegar heimildir til handa Landsbanka íslands." LÍÚ fékk Sverri til að flytja ræðu á aðalfundi sínum í maí 1994. Efnið var hvort vænta mætti góðæriskafla næsta áratug í banka- og flármálum og hvemig íslendingar myndu þola það. Hvað sem svo má að öðra leyti um Sverri segja þá er ljóst að hann hefúr hæfileika til að koma mönnum á óvart og liggur ekki á skoðunum sínum. IDV mátti lesa: „Sverrir sagði mikla óráðsíu ríkja í fjármálum Is- lendinga, jafnt fyrirtækja sem ein- staklinga, sem m.a. mætti skýra með kunningsskap, fyrirgreiðslu og at- kvæðakaupum stjórnmálamanna. Hann sagði byltingu yfirvofandi þegar verið væri að mala þjóðarauðinn und- ir örfáa menn og skaut væntanlega þar með á útgerðarkóngana í landinu. Sverrir sagði að stanslaust góðæri gæti rikt hér á landi „ef menn kynnu bara að fara með peninga." Kristján Ragnarsson, formaður LÍU, var svo inntur álits á ræðu Sverris. „Ég sagð- ist hafa skilið þessa ræðu sem líf- reynslusögu bankastjórans, sem al- þingismanns, „kommísars" og ráð- herra,“ var svar Kristjáns. IBM notendaráðstefna Hótel Ork 23. og 24. mars iílss’ásimf sss5 ksifmi swww.sifSssirp.i iv i á s k í p 1 i Wánari upplýsingar á Hýherjavefnum og hjá Onsari: omarý/ nyherjí.is NÝHERJI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.