Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.1998, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.1998, Blaðsíða 4
AfcFER€>ie BBBMHI Legsteinn gamalla fylliría A Astro er súla hvar rituð eru nöfn þeirra gullnu letri sem keypt hafa sér þriggja litra kampavínsflöskur á 40 þúsund krónur. Að hluta til mun skýríngin vera ást barþjónsins á þessu fóiki, þetta eru hans hetj- ur, velunnarar og velgjörð- armenn. En í aðra röndina mun þarna liggja að baki hégómagirnd þeirra sem eiga nöfnin á súlunni því öllum þeim sem kaupa sér svona mikið kampavín á Astro mun vera Ijóst að sá verknaður verður skráður gullnu letri í sögu súlunnar. Meðal þeirra sem eiga sér svona minnisvaröa um gömul fyllirf eru fótbolta- drengirnir Eyjólfur Sverrls- son og BJarkl og Arnar Gunnlaugssyni, háðfuglinn Selnfeld, einhver Hafdís Rósa Jónasdóttir. kvenna- gulliö og bílasalinn Fjölnlr Þorgelrsson, fyrrum ís- landsvinkonan Mel B. og hljómsveitin Skítamórall. Sá sem hefur veriö stór- tækastur í kampavíns- drykkjunni er hins vegar Tommi í herrafataverslun- inni Book's. Hann hefur skráð nafn sitt þrívegis á súluna - og að því er virð- ist tvisvar sama kvöldið. Einhverra hluta vegna hef- ur T-ið verið plokkað fram- an af nafninu hans svo þar stendur bara Ommi. Sú saga gengur um þetta stafahvarf að Tommi hafi gerst nokkuð uppáþrengj- andi með kampavínið sitt nálægt spúsu afbrýði- sams pilts, sem hafi kroppað T-iö burt og heimt- 5 að sett yrði H í staðinn. Þannig er nú sagan sögð. Svekktur og nýskilinn í Perlunni í Öskjuhlíð er stuðla- bergssúla hvar festar hafa verið á 26 plötur, llkar þeim sem fólk hengir oft fýrir ofan dyrabjölluna sína. Á þessum plötum eru skráð nöfn brúð- hjóna sem haldið hafa veisl- ur sínar I veitingasal Perlunnar. Allt er þetta voða sætt - þó einhver kunni að telja aö þarna sé fólk viö það að missa sig I candy- flos-væmni. En hvað um það. Það sem vekur athygli viö þessa súlu er að eitt nafnspjaldið er horfið. Ein- hver virðist hafa komið og plokkað það af. Ekki vitum við hver það gerði en í Ijósi fregna um skilnaðarfarald- ur sem riður yfir samfélagið er vel hægt að ímynda sér að svekktur eiginmaður, sem eiginkonan vísaði á dyr, hafi skeiöað upp í Perlu og blokkað skiltið af með vasahnífnum sínum. Það er spurning hvernig þessi súla muni líta út eftir tíu, fimmtán ár - ef fleiri gripa til sama úrræðis. Hún verður þá eins og tanngarð- ur I fimm ára barni sem skartar fáeinum tönn- um en bilin á milli þeirra setja samt sterkasta svipinn á munninn. Björn Jörundur Friðbjörnsson er kominn heim auralaus eftir tveggja ára leikaranám í Liverpool og farinn í stúdíó til að taka upp plötu með Ný danskri. Ef hún gengur vel getur hann klárað skólann, ef ekki mun hann líklega hefja innflutning á búlgörskum tannlæknum. Betri músík - liótari stelpur Búlgarskir tanniæknar En hann hefur ekki mikinn tíma til að sinna nokkru öðru en tónlist og leiklist. Þó rennir hann fyrir fisk af og til. „Ég hef ekki efni á því að reyna við laxinn en finnst gaman að renna fyrir silung. Ég er að veiða miklu minni fiska en bankastjóram- ir. Maður situr bara einn við ár- bakkann, það er enginn að elta mann um bakkana með kaffi og kruðirí. Ekki enn þá.“ En ef ekkert gengi í leiklistinni og tónlistinni er hann ekki viss hvað hann myndi gera. „Ætli ég myndi ekki fá bankalán til góðra verka. Líklegast nota það til að flytja inn búlgarska tann- lækna og láta þá mala gull fyrir mig enda hefur verðlag tannlækna lengi hneykslað mig.“ -BG „Það er þægilegt að koma heim og semja músík með strákunum. Mað- ur er búinn að hlaða batteríin vel í þessari fjarveru og þó það hafi verið höggvið stórt skarð í hópinn með fjarveru Danna, þar sem hann er upptekinn með gus gus, þá náum við sem eftir erum vel saman. Mér sýnist platcm ætla að vinnast með svipuðum hætti og Deluxe-platan vannst. Við erum að fullslípa lögin í stúdíóinu og er það vel,“ segir Björn Jörundur Friðbjörnsson sem kominn er heim eftir tveggja ára leikaranám í The Liverpool Institute of Performing Arts - skól- anum sem Paul McCartney stofn- aði og frægt er orðið. Hann vinnur nú að nýrri plötu með Ný danskri, Jóni Ólafssyni og Stefáni Hjör- leifssyni. Daníel Haraldsson - hvita kryddið - verður ekki með. Bjöm játar að þeir í Ný danskri hafi verið orðnir þreyttir hver á öðr- um ¥93 þegar sveitin hafði spilað saman sleitulaust í fimm ár og þá hafi þeir tekið sér pásu. Nú er ann- að uppi á teningnum en þegar þeir vora alltaf saman í rútunni spilandi úti um allt land hveija einustu helgi. „Þetta er búið að vera mjög gaman þessar vikur og það er það sem skiptir máli. Mað- ur hefði valið sér annað lífsstarf ef maður hefði verið að hugsa um pen- inga eða eitthvað annað en að hafa gaman af hlutunum." Meiri gróska alla daga „Það er töluverður munrn' á skemmtanalífinu úti í Liverpool," seg- ir Bjöm um næturlífið hér heima og úti. Þar er öllum pöbb- um lokað klukkan tvö alla vikuna. Skemmtanalífið dreifist þess vegna á alla dagana og þar sem í Liverpool er m i k i 1 gróska i tónlistar- Bjöm Jörundun „Maður hefði valið sér annað lífsstarf ef maður hefði veríð að hugsa um peninga eða ertthvað annað en að hafa gaman af hlutunum.“ lífinu er úr miklu að velja. Hér skemmtir fólk sér oftast bara um helgar. En það munar mest um að í Liverpool er betri músík en ljótarK stelpur." Hann er sammála því að íslenskt kvenfólk beri af. Enda líst honum vel á framlag íslensku Playboy- stúlknanna þó hann skilji ekki af hverju þær hafa hlotið svona mikla athygli fyrir að bera brjóstin sín. „En það hefur svo sem reynst mörg- um vel að bera brjóstin," bætir hann við. En það má ekki búast við því að hann feti í fótspor þeirra og reyni að verða frægur út á að sýna drjólann sinn. „Nei, hann er ekki til sýnis.“ Vantar aur til að klára skólann „Þetta er vandaður skóli og ég hef lært mikið þama, en hann hefur kostað mig drjúgan skilding," segir Björn um skólann i Liverpool. Og það er einmitt vegna peningaleysis sem hann íhugar nú að verða eftir hér heima yfir veturinn til að safna sér peningum til að geta borgað það eina ár sem hann á eftir af skólan- um. „Það var þessi möguleiki, að geta unnið einnig með tónlist þótt ég væri í leiklistarnáminu, sem heill- aði mig við skólann. Það kom aldrei til greina hjá mér að fara í leiklist- arskólann hér í Reykjavík þar sem er bannað að koma fram á meðan á náminu stendur. Maður verður að fá að spila meðfram náminu. Það hef ég líka sannarlega gert, en meira til gamans en gagns,“ segir Bjöm. ' OA, EG ER BÚINN AE> R.EYNA AUAR VESSAR. HEFÐBUNDNU BARA TIL pESS Aí> SOA ÍSLENSKAR STELPUR allsbcrar. iii S 6 AE.TLA Afc PLAYBOY FA EITT OQ oc f Ó k U S 31. júlí 1998

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.