Dagblaðið Vísir - DV - 06.08.1998, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 06.08.1998, Blaðsíða 2
20 21 ÓIIS. Flóventsson Siguróur R. Eyjólfsson Jón Stefánsson Tómas ingi Tómasson Steingrímur Jóhannesson Hreinn Hringsson Sævar Þ. Gíslason Arnór Guðjohnsen + FIMMTUDAGUR 6. ÁGÚST 1998 FIMMTUDAGUR 6. ÁGÚST 1998 íþróttir íþróttir Hlynur Stefánsson, ívar Bjarklind, Jens Paeslack og Guöni Rúnar Helgason geta ekki leynt gleði sinni í búningsklefa Eyjamanna eftir leikinn gegn Breiöabliki í gærkvöld. Meö sigrinum tryggöu Eyjamenn sér sæti í úrslitaleik bikarkeppninnar þriðja áriö í röö. . DV-mynd Ómar DV, Eyjum: Þaö var greinilegt að Breiðabliks- menn ætluðu ekki að láta leikinn frá í fyrra, þegar þeir voru niðurlægðir í átta liða úrslitum bikarsins, endur- taka sig. Þá mættu þeir Eyjamönnum eins og nú, í fjögurra liða úrslitum og lauk leiknum með 8-1 sigri ÍBV. Þá, eins og nú, fór leikurinn fram í Eyj- um en þar með er samlíkingunni lok- ið því Eyjamenn máttu þakka fyrir að fara með sigur af hólmi. Blikar spil- uðu vel allan tímann og í seinni hálf- leik sýndu þeir klærnar svo um mun- aði og varð útkoman einn skemmti- legasti leikkafli sem sést hefur á Há- steinsvelli í sumar. Leiknum lauk með 2-0 sigri ÍBV en meö smáheppni hefðu gestimir getað hirt farmiðann í bikarúrslitaleikinn og skilið íslands- meistarana eftir með sárt ennið. Strax í fyrri hálfleik sýndu gestim- ir tennumar og gáfu með því for- smekkinn að því sem koma skyldi. Sigurður þjálfari stjórnaði leik manna sinna af miklu harðfylgi og var ekki að sjá að þessi lið væm hvort í sinni deildinni. Þegar leið á hálfleikinn fóru sóknir ÍBV að þyngj- ast en Blikar voru langt frá þvi að gef- ast upp. Bæði liö áttu sín dauðafæri, Blikar á 30. mínútu eftir aukaspyrnu Sigurðar Grélarssonar og Steingrím- ur Jóhannesson var ekki langt frá því að skora á 45. mínútu. Bæði skotin enduðu í utanverðu hliðametinu. í seinni hálfleik gerði Bjami Jó- hannsson, þjálfari ÍBV, þær breyting- ar á liði sínu að færa ívar Bjarklind fram á völlinn og Guðnar Rúnar aftar. Gafst þetta vel og var sóknarleikur ÍBV mun beittari á eftir. Árangurinn kom í ljós á 61. mínútu þegar ívar náði að skora, 1-0 fyrir ÍBV. Heppnin á bandi Eyjamanna Eftir markið var eins og Blikar losnuðu úr álögum, sóknir þeirra þyngdust og áttu þeir nokkur dauða- færi áður en yflr lauk. Heimamenn áttu reyndar sína spretti en þeir höfðu fært sig aftar á völlinn eftir markið. Síðustu mínúturnar voru geysispennandi og var byrjað að fara um forráða- og stuðningsmenn ÍBV svo um munaði. Á þessum kafla átti Breiöablik þrjú dauðafæri en heppnin var Eyjamanna sem gerðu endanlega út um leikinn með öðru marki ívars Bjarklinds á lokasekúndum leiksins. Lið ÍBV lék agaðan leik en ákveðn- ir Breiðabliksmenn komu þeim í opna skjöldu. Besti maður Eyjamanna, og maður leiksins, var ívar Bjarklind. Hlynur Stefánsson og ívar Ingimars- son skiluðu sínu vel en annars var liðsheildin góð. Þá áttu markmenn beggja liða góðan leik. Breiðablik trónir í efsta sæti fyrstu deildar og sýni þeir sambærilega leiki í þeim leikjum sem þeir eiga eftir í 1. deildinni leika þeir í efstu deild að ári. Það segir meira en mörg orð um liðiö að það skuli hafa átt þátt í að sýna áhorfendum á Hásteinsvelli einn skemmtilegasta leik sumarsins. Sig- urður sýndi að hann er frábær knatt- spyrnumaður og eins áttu Marel Jó- hann, Hreiðar og Che Bunce góðan leik. Þeir nýttu færin en við ekki „Þetta var leikur þar sem bæði lið Steingrímur er langmarkahæstur Steingrlmur Jóhannesson, ÍBV, er langmarkahæsti leikmaður úrvalsdeildarinnar i knattspymu með 14 mörk í 11 leikjum. Hann hefur tekið stefnuna á markametið en aðeins einn leikmaður hefur skorað jafnmörg mörk í sögu 10 liða efstu deildar í þeim þremur mánuöum sem búnir eru, maí, júni og júlí. Það er Guðmundur Torfason sem skoraði 14 mörk á þeim tima fyrir Fram sumarið 1986, þar af 8 í júní. Pétur Pétursson skoraði 13 mörk á þeim tima þegar hann setti markametið 1978 en Þórður Guðjðnsson, 1993 (7 mörk ), og Tryggvi Guðmundsson, 1997 (8 mörk), eru þar langt á eftir. Enginn af síðustu 10 markakóngum deildarinnar hafa skorað fleiri en 10 mörk í maí, júni og júlí en til gamans má geta að markakóngurinn frá 1995, Arnar Gunnlaugsson, skoraði öll 15 mörkin sín í ágúst og september. Hér til hliðar má sjá töflu yfir þá 11 leikmenn sem hafa skorað 4 mörk eða fleiri í deildinni það sem af er. Taflan ætti að skýra sig að mestu sjálf en helst mætti taka út hugtakið stigamörk. Stigamörk eru mörk sem breyta tapi í jafnteíli eða jafntefli í sigur. -ÓÓJ áttu færi, þeir nýttu þau en við ekki,“ sagði Sigurður Grétarsson, þjáifari og leikmaður Breiðabliks, sem stjómaði sínum mönnum eins og herforingi. Sigurður vildi ekki gera mikið úr því að tvo lykilmenn vantaði í liðið, Bjarka Pétursson og Kjartan Einars- son. „Við byrjuðum 11 inn á og enduð- um leikinn 11. Til þess að ná árangri þarf að hafa breiðan hóp. Við höfum tekið mikilvægt skref í átt að efstu deild og eins og staðan er núna stöðv- ar okkur ekkert," sagði Sigurður. -ÓG Jafnt Landsmót íslands í golfi hófst í morgun og lýkur á sunnudag. Mótið er haldið á Hólmsvelli í Leiru fyrir meistaraflokka karla og kvenna. í fyrsta og öðrum flokki verður keppt í Grindavík og í þriðja flokki fer keppni fram í Sandgerði. Kylfingar hafa verið í óðaönn að undirbúa sig og verður gaman að fylgast með mótinu. „Ég á von á skemmtilegu móti og fyrir- fram mundi ég ætla aö það yrði spennandi. Það eru svona sex til átta menn sem geta sterklega komið til greina sem sigurvegar- ar í karlaflokki. Það er nú oft þannig að þegar menn byrja illa eiga þeir erfitt með að ná sér á strik. Það þarf meira til að vinna íslandsmót en önnur mót,“ sagði hinn gamalreyndi kylfmgur, Björgvin Þor- steinsson, GA, 1 samtali við DV. Ljóst er að Björgvin verður í sviösljósinu um helg- ina ásamt mörgum góðum kylfingum. Landsmótið í golfi hófst í morgun: og spennandi mot Þórður E. Ólafsson vann mótið í fyrra þrátt fyrir afleita byrjun. „Mér líst mjög vel á þetta. Þetta er bara enn eitt landsmót- ið. Þaö er öðruvísi að koma inn í þetta sem íslandsmeistari síðasta árs en ég held að það valdi mér ekki neinum sérstökum áhyggjum. Breiddin í íslensku golfi hefur aukist alveg gifurlega á undanfórnum árum en óneitanlega verður Björgvin Sig- urbergsson mjög sterkur og svo er hægt að telja upp firnm til sex stráka sem eiga mjög raunhæfa möguleika þarna. Ég held að ef maður kemur einbeittur til leiks þá gangi allt upp,“ sagði Þórður. Einvígi hjá Ólöfu og Ragnhildi „Ég býst við sterku móti. Mér líst rosalega vel á þetta og hlakka mikið til. Ég er búin að vera í öðru sæti sex eða sjö sinnum. Ég set stefnuna á að vinna en það getur allt gerst. Ég var að keppa á mínu fyrsta móti þegar ég sigraði árið 1985. Þetta verður skemmtilegt mót,“ sagði Ragnhildur við DV fyrir mótið. „Ég er með min markmið sem snúast ekki fyrst og fremst um að vinna mótið en ef allt gengur upp þá vonast ég til að vinna. Mér sýnist stefna í tvær manneskjur á toppnum, mig og Ragnhildi, eins og það er búið að spilast í sumar. Sumariö er búið að snúast um þetta mót og mótið sem er á eftir þessu. Morgundagurinn og fram- haldið er það sem maður er búinn að leggja mesta áherslu á. Hugarfarið hjá mér er það eina sem ég hef áhyggjur af. Sveifl- an er í finu standi og allir tæknilegir hlut- ir eru í mjög góðu ásigkomulagi," sagði Ólöf María Jónsdóttir sem sigraði á mótinu í fyrra en Ragnhildur hafnaði i öðru sæti. -ÍBE Ragnhildur Siguröardóttir og Ólöf María Jónsdóttir munu berjast hart um sigurinn í kvennaflokki. Markahæstir eftir 11 umferðir Slgurbjom Hreibarson Guömundur Bcnodlktsson Samtals mörk 14 9 6 4 4 4 4 4 4 4 4 Stlgamörk 0 0 2 0 0 O 0 1 1 O 0 Mörk helma 10 4 3 2 2 2 3 4 1 1 2 Mörk á útlvell! 4 5 3 2 2 2 1 O 3 3 2 Mörk í fyrri hálflelk 8 6 4 1 2 3 1 2 2 " 2 2 Mörk í seinni hálflelk 6 3 2 3 2 1 3 2 2 2 2 Mörk meö vinstri 7 5 1 1 2 3 0 2 0 0 0 Mörk með hægrl 5 0 5 0 O 0 2 2 1 1 1 Mörk með skalla 2 1 0 3 2 1 2 0 0 2 1 Mörk úr aukaspyrnu 0 1 0 O 0 0 O 0 3 O 1 Mörk úr vítl O 2 0 0 O 0 0 0 0 1 1 Mörk úr marktelgi 4 0 4 0 0 1 2 2 O 2 1 Mörk úr vítatelgi 12 5 “| 6~ 4 3 4 4 4 0 3 2 Mörk utan telgs 2 2 O 0 1 0 0 0 4 O i, Bland i P oka Rosenborg sigraði Bryne, 5-0, í 8 liða úrslitum i nprsku bikarkeppninni í gær. Ragnar Árnason kom inn á í liði Bryne á 70. mínútu. Þá sigraöi Stabæk lið Skeid, 3-1, og Moss lagði Boda/Glimt, 2-1. Ólafur H. Krist- jánsson og félagar wmma hans í AGF eru með j ‘vM&m. 3 stig eftir tvo leiki 1 dönsku úrvalsdeild- inni í knattspymu. AGF sigraði Lyngy, 1-0, um síðustu helgi. Ólafur lék í 70 mínútur og átti góðan leik. Dennis Wise, fyrirliði Chelsea, á yfir höfði sér 3ja leikja bann i upphafi leiktíðar en kappinn var rekinn af leikveili í leik Chelsea og Atletico Madrid á æfingamóti sem fram fer í Hollandi. Chelsea hyggst áfrýja úrskurði hol- lenska knattspymusambandsins dæmi það Wise i bann en þetta er ekki í fyrsta sinn sem Wise lætur skapið hlaupa með sig í gönur. Ian Rush hefur skrifað undir eins árs samning við enska 2. deildar liðið Wrexham. Hann mun þjálfa liðið jafnframt sem han mun leika með lið- inu. Rush er 37 ára gamall og á að baki glæsilegan feril. Hann lék um árabil með Liverpool en fór þaðan til Leeds, þá til Newcastle og loks til Sheffield United. Rush segir þetta fyrsta skrefið i að verða framkvæmdastjóri. Hann hafi alltaf langað til að þjáífa. Hann segist ekki hafa verið að hugsa um pening- ana því hann hafi hafnað freistandi tilboðum frá Japan og frá liðum í Evrópu. Rush leikur fyrsta leik sinn með Wrexham þegar það mætir Reading um helgina. Alex Ferguson, stjóri Manchester United, er ekki kát- ur yfir þeirri ákvörðun hollenska landsliðsmannsins Patricks Kluiverts að vilja ekki koma til United. „Kluivert veit kannski ekki hversu stórt félag Manchester United er. Ég var mjög vonsvikinn þegar mér bárust þær fréttir að Kluivert vildi ekki ræða við okkur því okkur var sagt að hann vildi hitta okkur og ræöa hugsanleg félagaskipti," segir Ferguson. David Hirst gæti misst af leiktíðinni en þessi 30 ára gamli framherji Southampton er illa meiddur á hné eftir að hafa meiðst í æfingaleik með Southampton i sumar. Paul Gascoigne var ekki valinn í 29 manna æfingahóp Glenns Hoddles, landsliðsþjálfara Englendinga, en hóp- urinn kemur saman til æfinga í næstu viku til undirbún- ings fyrir leikinn gegn Svíum í næsta mánuði en það er fyrsti leikur þjóð- anna í undankeppni EM. Hoddle vill sjá Gazza i betra formi ef hann á að eiga möguleika á að vinna sér sæti í landsliðinu að nýju. Gascoigne er nokkuð pattaralegur eft- ir sumarið og greinilega aðeins yfir kjörþyngd. -GH Bandarískt úrvalslið á leið til íslands: Körfuboltaveisla Úrvalslið bandarísku framhaldsskólanna kemur til íslands 25.-30. ágúst til að keppa á móti sem haldið verður fyrir íslensk lið. Bandarikjamennimir munu einnig halda æflngabúðir fyrir íslenska leik- menn. Körfuknattleikssamband Islands og ÍT-ferðir standa fyrir komu Bandar íkj amannanna. Úrvalsliðið er skipað leikmönnum yngri en 19 ára sem eru það efnileg- ir að talið er að mikill hluti þeirra komist í NBA-deildina í framtíðinni. Væntanlega munu átta lið keppa á mótinu sem verður haldið í Laugardalshöll og síðan spilað til úrslita. Mótinu verður hagað þannig að sem flest íslensk lið fái að spreyta sig gegn Bandaríkjamönnunum. Chris Chevennes er þjálfari í menntaskóla í Bandaríkjunum og mun hann stjóma æfingabúðunum sem eru meðal þeirra vinsælustu í Banda- ríkjunum. Nokkrir íslendingar hafa fariö í slíkar körfuboltabúðir erlend- is og þeir hafa þurft að borga hátt gjald fyrir. Með því að fá búðirnar hingað er þátttökugjaldið aðeins 10.000 krónur á hvem leikmann. Æf- ingabúðirnar eru ætlaðar piltum og stúlkum á aldrinum 10-17 ára og um er að ræða stranga tækniþjálfun í körfubolta. Búðimar standa yfir í fjóra daga og munu drengimir úr bandaríska úrvalsliðinu aðstoða við leið- sögn. í tengslum við æfingabúðimar verður einnig haldið þjálfaranámskeið fyrir íslenska körfuknattleiksþjálfara sem bandarísku þjálfaramir munu stjórna. Ljóst er að það er mikill fengur fyrir islenskan körfubolta að fá Banda- ríkjamennina hingað til landsins enda munu bandarískir fjölmiðlar, eins og Sports Illlustrated, USA Today og SLAM Magazine, fylgjast vel með búðunum. Að auki mun bandaríska sjónvarpsstöðin ESPN gera sérstak- an hálftímaþátt um för Bandaríkjamannanna hingað til íslands og verð- ur það að teljast hin besta landkynning. Þátturinn verður sýndur í Bandaríkjunum 21. september. -ÍBE Framfarir - íslendingar töpuðu „aðeins“ 0-1 fyrir írum ÍBV (0)2 Breiöablik (0)0 1- 0 Ivar Bjarklind (61.) skoraði meö skalla eftir sendingu frá Steingrími frá vinsti. ívar fleygði sér fram og skallaði boltann inn og meiddist í leiðinni þegar hann lenti á stönginni. 2- 0 ívar Bjarklind (90.) skoraði eftir að hafa fengið langa sendingu fra Paeslack. Lið ÍBV: Gunnar Sigurðsson - ívar Bjarklind, Hlynur Stefánsson, Zoran Miljkovic, Kjartan Antonsson - Guðni Rúnar Helgason, Steinar Guðgeirsson, ívar Ingimarsson, Kristinn Lárusson, Kristinn Hafliðason - Steingrimur Jóhannesson (Jens Paeslack 80.) Lið Breiðabliks: Atli Knútsson - Che Bunce, Jón Þór Jónsson, Guömundur Örn Guðmundsson, Hákon Sverrisson - Hreiðar Bjarnason, Sigurður Grétarsson, Sævar Pétursson, Marel J. Baldvinsson - Atli Kristjánsson (Guömundur Karl Guðmundsson 46.), ívar Sigutjónsson (Hjalti Kristjánsson 87.) Markskot: ÍBV 16, Breiðablik 16. Horn: ÍBV 4, Breiðablik 4. Dómari: Gylfi Orrason, stóð sig vel. Áhorfendur: Um 600. Skilyrði: Hásteinsvöllúr þungur og háU. Vestan stinningskaldi og gekk á með skúrum. Maður leiksins: fvar Bjarklind, ÍBV. Var færður framar á völlinn i og hann nýtti það í botn, skoraði bæði mörk sinna manna og skapaði usla í vöm Blika. Bjarki Pétursson og Kjartan Einarsson gátu ekki leikiö með Breiðabliki vegna flensu sem hrjáði þá. Steinar Guögeirsson kom að nýju inn í liö ÍBV eftir meiðsli en Ingi Sigurðsson tók út leikbann sem og Júgóslavinn nýji í liði IBV, Sinisa ZbUjic. Þungu fargi af mér létt DV, Eyjum: Það er þungu fargi af mér létt því þegar komið er þetta langt i bikarnum er bara að duga eða drepast," sagði ívar Bjarklind sem kom Eyjamönnum í úrslita- leikinn með því að skora bæði mörkin gegn Breiðabliki í gær. „Það er alltaf sagt að við kom- um þungir til leiks eftir þjóðhá- tíð en við afsönnuðum það núna,“ bætti Ivar við en hann var færður framar á völlinn í síðari hálfleik. „Mér finnst alltaf gaman að spila frammi eins og ég gerði þegar ég lék með KA. En ég vil að það komi fram að Blikamir eru með skemmtilegt og léttleik- andi lið og spurningin var hvort félagið hefði heppnina með sér,“ sagði ívar sem á enga óskaand- stæðinga í úrslitaleiknum. -ÓG O-l Robert Doyle (21.) DV, Sauðárkróki: írar lögðu íslendinga, 0-1, á opnu Norðurlandamóti drengjalandsliða i knattspyrnu á Sauðárkróki í gær. íslenska liðið pakkaði í vörn fyrsta hálftímann og ætlaði greini- lega ekki að láta söguna frá degin- um áður endurtaka sinn en þá stein- lágu íslensku strákamir fyrir Norð- mönnum, 2-8. Engu að síður náðu írar að skora á 21. mínútu þegar Ro- bert Doyle skallaði í markið, nánast af marklínu, og voru það einu mis- tök Ríkharðs í marki íslenska liðs- ins. íslenska liðið virtist vera búið að ná sjálfstraustinu undir lok fyrri hálfleiksins og í seinni hálfleik fór liðið að sækja. En Iramir höfðu þó yfirhöndina án þess að skapa sér færi. íslendingar fengu tvö góð færi í síðari hálfleik. Vörn íra náði að komast fyrir skot Magnúsar Sverris Þorsteinssonar frá Keflavík og FH- ingurinn Egill Atlason (Eðvaldsson- ar) skaut yfir markið af stuttu færi. Marktækifærin komu með skömmu millibili þegar 15 mínútur voru til leiksloka. Bestir í íslenska liðinu, sem á hrós skilið fyrir góða baráttu, vom Hjálmur Dór Hjálmarsson og Ólafur Páll Snorrason. Lið íslands: Ríkharð Snorrason, Albert Ástvaldsson, Hjálmur Dór Hjálmarsson, Grétar Gislason, Grét- ar Steinsson, Guðlaugur Hauksson, Magnús Edvaldsson (Magnús S. Þor- steinsson), Ólafur Páll Snorrason, Jóhannes Gíslason, Bjöm Guðbergs- son, Egill Atlason. Önnur úrslit á mótinu urðu þessi: Noregur-Danmörk................2-1 Svíþjóð-Finnland...............2-3 England-Færeyjar................6-0 íslendingar mæta Dönum í Ólafs- firði klukkan 17 á morgun. Lantísmótiö ígolfí ‘98 Landsmót karla fer nú fram 1 57. skiptið en fyrsta landsmótið fór fram árið 1942. Gisli Óskarsson úr GR varð fyrsti íslandsmeistarinn 1942 en hann vann þrjú fyrstú árin. Spilarar úr Golfklúbbi Reykjavíkur hafa unniö oftast, eða í 20 skipti. Golfklúbbur Akureyrar á næst- flesta Islandsmeistara í gegnum tíð- ina eða 18. Fulltrúi Golfklúbbs Reykjavíkur hef- ur þó ekki unnið íslandsmeistaratitil í 13 ár í karlaflokki allt frá því að Sig- uröur Pétursson vann á Akureyri 1985. Meðlimir úr GR i karla og kvenna- flokki, sem unnu 13 af 20 íslands- meistaratitlum sem voru í boði á 9. áratugnum, hafa enn ekki unnið ís- landsmeistaratitil á 10. áratugnum. Björgvin Þorsteinsson úr GA og Úlf- ar Jónsson, GK, er þeir sem oftast hafa unnið í karlalflokki, eða 6 sinn- um. Björgvin vann árin 1971, ‘73, ‘74, ‘75, ‘76 og 1977 en Úlfar vann árin 1986, ‘87, ‘89, ‘90, ‘91 og 1992. Guöfinna Sigurþórsdóttir úr Golf- klúbbi Suðumesja varð fyrsti íslands- meistari kvenna 1967 en hún vann tvö fyrstu árin og í þrjú skipti alls. Spilarar úr Golfklúbbi Reykjavíkur hafa oftast unnið í kvennaflokki, eða í 12 skipti. Golfklúbbur Suöurnesja á næst- flesta Islandsmeistara í kvennaflokki, eða 11. Karen Sœvarsdóttir úr GS hefur oftast orðið Islandsmeistari í kvenna- flokki en hún vann 8 ár í röð á árun- unm 1989 til 1996. Hjá körlunum hefur Björgvin Þor- steinsson unnið í flest ár í röð eða í fimm skipti á árunun 1973-1977. Björgvin hefur lika tekið þátt í flest- um landsmótum, eða 32, en hann tók fyrst þátt í landsmótinu í Grafarholti áriö 1965. Þetta er í sjötta skiptiö sem landsmót- ið fer fram á Hólmsvelli í Leiruni. Fyrsta mótiö fór fram 1978 en auk þess var keppt þar 1981, 1986,1989 og 1993. Enginn karlspilari úr Golfklúbbi Suðurnesja hefur náð að landa ís- landsmeistaratitlinum á heimavelli en alls hafa félagar úr GS orðiö 5 sinnum meistarar. Sá siöasti til aö veröa íslandsmeist- ari á heimavelli var Sigurpáll Geir Sveinsson sem vann á Akureyri 1994. Þetta er i eina skiptiö á síðustu 10 árum sem heimamaður hefur landað Islandsmeistaratitlinum i golfi. Aðeins fjórir spilarar hafa orðið Is- landsmeistarar á heimavelli 1978 til 1997 þar þrir úr GR. Siöast vann Siguröur Sigurðsson ís- landsmeistaratitil í Grafarholti árið 1988. Karen Scevarsdóttir vann aftur á móti tvo af sínum átta íslandsmeist- aratitlum á heimavelli slnum í Leirunni. -ÓÓJ Stúlknalandsliðið í knattspyrnu á Norðurlandamóti: Annað tap hjá stelpunum Landslið Islands í knattspymu, skipaö leikmönnum yngri en 21 árs, lék annan leik sinn á Norðurlandamótinu í gær gegn Danmörku og tap- aði 1-3. Danir skoruðu fyrsta mark leiksins en íslensku stúlkumar náðu að jafna með góðu marki Eddu Garðarsdóttur, leikmanns KR. Eftir mark íslands sóttu Danir stíft og bættu við tveimur mörkum áður en yfir lauk. íslensku stúlkurnar keppa við Noreg á morgun í síð- asta leik riðilsins. -ÍBE Eyjamenn komnir í úrslitin í bikarkeppninni þriöja áriö í röö eftir sigur á Blikum í Eyjum t

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.