Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.1999, Blaðsíða 2
22
MÁNUDAGUR 15. MARS 1999
íþróttir
DV
NBA-DEILDIN
Úrslit á fostudagskvöld:
Indiana-Milwaukee .......... 109-101
Miiier 22, Davis 18, A Davis 15 - Robinson
20, Alien 18, Cuny 15.
Philadelphia-New Jersey......100-93
Iverson 28, Ratliff 23, Lynch 18 - Van Hom
25, Gill 15, Kittles 14, Overton 14.
Washington-Charlotte ..........83-02
Cheaney 22, Richmond 19, Howard 12 -
Wesley 23, Phiils 11, Shackleford 10, Miiler
10.
Detroit-Boston.................93-83
Hill 33, Dele 13, Hunter 11 - Walker 22, Bar-
ros 11, Mercer 10.
Chicago-New Yoik...............76-63
Kukoc 25, Brown 11, Simpkins 10 - Houston
16, Thomas 13, Camby 13.
Phoenix-San Antonio............97-99
Gugliotta 33, Robinson 20, Kidd 14 - Dunc-
an 26, Elliot 16, Elie 11.
Portland-Utah Jazz.............77-91
Stoduamire 20, Rider 18, Sabonis 16 -
Malone 21, Russell 19, Homacek 12.
LA Lakers-Golden State........89-78
Rice 21, OTSIeal 20, Bryant 18 - Dampier 12,
Foyle 11, Marshall 10.
Sacramento-Mimiesota .........95-101
William 17, Webber 15, Williamson 12 -
Gamett 26, Peeler 20, Jackson 15.
Úrslit á iaugardagskvöld:
Atlanta-Toionto ............86-75
Henderson 24, Smith 17, Mutombo 16 -
Christie 24, Carter 1A Williams 1L
Dallas-Vancouver.............91-74
Finley 21, Trent 16, Davis 14 - Rahim 21,
Lopes 21, Bibby 1L
Houston-Cleveland.......... 100-89
Olgjuwon 24, Price 17, Pippen 16 - Kemp 25,
Anderson 23, Fbny 11.
San Aitonio-Denver..........92-61
Duncan 27, Elliott 18, Robinson 12 -
Mccdyess 23, Van Exel 16, Alexander 8.
UtahJazzAlinnesota ..........99-72
Maione 26, Russell 12, Homacek 11 - Gar-
nett 22, Midiell 9, Brandon 8.
Golden State-Oriando.........74-87
Dampier 17, Marshail 12, Cummings 10,
Delk 10 - Armstrong 16, Grant 12, Austin 12
LA Clippers-Portlaiid.......96-106
Mury 18, Taylor 15, Martin 14 - Grant 25,
Jackson 14, Antony 14, Wallace 14
KRtapaöi í
úrslHaleik
KR tapaði fyrir eistneska
liðinu Flora Tallin, 1-3, í
úrslitaleik alþjóðlegs 8-liða móts
í knattspymu á Kýpur í gær.
Flora Tallin skoraði fyrsta
mark leiksins en Amar Jón
Sigurgeirsson jafnaði fyrir KR
áður en tvö eistnesk mörk til
viðbótar litu dagsins ljós. -SK
KFI (52) 118
Grmdavík (31) 93
8-0, 11-4, 21-11, 25-18, 25-25, 36-29,
44-29, (52-31). 57-31, 63-35, 67-42,
72-48, 85-57, 90-69, 100-80, 105-83,
118-93.
Stig KFÍ: Cason 23, Ólafur 21,
Carter 17, Quashie 16, Hrafn 15,
Ósvaldur 11, Gestur 6, Pétur 5
Baldur 3, Tómas 1.
Stig Grindavlk: Peebles 30,
Herbert 24, Guðlaugur 17, Pétur 12,
Bergur 6, Páll 2, Rúnar 1,
Sigurbjörn 1.
Fráköst: KFÍ: 40, Grindavík 26.
3ja stiga körfur: KFÍ 20/11, KR
34/13.
Dómarar: Björgvin Rúnarsson og
Jón Bender.
Áhorfendur: Um 400
Menn leiksins: Allt lið KFÍ.
Lokastaðan
Keflavík 22 20 2 2149-1802 40
Njarðvík 22 18 4 2029-1658 36
KFÍ 22 15 7 1894-1822 30
KR 22 14 8 1864-1780 28
Grindavík 22 14 8 1972-1847 28
Tindastóll 22 11 11 1872-1846 22
Snæfell 22 10 12 1715-1827 20
Haukar 22 8 14 1713-1879 16
ÍA 22 8 14 1703-1816 16
Þór A. 22 5 17 1690-1964 10
Skallagr. 22 5 17 1738-1886 10
Valur 22 4 18 1709-1921 8
Einar Karl Hjartarson, ÍR, bætti eigið íslandsmet í hástökki innanhúss tvívegisá Akureyri í gærkvöld. Einar Karl stökk
fyrst yfir 2,17 metra og bætti síðan metið aftur er hann stökk í fyrstu tiiraun yfir 2,20 metra.
Stökkmót Reynis á Akureyri í gærkvöld:
- Einar Karl bætti íslandsmetið í hástökki. Jón Arnar
stökk 5,20 m í stönginni og Vala vann og stökk 4,20 m
DV Akureyri:
„Þetta var alveg frábært. Aðstað-
an var til fyrirmyndar og áhorfend-
umir vom frábærir og hjálpuðu
mér rnikið," sagði Einar Karl Hjart-
arson, 18 ára ÍR-ingur, eftir að hann
hafði sett nýtt glæsilegt íslandsmet í
hástökki á stökkmóti Reynis frá Ár-
skógssandi í íþróttahöllinni á Akur-
eyri í gærkvöld.
Einar Karl stökk fallega yfir 2,10
metra og síðan vippaði hann sér
yfir 2,17 metra í þriðju tilraun. Síð-
an stökk Einar Karl yfir 2,20 metra
í fyrstu tilraun og bætti metið aftur.
Yfir 2,22 fór hann hins vegar ekki í
þremur tilraunum.
„Ég þarf að bæta mig aðeins og
þá er ég búinn að stimpla mig inn
á meðal bestu unglinga í Evrópu í
greininni," sagði Einar Karl við DV
í gærkvöld.
Einar Karl er mikið efni og á
góða möguleika á að ná mjög langt í
hástökkinu i framtíðinni.
Jón Arnar var góður í stöng-
inni
Jón Amar Magnússon náði mjög
góðum árangri í stangarstökki
karla. Hann komst þó aðeins yfir
4,80 metra í þriðju túraun en vipp-
aði sér siðan nokkuð létt yfir 5,00
metra og 5,10 metra. Þá lét hann
hækka í 5,20 metra og fór þá hæð.
Þessi árangur er jafn þeim besta
sem Jón Amar hefur náð í stangar-
stökki.
Nýkrýndur heimsmeistari í sjö-
þraut frá HM í Japan, Tékklending-
urinn Sebastian Chmara, stökk 5,10
metra og Eistlendingurinn Erki
Nool stökk 5,30 metra og sigraði.
Jón Amar reyndi við íslandsmet,
5,30 metra en felldi þá hæð. Nool
reyndi við eistneskt met, 5,50 metra,
en tókst ekki að stökkva þá hæð.
Þessi árangur Jóns Arnars lofar
góðu fyrir framhaldið og sýnir að
Jón Amar er til alls líklegur.
Frekar slök keppni í stang-
arstökki kvenna
Vala Flosadóttir, ÍR, sigraði í
stangarstökki kvenna. Hún stökk
hæst yfir 4,20 metra eða sömu hæð
og ZsuZsa Szabó frá Ungverjalandi
en notaði til þess færri tilraunir.
Szabó er í öðru sæti á
heimslistanum um þessar mundir
og vann bronsverðlaun á HM
innanhúss í Japan á dögunum.
Þórey Edda Elísdóttir, FH, náði
ser engan veginn á strik að þessu
sinni og stökk aðeins yfir 3,80 metra
sem er langt frá hennar besta ár-
angri.
Alls mættu 1300 áhorfendur á
mótið í gærkvöld og var gríðarleg
stemmning í höllinni á Akureyri.
-SK/-gk
Jón Arnar
þríbraut
stöngina
DV, Akureyri:
Jón Amar Magnússon lenti í
því óhappi að mölbrjóta stöngina
sem hann hugðist nota í stangar-
stökkskeppninni á " Akureyri i
gærkvöld.
Það var i upphitun sem Jón
Amar þríbraut stöngina og stóð
eftir með meters stubb i höndun-
um. Sem betur fer fór þetta allt á
besta veg og Jón Amar slapp við
meiðsli.
-gk
Erki Nool var
Ijónheppinn
DV, Akureyri:
Erki Nool frá Eistlandi var
ljónheppinn í stangarstökks-
keppninni er hann lenti harka-
lega fyrir utan dýnuna í annarri
tilraun sinni við 5,10 metra.
Nool slapp við meiðsli en ljóst
var að mjög litlu mátti muna að
þessi snjalli stangarstökkvari
hefði stórslasast.
Þá gerðist það í hinni sögu-
legu stangarstökkskeppni að
Sebastian Chmara felldi mjög
illa eina hæðina og önnur súlan
sem hélt ránni uppi datt á áhorf-
endur. Þetta fór líka betur en á
horfðist og enginn slasaðist. -gk
„Mjög ánægðir"
„Þetta tókst framar vonum og
við erum mjög ánægðir með
aðsóknina sem var sú sama og á
ÍR-mótið í Reykjavík. Það er
alveg ljóst að þetta mót verður
haldið aftur að ári,“ sagði Jón
Sævar Þórðarson, mótsstjóri á
stökkmóti Reynis.
-gk
Bland i poka
Stórslagur var hádur í 2.
deild karla í handknattleik um
helgina þegar Fylkir lagði Þór
frá Akureyri, 20-16, í
Fylkishöllinni. Staðan í hálfleik
var 8-5 fyrir Fylki. Einar
Kruger skoraði sex mörk fyrir
Fylki en Atli Þór var
atkvæðamestur hjá Þórsurum
með átta mörk.
Þá sigraði Víkingur lið
Fjölnis, 23-35, í Grafarvogi.
Knattspyrnumennirnir
Sigurður Elí Haraldsson og
Davið Örvar Ólafsson úr FH
eru á förum til Lokeren þar sem
þeir munu æfa með varaliði
félagsins fram að 21-árs leikjum
undir lok þessar mánaðar.
-SK/-JKS'
KFÍ í 3. sæti
DV, ísafirði:
Seinasti leikur 22. umferðar
úrvalsdeildar fór loks fram í gær en
leiknum hafði verið frestað í þrígang.
Þessi leikur var barrátan um þriðja
sætið í deiidinni og því ljóst að um
hörkuleik yrði að ræða.
ísfirðingar léku fantagóðan
körfubolta. Þriggja stiga nýting og frá-
köst voru yfir meðallagi og spiluðu ís-
firðingar fantaflnan bolta og eru
greinilega mjög sterkir um þessar
mundir og tU alls líklegir í úrslita-
keppnini.
Ekki er hægt að dæma Grindvíkinga
af þessum leik. Þeir eiga mikið inni, en
einna helst voru það Herbert og War-
ren sem sýndu eitthvað, skoruðu 54 af
93 stigum þeirra í leiknum.
-aga
KR-ingarnir Guðbjörg Norðfjörð og Limor Mizrachi fagna deildarmeistaratitli
félagsins í fyrsta sinn, en Keflavík hefur unnið þennan bikar í öll 6 skiptin sem hann
hefur verið í boöi. KR vann síöast deildina fyrir 12 árum eða árið 1987. Guðbjörg
skoraðl 23 stig gegn ÍR og er stigahæst í deildinni með 301 stig en Limor gerði 17
stig og átti 11 stoðsendingar. DV-mynd Óskar
KR-stúlkurnar
deildarmeistarar
KR varð á laugardag fjórða félagið í
sögu 1. deildar kvenna til að vinna
alla leiki sína frá því að fímm lið spil-
uðu fyrst 1. deildinni 1981 til 1982.
Einnig varð KR-liðið fyrsta sem leikur
20 leiki á tímabili og vinnur þá alla.
Þaö er hægt að líta á hinn glæsilega
árangur liðsins frá mörgum hliðum
því leikurinn var 23. sigurinn i röð í
öllum keppnum, 21 deildarleikurinn i
röð og 20 heimasigurinn í röö í deild.
KR vann ÍR 97-60.
Stig KR: Guðbjörg 23 stig ( 8 fráköst),
Mizrachi 18, Hanna 17 ( 10 fráköst),
Linda 13, Kristín B. 12 ( 5 stoðsending-
ar), Helga 6, Sigrún 5, María 3.
Stig ÍR: Hildur 21. Guðrún 14 (9 frá-
köst), Gréta 8 ( 9 fráköst), Sóley 6, Jó-
fríöur 4, Þórunn 4 ( 4 stoðsendingar),
Ema Þórðardóttir 2, Kristín Halldórs-
dóttir 1. -ÓÓJ