Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1999, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1999, Blaðsíða 7
FIMMTUDAGUR 18. MARS 1999 7 Fréttir Össur góðmenni í lokahófi landsfundar Sjálf- stæðisflokksins á Hótel íslandi fór Davíð Oddsson , endurkjör- inn formaður, á kostum. Hann flutti ræðu þar sem gamanmál voru á hraðbergi. Meðal annars lýsti hann vini sínum Össuri Skarphéðins- synl alþingis- manni sem hann sagði rak- ið góðmenni sem ekki vildi nokkrum manni illt. „Össur talar aldrei illa um nokkum mann sem er fyrir aftan hann I staírófmu," sagði formaðurinn glaðlyndi... Vandræðagangur Það er víðar vandræðagangur hjá Samfylkingu en á Norður- landi eystra þar sem naprir vind- ar blása um Sigbjörn Gunnars- son. Á Reykjanesi gengur nú maður undir manns hönd til að lappa upp á listann. Lítt sölu- legt þykir að hafa fjandvin- ina Lúðvík Geirsson, for- seta bæjar- stjórnar í Hafnarfirði, og Magnús Jón Árnasön, fallinn bæjarstjóra sama byggöarlags, hlið við hlið í 7. og 8. sæti. Því er leitaö logandi ljósi að konu til að hafa á milli þeirra ... Slyðrið Enn slá þeir í gegn, íþróttaf- réttamennimir á Stöð 2 og Sýn, með skemmtilegt málfar. Þannig setti Snorri Sturluson sig í stellingar fyrir leik Chelsea og West Ham um síð- ustu helgi og tjáði þeim sem á horfðu og hlust- uðu að nú yrði spennandi að sjá hvort leik- mexm Chelsea myndu „hrista af sér slyðrið“ eins og hann komst Vissulega var það spennandi að sjá hvort leikmenn Chelsea spjömðu sig en það tókst þeim hins vegar ekki, þeir ráiku ekki af sér slyðruorðið eft- ir tapleik í bikarkeppninni nokkmm dögum fyrr og „lutu í gras“ fyrir West Ham, eins og annar snillingur tekur svo oft til orða... að orði. Flýttu þér, Halldór Hjálmar Jónsson, alþingis- maður í Norðurlandskjördæmi vestra, er sá maður sem læddi þeirri hugmynd i hugskot Hall- dórs Blöndals samgönguráð- herra á sinum tíma að bora veggöng i gegn- um sjálfan Tröllaskaga. Það væri eins gott fyrir Hall- dór að drífa í þessu sem fyrst vegna þess að hann væri kominn á efri ár og farið að styttast í þingsetu hans. Hjálmar kom þessu á framfæri í bundnu máli með eftirfarandi hætti: Samgöngur við Siglufjörð sífellt þarf að laga, óðara skulu göngin gjörð gegnum Tröllaskaga. Framkvæmd þarf að fara af stað fljótt og ömgglega, fyrr en þú ert orðinn að ellilífeyrisþega. Umsjón Reynir Traustason og Stefán Ásgrímsson Netfang: sandkorn @ff. is Akureyri: Enn fundað um íþróttavallarmálið DV, Akureyri: Umsókn Kaupfélags Eyfirðinga og Rúmfatalagersins um að fá að byggja stórmarkað á aðalleikvangi Akureyrarbæjar, er nú hjá íþrótta- og tómstundaráði bæjarins, sem mun vinna tillögur til skipulags- nefndar bæjarins um framhaldið. KEA og Rúmfatalagerinn vilja hefja byggingu sem fyrst á íþrótta- vallarsvæðinu í miðbænum og var skipaður vinnuhópur ti að fjalla um umsóknina, en mjög skiptar skoðan- ir eru rnn hvort verða skuli við henni og málið er mikið tilfinninga- mál meðal margra bæjarbúa. Vilborg Gunnarsdóttir, formaður skipulagsnefndar, segir að íþrótta- og tómstundaráö vinni að málinu út frá tveimur forsendum. Annars veg- ar þeirri að íþróttavallarmál Akur- eyringa verði óbreytt. Hins vegar að byggt verði á leikvangnum - og þá hvaða kostnað það muni hafa í för með sér varðandi uppbyggingu sam- bærilegrar íþróttaaðstöðu annars staðar í bænum. Vilborg segir að málið sé mjög umfangsmikið og margir hlutir þurfi að koma til skoðunar. Þegar skipulagsnefnd hefur afgreitt málið frá sér, sem verður væntanlega í næsta mánuði, mun það fara hefð- bundna leið um „kerfiö", fýrir bæj- arráð og bæjarstjórn. -gk Útdraganlegar hillur fyrir lyklaborð ásamt góðum hirslum. Litir: grátt, svart og hnotubrúnt. Horn-eining Horn-eining Horn-eining Arnúlar^g UMBOÐSMENN AIWA UM LAND ALLT: Reykjavik: Heimskringlan - Hafnarfjörður Rafbúð Skúla - Grindavik: Rafborg hf. - Keflavik: Sónar - Akranes: Hljómsýn - Borgarnes: Kaupfélag Borgfirðinga Hellissandun Blómsturvellir - Stykkishólmun Skipavík - Blönduós: Kaupfélag Húnvetninga Hvamstangi: Rafeindaþjónusta Odds Sigurðssonar - Sauðárkrókur Skagfirðingabúð Búðardalur: Verslun Einars Stefánssonar - jsafjörður Frummynd - Siglufjörður Rafbær - Akureyri: Bókval / Ljósgjafinn - Husavik: Ömur Vopnafjörður Verslunin Kauptún - Egilsstaðir Rafeind Neskaupsstaður Tónspil Eskifjörður Rafvirkinn - Seyðisfjörður Turnbræður - Hella: Gilsá - Selfoss: Radíórás - Þoriákshöfn: Rás - Vestmannaeyjar. Eyjaradíó . • • ib jSr iTv^ntyTT»i <*’ iScS Æ-j ^ **

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.