Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.1999, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.1999, Blaðsíða 3
meömæli g f n i i í Ford-stelpurnar Manneskjan sem sér um allt hvað varðar útlit og mngjörð Ford-keppninn- ar i kvöld er 21 árs sjálfnámaður stílisti sem heitir Hrafnhildur Hólmgeirsdótt- ir. Það er sama hvort um er að ræða varalit keppenda eða tískusýningar, Hrafnhildur er heilinn á bak við þetta allt saman. Hún byrjaði að flkta við út- litshönnun fyrir þremur árum þegar ljósmyndari einn bað vinkonu hennar, Elísabetu Davíðsdóttur fyrirsætu, um að sitja fyrir hjá sér. Elísabet fékk Hrafnhildi til að sjá um útlitið fyrir sig og þá kom í ljós að hún er mikill stílisti í sér enda búin að vasast í tískunni og vinna í tískuvöruverslunum um árabil. Hrafnhildur segist engan áhuga hafa á að læra þetta neitt frekar. „Galdurinn við útlitshönnun er að hafa tilfinningu fyrir því sem maður er að gera. Eftir að hafa unnið með ljós- myndurum og leikstjórum í þrjú ár er ég komin með þónokkra reynslu og þjálfun sem er það dýrmæt að ég held að ég yrði ekkert betri þótt ég færi í skóla. Ég hef ódrepandi áhuga á tísku og útliti og það er alveg nóg.“ Hrafnhildur hefur komið víða við á þeim þremur árum sem hún hefur ver- ið i bransanum, séð um útlit ýmissa sýninga, tískuþátta í tímaritum, sjón- varpsauglýsinga og fleira. Hún segir að umgjörð Ford-keppninnar i Héðinshús- inu í kvöld verði sérstaklega glæsileg. „Héðinshúsið er ótrúlega flott hús- næði. Það er hrátt og býður fyrir vikið upp á allt öðruvísi og miklu grófara út- lit heldur en verið hefur hingað til í svona keppni.“ Sérðu fyrir þér hver fer með sigur af hólmi í kvöld? „Nei. Ég er búinn að vera að krukka svo mikið í þessar stelpur að ég er fyr- ir löngu hætt að vera dómbær á það. Þetta er ótrúlega jafn hópur og margar sem koma til greina." Sundlaugar, stórmarkaðir, bóka- söfn, diskótek, vinnustaðir, pöbbar, sveitaböll, irkið. Allt þykja þetta ágæt- ir staðir til til- hugalífs. Oft vill þó gleymast einn ágætur vettvang- ur sem eru ferðir Ferðafélags ís- lands og Útivist- ar. Þar er ókunnugt fólk hrist saman 1 rútu og farið með það upp i sveit þar sem það gengur í náttúrunni og hefur fáa möguleika á annarri dægradvöl en að tala hvað við annað. Oft standa ferðimar yfir dögum saman og þá er garanterað hoppsassí í tjöldunum. f dagsferðunum er upplagt að „leggja inn“ og þá heyrast pikköpplinur eins og „vá, hvar keyptirðu þessa skó“ og „viltu koma og tékka á nýrri gjótu?“. Kebabhúsið á Lækjartorgi er nýjasti kosturinn fyrir svangt og timabundið fólk. f útlöndum lekur olian af kebabinu en í heimil- islega kebabhúsinu hafa gestir það á til- finningunni að þeir séu að láta heilsu- fæði ofan í sig. Góm- sætur biti semsé og ekki dýr. Með tii- komu kebabsins má segja að íslending- ar geti loksins valið úr öllum helstu möguleikunum í skyndibitabransan- í nýlegri könnun kemur fram að sætanýting 1 bíó er ekki nema 15%. Þetta hlýtur að valda mörgum ugg og fólk spyr sig: Er framboðið of mikið? Til að koma til móts við þetta má breyta og bæta sal- ina, rífa óþægilega bekkina i burtu, koma fyrir hægindastólum eða sófum, stofuborðum og fótaskammelum. Auð- vitað er svo pláss fyrir smábar í einu horninu og reykingar ættu vitaskuld að vera leyfðar. f þessu frábæra fyrir- komulagi yrðu hvimleið hléin óþarfi og bíóferðin sem slík ein allsherjar skilningarvitaveisla. í Finnlandi er sána í hverju húsi inn af baðherberginu en hér þykir sána 1 heimahúsi bera vott um mikið rlkidæmi. Þetta er auð- vitað galin staðreynd og stjómvöld ættu að sjá sóma sinn i að koma sánu i hvert hús. Sánu- menningin er nefnilega kjörin fyrir okkur fs- lendinga og við þyrftum ekki langan aðlögunartíma, svo vön erum við heitu pottunum. Stjómmálaafi sem boðaði „Sánu í hvert hús fyrir 2010!“ myndi maí. Það náðist í KK rétt áður en túr- inn hófst. Hann var að skoða húsbíl- inn sem verður heimili hans næstu vikumar, rauður og búinn öllum þægindum. Það þarf ekki að væsa um KK á vegum úti. Þetta er lengsti túr sem KK hefur tekið um landið. Hann verður að mestu einn á ferð en á þrennum tónleikum kíkir Magnús Eiríksson inn og á öðrum þrennum mæta Kommi og Þorleifur og þá verður slegið upp balli með KK-bandinu. „Ég elda sjálfur að mestu leyti en svo fær maður sér sósu og salat á leiðinni," segir KK, aðspurður um mataræði. „Ég fæ mér eitthvað á hótelunum líka en morgunmatinn tekur maður út í guðsgrænni nátt- úrunni fjarri öllum mannabyggð- um.“ - Hefði ekki verið gáfulegra að fara túrinn seinna í sumcir þegar veðrið er skárra? „Það held ég ekki því þá er svo mikið annað að gerast og margir famir eitthvað. Mér finnst eins og þetta sé rétti tíminn.“ - Hefurðu komið á alla þessa staði áður? „Flesta en ekki alla. Ég hef t.d. ekki komið í Loðmundarfjörð, Mjóa- fjörð, Trékyllisvík og nokkra aðra. Alla hina hef ég komið á og spilað á þeim flestum." KK finnst auðvelt að svara því hver sé uppáhaldsstaðurinn sinn á íslandi: „Where ever I lay my hat“, s e g i r hann á e n s k u . „Samt líð- ur mér auðvitað b e s t „Ég held að ég yröl ekkert betri í þessu þótt ég færi í skóla. Ég hef ódrepandi áhuga á tísku og út- liti og það er alveg nóg,“ segir Hrafn- hildur Hólmgeirs- dóttir stílisti. heima í faðmi fjölskyldunnar." Blóðið upp í heila Þeir sem til þekkja vita að líf popparans „on ðe ród“ fer að mestu í að bíða. Þessu er KK ekki sam- mála. „Biðin er bara fyrir alvöru poppstjörnur. Götuspilararæflar eins og ég eru alltaf uppteknir því ég er að róta sjálfúr, keyri sjálfur og þarf því ekki að biða eftir að ein- hver annar geri allt fyrir mig.“ - En verður ekki dauður tími? „Það er besti tíminn. Ég er á bíln- um og er því ekki bundinn við hótel eða einhvern stað þegar ég er búinn að spila. Ég rýk bara af stað og legg fjarri mannabyggðum. Svo vakna ég þar um morguninn. Það er kikkið við þetta. Ég er með gítarinn með mér og fullt að lesa. Það er gott að vera einn með sjálfum sér uppi í sveit einhvers staðar. Maður leggst bara fyrir með bók og kaffi. Svo nota ég tímann til að skrifa texta. Ég á slatta af lögum en vantar texta. Svo ætla ég í göngutúra eins og Laxness. Hann gekk alltaf einn, tvo ^ tíma á dag til að fá ....... blóðið til < að flæða % 1 upp í heila. Þá '• fer allt af stað.“ Ef hundur- inn syngur með KK er smeykur við að ein- angrunin hafi aukaverkanir. „Ég býst við að Ómar Ragnarsson komi og taki viðtal við mig því ég verð orðinn svo skrýtinn. Ef Ómar vill gera viðtal við mann er það ákveðið merki um að það sé ekki allt í lagi. Kannski verð ég kominn með kæk og sítt skegg á Fagrahvammi." Ef KK verður ekki lagður inn að túr loknum fer hann í að gera nýja plötu. „Ég á fullt cif mjög skemmti- legum lögum og aldrei þessu vant hef ég nægan tíma.“ - Verða þetta langir tónleikar hjá þér? „Það fer eftir stemningu, einn og hálfur tími upp í þrjá, bara eftir því hvað er í gangi. Ef það kemur einn maður með hund get ég verið að spila í þrjá tíma fyrir hann, þ.e.a.s. ef hundurinn syngur með. En ef það koma t.d. þrjátíu manns og sitja í bílunum sínum og vilja ekki fara úr þeim spila ég kannski í hálftíma. Held svona „drive-in“ konsert. Já, það er helvíti góð hugmynd..." .y'.' ' '■'J’r*' T,? S/!"\ öí n Eftirlitsmyndavélarnar og nágrannar þeirra: „Þetta er náttúrlega l »TOpl á friðhelgi heimilisins.“ 4 Ágúst kvikmynda- tökumaður: Hefur unnið með Nirvana, Guns ’N’ n Roses og Johnny Cash Blóm, stjörnur og krónur: Hvar er best og ódýrast að fá sér að borða? Nýjar reglur í daðri: Engar sjúklegar g útlitskröfur Kiddi Kanína fullur fram- kvæmdagleði: „Maður er að drukkna í liði sem vill koma“ Sigurvegarar Músík- tilrauna, Mínus: „Ef einhver böggar okkur þá lemjum við hann bara“ 1243 14 Svarthöfði (Darth Vader): Kemur í lokin á nýju Star Wars-myndinni Horfnar hugsjónir: Enginn veit hvert Friðarsamtök 16 listamanna hurfu Lífid eftir vmnu -lautuKor Gerðubergi PdnkáGi Kaffihúsagagnrýi Bnstrin öll avíkur Akat Fókus al fyigir dv á jSp- föstudögum Forsíðumyndina tók ÞOK af Krumma í Mínus. 16. april 1999 f Ó K ,U S

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.