Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1999, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1999, Blaðsíða 22
FIMMTUDAGUR 6. MAÍ 1999 "«6 Fréttir LflJjJ}J iJ/1 r. Love ráðleggur um kynli í SI§xi?/ 'p iP JÉ Akureyri: Slysahætta í íþróttahúsum vegna leka DV, Akureyri: Þakleki hefur verið í tveimur íþróttahúsum á Akureyri undanfar- in ár, íþróttahöll bæjarins og íþróttaskemmunni, sem til skamms tíma var helsta íþróttahús bæjarins. Á fundi íþrótta- og tómstundaráðs fyrir skömmu óskaði Nói Bjöms- son, fulltrúi L-listans, bókað að þak íþróttaskemmunar væri ónýtt og hefði verið í mörg ár. „Á stundum er vatnselgurinn þvílíkur á gólfi hússins að íþróttaiðkendur eru í stórhættu. Fulltrúi L-listans hefur ítrekað bent á þennan vanda á fund- um ráðsins, án þess að bóka það fyrr en nú. Krafan er einfaldlega sú að íþróttaskemmunni verði lokað, og það til frambúðar sem íþrótta- mannvirki, ef meirihluti bæjar- stjómar Akureyrar sér sér ekki fært að grípa til neinna aðgerða í málinu. L-listinn beinir þeim til- mælum til meirihlutans að farið verði sem fyrst i undirbúning að nýju íþróttahúsi, t.d. í Siðu- eða Giljahverfi, til þess að varanleg lausn finnist á þessum vanda,“ sagði í bókun Nóa Bjömssonar. Á sama fundi íþrótta- og tóm- stundaráðs var upplýst að þak íþróttahallarinnar við Skólastíg hafi ekki haldið vatni undanfama vetur og hafi horft til vandræða með íþróttakennslu, íþróttaæfingar og hvers konar uppákomiu-. Ráðið beindi þeirri ósk til framkvæmda- nefndar bæjarins að kannað verði i hversu miklar framkvæmdir þurfi aö fara vegna viðhalds á þaki iþróttahallarinnar og hversu mikill kostnaður verði við þá framkvæmd. -gk Karlakórinn í Höfðaborg. DV-myndir Örn Hofsós: Heimisstemn- ing í Höföaborg DV, Skagafir& Húsfyllir var á söng- og skemmti- kvöldi sem karlakórinn Heimir hélt í Höfðaborg á Hofsósi fyrir skömmu. Þama er um árlegan konsert að ræða sem alla jafnan er haldinn um sumarmálin, en kunn- ugir telja að aðsókn hafi aldrei ver- ið meiri en nú. Auk söngs kórsins var á dagskránni hagyrðingaþáttur, Pálmi Rögnvaldsson bankastarfs- maður flutti gamanmál og nokkrir kórfélagar léku á hljóðfæri. Þá stóöu konur kórfélaga fyrir glæsi- legum veitingum. Ljóst var á undirtektum sam- komugesta að þeir kunnu vel að meta söng kórsins. Hann á ótvíræð- um vinsældum að fagna í heimahér- aði. Það sýnir aðsókn að konsertum undanfarið þar sem fólk hefur jafh- vel orðið frá að hverfa. Eöiisskrá Heimis var að vanda fjölbreytt og talsvert af nýjum lögum. Það var hins vegar undir lokin þegar kórinn tók gömlu lögin sín sem allir þekkja, HaUarfrúna, Dísir vorsins, Dúdda á Skörðugili og Undir blá- himni svo nokkur séu nefnd sem stemningin náði hámarki. Þá varð ekta Heimisstemning í Höfðaborg vau'ð einum samkomugesta að orði. -ÖÞ Hagyrðingar skemmtu viðstöddum. Frá vinstri: Grétar Geirsson, Axel Þor- steinsson, Sverrir Magnússon, Hreinn Guðvarðsson og Gísli Konráðsson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.