Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1999, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1999, Blaðsíða 22
26 FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ 1999 Að elska... „Er það ekki viss passi í ástinni að það er ævinlega einhver annar sem maður elskar." Þetta eru orð höfuðskáldsins Laxness, en er einungis mögu- legt að elska manneskjuna? Bragi Kristjónsson elskar Fornar ástir eftir Sigurð Nordal. Elskar fornar að var Alfinnur álfakóngur sem ég las fyrst en hún fjallar um góðan kóng og vont fólk í kringum hann. Þá hef ég líklegast verið svona fimm ára,“ sagði Bragi Kristjónsson aðspurður hvaða bók hann hefði lesið fyrst. Bókina fékk hann að gjöf frá Ólafi Thoroddsen sem kenndi Braga litla að lesa á sín- um tíma. Litli drengurinn hefur síð- an verið í bókamoði í um fjörutíu ár og rekið bókabúð á Vesturgötu 17 í tuttugu og fimm ár. Bragi segist elska bækur, í það minnsta sumar þeirra því þær gefi svo mikið, en tekur fram að margar aðrar gefi jafnlítið. Hann er ekki hrifinn af ungu höfundunum án þess að taka það fram hverjir þeir séu. Sigurður Nordal er meistari tungunnar að hans áliti, mál hans er afar vandað en hann tekur undir það hjá blaða- manni að Þórbergur Þórðarson hafi verið einn þeirra allra bestu en nefnir auk þess Laxness, Jóhann Sigurjónsson og félaga sinn Guð- berg Bergsson. Bragi á myndarlegt bókasafn og ástir safnar handritum eftir lífs og liðna og á talsvert af upprunalegum hand- ritum höfunda og einnig talsvert af fyrstu skáldskapartilraunum skálda eins og Hannesar Péturssonar, Guð- bergs Bergssonar auk annarra. Bókin sem hann ann heitir Forn- ar ástir eftir Sigurð Nordal og upp- áhaldskaflinn í henni er Hel sem er prósaljóð. „Það er vegna þess að hún er falleg, blíð og væn og djúp og góð“, sagði bóksalinn blíði að lok- um. -þor Berglind Gunnarsdóttir sá eiginmann sinn fyrst í pósthúsi og þótti hann strax myndarlegur. Dönsuðum á Broadway g sá hann fyrst í pósthúsinu í Pósthússtræti þar sem ég var að vinna og hann var sendill hjá Veröld og kom þess vegna dag- lega. Mér fannst hann strax mikill sjarmör og ég kunni vel við hvað hann var hress og skemmtilegur. Á Broadway þann 28. nóvember 1987 bauð ég honum svo upp í dans og það er í fyrsta og síðasta skipti sem hann hefur dansað við mig. Þá fékk hann símanúmerið mitt og síðan höfum við verið saman,“ segir Berg- lind Gunnarsdóttir, ástfangin þriggja bama móðir og eiginkona Eggerts Stefáns K. Jónssonar. „Það voru augun, þessi fallegu bláu augu, sem alltaf einhver neisti býr í og það hversu góð sál hann og heiðarlegur maður,“ segir Berglind þegar hún er spurð að því fyrir hverju hún féll í fari eiginmanns síns. Hún segist ekki vita almenni- lega hvað heillaði Eggert, eigin- mann hennar „en ætli það hafi ekki verið rauða hárið sem alltaf er brúnt í hans augurn." Hún segir að sambandið hafi vissulega breyst á þeim tólf árum sem þau hafa verið saman, ástin hefur þroskast og orðið jafnari. Þá vonar hún að börn þeirra hjóna: Gunnar Emil, Sigríður Sunneva og lítil óskírð dóttir þeirra, upplifi for- eldra sína sem ástfangin hjón enda lifi þau í sátt og samlyndi. Skyldi hin ástfangna trúa á ást við fyrstu sýn? „Nei, það býr svo miklu meira undir. Útlitið er ekki allt, fólk getur verið fallegt án þess að búa yfir raunvemlegum töfrum." -þor mín Agatha segir það ekki nóg að gefa ungunum að borða þar sem þeir hafi sömu þörf fyrir ást og mannfólkið. DV-mynd Teitur Dýrin eru fjölskylda Agatha Agnarsdóttir er um margt sérstakur kvenmaður. Hún býr með sonum sínum Bjarti, níu ára, og Hlyni, fimm ára, og rúmlega þrjátíu gæludýrum sem mörg hver eru óhefðbundin. „Ég hef alla tíð verið mikil dýrakerling, var í sveit og ég elska dýr. Dýrin era svo traust og þau era ekki eins óút- reiknanleg og menn. Þau eru full ást- ar og sýna hana,“ segir dýravinurinn Agatha. Agatha segir að dýrunum á heimil- inu fari fjölgandi og að það sé meðal annars vegna eldri sonar hennar, Bjarts. Hann er með Asperger- heil- kenni sem er tiltölulega óþekktur sjúkdómur. Veikindi Bjarts gera það að verkum að hann á erfitt með fé- lagsleg samskipti og það er flókin fötl- un að sögn Agöthu. Bjartur hefur sér- tæk áhugamál eins og margir sem með sjúkdóminn greinast og hann er afar hændur að dýrum. „Drengirnir elska líka dýr og raunar allt lífríkið, ég gæti trúað því að hann Bjartur minn yrði skordýrafræðingur eða sjávarlíffræðingur. Um daginn lásum við Einkalíf plantnanna eftir David Attenborough saman rétt eins og bók- in væri skáldsaga." Þegar Agatha ræddi um gæludýrin hljómaði hún líkt og þegar móðir tal- ar um börn sín og þvi kom ekki tU greina að biðja hana um að gefa upp eitt uppáhaldsdýr frekar en að biðja móður um að gera upp á milli barna sinna. En er öðruvísi að elska dýr en menn? „Mér fmnst ekki vera hægt að bera það saman en eftir að hafa búið með dýranum og kynnst þeim hef ég komist að þvi að það er ekkert tU sem heitir skynlaus skepna. Það sem mér finnst dýrin hafa fram yfir menn er að þau eru fordómalaus. Dýrin mín búa i sátt og samlyndi þrátt fyrir að vera mjög ólík, en það er ekki aUtaf þannig með okkur mennina. Dýrin eru fjölskyldan mín, það er ekki bara nóg að gefa þeim að éta því að þau hafa sömu þörf fyrir ást og umhyggju og við. Drengirnir mínir sofa oft með dýrin i rúmum sínum og þar liggja þau vært undir sæng og kodda. Þetta er hálfgert ungbarnauppeldi og þau lita á mig sem mömmu sína.“ -þor

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.