Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1999, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1999, Blaðsíða 26
34 ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚNÍ 1999 ■» ---------------------------------------------------------- Fréttir i> v Trillukarl sem veiddi fisk í mótmælaskyni og var dæmdur fyrir Borga brosandi eða fer hlæjandi í fangelsi - segir Garðar H. Björgvinsson Garðar H. Björgvinsson, 65 ára sjó- maður sem reri í mótmælaskyni og veiddi kvótalaust í fyrra, var dæmdur í 480 þúsund króna sekt til ríkissjóðs í Hæstarétti. Garðar segir að hann muni á næstu vikum kanna mögu- leika á að afla fjárins. Hann segist una glaður við dóm Hæstaréttar sem lækkaði sektina um 200 þúsund krón- ur. í fyrrasumar reri Garðar fimm sinnum frá Hafnarflrði á bát sínum, Rakkatindi HF 193, og lagði upp afla sinn á fiskmarkaði. Fyrir hvern róður hringdi hann í Fiskistofu og lét vita af væntanlegu lögbroti. Svo fór að Garð- ar var ákærður fyrir brot á fiskveiði- löggjöflnni. Garðar segir að hann hafi ánafnað heObrigðiskerfinu tíu af hundraði af aflaverðmætinu í róðrum sínum í fyrra. Inni á sparisjóðsbók í Hvera- V > Vinningshafar leik Krakkaklúbbs DV oq Kjöríee 3 a&lvinningar! ___ Dós með 150 Chupa sleikjóunt-^ sem lita tunguna. Helena Helgadóttir nr. 3039 Pétur H. Sigurðsson nr. 110996 Arnar Þ. Halldórsson nr. 1514620 Aukavinningar: Chupa Chups hylki með blýanti, penna, reglustriku, stækkunargleri, strokleðri og sleikjó. Ragnar H. Sverrisson nr. 14962 Jóhannes B. Jónsson nr. 4811 Freydís Guðjónsdóttir nr. 8754 Margrét Rúnarsdóttir nr. 12960 Kristinn H. Helgason nr. 14725 Ágúst K. Bjömsson nr. 12895 SigríðurÓsk nr. 13615 Lovísa L. Vilhjálmsdóttir nr. 15119 Snorri Gunnarsson nr. 6631 Dagný F. Elvarsdóttir nr. 6225 Björgvin Kristjánsson nr. 15511 Ólafur R. Kristjánsson nr. 7264 Auður S. Allansdóttir nr. 14454 Sólveig D. Jónsdóttir nr. 10057 Stefán Ö. Guðmundss. nr. 12287 Finnur Jónsson nr. 5476 Óðinn Ö. Arnþórsson nr. 9132 Rósmundur Öm nr. 13027 Tómas Freyr nr. 12371 Bárður Hilmarsson nr. 11784 www.kjoris.is Krakkaklúbbur DV og Kjörís óska virmingshöfum til hamingju og bakka öllum -fyrir þátttökuna. rnir verða sendir í pósti nasstu daga. gerði séu 12 þúsund krónur sem heil- brigðisþjónustan getur gengið að. Rekistefna Garðars gegn flskveiði- stjórnunarkerfmu nær aftur til 1996 þegar hann taldi á sér brotið varðandi úreldingu á bát. Styrkur sem veita átti fyrir úreldingu reyndist skatt- skyldur, þrátt fyrir yflrlýsingar um annað. Eftir það hefur útgerð hans sigið hægt og rólega niður á við, hann segist hafa þurft að selja einbýlishús í Hveragerði og sumarbústað líka til að standa í skflum. Garðar hefur sótt mál sitt fast og skrifað ótal blaðagreinar. Hann segist aldrei hafa fengið að hitta Þorstein Pálsson tfl að kynna honum hugmyndir sínar um aflatoppskerfi. Árni Mathiesen, nýi sjávarútvegsráð- herrann, gaf sér aftur á móti tíma til að ræða við Garðar í síma og lýsti yfir áhuga á hugmyndum Garðars. - En getur Garðar borgað sektina á tilsettum tima? „Ég vona það og vinn að því að öngla saman peningum. Annað- hvort borga ég brosandi - eða fer í fangelsið hlæjandi. Takist mér ekki að borga mun ég gefa mig fram til fangelsisvist- ar og fer þangað með lyftingalóðin og boxpokann minn. Ég segi eins og Sverrir Hermannsson að orð skulu standa, ég mun taka út minn dóm en eftir sem áður á ég auðlindina rétt eins og aðrir íslendingar. Baráttu minni er hvergi nærri lokið, kvóta- kerfið er að drepast og stór göt komin á það,“ sagði Garðar Björgvinsson. -JBP Garðar sjómaður Björgvinsson hef- ur haldið úti andófi gegn kvótakerf- inu í meira en þrjú ár. Nú er hann dæmdur maður fyrir að hafa veitt fisk í blóra við lög. Herbert Leon MacDonell flutti fyrirlestur um gildi efnislegra sönnunargagna nú á dögunum. Hann er mjög þekktur í heimalandinu fyrir rannsóknir í afbrotafræði. DV-mynd Hilmar Þór Ríkislögreglustjóri: Fyrirlestur um sönnunargögn í gær hélt embætti ríkislögreglu- stjóra fyrirlestur um gildi efnislegra sönnunargagna. Var það þekktur bandarískur prófessor í afbrota- fræðum, Herbert Leon MacDonell, sem hélt fyrirlesturinn. Fyrirlestur- inn hér á landi var um gildi efnis- legra sannana. MacDonell fjallaði um mikilvægi þess að vel væri stað- ið að söfnun sönnunargagna. Hann þykir mjög virtur á þessu sviði í Bandaríkjunum og hefur verið kall- aður til í 34 fylkjum Bandaríkjanna til þess að vera sérfræðivitni. Hann hefur kennt flestallt sem tengist af- brotafræðum. Fyrsta rannsóknin sem hann stýrði var á árunum 1969-1970 en rannsóknaráætlunin var um flugeinkenni og dreifingu mannablóðs. MacDonell starfaði m.a. í réttarhöldunum yfir O.J. Simpson. Fyrirlesturinn var vel sóttur og voru fundarmenn mjög ánægðir með hann. -EIS FYRSTUR MEÐ FRETTIRNAR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.